Þjóðólfur - 30.01.1888, Qupperneq 2
22
í Dover, og var kastað á hann snjókúlum
á járnbrautarstöðinni í þeirri borg af aptur-
baldsniönnum. — Sunnudaginn 13. nóvem-
ber varbardagi á Trafalgar-Squafe í miðj-
um Lundúnum. Atvinnulausir menn böfðn
baldið svo marga fundi þar, að lögreglu-
stjórinn bannaði öll fundarböld á torginu.
Þennan dag var tilætlað að balda þar póli-
tiskan fund, en lögregluliðið varði torgið.
Eptir langa viðureign var herlið kallað
til. Fjöldi manna voru særðir, en
ekki nema 1 eða 2 til bana. Ekkert
varð af fundinum, og brjef frá Gladstone
sefaði menn. Reynt hef'ur verið að telja
atvinnulausa menn í borginni, og voru
þeir yfir 50,000 í desember. —Nokkrir
dýnamit-menn hafa verið handteknir í Lond-
on og dregnir fyrir lög og dóm. — Frakk-
ar og Englendingar hafa gert samning um
Suozskurðinn, að hann skuli vera öllum
þjóðum jafnheimill og íriðaður í ófriði. Fyr-
ir jóiin kom út í London „Life and letters
of Charles Darwin“ (æfi og brjef Darwin’s),
og þykir það sú merkilegasta bók, sem kom-
ið hefur út á Englandi eða jafnvel í Eur-
ópu í mörg ár.
Forsetakosning Frakka. Eins og
menn muna frá síðustu útlendum frjettum,
var Wilson tengdasonur Grevys sakaður
um. að hafa verið í vitorði með fjárdrætti
Caffarels; þegar fyrir rjettinn kom, voru
lögð fram brjef frá Wilson, en þegar farið
var að gá að, voru þau fölsuð. Nú varð
fjarska mikið uppþot. Rannsókn hafin
gegn Wilson. Ráðaneytinu Rouvier steypt.
Grevy fjekk engan til að vera ráðgjafa, og svo
loksins eptir langa vafninga og vífilengur
sagði hann af sjer nauðugur 2. desember.
Hann hefur verið forseti síðan 1879, og
haft 12 ráðaneyti- á þeim tíma. Parísar-
búar vopnuðust nú til að vera viðbúnir,
ef Ferry, þýskalands vinur, yrði valinn til
forseta, að steypa honum strax. Svo fóru
þingmenn allir og ráðhcrrar til Versitiiles
3. desember, og völdu um kveldið til for-
seta Sadi Carnot með 616 af 833 atkvæð-
um. Carnot, sem hann kallar sig nú, er
sonarson Carnots hins fræga, sem stýrði
hermálum Frakka með svo dæmafárrí snild
1793—94, þegar þeir ráku alla Európu
af höndum sjer. Hann er fimtugur og
mjög vinsæll maður. Tirard, atkvæðalítill
maður er æðsti ráðgjafi hjá lionum. Bou-
langer, sem sat í fangelsi frá 14. október
til 13. nóvember,. lætur nú lítið til sín
heyra. Eptir forsetakosninguna var gert
banatilræði við Ferry. Maður nokkur,
sem nú er á vitláusraspítala, skaut 3 skamm-
byssuskot á hann, en hann varð ekki sár
af. Grevy var sparneytinn og sparsamur
og það átti illa við Parísarbúa. Hinn nýi
forseti horfir ekki í skildinginn. Bæjar-
stjórnin í París, sem er mestmegnis sósíal-
istar og byltingamenn, reyndi að koma
sjer inn á hinn nýja forseta, en tókst það
ekki. Carnot kvað ætla að ferðast um
Frakkland til að festa vinsældir sínar og
þjóðveldisins.
Ný lög- á Þýskalandi. Krónprins.
Lög um viðauka á útgjöldum til hers og
um tolla á kornvöru, voru afgreidd frá
þingi fyrir jólin. Þetta þing er þjált og
auðvelt fyrir Bismas'k. — Krónprins er enn
suður á ítaliu og sagt, að hálsmeinið sje
að batna. Bismark vildi víst helst, að
það drægi hann til bana. Kona Krón-
prins er dóttir Víktoríu og alin upp í
ensku frelsi. Hún og maður liennar mundu
breyta allri stjórnarstefnu í frjálslegra
horf en nú er, þegar Vilhjálmur deyr.
Tollar í Bandafýikjunum. Þing var
sett í Bandfylkjunum i öndverðum desem-
ber. Cleveland forseti sýndi þinginu fram-
á, að tekjurnar fjárhagsárið 30. júní 1887—
30. júní 1888 mundu verða 113 miljón-
um dollara (1 dollara = 3 kr. 73 au.) meiri
en útgjöldin á sama tíma. Eina ráðið til
að afstýra þeim ósköpum, að fje safnaðist
fyrir og væri brúkað í óþarfa, væri að
afnema og lækka ýmsa af hinum háu inn-
fiutningstollum í Bandafylkjunum, til að
fá jafnvægi. Ef þessu verður framgengt,
þá hefur það mikil áhrif á öll vöruverð
og viðskipti manna í milli um allan heim-
inn. Jafnvel heima á Fróni munu menn
finna til breytingarinnar.
Háskólar á Rússlandi, Randolph i
Pjctursborg. í desember var 5 háskólum
á Rússiandi læst og lokað vegna óeyrða.
Stúdentar vilja ekki hlýða boðum og laga-
setningum kennslumálá - ráðgjafans, og
gengur ekki á öðru en ',,pereötum“ (nið-
ur með Delianoff) fyrir honum.
Randolph Churchill gerði sjer ferð fyrir
jólin til Pjetursborgar og hitti Alexander
keisara. Hann er þar enn, og mörgum
getum er.leitt um, hvað hann ætli sjer,
en enginn veit það með vissu nema hann
sjálfur.
Júbilliátíð páf'a. Skiptajii. Flóð í
Kína. Sýningin íHðfn. Veðrátta. Leó
páfi hefur haldið júbilhátíð á nýársmorgun,
í minningu þess, að þann dag voru 50
ár síðan hann komst í kennimannlega
stjett. Hann hefur fengið feiknargjafir
úr öllum áttum, en samlyndið milli hans
og itölsku stjórnarinnar er ekki sem best
núna. — í sundinu milli Frakklands og
Englands rákust tvö skip á 18. desem-
ber. Annað þeirra sökk og drukknuðu
um 120 manns. Hitt komst að landi.
Ytarlegar frjettir um afarmikið flóð í
Kína stóð í Times á fimtudaginn var.
Gula fljótið flóði yfir bakka sína og 1—2
miljónir manna hafa drukknað. Aðrar
áreiðanlegar frjettir segja, að 7 miljónir
manna hafi drukknað, eða sem svarar
því, að allir Norðurlandabúar hefðu farist.—
Rússar ætla að senda margt og mikið á
sýninguna lijer. Það á að verja 15,000
krónum tíl að . auglýsa um sýninguna í
útlendum blöðum.
Það oru hörð frost í Miðevrópu og þok-
ur miklar á Englandi.- í Galisiu í Aust-
urríki urðu 16 manus úti um nýársleitið.
Afríka. Englendingar hafa átt smá-
bardaga við Ósman Digma kring um Sua-
kim við Rauðahafið. Samkvæmt þeirra
eigin frjettum, drápu þeir hann opt í fyrra
og nokkrum sinnum í hittifýrra, en hann
lifir samt enn. — ítalir hafá nú 20—30,000
manns í Massovali og ætla í herforð móti
Abyssiniukonungi, Negus Negesti (= kon-
ungi konunganna), sem hann kallast. Hann
kvað hafa óvígan her til taks á móti þeim
og vera ókvíðinn. — Ekki hefur heyrst
frá Stanley síðan í júní, en. búist Við
frjettum bráðum.
Danir hafa verið að þrefa á þingi
í 3 daga um víggirðingaritar kring
um Höín, og er hcrmálaráðgjafinn hinn
vígmannlegasti. Umræðum er ekki lokið
enn, og málið verður líklega svæft í nefnd
Björnstjerne Björnson hefur farið um
Danmörk og haldið fyrirlestra um hjóna-
band, fjölkvæni og einkvæni. Nú heldur
hann sömu fyrirlestra í Noregi og æltar
að halda þá í Finnlandi.
Prins Óskar, sem er annar elsti sonur
Svíakonungs, trúlofaðist núna fátækri
stúlku af aðalsættum og afsalaði sjer öll-
um rjettindum konungborinna manna til
þess að geta átt hana.
„Fjallkonan" og þurrabúðarmannalögin,
í 36. tölublaði „Fjallkonunnar11.1887, er grein
um „þurrabúðarinannaltígin11 eða „frumvarp til
laga um þurrabúðarmenn“, sem-„Fjallkonan“ kallar
„frumvarp Þorláks11. Af því, að málefni þetta er
í sjálfu sjer eigi litils virði, þar sem það snertir
hin helgustu og nauðsynlegustu rjettindi manna,
atvinnufrelsið, vil jeg fara um það nokkruin orð-
um, og fyrst minnast á greinina í „Fjallkonunni" og
svo á frv. sjálft.