Þjóðólfur - 28.03.1891, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 28.03.1891, Blaðsíða 1
Kemur út & föstudög- um — Yerö árg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn skrifleg, bundin við áramðt, ögild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. XLIII. árg. Amtsráðin nýju. Eptir Þorkel Bjarnason. Ein af lögum síðasta alþingis eru lögin um stofnun 4 amtsráða í stað 3ja áður, með 1 fulltrúa úr hverri sýslu, að undan- teknum Vestmannaeyjum, og fjölga við það amtsráðsmennirnir um 13. Auk þess eru dagpeningar þeirra færðir upp úr 2 kr. í 3 kr., en ferðakostnaður borgaður eptir reikningi, sem amtmaður úrskurðar. Um lög þessi munu skoðanir almennings skiptar, og þó fleiri, sem jeg hef heyrt, ætla þau ot snemma uppborin, og störfin eru naumast svo umfangsmikil eða marg- brotin, að ekki hefði mátt lilíta við amts- ráðin gömlu. Jeg hef og heyrt ýmsa telja það miður hyggilegt af þinginu, að fall- ast eigi á þá bendingu landshöfðingja, að leita álits sýslunefnda og hreppsnefnda um málið, áður en því var ráðið til lykta, svo sjeð yrði, hvort landsmönnum þætti það svo mikílsvert, að þeir vildu í þvi skini leggja á sig töluverð gjöld. 'En það var nú svo að kalla eindreginn vilji þingsins, að koma málinu fram, og því vonandi, að lögin verði landsmönnum til þess gagns, sem þingmenn hafa sjálf- sagt búist við. En þó breyting þessi sje ef til vill í sjálfu sjer æskileg, þá virð- ist mjer samt ýmislegt í lögunum, sem betur hefði mátt fara öðruvísi. Dagpeningarnir eru færðir upp úr 2 kr. í 3 kr., án þess að sjeð verði, að nokkrar kvartanir hafi komið yfir því, að 2 kr. væru of litlar. 3 kr. er nú auðvitað ekki há borgun. En þegar ferðakostnaðurinn bætist við og mönnum fjölgar allt að því um tvo hluti, þá mun reyndin verða sú, að kostnaðurinn verður eigi alllítill allt í allt. Ferðakostnaður þingmanna mun opt nema 15—20 kr. á dag og jafnvel meira. Geta menn nú ætlað, að amtsráðsmenn taki minni ferðapeninga, þar sem þeir langt frá hafa það aðhald, sem þingmenn, að reikningar þeirra komi fyrir almenn- ings sjónir? Það virðist og með þessu töluvert gjört upp á milli hrepps- og sýslu- nefndarmanna og þeirra, sem 1 amtsráði sitja, livað borgun snertir. Yitaskuld er virðulegri sess, að sitja í amtsráði en Reykjavík, laugardaginn 28. mars 1891. hreppsnefnd, en sjálfsagt eigi erfiðara nje tekur meiri tíma; en fyrri má nú nokkru muna, en að hreppsnefndarmaðurinn, opt fátæklingur, sje marga daga á ári að heiman við hreppsnefndarstörf borgunar- laust, en amtsráðsmaðurinn fái til ferðar- arinnar á fundinn fram og aptur, ef til vill 15—20 kr. á dag, og svo fæðispen- peningana að auki, 3 kr. Sýslunefndar- menn fá 2 kr. á dag alls. Skyldi nú ekki hafa verið reynandi að ákveða amtsráðs- mönnunum alls og alls t. d. 5 kr. á dag? Skyldu ekki boðlegir amtsráðsmenn hafa fengist fyrir þá borgun ? Það virðist t. a. m. ekkert ólíklegt, með því amtsráðsfundirn- ir munu venjulegast haldnir í kaupstað og ef til vill nálægt lestatímanum, eða svo hefur verið, að opt mætti ijúka nauðsynja- erindi um leið, sem gæti gert þolanlegra, þó eigi fengist fyllsta borgun fyrir að sækja fundina, og 5 kr. á dag er þó allt annað en 2 kr. sýslunefndarmanna, — um hreppsnefndirnar þarf ekki að tala. En þó eigi þótti tækt, að breyta lög- unum í þessa átt, sje jeg ekki, að rjett sje, að kostnaðurinn leggist á lausafjeð eitt. Eða er landbúnaðurinn, þessi van- rækti atvinnuvegur, færari um aukin gjöld en aðrir atvinnuvegir ? Eru eða verða amts- ráðin fremur sveitabóndanum til gagns en t.d. kaupmanninum, embættismanninum ogsjáv- armanninum ? Jeg held jeg leggi naumast of mikiðí, þó jeg gjöri ráð fyrir, að hin fýrir- hugaða breyting á amtsráðunum hafi t. d. í suðuramtinu 6—8 a. gjaldhækkun á hvert lausafjárhundrað í för með sjer með að eins einum fundi á ári; þar við bætist nú bráðum á jafnaðarsjóð suðuramtsins endur- borgun á hálfu landssjóðlánu ■ til Ölfusár- brúarinnar, sem sjálfsagt verða 3—4 a. á hundr., og verður þetta hvorutveggja 9— 12 a. hækkun á ári á hvert lausafjárhundr. Að vísu er ekki þetta allstórt gjald, en „safnast þegar saman kemur“, og þegar í mörg horn er að líta — eins og er með gjöldin á landbúnaðinum — dregur um hvað eina. Jeg held því, hvort sem kostnaður- inn til amtsráðanna er látinn vera meiri eða minni, þá væri rjettast, að leggja hann á landssjóðinn. Mjer finnst sanngjarnt, að allir landsbúar beri kostnaðinn. Þá finnst mjer ekki sem best fallið, að Nr. 15. sami maður sitji bæði í sýslunefnd og amtsráði — en það banna lögin ekki —. Þar af getur leitt, að hann felli úrskurð, auðvitað með öðrum, um sama málið í báðum stöðunum, og er ekki nema eðli- legt, að hann fylgi því fram í amtsráðinu, sem honum var áhugamál í sýslunefndinni. Naumast mundi rjetti manna þykja tryggi- lega borgið, ef sýslumenn mættu, þó með fleirum væri, dæma hin sömu mál í æðri rjettum, sem þeir hefðu dæmt í und- irrjetti. Jeg held það þyki og fremur ó- kostur en hitt á sveitastjórnarlögunum, að þau heimila, að sami maðurinn sitji í hreppsnefnd og sýslunefnd. Það heyrist ekki ósjaldan, þá er menn þykjast þurfa að kvarta yfir gjörðum hreppsnefnd.ir, að það muni vera til litils að láta málið fara til sýslunefndarinnar, fyrst einn úr hrepps- nefndinni sje sýslunefndarmaðurinn. Þó þetta sje að vísu opt ástæðulaust, þá er auðvitað mjög líklegt, að sýsluneíndiu í ýmsum tilfellum, t. d. með útsvarskærur, verði að fara eptir bendingum hlutaðeig- andi sýslunefndarmanns, sem venjulega er sá eini í nefndinni, sem hefur persónulega þekkingu á málinu. Jeg held því, að sú breyting væri fremur til bóta, að svo væri fyrirmælt í lögunum, að sá sýslunefndar- maður, sem kosinn væri í amtsráð, legði þegar niður sýslunefndarstörf sín, og sama ætti að vera með hreppsnefndarmann, sem í sýslunefnd væri kosinn. Ekki finnst mjer heldur viðkunnanlegt, að sýslunófndirnar, sem amtsráðin eru næst skipuð yfir, kjósi til þeirra. Það má vel hugsa, ef hlutaðeigandi amtsráðsmaður lít- ur vel eptir hjá sýslunefnd sinni í amts- ráðinu, að það verði honum ekki til með- mæla við næstu kosningar. Öll laga- ákvæði, sem leitt geta til hlutdrægni, þarf að varast. Ef ekki væru hafðar almenn- ar kosningar, finnst mjer fullt eins rjett, að hreppsnefndirnar kysu eins og sýslu- nefndirnar. Yitanlega mun þetta mál koma fyrir á næsta þingi — Austur-Skaptafellssýsla mun naumast geta unað öðru en að fylgja austur- amtsráðinu — og þá má vel koma að öll- um þeim breytingum, sem til bóta þykja horfa.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.