Þjóðólfur


Þjóðólfur - 19.12.1890, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 19.12.1890, Qupperneq 1
Kemur tit á föstudög- um — Verð árg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg, bundin viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. XLII. árg. Reykjayík, föstudaginn 19. desember 1890. Nr. 59. Landsbúskapurinn Og lántaka landssjóðs. II. í síðasta blaði gátum vjer þess, að farið væri að brydda á þeirri skoðun, að heppi- legast væri að hverfa frá þeirri fjármála- politík, að eyða ekki öllu, sem aflað er, sem hingað til hefur fylgt verið síðan ís- lendingar fóru að eiga með sig sjálflr, en í þess stað láta landssjóð taka lán, til þess að koma fram nauðsynjafyrirtækjum landsins. Það er Þjóðviljinn, sem komið hefur fram ■ með þessa miklu fjárhagslegu speki. Það litur út fyrir, að þetta sje brennandi spursmál hjá Þjóðviljanum, því að hann hefur hreyft þessu optar en einu sinni og skorar á þingmenn og aðra að íhuga þetta mál. Það er auðvítað ekkert á móti því, að íhuga það og ræða, eins og hverjar aðrar tillögur, sem fram koma. Þjóðviljinn leggur það til, að landið taki „tveggja milljóna króna lán til byrj- unar“, og ætlast því auðsjáanlega til, að meira lán sje tekið, er fram líða stundir. Auðvitað á þá einnig að eyða öllum þeim forða, sem nú er til, því að undarlegt væri að taka lán, meðan talsvert fje er fyrirliggjandi. Sömuleiðis yrði þá einnig eytt öllum tekjum árlega. Þegar svo tekjur landsins rýrnuðu, vegna harðæris t. a. m., yrði annaðhvort að leggja nýja skatta á þjóðina eða taka nýtt lán, til að standast óumflýjanleg útgjöld landsins; öll líkindi til, að heldur yrði tek- 1 lánið en lagðir á nýir skattar, því að monnum mundi finnast það þægilegra. anta an mundi kenna mönnum, á sinn máta eins og hallærislánin hafa gert að koma sjer undan að leggja fram það fje, sem þeir að rjettu lagi ættu að greiða) en færa borgun þeirra útgjalda fram á ókom- inn tíma, yfir á eptirkomendurna. Það mundi margur hugsa sem svo, ef leggja þyrfti nýjar álögur á landsmenn: Nei við erum alls ekki færir um að borga nýja skatta ofan á allt annað; það er iangbest að láta landið taka lán. Með fressu móti gæti lántakan orðið til þess, að menn eigi að eins losuðu sig í bráðina við nýjar skattálögur, heldur gæti það jafn- vel komið fyrir, að menn ljettu af sjer meiru eða minnu af þeim sköttum, sem þegar væru komnir á. Ein lántakan gæti boðið annari heim og landið gæti smám- saman sokkið í skuldasúpu, sem það sæi seint úr úr. Auðvitað ætlast þeir, sem vilja taka lán, eigi til, að svona fari. En hvað má eigi imynda sjer af hallærislánunum? Hafa þau ekki verið tekin, til þess að þeir, sem betur mega, komist hjá, að greiða óumflýjanleg útgjöld, og til þess að kasta þeirri útgjaldabyrði á eptirkomendurna? Þegar menn liafa eigi kynokað sjer við að taka hallærislánin, sem þegar hafa verið uppetin, hversu miklu hættara væri þá ekki við, að menn mundu leiðast til að láta landssjóð taka óspart lán, þar sem slíkt mætti gera undir því yfirskini, að styrkja eða koma á fót framfarafyrirtækj- um landsins? En hvað sem svo segja má um þetta, þá er þó það víst, að af láninu þyrfti að borga stórfje í rentur og að einhvern tíma kemur að skuldadögunum, einhvern tíma þarf að borga lánið eða lánin aptur og það verða eptirkomendurnir að gera; á þá verður þá að leggja nýja skatta og nýjar álönur, til þess að borga með lánin, en að safna þannig skuldum á herðar eptirkom- endanna, teljum vjer í mesta máta rang- látt gagnvart þeim; óvíst er, að þeir verði að nokkru leyti færari til þess að borga skuldirnar, en forfeður þeirra, er skuld- unum söfnuðu. Þjóðviljinn getur þess, að einstakir menn taki opt lán til einhverra fyrirtækja, er þeir telja arðsöm fyrir sig. En það má ekki gleyma því, að ef fyrirtæki þeirra misheppnast og þeir steypa sjer í skulda- súpu, sem þeir sjá aldrei út úr, þá eru erfingjar þeirra ekki skyldugir til þess að borga þær skuldir, sem arfleifandi á ekki fyrir. Erfingjarnir eru með lögum vernd- aðir gegn því ranglæti, að þurfa að borga skuldir arfleifanda, sem eigi er hægt að borga með eptirlátnum fjármunum hans, svo að það er ólíku saman að jafna, lán- um einstakra manna og ríkislánum, að þessu leyti. En nú á ekki að verja láninu til neins óþarfa, segja menn, heldur til að koma á á fót ýmsum nauðsynjafyrirtækjum í land- inu. Menn hugsa sem svo, að fyrirtæki þessi verði svo arðsöm, að þau annaðhvort beinlínis borgi það, sem til þeirra er var- ið, eða þá auki gjaldþol eptirkomendanna, svo að sknldalúkningin verði þeim ekki tilflnnanleg. Ef trygging væri fyrir þessu, skyldum vjer ekki vera eins mikið á móti lántökunni. En hvar er trygging fyrir því? Vjer rnegum ekki gleyma því, að íslend- ingar eru enn frumbýlingar og mjög skipt- ar skoðanir á sumum framfarafyrirtækjum vorum. Meðan svo er, virðist rjettast að vera ekki of bráðlátur, hugsa sjer ekki, að koma öllu af í einu, þótt nauðsynja- verk sje í sjáfu sjer, því að seinna getur sjest, að betra hefði verið að haga verk- inu á annan hátt, og jafnvel að betra hefði verið að láta verkið óunnið. Vjer skulum skýra þetta með dæmi. Allir munu vera á þeirri skoðun, að eitt af því, sem mest á ríður fyrir þetta land, er að bæta samgöngurnar, þar á meðal bæta vegina. Þessa skoðun höfðu menn þegar á fyrstu búskaparárum landsins og lögðu nokkurt fje til vegagjörða. Setjum nú, að þá hefði þegar verið tekið svo sem 1—2 milljóna króna lán og því varið eingöngu til vegagjörða. Hvílíkan veg hefðu svo íslendingar fengið? Veg eins og Svína- hraunsveginn og Kambaveginn hans Eiríks í Grjóta, eða hvað hann nú hjet vegmeist- arinn sá, þ. e. veg, sem verri var en þótt enginn vegur hefði lagður verið, sumpart að því er snerti vegstæðið, sumpart og einkum af því, hvernig hann var gerður. Öllu láninu hefði þá verið, eins og fleygt í sjóinn. Á líkan hátt getur farið um ýms ný fyrirtæki, þótt þau sjeu í sjálfu sjer nauðsynleg. Það getur vel komið fyrir, að menn byrji öfugt á fyrirtækinu, en læri síðar af reynslunni, hvernig hefði átt að liaga því, og þá er gott að vera ekki búinn að verja ógrynni íjár til þess. Ef á aunað borð væri farið að taka lán, mundi þykja .sjálfsagt að verja allmiklu af því til að auka menntun þjóðarinnar, en í fáum málum hafa skoðanir manna verið jafnsundurleitar sem í menntamálum landsins. Gætí því auðveldlega orðið ofan

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.