Þjóðólfur - 01.04.1892, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.04.1892, Blaðsíða 3
vorvi svo ósamkynja, -að sitt vildi liver, enda láta kaupmenn ekki sitt eptirliggja að sundra öllum samtökum, ef þeir sjá sér nokkurn óliag í þeim“. Yesturskaptafellssýslu (Mýrdal) 17. marz: „Veturinn gekk hér í garð óvenju- lega snemma, í miðjum nóvbr., og hefur fénaður verið að mestu á gjöf síðanp þó eru heybirgðir manna hér í sveit víðast hvar nægar og skepnuhöld góð. Seint á þorra brá til norðanáttar, svo að á sjó gaf og aflaðist þá allvel, sumstaðar ágæt- lega, stundum 70—80 í hlut á dag. Hæst- ur hlutur er við Jökulsá og Dyrhólaey rúm 400 og er það óvanalegt hér svo 8nennna. 9. þ. m. gerði hér aftaka norðan- Veður með 20 stiga frosti, en ekki gerði það neinn skaða hér. En frétzt hefur, að allmiklir fjárskaðar hafi þá orðið í Álpta- veri og Skaptártungu. Hrakti fé þar í sjó og vötn og fraus í hel“. Jökulhlaup. 13. f. m. kom hlaup úr Skeiðarárjökli yfir allan Skeiðarársand, og þykir líklegt, að það stafi af eldsum- brotum í jöklinum. Ekki hefur enn frétzt með vissu, að manntjón hafi orðið í lilaupi þessu, en piltur úr Fljótsliverfi hafði lagt á sandinn austur yfir, daginn áður en hlaupið kom, og eru menn hræddir um, að hann hafi ef til vill farizt í því. Póstur frá Bjarnanesi var ókominn vestur yfir og var haldið, að liann biði í Öræfunum. Öll umferð um sandinn hefur teppzt að minnsta kosti um hálfan mánuð eptir hlaupið, og lengi á eptir verður hættulegt að fara yfir hann sakir hvarfa eptir jökul- jakana, er þeir þiðna ofan í sandinn. Fiskisamþykktarhrey tingin, sem mönn- um liefur verið svo tíðrætt um undanfarna daga, var samþykkt í einu hljóði á sýslu- nefndarfundi í Hafnarfirði 28. f. m. og sömuleiðis á almennum fundi þar daginn eptir, en staðfest af amtmanni s. d., svo að fyrst í dag verður mönnum frjálst að leggja net sín, en ekki höfðu allir þolin- mæði til að bíða svo lengi, því að 7—10 formenn hafa lagt net í Leirusjó síðan 19. m. og öfluðu mætavel í þau. Eru því góðar horfur um fiskiafla nú sem stendur. Sýslumaður er nú farinn suður til að halda próf yfir sökudólgunum—samþykktarbrjót- unum. Prestkosning- í Ásum í Skaptártungu er um garð gengin að nýju á löglegan hátt. Fékk séra Sveinn Eiríksson á Kálfa- fellsstað öll atkvæði, er greidd voru á 63 fundinum, en hinn umsækjandinn (kandídat Hans Jónsson) ekkert. Brauðaveitingar. 27. febr. veitti kon- ungur Vallaneshrauð (sameinað við Þing- múla og Hallormsstað) séra Magnúsi Bl. Jónssyni í Pingmúla og Staðarhraunsbrauð (sameinað við Hítarnesþing) séra Stefáni Jónssyni í Hítarnesi. Skaðar af ofviðri urðu allmiklir eystra í vikuuni eptir nýárið. Brotuuðu gluggar í húsum á Seyðisfirði, eu fjölda báta tók upp og mölbrotnuðu sumir. Annarstaðar fuku geymsluhús og stórt bræðsluhús á Djúpavogi tók á sjó út. Slysfarir. Brynjólfur Gíslason bóndi á Syðri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum varð 10. f. m. undir skipi og beið bana af. — Kvennmaður frá Króktúni á Landi varð úti milli bæja sunnudaginn 6. f. m. — Maður að nafni Jón Gíslason frá Hofi í Mjóafirði drukknaði 22. jan., rann fram af klöppum í sjóinn. Bruni. 9. f. m. brann baðstofuhús í Káragerði í Útlandeyjum; var enginn karl- maður heima og varð að senda á næstu bæi eptir lijálp. DÁNARSKRÁ. Hálfdan Jóakimsson, fyrrum bóndi á Grímsstöðum við Mývatn, andaðist að Þverá í Laxárdal í Þingeyjarsýslu 23. ágúst f. á. „Hann var fæddur þar í sveit 23. sept. 1808, missti föður sinn Jóakim Ketilsson á unga aldri og ólst upp við fremur þröng- an kost með móður sinni (Aðalbjörgu Páls- dóttur), ásamt mörgum fleiri börnum, og naut því litillar menntunar á því skeiði, en eigi að síður náði liann af eigin ram- leik, verklegri fjölliæfni, bóklegri þekking í betra lagi af bæudum til og von bráð- ar, sjálfstæðum góðum efnahag; tók liann vorið 1833 nýbýli eitt á Fljótsheiði við Bárðardal, er nefuist Brennuás, bjó þar 24 ár, gjörði vandaðan bæ upp úr flatreptum kofum (er einyrki hafði fyrir 9 árum hróf- að upp og hýrzt í) ræktaði nálega kýr- fóðurstún upp úr gróðurlitlu holti, ruddi og lireinsaði útengi af grjóti og sprekum. Vorið 1857 flutti hann að Grímsstöðum við Mývatn, bjó þar 17 ár, bætti að muu og græddi út tún, og byggði upp flest hús, nokkur af nýju. Síðau var liann þar sjálfs- síns maður að meiru, þar til vorið 1889, að hann fór til bróður síns að Þverá. Hálfdan fylgdi vel tímanum, að því leyti, að hann hafði sterkan hug á almenn- ings heill og framförum; reglumaður var hann, framsýnn og hollráður, tryggur vin- um sínum og hjálpsamur. Hann var með beztu fjárræktarmönnum enda samdi hann að mestu einn „Fjárbækling“, er kom út á Akureyri 1855. Kona hans var Aðalbjörg Sigurðardótt- ir, (ý í okt. 1879), valkvendi að dagfari og dugnaði. Af 11 börnum þeirra lifir eitt: Jakob borgari á Húsavík, upphafsmaður kaupfé- lags Þingeyinga“. Snorri Oddsson, merkur bóndi á Geita- felli í Þingeyjarsýslu, dó fyrir skömmu. Jóhann Þorkelsson bóndi í Mundakoti í Stokkseyrarhrepp andaðist 17. f. m. kom- inn yfir fimmtugt. „Hafði lengi verið heilsulasinn einkum í vetur“. Bessi Eiríksson, fyrrum bóndi í Skóg- um í Fnjóskadal, andaðistl. febrúar 87 ára gamall; hafði búið í Skógum um 50 ár og var leugi ferjumaður á Fnjóská. AUGLÝSINGA R í samfeldu máli meö smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orö 15 stafa frekast; meö öðru letri eöa setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd. Nr. 29—80 úr „ísleiidingiu (yngra) verður keypt háu verði á skrifstofu Þjóð- ólfs. Enn fremur úr „Norðanfara“ þessi númer: 14. árg. aukabl. 37—38 ; 17. 13 —14; 18. 5—6; 20. 51—54; 21. 15—16, 19—20, 27—28, 31—32; 22. 47—48; 23. 1—8 (incl.). 21. og 23. árg. verða einnig keyptir heilir. Sjósótt. Eg hef verið mjög þjáður af sjósótt„ þegar eg hef verið á sjó, en öll læknisráð og meðul þar að lútandi hafa verið árang- urslaus. Eg keypti þá flösku af Kína- lífs-elixír til reynslu, þegar eg varð sjó- veikur, og eptir fáeinar mínútur var mér að fullu batnað. Kína-lífs-elixírinn er þannig að minni reynslu alveg óviðjafnan- legt og óbrigdult meðal við sjósótt. p. t. Kaupmannahöfn 177,2. 1891. Páll Tliorkeisson. Menn eru beðnir að athuga nákvæm- lega, að á hverja flösku er skrásett vöru- merkið: Kínverji með glas í hendinni og verzlunarnafnib Valdemar Petersen, Frede- y. p* rikshavn, enn fremur á innsiglinu í grænu lakki. Fæst í öllum verzlunarstöðum á ís- landi. 156

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.