Þjóðólfur - 20.04.1888, Page 1

Þjóðólfur - 20.04.1888, Page 1
Kemur út á föstudags- morgua. Verft árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg. kund- in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XL. árg. ______________Reykjarík, föstudaglnn 20. apríl 1888. Nr. 20. Sigurður Guðmundsson málari. IV. Starfi Sigurðar í Rcykjavík og dauði. Þegar Sigurður var 24 ára, ljet hann, eins og áður er sagt, prenta ritgjörð sína í Nýjum fjelagsntum, en 25 Ara settist hann að hjer í Reykjavík. En fjórum ár- um seinna skriíaði liann „Hugvekju til íslendinga", og þegar Sigurður var rjett þrítugur, var Forngripasafnið stofnað. E»að kemur ekkcrt af sjálfu sjer, og síst hjer á fslandi undir iliri og óþjóðlegri stjórn. Við jarðarför Sigurðar orkti skáldið Steingrímur Thorsteinsson kvæði um hann og líkti honum þar við reynirunn, er hann kveöur svo um: „Á bjargi reynirunn eg sá Rauðgræna limið liefja; Ur klungururð hann óx í þrá Við allt, sem vildi kefja, Og síst þó fengi sólu mót í sannri hæð að skarta, í sannri dýpt hann seigði rót Við sinnar móður hjarta“. Það var margt, sem viidi kcfja á þeim tímum, en Sigurður óx í þrá. Sigurður varð ekki frægur sögumálari, sem allt benti á að liann mundi verða. Ættjarðarást lians og lífið hjer í Rcykjavik beindu huga hans í aðra stefnu. Starfi hans varð þýð- ingarmeiri fyrir ísland en sagnamálvcrk. Forngripasafnið, tilvera þess, vöxtur og viðgangur, var honum að þakka, og ef hann hefði ekki verið á meðal vor, hefð- um vjer nú ekki haldið 25 ára afmæli þess hátíðlegt. Þá var eigi þýðingarlaus slarfi hans til að endurhæta íslenskan kvennbúning. Áður en Sigurður málari endurbætti liann, var hann orðinn herfi- legur, sem hver getur sannfærst um við að lesa ritgjörð hans um kvennbúninga á Islandi. „Það er illt og broslegt, að sjá‘-‘, sagði hann, „þegar menn koma í sveita- kirkju á íslandi og mikið erhaftvið; það er eins og þar sje saman komnar alls’kon- ar þjóðir, og sje sín skepnan af hverri þjóð, er þó þetta einkanlega kvennfólkið; í sömu kirkjunni er kvennfólk með alls konar höfuðbúninga og alls konar fata- snið, svo manni gæti dottið í hug, að mað- ur væri kominn í grímudans. Sumar bera „kappa“, sem þær hafa þreytt hug- vit sitt á að skreyta með alls konar borð- um, beiglum og útklipptum sepum, svo þetta lítur út sem merkilegasta þöngulhöf- uð. Aörar hafa „gjörð“ upp á grænlensku, en aðrar hafa „dyllu“ eða tyllu, með löngu horni aptur af hnakkanum, öldungis upp á tyrknesku. Aðrar hafa liatt á höfði með stóru skygni, sem stendur fram og upp af höfðinu, miklu meira en nokkur hjálm- j gríma með tveimur klóm á kollinum, sem ógna tveim himinsáttum“. Á þessu er nú orðinn hinn mesti mun- ur, og er það ólíkt nú, að koma í sveita- kirkju og áður. En hvílíkt erflði þurfti eigi til að endurbæta búninginn? „Fáir vissu betur en jeg“, segir H. E. Helge- sen í æflágripi Sigurðar, „hve miklum tíma hann varði til þess ár eptir ár, að aðstoða islenskar konur í því, að sauma kvennbúninginn“. Hann var vakinn og sofinn í því, að leiðbeina þeim með upp- dráttum, sniðum og hjálpa gullsmiðunum til að setja „stýl“ á kvennsilfrið. Það er hægt að skoða veru Sigurðar í Khöfn sem undirbúning undir lífsstarf lians. En aðalverk hans var Forngripasafnið og ísl. kvennbúningurinn. En auk þess hafði hann ýmislegt annað fyrir stafni. Áður en Sigurður málari settist að lijer í Reykja- vík, höfðu menn ofurlítið átt við að leilca leikrit hjer í Reykjavík, en þegar Sigurð- ur kom, fjekk þetta nýtt líf. Hann bjó út „lifandi eptirmyndir“ (Tableau) af Hjálm- ari og Örvar-Oddi eptir bardagann við Sámsey. af Helga Hundingsbana og Sig- rúnu, er hún var hjá honum í hauguum, og þótti mönnum mikils um vert. „Voru hvorartveggja myndirnar svo ágætlega ein- kennilegar. að herklæðum og öðrum forn- aldarbúningi, að vart verður nær komist“, segir Jón G-uðmundsson í Þjóðólfi 2. febr. 1860. Um veturinn áður en Sigurður skrifaði „Hugvekju til íslendinga“, voru leiknir bjer í Reykjavík „Útilegumennirn- ir“ eptir sjera Matthías Jochumsson, sem þá var í skóla. Efnið i þeim er, eins og kunnugt er, frá öndverðri 17. öld, og var því ekki á allra færi, að búa allt svo út, að rjett væri bæði að búningum og öðru. En það eru svo margir, sem hafa sjeð, liversu Sigurður bjó leiksviðið snilldarlega út, og málaði tjöldin fagurlega, að vjer skulum ekki tala neitt um það. Sigurð- ur málari var lífið og sálin í ýmsum leikj- um, sem fóru fram hjer í Reykjavík næstu ár. Og það er alkunnugt, hvað hann gjörði sjer mikið far um, að setja „Hellis- mennina“ vel í „scenu“, og það var þeg- ar hann var að mála tjöldin til þeirra, að að hann kenndi þess sjúkleika, sem dró hann til dauða. Sigurður vann miklu meira; hann hjelt áfram til dauðadags að safna til „kultursögu“ íslands úr fornrit- um vorum, og svo segir H. E. Helgesen í „Æfiágripi" hans, að Sigurðurhafi varið til þess miklum tíma hinna síðustu ára sinna. Hann ritaði um húsakynni frá upp- hafi, listaverk, hirslur og tjöld og einnig um vopn fornmanna, hestbúnað og verk- færi til 1400. Enn fremur ritaði hann um búning karlmanna til 1400. Enn frem- ur hafði hann búið fil hannyrða uppdrætti til hins íslenska skautbúnings og undir- búið nokkra til prentunar. Hann orkti skáldleikinn „Smalastúlkuna“ og kvæðið „Aldarhroll“, sem allt, er óprentað, nema nokkuð af uppdráttunum til hins íslenska skautbúnings; enn fremur bjó hann til ýms kort og myndir og ritaði um Þing- völl „Alþingisstað liinn forna“ með mynd- um og korti, og kom sú ritgjörð á prent fjórum árum eptir að hann var dáinn. í niðurlaginu á formálanum segir hann svo: „Jeg liefi ekki ráðist í það. af því að jeg hafi treyst mjer til þess, heldur af liinu, að jeg sá, að það þurfti að gjöra sem fyrst, áður en allt gleymdist, en jeg vissi ekki til, að neinn ætlaði að reyna það í bráð, og er það stór undur og mikill skaði, að það skuli hafa dregist, svo lengi, því allar þessar rannsóknir verða því örðugri og ófullkomnari, sem menn draga þær lengur; en fyrst að hjer er nú ekki orð- ið um auðugri garð að gresja, sem menn þó einungis geta kennt um sínu eigin kæru- leysi og forfeðra sinna, þá verða menn að taka á móti þessari fátæku byrjun, held- ur en engu“. Eru þetta ekki falleg orð af fræðimanni ?

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.