Þjóðólfur - 12.08.1892, Qupperneq 3
151
Áttaviti.
(Aðsent).
Legið hafði í landi um hríð
logn og bliðviðri á Skaga,
en þegar létti því um síð
kom þar upp falleg saga:
enginn kunni þar átta-skil,
einhvers varð því að grípa til,
ef linnti logni og hita;
þeir sendu því í langa leit
og loksins fengu o’n úr sveit
ágætan átta-vita!
Skemmtiskipið enska „Minerva“ kom
hingað austan af Seyðisfirði í fyrra dag;
hitti þar skip Zöllners „Stamford“, er kom
þangað frá Englandi og er væntanlegt
hingað um miðjan þennan mánuð.
ítlendar í'réttir. Með „Minerva“ bár-
ust hingað nokkur ensk blöð til 3. þ. m.,
er oss hafa verið góðfúslega léð til af-
nota. Merkustu tíðindin eru þau, að
G-ladstone hefur borið hærri hlut við kosn-
ingarnar á Englandi, er var lokið 29. f. m.
Við síðustu aðalkosningarnar 1886 urðu
fylgismenn hans í allmiklum minni hluta,
eða 118 færri en andstæðingar þeirra
(276 á móti 394), en nú eru írsku heima-
stjórnarmennirnir (Gladstonesliðar, Parnell-
ítar og Anti-Parnellítar) 40 fleiri en hinir
eða 355 á móti 315 og má það heita allglæsi-
legur sigur á jafnskömmum tíma. 4. þ. m.
átti parlamentið að koma saman, en fyrstu
3—4 dagarnir ganga til eiðatöku. Að því
búnu verður hið nýja ráðaneyti sett á
laggirnar auðvitað undir forustu Giad-
stones, sem nú er 83 ára gamall.
Þýskalandskeisari var kominn heim úr
Noregsför sinni, en hélt skamma stund
kyrru fyrir, því að í byrjun þ. m. hélt
hann með nokkurn flota til fundar við
Engiandsdrottningu, ðmmu sína, við eyjuna
Wight og var vel fagnað að vonum. Þess
er getið, að Bismarck gamli hafl nýlega
haldið heljarmikla ræðu í Jena og sé
margt um talað, en ekki er getið efnis
hennar að öðru en því, að hin allrafrjáls-
lyndustu blöð hafi verið mæta vel ánægð
með hana.
í Búlgaríu hafa þeir 4 samsærismenn,
er ætluðu að myrða Ferdínand fursta og
drepa stjórnarforsetann Stambuloff á eitri,
verið dæmdir til dauða og höggnir.
Kólera geisar í Austur-Rússlandi eink-
um í þeim héruðum, er hungursneyðin
var mest í vetur. Er talið, að 60,000
manna liafi dáið úr drepsótt þessari á ein-
um mánuði, og þrátt fyrir strangar var-
úðarreglur til varnar útbreiðslu hennar
færist hún ávallt smátt og smátt yfir
stærra svæði norður eptir Rússlandi og
vestur á við. Eru Þjóðverjar einkum
mjög smeikir við vogest þennan. í París
hefur kóleran einnig gert vart við sig, en
að því kveður minna.
í kirkju þeirri í Palos á Spáni, þar
sem Kolumbus neytti heilagrar kveldmál-
tiðar, áður en hann lagði af stað vestur
yfir hafið fyrir 400 árum, átti að halda
veglega minningarguðsþjónustu 3. þ. m.
Á venjulegum tima tók kirkjan að fyllast
af fólki og voru þar á meðal mörg erlend
hefðarmenni víðsvegar að. En svo leið og
beið og euginn prestur kom; fólkið fór að
að smátínast út aptur og eptir U/2 klukku-
stuud voru allir farnir. Olli þetta all-
miklu hneyksli, sem von var, en hverj-
það er að kenna, þykir ekki fullljóst enn.
Presturinn þar kveðst ekki hafa fengið
nein tilmæli um að halda guðsþjónustu,
en borgarstjórinn ber það ofan í hann og
þar við situr.
í New-York var svo mikill feiknahiti
síðustu daga í f. m., að fjöldi manna dó
af „sólsting11. Hinn 28. og 29. var hitinn
102° Fahrenheit (= 39° C.) í skugganum.
Menn urðu víða að hætta vinnu og mörg-
um búðum var lokað. Allir spítalar bæ-
jarins sagðir troðfullir af sjúklingum. 160
hestar drápust t. d. á einum degi sakir
hitans.
Hið afarskrautlega skemmtiskip auð-
mannsins Wanderbilts, er kostað hafði
næstum 2 miljónir króna, liggur nú á
mararbotni. Það var um hánótt i niðaþoku
skammt fyrir utan New-York, þá er ann-
að gufuskip rakst á það. Yaknaði Wan-
derbilt og gestir hans við illan draum,
hlupu upp á þilfar í nærklæðum einum og
berfættir og komust með mestu naumind-
um alslyppir niður i bátana og yfir á hitt
skipið, áður en hin skrautlega skúta sökk
í sæ.
Tilraunir þær, er gerðar hafa verið í
Bandarikjunum til að „framleiða regn“
með ’dynamitsprengingum' og fallbyssuskot-
um, er svo mikið var gasprað af í blöð-
unum, hafa nú reynzt alveg þýðingarlaus-
ar. Hafði stjórn akuryrkjumálanna lagt
nokkurt fé fram til styrktar þessum til-
raunum, og þykir hún hafa orðið nokkuð
fljót á sér. Frumkvöðlar þessa fyrirtækis
þykjast þó ekki af baki dottnir og
segja, að þetta sé ekki enn reynt til
hlítar.
Eins og kunnugt er, var hætt við skurð-
gröptinn yfir Panama fyrir nokkrum ár-
um, þá er hlutafélag það, er Lesseps gekkst
fyrir að stofna í þeim tilgangi, fór á höf-
uöið, en nú hefur verið sett ný fram-
kvæmdarstjórn í París til að lífga félagið
aptur. Heitir sá Heilard, sem er formað-
ur hennar. Hafa hlutabréfin þegar hækk-
að allmjög í verði, eu flestir spá þó, að
allt fari á sömu ieið sem fyr og verði að
eins til að féfletta hluthafendur enn ræki-
legar.
í f. m. lézt framkvæmdarstjóri þjóð-
bankans í Kaupmannahöfn, konferenzráð
M. Levy.
——ovo»e-(c=——•
f Guðný Sigurðardéttir, ekkja
eptir Jón prest Kristjánsson á Breiðabóls-
stað í Vesturhópi (f 1887) andaöist að
Syðri-Þverá 19. apr. þ. á. Hún var
fædd á Grímsstöðum við Mývatn 9.
nóv. 1820 og voru foreidrar hennar Sig-
urður bóndi Jónsson og Kristín Þorsteins-
dóttir stúdents í Reykjahlíð Jónssonar.
Giptist húu 1839 Jóni Kristjánssyni þá
aðstoðarpresti á Þóroddsstað í Kinu og
bjuggu þau þar 9 ár, fluttu síðau að Yzta-
Felli og voru þar 15 ár. Þá flutti hún
að Steinnesi með manni sínum, er fengið
hafði veitingu fyrir Þingeyraprestakalli,
og því nœst eptir 5 ár að Breiðabólsstað
í Vesturhópi, sem manni hennar hafði ver-
ið veitt. Þar var hún 15 ár og flutti þá
að Syðri-Þverá, er maður hennar hafði
feugið lausn frá prestsþjóuustu. Þau hjón
áttu saman 10 börn og dóu 4 þeirra, 2
synir og 2 dætur á ungum aldri, en 2
synir, Kristján bóndi í Víðidalstungu og
Björn bóndi að Syðri-Þverá lifa og 4 dæt-
ur, Guðrúu, kona Benedikts Björnssonar
bónda að Ósum, Valgerður, kona Geirs
Finns Gunnarssonar á Kaldbak, Kristín,
kona Ólafs Óiafssonar söðlasmiðs í Ame-
ríku, og Ingibjörg, kona Jóhanns Einars-
sonar, bónda á Víðivöllum í Fnjöskadal.
Guðný sál. var góð kona, fríð sýnum,
stillt í lund og ráðsvinn. (B. K.).
AUGLÝSING AR
1 samfeldu máli meö smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.>
hvert orö 15 stafa frekast; meö ööru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd.
Skóleður, brókarskinn og skótau
selur undirskrifaður fyrir velverkaðan salt-
fisk.
Eeykjavík 10/9 ’92.
461 Björn Krisijánsson.
Hinn 11. júlí tapaðíst á veginum frá Ölfusár-
brú að Húsatóptaholti sklnnbrók með ýmsu búð-
arkrami, þar á meðal klæðis-fellingatreyju. Finn-
andi skili því, gegn fundarlaunum, til Þorstcins
Eiríkssonar í Haukholtum. 462