Þjóðólfur - 02.01.1891, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 02.01.1891, Blaðsíða 1
Kemur út á föstudög- um — Verð árg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg, bundin við iramót, ógild nema komi til útgefanda íyrir 1. október. XLIII. árg. íteykjayík, föstudagiim 2. janúar 1891. Nr. 1. Allir kaupendur Þjóðólfs fá jietta ár ókeypis og kostnaðarlaust sent bókmenntasögu íslands (fyrri part), eptir háskólakennara, dr. Finn J'onsson. Bók þessi verður ekki til sölu, og geta því engir eignast hana, nema kaupendur Þjóðólfs. Fyrri parturinn, sem fylgir þess- um árgangi, verður 5—6 arkir að stærð, verður prentaður seint í vetur og sendur til kaupenda blaðsins, líklega með fyrsta strandferðaskipi og póstum um sama leyti. Þingmál aö sumri. Það eru sannarlega engin störf í þarfir landsins, sem eru jafnmikilsverð og víðtæk, sem störf alþingis, með því að það setur lög um svo mörg málefni lands vors, at- vinnuvegi vora til lands og sjávar, versl- un og siglingar, samgöngur og póstgöng- ur, kirkjumál og menntamál, sveita- og fátækramál, heilbrigðismál, skatta og tolla, veitir fje til launa og framfarafyrirtækja landsins, getur tekið í taumana, ef eitthvað fer aflaga í stjórn eða embættisrekstri embættis- manna og gerir að öðru leyti margs konar ályktanir og ráðstafanir til framfara í landinu. Framfarir landsins eru að mörgu leyti undir því komnar, hvernig þinginu tekst að leysa störf sín af liendi og verk þess geta að einhverju leyti náð til allra landsmanna, í hverri stöðu sem þeir eru, hvort sem þeir eru háir eða lágir, emhætt- ismenn eða bændur, sveitamenn eða sjávar- fólk eða kaupstaðarborgarar, ríkir eða fá- tækir, ungir eða gamlir. Þar sem nú störf þingsins eru svo mik- ilsverð og víðtæk, ætti það að vera mesta áhugamál hvers íslendings, sem eitthvað hugsar um velferð landsins, að störf þings- ins verði jafnan sem best af hendi leyst og stuðla að því eptir því sem hver hefur færi og hæfileika til. En því miður vant- ar mikið á, að áliugi manna í þessu efni sje svo heitur sem skyldi. Milli þinga er eins og þingmálin sofni hjá öllum almenn- ingi, sárfáir gera nokkuð til að undirbúa málin til næsta þings á eptir, allt of lítið er rætt og ritað um málin xnilli þinga; alþingismenn láta enda sjálfir lítið til sín heyra, og allt of fáir af þeim rita um þau svo mikið sem eina blaðagrein. En þegar á þing er komið, hrúgast málin hóp- um saman inn á þingið, sum að vísu nokkuð undirbúin frá fyrri þingum eða af flutningsmönnum sjálfum, en einnig ýms ný mál, sem alls ekki hefur verið hreyft opinberlega áður og ekkert ritað um. Vegna málafjöldans er heldur ekki tími til að ræða eða hugsa málin svo vel á þinginu sem skyldi, svo að það er ekki að undra, þótt gallar verði á sumu, og enda allra mesta furða, að þeir skuli ekki vera fleiri en eru. Til þess að ráða bót á þessu, er hin mesta nauðsyn, að meira sje ritað um þingmálin á milli þinga en gert er. Al- þingismenn sjálfir ættu þar að ganga í broddi fylkingar og skrifa nm þau mál, sem líklegt er að komi fyrir á næsta þingi. Þeir, sem ætla sjer síðar að verða alþingismenn, ættu einnig að gera það; það er vel til fallið, að skoðanir þeirra verði ahnenningi kunnar áður en þeir verða þingmenn, auk þess sem málin sjálf geta haft gott af því. Ymsir fleiri ættu og að leggja orð í belg. Þingmálafundir eru einnig mjög nauðsynlegir; þeir hafa á síðari árum farið nokkuð fjölgandi, en ættu að verða enn tíðari; að minnsta kosti ætti að halda þingmálafund í hverju kjör- dæmi á undan hverju þingi, og ef vel væri á eptir hverju þingi, eins og leið- ir voru haldnar í fornöld, til þess að skýra frá málum þeim, sem þingið hefur haft til meðferðar. í ár er þingár og í sumar á að halda þing; það er langur tími þangað til; þennan tíma ættu menn að nota til að rita í blöðin um þau mál, sem líklegt er að komi fyrir á næsta þingi; að minnsta kosti ættu þingmenn að rita um þau ný mál, sem þingið hefur ekki áður liaft til meðferðar og þeir ætla að bera upp á næsta þingi, einkum ef það eru stór mál og vandasöm. Áriö 1890, sem kvaddi oss í fyrri nótt, var hvergi nærri eins gott og árið næst á undan, þótt eigi verði annað sagt en það væri gott ár að öllu samtöldu, til landsins að minnsta kosti. Fyrst eptir ársbyrjun voru reyndar víð- ast jarðbönn og liörð veðrátta, en um mið- þorra gerði góða hláku um land allt, svo að víðast komu upp hagar; úr því var veturinn góður, svo að skepnuhöld urðu góð um vorið og heyfyrningar miklar víða. Yorið var ágætt, grasvöxtur á túnum með betra möti, en á útengi í meðallagi, nýt- ing á heyjum fremur góð til september- byrjunar; en þá brá til fjarskalegra óþurka, sem stóðu það sem eptir var sumars og fram á vetur; urðu því víða úti hey, eink- um á suðurlandi, Heyskapur varð sökum þessa rýrari en ella mundi verið hafa. Það sem af er þessum vetri, hefur tíð verið óstöðug, rigninga- og umhleypinga- söm, og margt fje drepist úr bráðapest sunnanlands. Hagar nú víðast góðir. Til sjávarins áraði öllu lakara en til landsins. Vetrarvertíðin var fremur rýr við Faxaflóa í fyrra; öllu betri var hún í veiðistöðum Árnessýslu; vestanlands frem- ur góð. Vorvertíð fremur rýr vestanlands og sunnan. Á Austfjörðum sumarafli víða í betra lagi og ágætur sumstaðar, t. d. á Vopnafirði. Haustvertíð var sunnanlands við innanverðan Faxaflóa og fyrir vestan með langrýrasta móti. Hagur sjávarmanna stendur því eigi sem best sumstaðar. Verslun var fremur hagstæð, verð á út- lendum nauðsynjavörum eigi mjög hátt og innlendar vörur í viðunandi verði, nema æðardúnn, sem var 9—10 kr. pd. Fje í haust í afarháu verði og flutt af því lif- andi til Englands meira en nokkru sinni áður, á að geta um 75,000, Kaupfjelögin efldust enn nokkuð árið sem leið, og sú verslunaraðferð allt af meira og meira að ryðja sjer til rúms. í landsstjórnar- og löggjafarmálum gerð- ist lítið sögulegt. 27 lög frá síðasta þingi öðluðust staðfestingu konungs, en einnm lögum var synjað staðfestingar. Tveir þingmenn lögðu niður þingmennsku (Þor- steinn Jónsson lijeraðslæknir og Jón Ólafs- son) og einn þingmaður dó (sjera Jakob Guðmundsson). Voru þingmenn kosnir í þeirra stað og auk þess einn þingmaður í Eyjafirði. Eru þeir allir nýir og óreyndir sem þingmenn. Af framkvæmdum til landsþarfa eða framfarafyrirtækjum á gamla árinu er lít-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.