Þjóðólfur - 19.12.1890, Page 2
234
á sú aðferð, sem alls ekki væri heppileg-
ust, til að koma þessu nauðsynjamáli í
rjett horf.
Ekki minni vandi virðist vera með inn-
lendar iðnaðarverksmiðjur, sem er eitt af
því, er Þjóðviljinn vill koma á fót með
lánunum; það sýna umræðurnar um ullar-
verksmiðjurnar á síðasta þingi. Það sýn-
ir og þessi kafli úr brjefi (dags. 18. ágúst
1889), sem vjer fengum frá merkum manni
rjett eptir síðasta þing: „Ullarverksmiðj-
urnar álít jeg byggðar upp í skýjunum.
Ef við íslendingar værum stórríkir og
vildum verja fje okkar í ullarverksmiðjur,
til að vinna alla íslenska ull, þá mundum
vjer setja þær á stofn í Bretlandi, til þess
að vera sem næst heimsmarkaðinum með
dúkana okkar. En það, sem er óráðlegt
fyrir einstaklinginn, er óráðlegt fyrir þjóð-
fjelagið, af því að þetta mundi bæta lítið
eða ekkert úr atvinnuskortinum í landinu.
Það er að minnsta kosti margt annað
mikið betur fallið til þess“.
Svoría mætti nefna ýms fleiri fyrirtæki,
sem menn hafa enn mjög ófullkomna þekk-
ingu á eða vita mjög svo óljóst, hvernig
haga skuli, svo að vel megi við una.
Meðan svo er, virðist það óðs manns æði
að ætla sjer að verja til þess konár fyrir-
tækja mörgum hundruðum þúsunda eða
jafnvel milljónum króna, sem eptirkom-
endurnir verða að borga, hvernig sem fer.
Rjettara sýnist að reyna heldur fyrir sjer
í smærri stýl og láta reynsluna fræða oss
og skera úr ágreiningsatriðunum, með öðr-
um orðum halda heldur, fyrst um sinn að
minnsta kosti, líkri stefnu og hingað til
hefur fylgt verið í fjármálum landsins.
Hins vegar ættum vjer eigi að vera spar-
ir á fje til að styrkja menn til að afla
sjer þeirrar þekkingar, sem þarf til að
geta gert áætlanir um nauðsynjafyrirtæki
landsins, sagt, hvernig þeim yrði best hag-
að, og staðið fyrir þeim. (Niðurl. næst).
Um Eyrarbakkakirkju og vígslu henn-
ar er oss skrifað af Eyrarbakka 14. þ. m.:
„í dag vígð af biskupi Hallgr. Sveinssyni
hin nýja kirkja hjer, mikið sómasamlegt
guðshús. Viðstaddir við hátíðarhaldið 5
prestar, er allir tóku einhvern þátt í því,
að gera það veglegt. Söknuður var að
því, að prestur safnaðarins hjer, sjera Jón
Björnsson, er mest einstakra manna hefir
barist fyrir kirkjubyggingu þessari, gat
ekki verið staddur við vígslu-athöfn þessa,
sökum sjúkleika. Fjöldi fólks var við-
staddur bæði að sjálfum Eyrarbakka og úr
nálægum sóknum, þar sem alstaðar varð
messufall; voru talin út úr kirkjunni um
600 manna, en nokkrir höfðu orðið frá að
hverfa sökum þrengsla. Eins og kirkja
þessi er prýði fyrir Eyrarb., eins er hún
og söfnuðinum og forgöngumönnum bygg-
ingar hennar til sóma; en þó að mikið
hafi gefist til hennar — hún hefur verið
reist fyrir samskot tóm og lán —, þá vant-
ar hana mikið enn þá til að geta fengið
það, er nauðsynlega þykir til heyra: hún
er öll ómáluð, vantar orgel og altaristöflu
og allan skrúða m. fl. og er nú í 2000 kr.
skuld. Hún hefur sem stendur grafreit á
Stokkseyri — um 1 mílu vegar burt
enda á að hafa sameiginlegan sjóð með
Stokkseyrarkirkju, sem er nýbyggð, en
stórskuldug; margir sóknarmenn vilja nú
skipta sókninni í tvennt milli kirknanna,
eignum, tekjum, skuldum o. s. frv.“
Frá Eyrarbakka enn fremur skrifað
14. þ. m.: „Byrjað er að hlaða varnar-
garð fyrir sjávarágangi á Stokkseyri,
mesta þarfa fyrirtæki; hann mun eiga að
verða 6 álnir á breidd að neðan, grafinn
niður í sandinn sjávarmegin um 2 áln. og
víst 5 álna hár þar fyrir ofan“.
Aflabrögð. í Garðsjó góður afli nú um
tíma; sömuleiðis allgóður afli allt tilþessa
tíma á inumiðum Faxaflóa.
Aflalaust í f. m. við ísafjarðardjúp og
undir jökli, sömul. aflalítið af fiski á Eyja-
firði, en síldarafli talsverður þar innanvert
á firðinum.
Tíðarfar er enn óstöðugt, snjóar stund-
um annan daginn og rignir hinn. Líkt
tíðarfar að frjetta víðast af landinu, en
frostvægt og hagar víðast nógir.
Bráðapfest hefur drepið margt fje sum-
staðar í nálægum hjeruðum, einkum Kjós,
Hreppum og sumstaðar í Rangárvalla-
sýslu, sumstaðar 60 kindur og jafnvel
fleiri á bæ. Er illt að hafa engin ráð til
að stöðva þennan voðagest, sem gerir stór-
tjón árlega hjer á landi.
Úr Húnavatnssýslu er skrifað: „Sauð-
fje víða mjög kvillasamt og drepst jafnvel
svo tugum skiptir sumstaðar úr bráða-
pest, lungnabólgu o. fl.“
Kíghósti og kvefveikindi ganga víða
norðanlands og vestan, og deyja sumstað-
allmargir, einkum börn og gamalmenni.
Þannig er oss skrifað
Úr Eyjafiröi 22. f. m.: „Heilsufar slæmt, al-
menn kvefvesöld og allvíða stungið sjer niður
lungnabólga; sjerstaklega hefur verið mjög mikil
óhreysti í börnum í haust og þau dáið allvíða11.
Úr Skagafirði 1. des.: „Veikindi eru hjer mikil,
einkum á börnum og gamalmennum. Manndauði
ákafur; þannig hafa t. d. dáið í nóv. 10 menn,
börn og gamahnenni, í Keynistaðarprestakalli, sem
hefur um ð1/., hundrað íbúa“.
Úr Húnavatnssýslu 29 nóv.: „Allmikil kvefsótt
er að breiðast hjer út, af sumum kölluð kíghósti;
hún leggst þungt á börn og jafnvel á suma full-
orðna; til þessa hefur hún ekki drepið marga,
enda er hún nýgengin í garð og ekki gengin
sumstaðar11.
; Úr Barðastrandarsýslu (Tálknaf.) 17. nóv.: „Hjer
er versta kvefsótt á gangi, líklega önnur umferð
af inflúensu11.
Slysfarir. Bátur fórst seint í f. m. á
ísafjarðardjúpi, og drukknuðu 3 menn,
Jón Halldórsson á Hallsstöðum á Langa-
dalsströnd, sonur hans og vinnumaður.
Um miðjan f. m. drukknaði maður, rúml.
tvítugur að aldri, nálægt Garði í Aðaldal
í Þingeyjarsýslu „í hlaupi úr Laxá“.
Kvennmaður varð úti í Álptafirði fyrir
vestan í f. m.
Námsmeyjar á kvennaskólanum á
Ytriey. Eptir stafrófsröð: í. Anna Magn-
úsdóttir frá Öndverðarnesi í Árnessýslu. — 2. Anna
Teitsdóttir frá ísafirði. — 3. Álfheiður Guðjóns-
dóttir frá Goðdölum í Skagafjarðarsýslu. — 4. Björg
Sigfúsdóttir frá Skriðuklaustri í Norðurmúlasýslu. —
5. Dómhildur Briem frá Búlandsnesi i Suðurmúla-
sýslu. — 6. Blísabet Steinsdóttir frá Brúnavik i
Norðurmúlasýslu. — 7. Briðborg Friðriksdóttir frá
Hvammi i Dalasýslu. — 8. Guðbjörg Eggertsdðttir
frá Vatnahverfi i Húnavatnssýslu. — 9. Guðriður
Hóseasdóttir frá Höskuldsstöðum í Suðurmúlasýslu.
— 10. Guðrún Jónsdóttir frá Fjallseli í Norður-
múlasýslu. — 11. Guðrún Þorsteinsdóttir frá Álf-
geirsvöllum í Skagafjarðarsýslu. — 12. Hildur Sig-
urðardóttir frá Auðkúlu í Húnavatnssýslu. — 13.
Hildur Sveinsdóttir frá Geitaskarði í Húnavatns-
sýslu. — 14. Hólmríður Eiuarsdóttir frá Kjapteyri
i Suðurmúlasýslu. — 15. Hólmfríður Jóhannsdóttir
frá Vindheimum i Skagafjarðarsýslu. — 16. Ingi-
björg Eggertsdóttir frá Vatnahverfi í Húnavatns-
Býslu. — 17. Ingibjörg Hóseasdótt.ir frá Höskulds-
stöðum i Suðurmúlasýslu. — 18. Ingibjörg Jóhann-
esardóttir frá Höskuldsstöðum í Dalasýslu. — 19.
Ingveldur Gisladóttir frá Múla i Suðurmúlasýslu.
___ 20. Ingveldur Sæmundsdóttir frá Borgargerði í
Suðurmúlasýslu. — 21. Jóhanna Jóbannesdóttir frá
Vopnafirði í Norðurmúlasýslu. — 22. Ketilriður
Einarsdóttir frá Tannstaðabakka i Húnavatnssýslu.
— 23. Kristin Stephenscn frá Mosfelli í Árnessýslu.
— 24. Kristjana Kristjánsdóttir frá Gunnarsstöð-
um í Dalasýslu. — 25. Lilja Davíðsdóttir frá Kötlu-
söðum i Húnavatnssýslu. — 26. Kagnheiður Egg-
ertsdóttir frá Kleifum í Dalasýslu. — 27. Kagn-
heiður Guðjónsdóttir frá Goðdölum í Skagafjarðar-
sýslu. — 28. Sigríður Beck frá Sómastöðum í Suð-
urmúlasýslu. — 29. Sigriður Guðmundsdóttir frá
Arnkelsgerði í Suðurmúlasýslu. — 30. Sigurrós Ein-
arsdóttir frá Fossi í Barðastrandarsýslu. — 31.
Soffía Ólafsdóttir frá Guðrúnarstöðum í Húnavatns-
sýslu. — 32. Steffanía Guðmundsdóttir frá Djúpa-
vog í Suðurmúlasýslu. — 33. Steinunn Bjarnadóttir
frá Dórormstungu í Húnavatnssýslu. — 34. Steff-
anía Jónsdóttir frá Vopnafirði i Norðurmúlasýslu.
— 35. Steffanía Stephensen frá Mosfelli i Árnes-
sýslu. — 36. Valgerður Steinsen frá Hjarðarholti i