Þjóðólfur - 18.08.1891, Blaðsíða 2
158
ungi Serbíukonungur er í veisium í Pjet-
ursborg og að Slaíar í Austurríki og ýmsir
þjóðfiokkar Slafa utan Austurrikis liafa átt
fund með sjer í Prag og talað þar napur-
lega til Þjóðverja, en bundist í fóstbræðra-
lag og sagst aldrei mundu reiða vopn
gegn slafneskum frændum; áttu þeir með
þessu við Rússa. Meir en helmingur Aust-
urríkisbúa eru Slafar, svo þetta er kjapts-
högg fyrir þrenningarsambandið, einkum ef
G-ladstone skyldi komast að bráðlega á
Engiandi, en hann er Rússavinur og vill
að þeir nái Konstantinópel. Eru þá leiks-
lokin tvísýn í Evrópu, þegar svo stendur
á. Jafnvel í Afríku taka Rússar og Frakk-
ar höndum saman. Eússar eru að reyna
að koma Abyssiníu undir skjól sitt með
aðstoð Frakka.
Dillon og Brjánn liafa nú lokið 6 mán-
aða fangelsisvist, sem þeir voru dæmdir í.
Hefur Dillon þegar í stað lýst yfir, að
hann væri Gladstoningur og fundið William
Harcourt. sem nú gengur ötulast fram af
öllum Gladstoningum.
Sviss hefur haldið 600 ára afmæli sitt.
þessa dagana, eða öllu heldur eru það
fylkin Schwyz, Uri og Unterwalden; há-
tíðin byrjaði 2. ágúst og stendur yfir enn
um allt land.
Bisinarck er farinn að kasta ellibelgn-
um. Ung stúlka hitti hann á skemmti-
göngu í Kissingen og beiddi hann einnar
bónar, nefnilega, að mega kyssa á hægri
hönd hans, sem hann hefði stýrt Evrópu
með. Bismarck var ekki seinn til svars
og sagði: „Svo ljómandi frið stúlka, eins
og þjer eruð, á skilið meira“, og um leið
rak hann henni rembingskoss. En sagan
getur þess ekki, hvort henni brá við.
Stúdentar við alla háskóla á Þýskalandi
hafa safnað fje í heiðursgjöf handa Bis-
marck, og færa 80 stúdentar honum hana
í miðjum ágúst.
Prcntfrelsi Finna hefur Rússakeisari
takmarkað með lögum og sæmt sendiherra
Frakka í Pjetursborg, Laboulaye, Alex-
ander Newski-„orðunni“; er það einhver
mesti heiður á Rússlandi.
Grænlandsfarir. Auk liins danska
leiðangurs, sem er að kanna austurströnd
Grænlauds, er nú ameríkanskur leiðangur,
undir forustu Pearys, að kanna vestur-
strönd þess.
Páfinn og liið franska þjóðveldi hafa
gert samuing um að styðja hvort annað.
Þjóðverjar ætla að verja 5—6 miljón-
um marka til að víggirða Helgoland.
Norður-Múlasýslu 5. ágúst: „ Veðrátt-
an liefur vcrið hin besta í sumar, nema
óvanalega þurviðrasamt fram yfir sláttar-
byrjun.
Orasvöxtur varð því víðast hvar með
lakasta móti, og tún brunnu mjög í Hjer-
aðinu; í fjörðunum mun grasvöxtur víðast
mun betri, því þar hafa þokur bætt úr
regnleysinu.
Fislmfli hefur verið mikið góður í fjörð-
unum, og síðari hluta f. m. var slíkur
landburður af fiski, að fá munu dæmi til
lijer eystra, enda var þá næga síld að fá
til beitu, en nú þessa dagana mun minna
aflast, því óvíða er síld að fá.
Enslit fislíikaupafjdag, sem hefur aðset-
ur í Norðfirði og Seyðisfirði, hefur haft
lítið gufuskip í förum í sumar, til að flytja
út nýtt heilagfiski í ís, en mjög lítið kvað
liafa aflast af þeirri fiskitegund, og eru
því líkur til, að fjelagið verði að hætta
því fyrirtæki, af því það svari eigi kostn-
aði.
Nijja klaðið. Seint gengur að koma
hinu nýja blaði okkar Austfirðinga af
stokkunum; ritstjórinn, Skapti Jósepsson,
kom að visu norðmað með Liuru síðast,
og prcntarinn litlu siðar frá Höfn, en er til
átti að taka, vantaði ýmislegt til prent-
smiðjunnar, sem á þurfti að halda, og er
ókomið enn; en vonandi er, að útkoma
blaðsins dragist samt eigi mjög lengi, því
lielst til lengi höfum vjer Austfirðiugar
setið blaðlausir, og þvi litið getað látið
til vor heyra.
Verslunarmarkaður mun nú hvergi betri
á Iandinu enn í Seyðisfirði, enda eru þar
nú fjölda margar verslanir, og mikil keppui
milli þeirra. Fyrir vorull livíta hafa kaup-
menn gcfið 80 aura, og fyrir saltfisk gefa
þeir nú 16, 13 og 10 aura pundið, en út-
lendar vörur hafa verið með þessu verði:
rúgur 8 aura pundið, rúgmjöl 8l/2 eyri,
bankabygg 11 a., baunir 11 a., kaftí 90—
1.00, kandís 32- 34, melis 28—32, púður-
sykur 24—26, export 45—50, munntóbak
1,80—2,00, ról 1,40, kol l1/* e., salt 4,00
tuunan, steinolía 20 a. pt. Hjá pöntunar-
fjelagi Fljótsdalshjeraðs hafa flcstar þess-
ar vörutegundir þó verið mun ódýrari,
nema kaífi, er kostaði 1,00.
Frakktieslc og ensk fiskiskip haf'a komið
til Seyði-fjarðar með sjúklinga og sett þá
þar á land, en opt hefur veitt erfitt að fá
viðunanlegt húsuæði handa þeim, og virð-
ist brýna nauðsyn bera til að byggt væri
þar sjúkrahús hið allra l'yrsta.
Oufuskipið „Mtgnetic11 se n Zillner hef-
ur nú í förum, kora til Sayðisljarðar 31.
f. m. með kol til þeirra kiupmmnanna
Sig. Johanseu’s og Otto Wathne; ætlaði
þaðan norður á Skagafjörð og Eyjafjörð
með vörur til pöntunarfjelaganna þar.
Frakkneska lierskipið „Chateaurenault11
kom til Seyðisfjarðar 1. þ. m. norðan úr
íshafi. Hafði það ætlað að lenda við eyna
Jaen Mayn, til vísindalegra ranusókna,
en komst ckki að landi sökum ísa, og varð
því frá að hverfa.
Dýrafirði 10. ágúst: „Síðan sláttur
byrjaði, hefur tíöin verið mjög hagstæð,
svo að segja leikið við menn. Almenning-
ur búinn að alhirða tún, og það, sem er
komið inn af heyi, er í bestu verkun; lít-
ur því vcl út með heyskap, ef tíðin ekki
sp’illist. — Þilskip liafa aílað fremur vel í
sumar. Hvalveiðarnar liafa einnig gengið
vel í snmar. Berg á Framnesi mun vera
búinn að fá um 50 hvali. — í áformi er,
að Dýrfirðingar haldi 1000 ára afmæli
Dýrafjarðar 12. sept. í sumar.
Pústskipið Laura kom liingað 14. þ. m.
frá Khöfn og mcð þvi Klemens Jónsson
settur sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu; fer
hann norður þangað með Tliyru næst.
Strandfcrðaskipið Thyra kom liingað
að morgni hins 15. þ. m. og með því all-
margir farþegar, þar á meðal prófastur
Z'iphónías Halldórsson með konu sinui,
sjera Jósep Hjörleifsson með konu sinni
og sjera Jóhauues L. L. Jóhannsson, dbrm.
Haliiði Eyjúlfsson í Svefneyjum, og margir
fleiri.
Tíðarfar hefur þennan mánuð verið
hagstætt, nægir þurkar; heyskapur gong-
ur því vel sunnanlands og anuarstaðar,
sem til hefur spurst.
Sunnanfari heitir blað, sem farið er að
koma út í Kaupmannahöfn, eitt blað á að
koma á mánuði, á að vera með myndum,
í litlu broti, freinur dýrt, 2 kr. 50 a. á ári.
Jón Þorkeisson ábyrgðarmaður, og má þá
geta nærri, hvernig það muni verða.
Vcrslunarfrjettir frá Khöfn 3. ág. Af'
ull eiu kotnnir til Englands um 400 „ball-
ar“ og til Hafnar um 500 „ballar“, sem
allt er enn óselt, með því að oigi býðst
viðuilandi verð í samauburði við innkaups-
verð. Verðið er 8’/^—9 pencc (62—68 a.)
eptir gæðum. — Tii Spánar hefur verið
seldur 1 farmur af sunnlenskum fiski á