Þjóðólfur - 02.09.1892, Page 2

Þjóðólfur - 02.09.1892, Page 2
162 sessi, en forseti ráðaneytisins, Eulenburg varð ráðgjaíi um innanríkismál. Frakkland. Cavaignac flotaráðgjafi féll á atkvæðagreiðslu um Dahomeymálið, en í hans stað kom maður sá er Burdeau heitir. Hann setti Dodds sjóliðsforingja yfir allan lier Frakka í Dakomey bæði á sjó og landi. Heldur Dodds nú allri strönd- inni í skotkví. — Nýlundu má það telja, að maður einn ætlar að búa til svo sterk- an sjónauka, að hann geri fjarlægð tungls- ins að l1/,, alin fýrir auganu. Það er 200,000 sinnum sterkari sjóuauki en þeir sterkustu, sem til eru og verður glerið að vera 120 fet um miðjuna. Eu vísindamenn draga það í efa, að þetta fyrirtæki heppn- ist. Þjóðverji einn segir, að til að kæla þennan glerklump þurfi 80 milj. ára, og sé það rétt, þá verður sjónaukinn ekki á sýn- ingunni 1900, eins og ráð er fyrir gert. — Kólera hefur verið í París. Þar hefur Pasteur reynt að setja mönnum kóleru (sbr. að setja bólu) og keppnaðist. Eeyndi hann það fyrst á dýrum, en síðan á sjálfum sér og tveim öðrum mönnum og tókst að ósk- um. Yæri betur að þetta reyndist satt og áreiðanlegt við frekari tilraunir. Daninörk. Ernst Brandes ritstjóri blaðs þess, er „Börstidende“ heitir, og bróðir G. Brandesar týndist fyrir nokkru. Fannst hann nýlega örendur úti í skógi og eru líkur til að hann hafi ráðið sér bana. Veðurátta er nú bærileg og útlit fyrir góða uppskeru. England. Svo lauk kosningunum ensku, að G-ladstone varð ofan á. En mjög er flokkur hans ósamkynja, því að í honum eru bæði vinnumanuafulltrúar, Parnells- sinnar og andstæður haus. Hann hefur 40 atkvæði fram yfir mótstöðumenn sína. Salisbury vildi eigi víkja úr sessi, fyr en nýja þingið hefði sýnt vilja sinn með at- kvæðagreiðslu. Á fimmtudagskvöldið var stóð orustan og beið Salisbury lægri hlut. Hefur Gladstone verið falið á hendur að mynda nýtt ráðaneyti, en eigi er það víst enn þá, hverjir það skipa. Mælt er, að skorað verði á Gladstone að mæla fram með átta stunda vinnutíma fyrir erfiðis- menn og það þykir líklegt, að bann muni heimta setuliðið enska frá Egyptalandi,, en mesta áherzlu leggur hann þó á heima- stjórn íra. Afríka. Arabar hafa gert herhlaup mikið á Kongoríkið. Unnu þeir fyrst kastala nokkra en skiptu þá liðinu og fór annar flokkurinn til Stanley-Falls til að æsa þá Araba, er þar búa, til uppreisnar. Hinn flokkurinn réðst á flokk verzlunar- manna og drápu suma en handtóku suma, en myrtu þá þó síðar. Vörum og gripum ræntu þeir. Útbúnaðurinn til kaupfarar þessarar hafði kostað 600,000 franka. Arabarnir gera hvervetna hin mestu spill- virki og drepa hvíta menu alla vægðar- laust. Allur efri hluti ríkisins er nú á valdi þeirra. Það er í mæli, að Belgíu- konungur vilji fá Stanley til að færa Aröb- um þessum ófrið á hendur og vera herfor- ingi, en eigi vita menn sönnur á því. Ameríka. Fyrir nokkru síðan urðu óeirðir af hendi vinnumanna í bæ þeim, er Homestead heitir í Bandaríkjunum. En þegar lögreglumenn vildu þagga niður í þeim, tóku þeir þá liöndum. Hlóðu síð- an vígi og vörðust herflokkum, er sendir voru móti þeim. En svo fór sem jafnan verður, að enginn má við margnum, og báru þeir að lokum lægri hlut. Nú hafa járnbrautarþjönar þeir, er sporskiptum stýra, hætt vinnu og orðið af óspektir. Þeir hafa brennt geymsluhús og eimlestir hlaðn- ar vörum. Hafa hraðlestir orðið að stöðva ferð sína, þar sem logandi lestir hafa staðið á brautinni. Þetta var í New-York- Lake, Erie og Lehigh-Vally brautunum. — Uppreisn í Venezuela, stjórnin fer hal- loka. Vlðauki. Af enskum blöðum, er ná til 21. f. m. sést, að ráðaneyti Gladstones var þá að mestu fullskipað og hafði feng- ið samþykki drottningar, en lítt kunnir eru flestir ráðgjafarnir nema Eoseberry jarl, er þykir atkvæðatnaður og er í miklu áliti. Hann er nú utanríkisráðgjafi, en var lengi tregur til að takast það starf á hendur, og gerði það að eins með því skilyrði að mega segja því af sér, er hon- um sýndist. Sá heitir Houghton lávarður, er á að verða landstjóri á írlandi í stað Balfours. Vildi Gladstone helzt skipa írskan mann í það embætti, en enginn þeirra, er hann leitaði til, vildi takast það á hendur undir yíirráðum Englendinga — Hinn nýi katólski erkibiskup, Vaughan, eptirmaður Mannings kardínála, var 16. f. m. hátíðlega skrýddur hinu helga „palli- um“ í viðurvist fjölda biskupa. Athöfn þessi var markverð að því leyti, að hún hefur ekki farið fram á Englandi síðan 1556, þá er Pole kardínáli fékk þetta tignarmerki, er erkibiskupar einir mega bera, en það er eins konar band eða kragi þverhandarbreiður með svörtum krossum úr silki og ofinn úr hvitri lambaull af guðhræddum nunnum, en því næst helgað- ur af páfanum sjálfum. Þetta „pallium“, er Vaughan erkibiskup nú fékk, er ekki spánnýtt, því að það var helgað af páfa fyrir 1500 árum. í Danmörku er látinn presturinn Vil- helni Birkedal 83 ára gamall, einhver hinn öflugasti fylgismaður Grundtvigs og nafn- togaður kennimaður. Hafði hann verið lengi prestur í Eyslinge á Fjóni, en var vikið frá embætti 1864, af því að hann komst svo að orði í bæn á prédikunarstól: „Guð gefi konunginum danskt hjarta, ef það er unnt“. En söfnuðurinn vildi ekki missa hann og gekk meiri hluti hans úr þjóðkirkjunni, og myndaði sérstakan söfn- uð. Var Birkedal hinn fyrsti utanþjóð- kirkjuprestur í Danmörku,. er samkvæmt lögum 1. júlí 1868 fékk heimild til að gera sömu prestsverk sem prestar þjóð- kirkjunnar. Hann var yfir höfuð ekki ó- svipaður Grundtvig að kjarnyrtri mælsku og krapti orðsins, enda var komizt svo að orði um hann: „Þá er Birkedal prédik- aði, var eins og menn heyrðu himneskan klukknahljóm“. A. Dybdal, forstjóri íslenzku stjórnar- deildarinnar, sem dvalið hefur hér um tíma, er ekki nema fertugur að aldri. Hann er fæddur 1852 í Vorbasse í Eípastipti, út- skrifaður úr Horsensskóla 1869, en tók embættispróf í lögum við háskólann 1874 með 1. eink., varð s. á. fulltrúi kjá bæjar- og héraðsfógeta í Varde vestan á Jótlaudi og ári siðar fulltrúi málafærslumanns í Nykjöbing á Falstri, en fékk sams konar stöðu í Kaupmannahöfn 1877, varð jafn- framt 1. assistent í íslenzku stjórnardeild- inni 1881, skrifstofustjóri 1885 og deildar- stjóri við lát Hilmars Stephensens 1889. Hann er riddari af dannebrog. íslenzku lærði hann nokkurn tíma hjá dr. Valtý Guðmundssyni. Með því að kunnugir menn höfðu skýrt oss frá, að íslenzkukunnátta herra Dybdals værí mjög ófullkomin, gengum vér á fund hans og höfðum tal af konum. Sagði hann oss meðal annars, að hann skildi vel íslenzku á bók, og þykir oss alllíklegt, að svo sé, þar eð vér komumst að raun um, að honum veitti auðvelt að skilja oss, þá er vér töluðum á íslenzku, og er það þó erfiðara. En hann kvaðst fremur kynoka sér við að tala málið, sök- um þess, að sér væri ábótavant í því, sem eðlilegt er. Þess ber samt að geta hon- um til lofs, að hann liefur einmitt nú

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.