Þjóðólfur - 23.01.1891, Side 2
14
hefur verið gerður hvert árið, eitt árið á
þessum stað, hitt árið á öðrum stað. Þessi
skipting er mjög ópeppileg; notin verða svo
lítil að þessum vegspottum, sem unnið er
að hjer og hvar; stefnuleysi og ósam-
kvæmni kemur fram í verkinu, vegagjörð-
in verður miklu dýrari en ella, því að
flutningur á verkíærum fram og aptur og
öllu, sem til verksins heyrir, kostar ótrú-
lega mikið, þar sem allt verður að flytja
á hestum, en engu verður ekið á vögnum.
Ef aptur á móti væri haldið áfram sama
veginum ár eptir ár, hyrfi þvi nær allur
þessi flutningskostnaður. Þegar áhöldin
hafa einu sinni verið flutt þangað, færi
flutningurinu úr því fram jafnframt því,
sem verkið væri unnið. Það er því mín
skoðun, að halda ætti áfram sama vegin-
um ár eptir ár, þangað til hann er búinn.
Þetta ætti að geta orðið að minnsta kosti
moð tvo aðalvegi í senn. En auk þess
ætti þá að gera vegspotta hingað og þang-
að, þar sem mest á liggur.
Að lialda þannig áfram tveim aðalveg-
um samfleytt ár eptir ár, er þó auðvitað ekki
mögulegt, nema þingið veiti meira fje tii
vegagjörða, en það hefur hingað til gert,
en það ætti þingið að geta, er nýju toll-
arnir eru farnir að hafa áhrif á fjárliag-
inn. Það eru sjerstaklega tveir aðalvegir,
sem að mínu áliti ættu helst að sitja fyr-
ir, fyrst áframhaldið af Svínahraunsvegin-
um austur fyrir Hellisheiði, sem nauðsyn-
legt væri að lijeldi áfram, til að setja
austursýslurnar í samband við Eeykjavík
og sjávarsveitirnar fram með Faxaflóa.
Þessi vegur er víst einhver fjölfarnasti
vegur á landinu, þar sem að honum liggja
3 sýslur, sem mjög lítið geta notað sjó-
leiðina sökum hafnaleysis.
Hinn vegurinn er norður-póstleiðin,
sem ekki væri vanþörf á þótt eitthvað
væri gjört við.
Það er því mín tillaga, að næsta þing
veiti 60—70,000 kr. alls til vegagjörða á
næsta fjárhagstímabili, þar af til áður-
nefndra tveggja aðalvega 20—25,000 kr.
til livors þeirra. Þá mætti vinna nokk-
urn vegiun tafarlaust að áframhaldinu ár
eptir ár. Það, sem eptir væri af pening-
um, gæti svo gengið til vegagjörðar, þar
sem brýnust nauðsyn væri til að leggja
eða gjöra við veg, sem landssjoður ætti
að kosta. Eptir næsta fjárhagstímabil
gæti vel verið, að þingið sæi sjer fært að
leggja nokkuð meira til vegagjörða, svo
að byrjað yrði á þriðja staðnum fyrir al-
vöru.
í sambandi við þetta vildi jeg minnast
á Mosfellsheiðarveginn. Yfir sjálfa heiðina
er nú kominn allgóður vegur vestan frá
Leirdalsrás austur að Þrívörðum, skammt
fyrir ofan Vilborgarkeldu, en þaðan frá
og austur úr á Árnessýsla að kosta veg-
inn, með því að það er sýsluvegur Árnes-
sýslu, en frá Leirdalsrás og niður úr á
Gullbriugusýsla að kosta hann, aí því að
það er sýsluvegur Gfullbringusýslu, en það
er víst, að sýslurnar fara seint eða aldrei
að kosta þeunan veg, allra sist Gullbringu-
sýsla, sem ekkert beinlínis gagn hefur af
veginum, þessi vegur þyrfti þó að koma,
sem allrafyrst, því að fyrst og fremst er
mikil umferð um hann úr efri partinum
af Árnessýslu og að norðan og flestallir
útlendir ferðamenn nota liann, sjerstaklega
þeir, sem fara til Þingvalla, Geysis og
Heklu. Ef góður vegur væri alla þessa
leið, gæti það orðið heldur til .að laða út-
lendinga hingað til lands, sem væri mik-
ilsvert, því að það eru ekki svo litlir
peningar, sem þeir skilja hjer eptir
fyrir hestalán, greiða og ýmislegt fleira.
Mjer þætti því heppilegast, að þessi
vegur að minnsta kosti og jafnvel
allir aðalvegir, þótt ekki sjeu póstvegir,
kæmust undir stjórn landsstjórnarinnar og
landssjóður kostaði þá að miklu leyti, en
sýslusjóður í þeirri sýslu, sem vegurinn
væri gjörður í, legði þó nokkuð til, eptir
því sem þingið ákvæði nánara um hvern
veg fyrir sig. Vegagjörðarmaður.
Edison, hugvitsmaðurinn mikli í Ame-
ríku, er 43 ára gamall, en kvað líta út
fyrir að vera 10 árum yngri. Það er ætl-
un manna, að hann verði mjög gamall.
Langafi hans varð 103 ára, afi hans 102
ára, faðir lians er 88 ára gamall, en er
þó ern og kennir sjer einskis meins. Auk
þess sem liár aldur liggur í ættinni, er
það og annað, sem gerir það líklegt, að
Edison verði gamall, og það er, að hann
er fyrirtaks hugvitsmaður, því að það er
sannreynt, að menn, sem hafa fyrirtaks
gáfur eða andans hæfilegleika í einhverja
stefnu, verða venjulega gamlir. Uppgötvanir
Edisons eru nú orðnar yfir 400, og hann
orðinn stórauðugur maður á þeim. Eng-
inn uppgötvari eða vísindamaður hefur
áður getað komið eins fullkomlega undir
sig fótunum eins og liann. Hann liefur
yfir 4000 menn í sinni þjónustu, og öll
efni, öll verkfæri, allar bækur, er snerta
að einhverju leyti þær greinir vísindauna,
sem hann stundar, eru til í starfhúsum
hans og bókasöfnum. Seinasta uppgötvun
lians er hljóðritinn (fonografinn), sem hann
hefur stöðugt verið að fullkomna. Eins
og menn hafa heyrt getið um, er hljóð-
ritinn, verkfæri, sem tekur á móti hverju
liljóði, hverju orði, sem sagt er í nánd við
hann, söng manna og ræðum, og getur
haft þetta eptir með sama rómi, sem mað-
urinn, sem talaði eða söng. Edison hefur
reynt liann við ræðuhöld á mannfundum,
og hljóðritinn hefur flutt ræðurnar alveg
eins og ræðumenuirnir, þótt langt sje um
liðið.
Yatnsaflið í Magarafossinum á nú
að fara að nota sem vinnukrapt. Nokkru af
vatninu á að veita á vatnshjól með 20,000
hesta afli. Það var byrjað á þessu verki
í okt. í haust og var fjarskalegur mann-
grúi þar viðstaddur, er verkið var byrjað.
Grlæfrafðr. Ljósmyndari einn, Dixon
að nafni, gekk 6. sept. í sumar yfir Nia-
garafossinn á kaðli, sem var x/2 þuml. að
þvermáli. 10,000 manna horfðu á þessa
glæfraför. Stöngin, sem hann bar, til að
halda jafnvæginu, var 22a/2 f'et að lengd
og 30 pund að þyngd. Safn (musæum)
eitt í New York rjeð Dixon til sín á ept-
ir, til þess að sýna sig. Hann átti að
sitja 10 stuudir á hverjum degi á palli
einum með stöng sína og fá fyrir það
400 kr. um vikuna.
Lj ósmyndaíþ róttin hefur á síðustu
tímum tekið miklum framförum, og allt af
má taka stærri og stærri ljósmyndir.
Stærsta ljósmynd, sem kunnugt er um, er
hvorki meira nje minna en 20 feta löng
og að því skapi breið. Hún er af borg-
inni Sidney í Ástralíu.
Telcfon er farið að viðhafa í kirkjum
á Englandi; telefonþræðir eru iagðir frá
prjedikunarstólnum út um kirkjuna, og
ekki nóg með það, heldur eru telefónþræð-
irnir lagðir lieim á heimili mauna utan
kirkju, svo að menn geta heima hjá sjer hlýtt
á ræðu prestsins, sem hann flytur í prje-
dikunarstólnum.
Skipstrand. 19. þ. m. rak kaupskip á
land upp suður í Garði. Yeður var þá
hið versta, blindbylur, og skipið orðið
lekt áður. Skipið heitir Peters og er frá
Gramsverslun fyrir vestan, sama skipið
sem nefnt er í frjettabrjefiuu úr Snæfells-
nessýslu í 2. tbl. þ. á. Það hefur sjálf-
sagt verið á leið til útlanda. í því voru
90 tunnur af kjöti, talsvert af saltfiski
nr. 2, nokkuð af lýsi o. fl. vörur, sem