Þjóðólfur - 27.02.1891, Side 2
38
Þjóðiii kvakar við þingið, í almenuum
orðtækjum, að gjöra eitlhvað sem lirindi
alþýðumenutuninni í betra horf. Á þing-
inu deyr málið út af fyrir ósamlyndi,
flokkadrætti og áhugaleysi.
í þessum gagnstæðu straumum velkist
alþýðumenutuuarmálð, og verður að engu
ár eptir ár.
Og ár frá ári drafnar niður hjá oss
fjöldi unglinga, í menntunarleysi og and-
legum aumingjaskap, og verður að and-
legum steingjörvingum, iðjulausum spjátr-
ungum, eða ef til vill drykkjurútum,
af því þeir fá ei holla menntuu á rjett-
um tíma, og komast á „skakka hyllu“ í
lífinu.
Þetta má ei svo til gauga. Yjer verð-
um að vakua, og hugsa alvarlega um
þetta mál. Kraptar þjóðar vorrar eru
svo litlir, að vjer verðum að gæta þess,
að þeir verði að sem bestum notum, og
hin uppvaxandi kynslóð læri að beita þeim
í rjetta stefnu.
Vjer meguum eigi standa og hýma
eptir fje úr landsjóði og framkvæmdum
stjórnarinnar. Vjer verðum að leggja eitt-
hvað á oss sjálfir, til að hrinda þessu máli
áfram.
Að heimta fje úr landssjóði, svo mikið
sem þarf til að koma á alþýðukennslu um
land allt, mun naumast ráðlegt, eins og
nú til hagar. Fjármálastefnan á þinginu
gengur í aðra átt. Þingið þrammar að
nokkru leyti i fjármálaslóð einveldisstjórn-
arinnar enn, og lætur embættislaun og
eptirlaun og ýmsar óverulegar smá-fjár-
veitingar sitja í fyrirrúmi, og þannig er
landssjóðurinn ár eptir ár jetinn upp, án
þess að nokkru verulegu sje í verk komið.
En mundi nú eigi vera hægra að fá fje úr
landssjóði til alþýðufræðslu, ef vjer legð-
um fram helminginn á annan hátt?
Vjer ættum nú að leggja skatt á oss
til alþýðufræðslu, þannig, að í hverri kirkju-
sókn væri goldið scm svaraði 1 kr. fyrir
nef hvert, er sóknarnefndin jafnaði niður
á alla sem sveitarútsvar gjalda. Um þetta
ætti næsta alþingi að setja lög, og um
leið leggja til jafnmikið fje úr landssjóði
til alþýðufræðslu, og semja lög um, á hveru
hátt því yrði varið.
Eðlilegast og viusælast yrði, að livert
hjerað rjeði sem mestu um þetta efni
t. d. hjeraðsfundur1 í hverju prófastsdæmi
1) Ef farið væri eptir tillögu höfundarins, teljum
vjer efalaust rjettara, að sýslunefndir rjeði mestu
um þetta, eins og þær ráða nú mestu um útbýting
styrksins til sveitakennara. Bitstj.
rjeði því, að fenguum tillögum safnað-
arfunda, hvar settir væru fastir skólar, og
hvar brúkaðir umgangskennarar. Kennslu-
greinir mætti fastákveða með lögum.
Jeg vona að kennslufræðingar vorir, al-
þingismenn og aðrir góðir menn, sem vilja
styðja alþýðumenntun, íhugi tillögu þessa
og segi álit sitt um hana.
Vjer megum eigi gleyma því, að sá
besti arfur, sem vjer eptirlátum börnum
vorum, er holl og góð menntun, og það
besta gagn, sem vjer vinnurn fósturjörð
vorri og komandi kynslóðum, er að upp-
ala þróttmikla, siðprúða og menntaða kyn-
slóð, og vjer megum eigi láta smásálar-
skap og ósamheldi hamla oss frá að vinna
að því af öllum kröptum.
Bóndi.
Seyðisfirði 2. febr.: „Sama öndvegis
tíð má heita að haldist hafi síðastliðinn
mánuð. Að vísu gerði hríðarskot 21 jan.
með 11° frosti og fjell þá nokkur snjór,
en hann tók þegar upp aftur að mestu.
Fiskafli enginn hjer er teljandi sje, en síld-
arafli er altaf sagður á suðurfjörðunum.
Norskt gufuskip, „Axel“, kom til Seyð-
fjarðar skömmu á eftir hinum skipunum
(„Uller“ og ,,Vágen“); fór það þegar út
aftur með síldarfarm frá þeim Tullinus &
Co., og kom aptur eptir öðrum síldarfarmi,
frá sama fjelagi, litlu eftir miðjan f. m.
Gufuskipi er nú von á í þessum mánuði,
frá kaupm. 0. Wathne, en sjálfur kvað
hann ætla að koma í næsta mánuði, með
gufuskip, er liann hafði í hyggju að kaupa
erlendis í vetur.
Veikindasamt hefir verið mjög lijer eystra,
einkum á börnum og hefir mesti fjöldi af
þeim dáið. Úti varð nýlaga maður einn,
á Stafnsheiði við Breiðdal. Maður nokk-
ur, Jón Pálsson að nafni, hrapaði og fyr-
ir skömmu við „dráttinn“ yfir Jökulsá hjá
Arnórstöðum, og beið bana af. Bæjar-
bruni varð nýlega (26. f. m.) á Fossvöll-
um í Jökulsárhlíð; brann baðstofan öll til
kaldra kola, og varð að sögn, því nær
engu bjargað.
í tilefni af því, að herra Hjálmar Sig-
urðsson hefur í 48. tbl. Þjóðólfs f. á. gefið
í skyn, að það muni ranghermi, er frjetta-
ritari yðar í Norður-Múlasýslu skrifar, í
næsta blaði á undan, um alþingistíðindin
frá síðasta þingi, skal þess getið, að ekki
eru þau enn komin til hreppsnefndarodd-
vitans hjer, og mun mega fullyrða, að eng-
inn maður hjer í firðinum liafi orðið þeirra
var, því eigi er teljandi þó þingskjölin og
1. hefti úr efri og neðri deild kæmu liing-
að þegar haustið 1889. Það er nú að
vísu eigi óhugsandi, að tíðindi þessi hafi
borist með skilurn í aðrar sveitir sýslunn-
ar, en kynlegtþykir frjettaritara yðar, ef
vjer Seyðfirðingar höfum einir orðið útund-
an í þessu tilliti, því síðastliðið haust
átti hann tal við ýmsa merka menn í
Hjeraði um alþingistíðindin, og kvaðst þá
enginn þeirra hafa sjeð þau.
Norðurmúlasýslu 2. jan.: . „Öndvegistíð, alauð
jörð. Fiskalii á Yopuafirði síðast er róið var rjett
fyrir jólin. Skepnaböld góð. Heilsufar manna í
lakara lagi; kvef og kíghósti einkum á börnum og
fjöldi ungbarna dáið. — Viunufólksekla i meira lagi
er nú hjer um sveitir og óvanalega þröngt um að
fá jarðnæði. Allt að bækka í verði, bæði jarðir og
lausafje. í góðar jarðir eru nú boðnar 200 kr. í
hundraðið. Fjárverð manua á milli almennt: ær
12—13 kr.ij sauðir veturg. 13—14 kr. og lömb
7—8 kr. Á uppboðum hafa lömb komist í 10—
11 kr. og ær í 14—15 kr. Allt er svona með
fjöri og lífi í þessari árgæsku11.
Noröurmúlasýslu 3. janúar: „Af almennum
frjettum er markverðast: Tiðarfarið afbragðsgott.
Að eins gjört tvær gusur, aðra um veturnætur,
hina fyrir sólstöðurnar. Nú er alautt og ekki aðr-
ir gripir á gjöf en naut og lömb að nokkru leyti.
Gripaböld allgóð. Á bráðafári ber nokkuð í Fljóts-
dal, sjerilagi á Valþjófsstað (yfir 50 kvað dautt).
— Heilsufar er i lakasta lagi. Kvefsótt mjög al-
menn og kighósti, sem verður skæðastur rneðal
barna og gamalmenna, er mörg hafa dáið úr nefnd-
um sóttum. Slys hafa engin orðið, nema ef telja
skal að mann kól á fótum á kaupstaðarferð úr
Hjaltastaðaþingliá".
Þiugeyjarsýslu 30. jan.: „Hagstæð hefur tíðin
verið allan þennan mánuð; jarðir nógar og góð
skepnuhöld yfir höfuð. Kvefveikindi i rjenun.
Skagafirði 3. febr.: „Hjeðan er ekkert nýtt að
frjetta. Tiðarfarið allt af hið æskilegasta, svo að
varla getur heitið, að hjer hafi verulega orðið
vart vetrar enn þá. Hræddur er jeg um, að held-
ur sje deyfð á kaupfjelagi okkar. Kaupmenn og
þó einkum Coghill eða umboðsmenn hans gjöra
allt, sem þeir geta, til að sundra því með loforð-
um um góð viðskipti frá sinni hlið; vonandi er
samt, að það takist ekki,' þvi að uaumast yrði
þess langt að biða, að ávextirnir af þeirri viðleitni
sýndi sig, ekki til mikilla bóta“.
Húnavatnssýslu 12. febr.: „Hjer er nú nýaf-
staðinn 5 daga sýslunefndarfuudur; var þar meðal
annars rætt um póstveginn austan til i sýsluuni,
og varð nú ofan á hjá sýslunefndinni, að leggja
póstveginu frá Giljá út að Blöndu og siðan fram
með Blöndu að austan, þvert ofan í ráð sænska
vegfræðiugsins Siwersons, sem lagði til að leggja
veginn fram með Svinavatni, sem er miklu beinua.
En sýslunefndin komst að þessari niðurstöðu eink-
um af þeirri ástæðu, að almennur áhugi er
vaknaður á að brúa Blöndu á Klifunum, skammt
fyrir ofan ósinn, en þar verður brúin langódýr-
ust“.
Um nýja liskveiða-aðlerð er oss skrif-
að af merlumi manni úr Fáskrúðsfirði 25.