Þjóðólfur - 06.03.1891, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 06.03.1891, Blaðsíða 2
42 9 Hvalfjarðarbotni og norðan Þingvalla- vatn. 3. Spara má allan kostnað framvegis við hinn lagða Mosfellsheiðarveg og fram- hald hans vestur á við. (Frá Fellsenda er lítið lengra austur af heiðinni en frá Vilborgarkeldu, þar sem vegurinn nú endar). 4. Vegurinn liggur næstum alla leið í byggð (heiðarvegurinn syðri er c. 5-fallt lengri milli byggða), kemur að notum upp-Kjósinni, sem síst getur notað sjó- veginn, og Stýflisdalsbæjunum í Þing- vallasveit. Áfangastaðir góðir. Leið þessi er tíðfarin á vetrum bæði á norðurleiðinni, þegar Svínaskarð er ófært sökum harðfennis, ófærðar eða hálku, og á austurleiðinni, þegar Þingvallavatn er autt. En þegar leggja á „mac-adamiseraða‘a vegi, er hið eina skynsamlega tillit, sem i tekið verður til stefnu fýrri vega það, hvar farið er á vetrum undir ýmsum kring- umstæðum. Þeir, sem ekki geta fallist á þetta álit mitt, vona jeg, að færi gagnrök móti því hið fyrsta; ella verð jeg að álíta, að það sje þegjandi viðurkennt. Og jeg hika jafn- j vel ekki við að lýsa yfir því, að jeg ætla, að það hljóti að verða viðurkennt, ef ekki nú þegar eða að 8 árum, þá 80 árum liðnum. Bæði Mosfellsheiðarvegurinn og fleira af því litla, sem gjört hefur verið fyrir sam- göngurnar hjá oss, ber vott um hryggi- lega vanhögun. Sama, livort það er laga- leysi eða þekkingarleysi að kenna; úr því þarf að bæta hið bráðasta. — Eptirlit og viðhald á því, sem gjört er, vantar. Sumt aldrei fullgjört, og spillist því brátt. Á brýrnar vanta hlífarborð, sem endurnýja megi jafnóðum og þau slitna, án þess að i ripta brúnni. Á brúarstöplana vanta hand- | riði; svo þjett, að íjenaður falli ekki gegn um þau. Sumstaðar liggur vegáburður- inn fram á brúarsporðana, varnar þeim að þorna og feyir þá. Sumstaðar renna læk- ir eptir götunum fram á brúna! (Fossár- brú). Hin iitla Varmárbrú ekki fullgjör enn eptir nokkur (4—5?) ár. — Hjallur sá eða bátur þykir vanhirtur, sem ekki er málaður eða bikaður iðulega, en um brú — nokkur þúsunda króna virði — Þykir það ekki tiltökumál, þó ekkert sje gjört til að verja haua eyðileggingu af áhrifum lopts og vatns. Allt þetta ætti vegfræðingurinn að sjá um. Hann gæti haft nóg að starfa. 1) Englendingurinn Mac Adam kenndi fyrstur (1835) reglur Jiær fyrir vegagjörð, sem nú er farið eptir. Kvennlæknar á Englandi. Á Englandi eru nú 73 kvennmenn, sem hafa rjett til að fást við lækningar. Af þessum 73 búa 22 í Lundúnum, 16 í öðr- nm borgum Englands, 17 eru á Indlandi, en hinar hafa sest að í ýmsum löndum. Meðal kvennlækna þessara eru einkum 2, sem hafa fengið orð á sig. Önnur þeirra er frú Seharlieb; hún er fyrsti kvenn- maðurinn, sem fjekk doktorsnafnbót i læknisfræði í Lundúnum. 1883 setti hún kvennspítala á stofn á Indlandi, en er nú kennari við kvennspítala einn í Lundún- um og hefur auk þess mikið að gera sem læknir. Hin er frú Garette Anderson; hún ávann sjer doktorsnafnbót í læknis- fræði í París 1870 og hefur komið á fót nýjum kvennspítala í Lundúnum. Lækn- arnir við þann spítala eru eingöngu kvenn- menn. Karlmenn koma þar ekki að, nema til ráðlegginga, en ekki til neinna fram- kvæmda. í Lundúnum er kvennlækna- skóli; þar eru 18 kennarar og einn þeirra kvennmaður. Námsmeyjarnar verða að vera orðnar 18 ára, áður en þær komast þar að. 1888 stundaði þar 91 kvennmað- ur læknisfræði, og hafa margar þeirra tekið próf með góðum vitnisburði víð há- skólann í Lundúnum. — England kvað annars vera það land, þar sem kvenn- læknar eiga hægast með að komast áfram, bæði vegna stærðar landsins og almenn- ingsálitsins, en einkum af því að þær eiga svo auðvelt með að komast að á Indlandi, til að lækna kvennþjóðina þar í landi, fyrir þá sök, að eptir trúarbrögðum Ind- verja mega eigi kvennmenn njóta læknis- lijálpar hjá karlmönnum. Brjef frá Ameríku. Þingvallanýlendu 1 des. 1890. Heilbrigði hefur yflr höfuð verið góð hjer i nýlendunni að undanförnu og fáir dáið. Tíðarfar síðastliðið sumar mátti heita fremur gott. Hitar voru aldrei mjög miklir. í ágúst og fyrri hluta september- mánaðar voru töluverðir óþurkar, og tafði það töluvert fyrir heyskap og hey náðust ekki með jafngóðri hirðingu og ella hefði orðið. Uppskera varð fremur góð hjer i nýlendunni yfir höfuð, og aldrei hefur ver- ið sáð jafnmiklu af hveiti sem síðastliðið vor. Hveiti er hjer víðast gott, þó er það sumstaðar lítið eitt skemmt af frosti. Hveiti- uppskera í Manitoba og Norðvesturlandinu hefur annars yfir höfuð verið mjög miki- í ár, en eigi eru hveitigæðin að sama skapi; valda því frost, er komu skömmu áður en hveiti varð fullþroskað. Kartöflul uppskera og annara garðávaxta varð frem- ur góð hjá löndum í kaust. Hve mikið hveiti hefur orðið af ekrunni hjá mjer, verður ekki sagt um með vissu, því að allt korn er óþreskt enn; er það mjög bagalegt, að fá ekki þreskt, en þessu veld- ur, að þreskivjelar hjer í kring eru of fáar í samanburði við hið mikla hveiti, sem er fyrirliggjandi. Yið höfum samt von um að þresking fari hjer fram úr nýárinu. Að eins 4 íslendingar hjer í nýlendunni hafa fengið þreskt enn, og munu þeir liafa fengið um 17 bushel af ekrunni af lítt skemmdu hveiti. Það má annars fullyrða, að ekki verða slík vandræði með þresk- ing að ári. Er í ráði að nýlendumenn í fjelagi reyni að eignast þreskivjel; en til þess veitir ekki af um 2000 dollars. Það eru annars töluverðar framfarir í búskap manna hjer í nýlendunni, þegar litið er til hins stutta tíma, sem menn hafa dval- ið hjer. Þannig voru keyptir á síðastliðnu hausti tveir sjálfbindarar, það eru verk- færi, til að slá niður kornið og binda það i knippi. Hver sjálfbindari kostar um 175 dollars. Auk þessa eru sláttuvjelar, hey- hrífur, vagnar, plógar og herfi ásamt fleiri akuryrkjuverkfærum að fjölga að mun. Landnám er byrjað hjer skammt fyrir norðan nýlenduna, og ætla jeg að skrifa dálítið um það, þar eð það stendur í svo nánu sambandi við þessa nýlendu. Fyrri part júlímánaðar síðastliðinn komu hingað í landskoðunarferð tveir íslendingar úr Dakota, Jóhannes Einarsson og Eggert Arason. Þeir skoðuðu fyrst ótekin stjórn- arlönd hjer í nýlendunni, sem annars eru nú mjög farin að fækka, og leist þeim ekki á þau, sem eptir voru. Tókust þeir þá á hendur að skoða lönd hjer um bil 8 mílur norður af þessari nýlendu; er þar allmikið iand ótekið, sem nýlendubúum var lítt kunnugt um. Leist þeim þar svo vel á land, að þeir tóku þar þegar land, fyr- ir sjálla sig. Þessir menn höfðu áður far- ið um Nýja-ísland og Álptavatnsnýlendu og ekki viljað staðfestast þar. Þegar þessir menn komu til Winnipeg, varð uppi fjöður og fit meðal landa þar; hið sama varð og eptir að þeir komu til Dakota, því að þangað þurftu þeir til að sækja fjölskyldu síua. Má svo segja að allt til þessa tíma hafi komið fleiri og færri næstum með hverri ferð til að skoða og taka laud á hinu áðurnefnda svæði;

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.