Þjóðólfur


Þjóðólfur - 02.09.1892, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 02.09.1892, Qupperneq 3
163 meðan haun dvelur hér, gert sér nokkurt far um að æfa sig í að tala íslenzku. Er vafalaust, að hann fer héðan miklu betur að sér í tungu vorri, en þá er hann kom og teljum vér þá allmikið gagn orðið að ferð hans. Vér íslendingar vírðum tungu vora mikils og viljum, að henni sé ailur sómi sýndur, og þess vegna leyfum vér oss í nafni landa vorra að skora vinsamlegast á hr. Dybdal að leggja ekki ísleuzkuna á hylluna, er til Hafnar kemur, heldur afia sér ávallt. meiri og meiri þekkingar í henni, enda er það skylda hans samkvæmt em- bættisstöðu hans. Síðan hann kom hingað til bæjarins í byrjun f. m. hefur hann ferðazt til Geysis og austur í Rangárvallasýslu (að Bergþóru- hvoli), skoðað Ölfusárbrúna og brúarstæðið á Þjórsá. Hreppti hann veður hið bezta og lét allvel yfir ferðinni. Stjórnarráðstöfun. Káðgjafinn fyrir ísland hefur samkvæmt tillögum lands- höfðingja vikið Skúla Thoroddsen sýslu- manni og bæjarfógeta á ísafirði frá em- bætti um stundarsakir, frá 1. þ. m. Vér viljum ekki leggja neinn dóm á þessa ráð- stðfun að sinni, en þess verðum vér þó að geta, að naumast hefði rannsókn ver- ið hafin gegn nokkrum öðrum sýslumanni en Skúla, fyrir jafnlitlar sakir, því að þótt liaun beitti nokkurri hörku við mann, er var sterklega grunaður um morð, og auk þess almennt illa þokkaður, var mjög afsakaulegt. Lárus Bjarnason yfirréttarmálaflutn- ÍDgsmaður er settur sýslumaður og bæjar- fógeti á ísafirði fyrst um sinn frá 1. þ. m. Er honurn falið á hendur að rann- saka alla embættisfærslu hr. Skúla Thor- oddsens frá upphafi, því að minna má ekki gagn gera. Fór hann vestur þangað með „Laura“ 30. f. m. Póstskipið „Laura“ kom hingað að morgni 29. f. m., og fór daginn eptir til íaafjarðar. Með þyí kom frá Höfn ung- frú Sigríður Markúsdóttir (kaupmanns á Geirseyri), og frá Skotlandi 17 enskir ferðamenn, þar á meðal amerísk barónsfrú frá Boston, Anna von Eydingsvárd (gipt sænskum manni), og vinkona hennar. Ætla þær að ferðast til Geysis og Heklu. Eunfremur kom frá Skotlandi Þor- björn Jónasson kaupmaður, er sigldi með síðustu póstskipsferð tii að reyna að út- vega enskan fjárkaupmann, einkum fyrir hönd Borgfirðinga, en það tókst ekki. Lít- ur því út fyrir að fjársala í haust til Englands verði sárlítil eða ef til vill eng- in, og er það mikill hnekkir ofan á allt verzlunarólagið. Maður fannst rekinn upp úr Skorra- dalsvatni í Borgartirði 12. f. m. Vautaði nokkuð af handleggjunum og annan fót- inn. Þóttust menn sannfærðir um, að þetta hlyti að vera lík Péturs Guðmundssonar, er einu sinni var hjá séra Baldvin kat- ólska í Landakoti, en til heimilis á Jaðri á Akranesi, er haun drukkuaði í vatúinu ofan um ís í desemberm. 1885. Má furðu gegna, að líkið var ehki meira skemmt eptir svo langan tíma, en oss er skrifað þaðan aí nákunnugum manni, að menn viti ekki til, að nokkur hafi drukknað í yatninu síðan. Þiiigmálaí'undur var haldinn að nafn- inu til í Ásgarði í Hvammssveit 23. júlí. Var þann illa sóttur og lítið rætt um þing- mál. Menn voru alveg áttavilltir eða rétt- ara sagt áttalausir í stjórnarskrármálinu. Vildu hvorugri aðalstefuunni fylgja, hvorki ísfirðingum né „miðluninni“. Séra Guðmundur í Gufudal býður sig ásamt séra Jens til þingmennsku í Dala- sýslu en elcki í Barðastrandarsýslu, og er talið óséð, hvor þeirra verði hlutskarpari. Barðstrendingar h ifa skorað á Björn 104 báru þau ei að síður harm sinn með hugprýði sakleysis- in8 og létu ekki hugfallast. Hin einasta gleði þeirra var að gera Amos veruna í fangelsinu þolanlegri með því að senda honum hitt og þetta, er þau keyptu fjTir þá litlu peninga, er hann hafði áður dregið saman, með því að leggja hart á sig og neita sér um ýmsar nauð- synjar. Nokkrir mánuðir voru þannig liðnir án þess að Amos hefði játað á sig þjófnaðinn eða nokkuð hefði sannað sekt hans, og því urðu ofsóknarmenn hans loksins að leggja málið í dóm án nokkurra verulegra sannana gegn honum. Hið eina, sem mönnum þótti bera vitni gegn hinum ákærða, voru nokkrar skrár með óvanalegri gerð og nokkrar smávélar, er fundizt höfðu í smiðju hans. Þessir smíðisgripir, er enginn gat áttað sig á, báru að minnsta kosti vott um fjölhæfni smiðs- ins og það var nóg til þess, að styrkja gruniun á hon- um. Einnig höíðu fundizt hjá honum svo margar teg- undir af suilldarlega smíðuðum skrám, að bæði dómur- unum og öðrum, er sáu þær, þótti næsta ótrúlegt, að slíkur fátæklingur hefði varið svo mikilli fyrirhöfn að eins til þess að fullkomna sig í iðn sinni. Vinir hans og nágrannar báru þann vitnisburð um siðferði hans og hegðun, sem vænta mátti, og allir voru á sama máli um það, að hann hefði jafnan haft mjög miklar mætur 101 Hér um bil mánuði síðar var brotizt inn i bank- ann á náttarþeli og stolið þaðan 50,000 dollurum. Járn- rimlarnir í einum glugganum voru sagaðir i sundur, og innbrotið var framið á þann hátt, að auðsætt var, að sá sem hafði gert það, hlaut að vera bæði djarfur og slung- inn og vel að sér í öllu vélasmíði. Njósnarmenn lög- regiuliðsins voru á þönum um alla borgiua og þorpin þar í grennd. Allir íbúar Fíladelfíu voru hálfsmeikir við það, að svo hugaðir og sluugnir ræuingjar skyldu vera svo nærri þeim og þeir gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð til að stuðla að því, að þjófnaðurinn yrði uppvís. Hingað og þangað vaknaði dálítill grunur gegn Amos, en hann hjaðnaði brátt aptur, þar eð öllum var fullkunnugt um fátækt hans. Hingað til hafði kaupmaðurinn af auðskildum á- stæðum þagað um viðskipti sin og smiðsins, og Arnos hafði einnig af vanalegu göfuglyndi þagað um þau. En nú sagði kaupmaðurinn, knúður af djöfullegri hefndar- girni, frá sögu þessari og það á þann hátt, að hann gat verið viss um, að húu kæmizt ýkt og afbökuö til eyrna bankastjórunum. Að litlum tíma liðuum tók Amos að veita því eptirtekt, að nábúar hans sneiddu hjá honurn fremur en áður, og að hinir og þessir, sem komið höfðu til hans á hverju kveldi, létu nú ekki sjá sig dögum saman. En af þvi að hann gat ekki gert sér neina 4

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.