Þjóðólfur - 16.11.1888, Page 2

Þjóðólfur - 16.11.1888, Page 2
210 upp. Það var kallað ððs manns æði að hugsa til pess, er vjer byrjuðum. Nfi stendur það hjer, kost- ar talsvert á 5. þúsund krðna, og er reist af tóm- um samskotum mestmegnis frá tómum fátækum mönnum. Og ekki þurfum við að setja fyrir okkur, að það sje ekkert gagn i litlu, af því þörfin sje svo mik- il. Enginn getur bætt úr öllu böli; en það er engin ástæða til, að bæta ekki úr þvi litla, sem maður nær til og er megnngur. Gætum við skotið saman 500'kr., þá væri vext- irnir af þvi nógir til að halda eitt barn i skóla á ári hverju, og svo koll af kolli fyrir hverjar 500 kr., sem sjððurinn stækkaði. — Þótt ekki yrði nema eitt barn, sem þannig yrði árlega bjargað frá uppfræðingarleysi, þá er það ánægjulegra að vita, að um aldur og æfi verða ávalt einhverjar sálir, sem blessa minning þessa fyrirtækis og þess dags, sem það er stofnað. Jeg veit með vissu, að h. hát. konunginum mundi þykja vænna umaðminn- íng rikisafmælis hans yrði heiðruð á þennan hátt, heldur en þó að við brendum upp þúsundum punda af tólg honum til vegsemdar. En jeg orðlengi ekki um þetta: jeg veit að í hjarta hvers yðar talar drengskaparins rödd þessu máli betur en nokkur orðgnótt getur gert. Þorlákur Ó. Johnson kaupmaður tók siðan til máls og fór mörgum fögrum orðum um, live tillaga Jóns Ólafssonar ætti vel við; hann sagði, að það væru tveir flokkar í bænum, annar vildi upp- ljóma bæinn 15. þ. m., en hinn vildi það ekki; þau ljós, sem þessir umljómunar- menn ætla að kveikja á fimmtudagskveld- ið, lifa skamma stund, og ljómi þeirra gleymist fljótt; en við erum komnir hjer til að kveikja annað ljós, annað æðra ljós, sem mun ljóma og útsenda birtu sína yfir bæinn um aldur og æfi. Að endingu bað hann að skrifa sig fyrir 20 kr. Eptir það fóru fundarmenn að skrifa sig fyrir loforðum til sjóðsins, og feng- ust á fundinum loforð fyrir rúmum 360 kr.* Yar síðan kosin nefnd (Eir. Briem, Guð- laugur Guðmundsson, sjera Hallgrímur Sveinsson, Jón Ólafsson og Þorleifur Jónsson) til að semja skipulagsskrá fyr- ir sjóðinn. I dag verður haldinn annar fundur meðal gefendanna til að sam- þykkja skipulagsskrána. Ríkisstjórnarafmæli konungs. Eptir tilhlutun bæjarstjórnarinnar var dagur- inn í gær hátíðlegur haldinn hjer í bæn- um í minning um, að Kristján níundi hefði setið að völdum í 25 ár. Á hverri stöng í bænum blöktu fánar og umhverf- is Austurvöll voru reistar stengur með fánum; upp yfir dyrunum á þinghúsinu og landshöfðingjahúsinu og víðar sást kóróna, fangamark konungs og ártölin *) Nú inn komnar fullar 500 kr. 1863 og 1888. Frá kl. 6 í gærkveldi var miðbærinn uppljómaður með ljósum og stöku hús annarstaðar. I öllum skól- um í bænum var nemendunum gefið frí í gær. Það er þó eiginlega ekki fyr en í dag, að 25 ár eru liðin, síðan Kristján níundi varð konungur. Að vísu dó fyrirrenn- ari hans, Friðrik sjöundi 15. nóv. 1863, á áliðnum degi, en Kristján níundi tók eigi við konungstign fyr en snemma daginn eptir. Fyrirlestur um lífið í Reykjavík hjelt oand. phil. Gestur Pálsson hjer í bænum 10. þ. m.; talaði hann um menta- stofnanir, flokkaskipting, embættismenn, kaupmenn, námsmenn, iðnaðarmenn, sjó- menn, fjelög, skemmtanir, dansa, greptr- anir, menntalíf o. fl. og lýsti ýmist bein- línis eða óbeinlínis einkum skuggahlið- unum á hverju einu. Fyrirlesturinn var vel sóttur, víst um 200 manns. Pelicail, gufuskip frá Liverpool, kom hingað í fyrra dag og með því G. Thor- dal, sem hafði fengið vörur í skip þetta í Liverpool. Skipið lagði út þaðan 25. f. m., en varð sakir illviðra að snúa þrisvar sinnum aptur, i síðasta skiptið til Skotlands og lá þá í 8 daga í Oban til viðgerðar, því þá var kominn leki í það, og í þvi veðri hafði orðið að kasta nokkru af vörunum útbyrðis. Að síðustu var það eigi nema S1/^ dag frá Oban hingað. Mikið af vörunum er meira og minna skemmt og getur verið að nokk- uð af þeim verði selt við uppboð. Ei>tir nokkra daga á skipið að fara til Isa- fjarðar með salt, koma hingað aptur og fara hjeðan með fje og hesta til Liver- pool. ________ Útlendar frj ettir bárust engar sjerlega merkilegar með gufuskipinu Pelican. Þýskalandskeisari var lieim kominn úr ferð sinni til Ítalíu. í almæli er, að Rússakeisari muni heimsækja liann í Ber- lín á heimleið frá Kaupmannahöfn, þar sem hann ætlaði að vera við ríkisstjórnaraf- mæli Danakonungs. Á Englandi voru mikil fundarhöld út aí írska málinu, áður en þingið kom sam- an snemma í þ. m. og lá Gladstone gamli þar ekki fremur en endrarnær á liði sínu til að mæla með sjálfstjórn írlands. Mál- ið milli blaðsins Times og Parnells stend- ur nú sem hæst og eigi unnt að sjá, hvernig því muni lykta. Rit Mackenzies læknis gegn þýsku læknunum út af banameini Friðriks keis- ara hefir verið gert upptækt á Þýska- landi. A milli Bandaríkjanna og Kínverja er komiu upp þykkja mikil út af banni gegn innflutningi Kínverja til Bandaríkj- anna, enda er banni þessu beitt með mikl- um strangleik og fjöldi Kínverja gerðir apturreka, sem koma vilja til Bandarikj- anna, jafnvel þó að þeir hafi áður verið þar búsettir. Járnbrautarslys varð við Grassano í Ítalíu seint í f. m. og atvikaðist þannig, að skriða fjell á járnbrautarlestina; 22 menn biðu bana, en um 150 meiddust meir og mínna. Harmagrátur apturhaldsmanna. Hinir eyfirsku apturhaldsmenn sögðu í sínu hjarta: „Yor hjörtu angrast og vjer finnum sting í vorum nýrum, þvi vor Gr(óði) lí(jargvættur) í útlöndum er fallinn frá. Sjá! vor nauð er mikil. Mennirnir vilja upp svelgja oss, óvinirn- ir þrengja að oss daglega. Og sjá! þeir eru margir, sem stríða á móti oss. Yort hjarta skelfur og dauðans angist yfirfell- ur oss. Yor sál mun verða sundur mar- in, og hún mun fara eins og veggur, sem hallast, eins og múr, sem niður brot- inn verður. Fordjörfun er úthellt yfir oss. Yjer munum verða upprættir á jörð- inni“. Og sjá! þeir rifu sín klæði og sitt hár og stráðu ösku i sin höfuð, og þeir voru niðurlútir, því þeirra hjörtu angruðust og þeir fundu sting i sínum nýrum. Og sjá! þeir út sendu sína spá- menn og þeir kváðu harmasöngva, því þeirra G(óði) B(jargvættur) í útlöndum er fallin frá. Og sjá þeir settu sína harmasöngva í íslensk blöð. E-yfiráinqur. Auglýsingar. Hvítt gcldillgslaillb hefur mjer verið dreg- ið í haust með mínu rjetta marki: sýlt hægra og fjöður framan, og sýlt vinstra og biti aptan. Með því, að jeg á ekki lamb þetta, er skorað á eigandann að gefa sig fram og semja við mig um rnarkið. p. t. Hafnarfirði, 7. nóv. 1888. Friðrik Eggertsson, frá Hvammi í Vatnsdal. 515 Fjármark mitt er sýlt og lögg apt. vinstra, brennimark: E. J. L. 500 Stóruvatnsleysu í Strandahr., 9. nóv. 1888. Einar Jónsson. 516

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.