Þjóðólfur - 25.09.1891, Síða 2
182
i Newcastle, og ætlar Grladstone þá að
halda ræðu, ef læknir hans leyfir, sem
nú eru góð útlit fyrir.
Viiinufjelagafnndur er um þessar mund-
ir í Newcastle. Hinir 547 menn, sem eru
á honum, eru fulltrúar tveggja miljóna
enskra verkmanna og má kalla fundinn,
sem er haldinn á hverju ári, verkmanna-
þing. Fundurinn hefur samþykkt með
232 atkvæðum gegn 163, að Lundúnaþing
skuli setja lög um að banna að vinna
Iengur en 8 klukkustundir á dag og styðja
að því líka í öðrum löndum. Menn úr
Englandsstjórn eru staddir á fundinum,
en verkmenn vilja lielst vera utan flokks.
Þó hallast þeir að Gladstone.
Kosningar fara fram í Noregi um þess-
ar mundir og er enn ekki lokið. Rúmur
helmingur þeirra er búinn og hafa fylgis-
menn Steens og stjórnarinnar víðast unn-
ið sigur á hinum tveim flokkunum. Steen
fylgir því fram, að Noregur eigi að hafa
utanríkisráðgjafa sjer og er það aðalatrið-
ið við þessar kosningar. Svo langt stig
hafa Norðmenn ekki stigið í mörg ár og
allar líkur eru til, að þeir fái stigið þetta
stig, eins og fleiri áður.
í Canada er það komið upp, að nærri
allir embættismenn stjórnarinnar hafa þeg-
ið mútur, á ýmsan hátt, sumir mörg hundr-
uð þusund krónur. Nokkrir sakadólgar
hafa flúið til Bandaríkjanna, en nóg er
eptir af þeim. Er nú lieldur en ekki
gauragangur á þingi, mótstöðumenn stjórn-
arinnar standa á henni, en stjórnarsinnar
bregða þeim um sömu lesti. Vant er að
sjá, liver verður til að moka þenna flór.
i New Zealandsþiiigi liefur verið rætt
og lögtekið frumvarp um að veita konum
kosningarrjett og kjörgengi til þings. í-
búar New Zealands eru hátt upp í miljón.
Ekki mun stjórnin á Englandi neita að
samþykkja lögin, þó Euglaud sje enn eptir-
bátur New Zealands í þessu.
Prentfrelsi Finna lieíur verið takmark-
að og rússneskum mönnum verða eptir-
leiðis veitt æðsta embætti í landinu. Harð-
ur er Rússakeisari.
Sosialistar hafa haldið allsherjarfund í
Bryssel og föðmuðu Frakkar og Þjóðverj-
ar livorir aðra á lionum og kváðust aldrei
mundu banaspjót á berast. Borið var upp
að hætta skyldi vinnu um allan heiminn
á tilteknum degi, en var ekki samþykkt.
Ymsar merkar samþykktir voru gjörðar á
fundinum, sem oflangt er að segja lijer frá.
í Trier á Þýskalandi ersýndur í kirkju
einni kyrtill, sem kvað vera sá er Krist-
ur bar á krossinum. Hundrað þúsunda
kaþólskra manna flykkist að úr öllum átt-
um að snerta hann og leita lækninga.
Hann hefur verið einu sinni áðursýndur
á þessari öld.
A efsta tindi Montblancs er verið að
reisa stjörnuskoðunarhús; sumir af vinnu-
mönnunum eru dánir úr kulda og vosbúð,
en verkinu á þó að lialda áfrám. Roth-
schild og auðmennirnir gefa fje til þess.
Crreiíi í Stokkhólmi, Mören að nafni,
liefur myrt bróður sinn til fjár, og þykir
þetta eitthvert hið versta níðingsverk, sem
unnið hefur verið nokkru sinni í Svíþjóð.
Sigrid Arnoldson, hin sænska söng-
mær, gipt Fishoft nokkrum, hefur sungið
nýlega í Kristianíu og Gautaborg og Ijúka
allir utanlands og innan upp einum munni
um það, að hún sje jafningi Kristínu Nils-
son og Jenny Lind. Kristín er hætt að
syngja, en æfisaga Jenny Linds er nýút-
kominn í Lundúnum.
Scavenius, sem var kenslumálaráðgjafi
Dana hefurgert grein fyrir gerðum sínura í
opnu brjefi. Kveðst liann ekki hafagetað
fylgt stjórninni að því að hliðra til við
Böjsensliða. Vígirðingum við Höfn er
haldið áfram.
Jules Gróvy dó 9. september. Hann
var fæddur 1807 austur við Jurafjöll.
Hann barðist með hreysti móti stjórninni
í júlístjórnarbyltingunni og var þá að lesa
lög. Svo varð hann málaflutningsmaður,
og varði marga þjóðveldissinna á árunnm
1830—48. Eptir febrúarbyltinguna komst
hann á þing og kom þar með uppástungu
um, að þingið ætti að geta rekið úr völd-
um þjóðveldisforseta, sem það grunaði um
græsku. Hefði Grévy haft sitt fram, þá
hefði Napóleon aldrei orðið keisari, en það
varð nú ekki. Grévy dró sig í hlje, þeg-
ar Napóleon tók taumana, þangað til 1868,
að hann var valinn á þing og var þá sár-
beittur gegn Napóleon, en 1870 greiddi
hann þó atkvæði móti ófriðnum gegn þjóð-
verjum. Síðan hafðist hann ekki að, þangað
til liann var kosinn á þing 1871 og varð
þá strax forseti. Hann var einn af þeim,
sem best spornuðu við, að þjóðveldiuu var
steypt 1877. Hann var forseti í neðri
deild 1876—79, er hann varð þjóðveldis-
forseti eptir Mac Mahon. Hann var for-
seti raeð sóma til 1887, þegar svikin kom-
ust upp um tengdason hans Wilson. Þá
var farið illa með öldunginn, en hann fær
gott eptirmæli.
Blainc var valinn til forsetaefnis repú-
flikana á fundi í Nev York með miklum
atkvæðafjölda.
Jessen, ritstjóri „Flensborgavis“, var
dæmdur í 18 mánaða fangelsi út af því
að hann hefði móðgað þjóðverja stjórn.
Alþjóðafundur uni lieilbrigðisfræði
var haldinn í Lundúnum í ágúst og var
fjölsóttur.
Frcdensborg heitir hallargarður Dana-
konungs nálægt Helsingjaeyri. Þar búa
sem stendur: Rússakeisari og drottning
hans, Grikkjakonungur og drottning hans,
„prinsessan1* af Wales og fullorðnir synir
hennar og dætur, hertoginn af Fife, sem
er kvongaður einni dóttur hennar, konung-
ur og kronprins Dana og þeirra hyski, og
fjöldi stórmennis, sem fylgir þessu kon-
ungmenni. Rússakeisari gefur fátækum
10,000 krónurí hvert skipti sem hann kem-
ur lijer. Maður kastaði brjefi upp í vagn
hans hjer og beiddi hann að rjetta hluta
sinn á Rússlandi, en fjekk ekki að gert og
var flnttur selflutning úr landi. Svíakonung-
ur kom á Fredensborg og bauð þeim á veiðar
á Hveðn. Hræddur er Rússakeisari við
Nihilista hjer og lætur leynilögreglu gæta
sín. Keisari er jötun að vexti og kvað vera
einhver sterkasti rnaður á Rússlandi.
Bismarck kvað vera lasinn og farið að
förla.
Pðstskipiið Laura kom hingað í gær-
morgun, þrem dögum á undan áætlun —
nýtt sem sjaldan skeður. — Með því kom
landlæknir Schierbech, sem fór hjeðan til
útlanda með Lauru 3. júlí í sumar; með
| því vóru og Jórun Guðmundsdóttir hjeðan
| úr bænum, 2 Englendingar og barn þeirra
hjóna sýslum. Guðl. Guðmundssonar og
konu hans.
Yerð á íslenskum vörum, Khöfn 11.
| sept. Ull, sem komin er liingað og til
Englands, um 6000 „ballar“, er lögð upp
í pakkhús. Með því að kaupendurnir eru
óf'úsir að kaupa, og verðið, sem borgað
hefur verið á íslandi, er langt um hærra
en það, sem kaupendurnir vilja gefa, ligg-
ur verslunin með isl. ull í dái. Boðið
hefur verið að eins 8 pence (60 a.) fyrir
sunnlenska livíta vorull, en seljandinn gekk
ekki að því, svo að það boð var tekið
aptur. Yerð á mislitri ull er 45 a., svartri