Þjóðólfur - 04.07.1890, Blaðsíða 3
123
fest bæði hjá slátrurum og sápugjörðar-
fflönnum; þegar þeir aðgreina mörinn,
taka þeir frá það af honum, sem er hæfi-
legt í smjörlíki. í sambandi við sápu-
gjörð er víða einnig búið til smjörlíki og
kerti (stearin-kerti), en tólgin í kertin
þarf eigi að vera eins hrein og tólgin í
smjörlíkið, og í þau má vel nota feiti af
dýrum, sem hafa verið sjúk af ýmsum
sjúkdómum, en aptur á móti verður mör-
inn eða tólgin í smjörlíkið að vera úr
heilbrigðum dýrum og laus við öll sjúk-
dómsefni, svo sem bendilormar og tríkin,
sem eigi drepast, er smjörlíkið er búið til,
þar sem það er eigi hitað meir en til 45
stiga á Celsius. Þess konar sjúkdómsefni
geta opt slæðst í smjörlíkið, nema strang- J
ar varúðarreglur sjeu fyrirskipaðar, þar
sem tilbúningur þess er leyfður, og yfir-
völdin vaki yfir, að þeim sje fylgt.
Það kvað vera hægt að þekkja smjör-
líki og komast nokkurn veginn að því,
hvort smjör er blandað með því. Aðferð-
in er þessi: Bræða skal smjörið og dýfa
tveggja þumlunga löngum bómullarkveik
niður í það meðan það er heitt; þegar
svo kveikurinn er storknaður, skal kveikja
á lionum og láta loga á honum í 2 mín-
útur, en slökkva síðan á honum. Ef það
er smjörliki, kemur þá óþefur alveg eins
og skarreykur af tólgarkerti, en ef það er
lireint smjör, kemur sama lykt, eins og af
steiktu smjöri. Sje ekki nautatólg í því,
dugir þó þetta ekki til að komast eptir
smjörlíkinu.
Próf í heimspeki við prestaskólann
tóku 28. f. m. þessir 5 stúdentar:
Einkunn
1. Sæmundur Eyjólfsson með 1. (ágæti.-Þ)
2. Friðjón Jensson . . ■— 1- (dável -*-)
3. Jón Pálsson ... — 1. (dável -=-)
4. Magnús R. Jónsson — 2. (vel +)
5. Helgi Skúlason . . — 2. (vel).
Einn gat sakir veikinda ekki tekið
prófið.
Embættispróf við læknaskólann hafa
nýlega tekið:
Grísli Pjetursson með i eink. 104 stig
Ólafur Stephensen — III — 58 _
Latínuskólanum var sagt upp 2. p m
Vegna veikinda höfðu 56 piltar eigi getað
lokið við vorprófið; áttu þeir allir eptir
fleiri og færri námsgreinir. Lögðu kenn-
afarnir (nema H. Kr. Friðriksson, sem var
a móti því) það til við stiptsyfirvöldin, að
Piltar þeir í 1.—3. og 5. bekk, sem kenn-
ararnir álitu hæfa til uppflutnings, yrðu
fluttir upp, þótt eigi hefðu þeir lokið prófi
í öllum greinum, en að þeir piltar í nefnd-
um bekkjum, sem efi sje um, hvort flytj-
andi sjeu, og allir piltar í 4. bekk skuli
ljúka prófi í haust. Þetta samþykktu
stiptsyfirvöldin til bráðabirgða upp á vænt-
anlegt samþykki ráðgjafans, sem þau þótt-
ust þurfa að bera þetta mál undir.
Með nýsveinum þeim, sem við hafa
bætst í vor, eru skólapiltar nú alls 83.
Útskrifaðir úr latmuskólanum 2. þ.
m.: Eink. stig.
1. Sæmundur Bjarnhjeðinsson með I 95
2. Helgi Jónsson .... — I 94
3. Einar Pálsson .... — I 90
4. Gunnar Hafstein . . . — I 90
5. Ófeigur Vigfússon . . . — I 90
6. Theodór Jensen . . . — I 85
7. Kristján Kristjánsson . . — I 84
8. Árni Thorsteinsson . . — 11 76
9. Filippus Magnússon . . — II 73
10. Skúli Árnason .... — II 72
11. Sigurður Pálsson . . . — II 69
12. Kjartan Kjartansson . . — II 67
13. Vilhelm Bernhöft . . . — III 54
14. Vilhjálmur Briem . . . — III 51
Vegna veikinda gátu 6 af þeim, sem
áttu að útskrifast, eigi lokið við prófið;
sumir þeirra ætla að ljúka við það í þ. m.,
en einhverjir þeirra að fresta því til
haustsins.
Inntökupróf við latínuskólann fór fram
28. þ. m.; voru 15 nýsveinar teknir inn í
skólann, þar af 1 (Jón Runólfsson frá
Holti á Síðu) í 3. bekk og 1 (Halldór Jóns-
son frá Ármóti) í 2. bekk, hinir í 1. bekk.
Olíumálverk af Jóni Sigurðssyni
heitnum á Gautlöndum, mjög vel vandað,
málað af Cilius Andersen í Khöfn, hefur
hr. kaupmaður Louis Zöllner í Newcastle
gefið til alþingishússins. Myndin er kom-
in hingað og afhent landshöfðingja.
Prestvígsla. Síðasta sunnudag var
prestaskólakandídat Teódór Jónsson vígð-
ur prestur til Bægisárprestakalls.
Mount Park, gufuskip L. Zöllners í
Newcastle kom hingað 29. f. m. norðan
og vestan um land og með því L. Zöllner
sjálfur. Það fór aptur hjeðan til Eng-
lands í gær með 434 hross.
Skemmtiskip enskt, Minerva, kom
hingað frá Englandi 30. f. m. og eigand-
inn með því, enskur auðmaður, að nafni
Aston; hann og samferðamenn hans tveir
fóru til Geysis 1. þ. m.
Synodus var haldin 30. f. m. Sjera
0. V. Gíslason prjedikaði. Auk stiptsyfir-
valdanna voru þar 15 prófastar og prest-
ar. — Úthlutað var til 23 uppgjafapresta
og 75 prestaekkna fje, sem veitt er til
þess úr landssjóði með fjárlögunum 13. gr.
A b 6, að upphæð 3000 kr., 500 kr. af
rentum Prestaekknasjóðsins og 81 kr. 40 a.
rentum af sjóði af árgjöldum brauða. —
Prestaekknasjóðurinn átti við lok f. á.
18148 kr. 15 a., og var samþykkt að leggia
síðla á þessu ári sjóðinn að mestu eða
öllu leyti í Söfnunarsjóðinn. — Rætt var
um, að prófastar og prestar styddu eptir
megni að því, að hjeraðsfundir og sóknar-
nefndarfundir gætu orðið að sem mestu
gagni og nauðsynlegt væri að koma á fót
kirkjulegu tímariti, án þess þó að nokkur
ákvörðun væri tekin því til f'ramkvæmd-
ar. — Biskup lagdi fram ávarp frá fram-
kvæmdarstjórn Good-Templarareglunnar 0g
beiðni til fundarins um að styðja bindindi,
og var biskupi falið að svara því og láta
í Ijósi viðurkenningu frá fundinum fyrir
störf reglunnar og fúsleika til samtaka
við hana í eflingu bindindisins.
Kennarafjelagið hjelt ársfund sinn lijer
í bænum 2. þ. m. og mættu þar fáir fje-
lagsmenn, mest vegna veikindanna. For-
seti skýrði frá efnahag og framkvæmdum
fjeiagsins síðan í fyrra. Samþykkt var
breyting sú á 1. gr. fjelagslaganna, sem
borin var upp á aðalfundi í fyrra.
Hrossamarkaðir hafa verið haldnir í
| nærsýslunum nú nýlega af Coghill og Jóni
í Vídalín eða mönnum frá þeim. Verðið á
! hrossunum hefur verið frá 35 til 70 kr.
Jón Vídalín hefur tekíð tvævetur tryppi
en Coghill þrevetur yngst.
Gufuskip Slimons, Magnetic, kom
hingað aptur í nótt frá Skotlandi; á að
fara hjeðan annað kveld til Skotlands með
hross. Auk þess á það að fara 4 ferðir
milli Skotlands og íslands í sumar; á að
koma hingað frá Skotlandi 16. og 30. þ.
m., 11. og 23. ágúst, og fara hjeðan 16.
—17. og 30. þ. m., 11.—13. og 23.-25.
ágúst.
Strandferðaskipið Laura fór hjeðan í
gærmorgun vestur og norður um land á-
leiðis til Khafnar og með því fjöldi far-
þega, þar á meðal biskup Hallgrímur
Sveinsson í vísitasíuferð austur í Múla-
sýslur, skólapiltar, kaupafólk og ýmsir
aðrir.
Inflúenzan hafði komið á Húsavík seint
í maí með verslunarskipi. Um síðustu
helgi var hún að breiðast út um Eyja-
fjörð, og á Vestfirði er hún komin. Hjer
syðra er hún nú að breiðast út um Mýra-