Þjóðólfur - 26.07.1889, Page 2

Þjóðólfur - 26.07.1889, Page 2
138 Fátækur en efnilegur frumbýlingur aetti opt hægt með að fá sjer ábyrgðar- menn, sem kunnug bankastjórn tæki gilda og fengið þannig lán til að byrja með búskap, í stað þess að byrja með því, að smeygja sjer í skuldasnöruna hjá kaupmanninum, sem verður optast með timanum hengingaról allra frjálslegra við- skipta. Yæru greinir af bankanum út um landið mundi fijótt margfaldast tala þeirra, sem tæku svona lán, sjer og bankanum til ómetanlegs hags. Það er heldur ekki svo lítil upphæð, sem gengur manna á milli í lánum; ef þeir, sem peninga hafa aflögum, hefðu bankann nær sjer, mundi þeim fljótt lær- ast að meta það, hve miklu það væri vissara að leggja þá í bankann, heldur en lána þá út í misjafna staði, og fá stundum höfuðstólinn seint og illa, en vextina allt of opt aldrei. Yæri greinir af bankanum út um land- ið, mundi peningaveltan verða miklu meiri og eðlilegri. Sá, sem hefði nokk- uð aflögum til að selja, mundi þá sem optast geta fengið strax fyrir það pen- inga, og sá, sem eitthvað þyrfti að kaupa, ætti þá miklum mun hægra með að út- vega sjer það, og þetta er lífsskilyrði allra frjálsra og eðlilega viðskipta. Þingið ætti nú í sumar meðal annars að skora á landsstjórnina að hlutast til um að stofnuð verði útibú fyrir bank- ann á þeim stöðum, sem gjört er ráð fyrir í bankalögunum. Þá fyrst gæti bankinn orðið það, sem hann á að vera, lífœð 'peningastraumsins í landinu. Bankinn á að veita hverjum einum færi á, að geta fengið sem allra fljótast peninga, sem hefur næga trj-ggingu að bjóða fyrir láninu. Hann á að kenna þeim, sem peninga hafa, að koma þeim á óhultan stað, þar sem þeir aukast og margfaldast. Hann á að kenna mönnum og veita mönnum færi á, að fá lán, án þess, að selja allt viðskiptafrelsi sitt. Hann á að hjálpa þeim, sem vilja horga til að geta horgað, ef þeir hafa næga tryggingu til að bjóða fyrir lánum. Hann á að kenna þeim að borga á rjettum gjalddaga, sem geta það, en vilja ekki gjöra það. Hann á að gjöra peninga viðskiptin í landinu fjörugri, eðlilegri og vissari, og bana hinu drepandi þjóðar- meini: óskilunum. I stuttu máli: hann á að vinna þjöðinni gagn hœði í neninga- legu og siðferðislegu tilliti og það er skylda allra góðra. íslandssona, að styðjaað því, að hann nái sem best þessum tilgangi sínum. A 1 þ i n g i. VII. Stjórnarskrármálið. Nefndin (Eir. Briem, Jón Jónsson þm. N.-Þ., Jón Jóns- son þm. N.-M., Páll Briem, Sig. Stefáns- son, Þorleifur Jónsson og Þorv. Kjer- úlf) hefur nú komið með álit sitt. Auk nokkurra orðabreytinga leggur hún til, að breytingar sjeu gjörðar á kosningum til efri deildar og skipun deildanna; ept- ir þeim breytingum eru ákvæðin um þessi atriði þannig: „Á alþingi eiga sæti 36 menn; í fyrsta skipti, sem alþing kemur saman samkvæmt stjórnarskrá þess- ari, taka sæti í því 32 þjóðkjörnir al- þingismenn og 4 alþingismenn er land- stjóri kveður til þingsetu. Alþingi skipt- ist í 2 deildir, efri þingdeild og neðri þingdeild. I efri deildinni sitja 12 þing- menn, en 24 í neðri deildinni. Tölu al- þingismanna og tölu þingmanna i deild- unum má breyta með lögum. Alþingis- menn þeir, er landstjóri kveður til þing- setu, eiga allir sæti í efri deildinni, en hina þingmennina í efri deildina kjósa hinir þjóðkjörnu þingmenn úr sínum flokki . . . Alþingismenn í efri deildinni eiga sæti í deildinni, þangað til þeir eru sjötugir að aldri. Yerði nokkurt sæti laust í efri deildinni, kýs neðri deild með óbundnum kosningum mann úr sín- um flokki í hið lausa sæti“. „Engan má kjósa í autt sæti í efri deild, nema hann hafi setið á tveim reglulegum al- þingum“. Kjörtíminn til neðri deildar á að vera 6 ár, eins og nú er. Framsögumaður er Páll Briem. Fram- hald fyrstu umr. verður á morgun. Þingmannafrumvörp þessi hafa enn við bætst: 52. um að meta til dýrleika býlið Garða í Reykjavíkurkaupstað (J. Jón- assen). 53. um endurreisn Kjalarnesþinga presta- kalls (J. Þórarinsson). 54. um að nema úr lögum 15 rdl. auka- borgun, sem með konungsúrsk. 25. ág. 1853 er lögð á sóknarbændur í Ásmundarstaða- kirkjusókn, til prestsins þar, en að lands- sjóður endurborgi núverandi presti þessa 15 rdl. með 30 kr. á ári (Jón Jónsson þm. N.-Þing.). 55. um breyting á 4. gr. í bankalögun- um (Gr. Thomsen o. fi.). 56. um breýting á lögum um gjald á brennivíni og öðrum áfengum drykkjum. Yínfangatollsfrv. fer fram á, að hækka öltollinn úr 5 aur. upp í 10 aur.; tollur á brennivíni, vínanda og messsuvíni á að vera óbrcyttur, en á öllum öðrum vínum skal hækka tollinn úr 45 a. upp í 60 a. af potti, ef þau eru flutt í stærri en 2 marka ílátum, eða af 3 pelum, ef þau eru flutt í minni ílátum. Rjettindi kaupmanna búsettra á ís- landi. Frv. um það mál var breytt þann- ig í neðri deild, að þeir kaupmenn, sem ekki eru búsettir hjer, mega eigi selja minna af liverri vörutegund í hvert skipti, en fyrir 100 kr. Þetta átti þó eigi að ná til þeirra kaupmanna, sem nú reka versl- un á íslandi. Frv. fellt í gær við 2. umr. í efri deild. Ullarverksmiðja. Frv. fer fram á, að veita úr landssjóði 12000 kr. lán á ári í 10 ár til þess að koma á fót ullarverk- smiðju á Húsavík. Nefnd kosin 20. þ. m.: Jón Jónsson þm. N.-Þ., Þorv. Kjerúlf, G. Halldórsson, Ól. Briem og Jón Þórarinss. Yextir. Frumv. um þá ákveður, að þegar samið er um vexti af peningaláni, en ekki tiltekin upphæð þeirra, þá skuli þeir vera 4°/0 á ári, en frjálst skal vera að taka allt að 6 af hundraði, sem vexti af peningaláni gegn veði í fasteign. — Frv. er komið gegn um n. d. og 1, umr. lokið í efri deildinni. Varnarþing í skuldainálum m. li. Frv. um það mælir svo fyrir, að varn- arþing skuldunauts skuli vera á varnar- þingstað lánardrottins, ef skuldin er stofnuð, þar sem heimilisfang hjerlends lánardrottins er. Sje skuldin stofnuð við fasta verslun, ræður varnarþing þess, sem henni stýrir ; en því að eins gilda þessi ákvæði, að mál út af skuldinni sje tekið fyrir í sumar- eða haustkauptið. Með þvílík skuldamál skal fara sem gesta- rjettarmá). — Nefnd kosin 22. þ. m. í e. d.: Jón Ól., E. Th. Jónassen og L. E. S veinbj ör nsson. Myndugleiki. í frumvarpinu er á- kveðið. að framvegis skuli menn eigi verða hálfmyndugir, en hver karlmaður og ógiptur kvennmaður skuli verða full- myndugur 21 árs. — Frumv. er komið gegn um neðri deild, og 1. umr. lokið í efri deildinni. Þingsályktunartillögur samþykktar. 1. um Spánarsamninginn, sem nefnd var í 32. tbl. 2. Efri deild alþingis skorar á ráðgjafa íslands, að hlutast tii um, að mældur

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.