Þjóðólfur - 20.01.1893, Side 3

Þjóðólfur - 20.01.1893, Side 3
11 hreppi um 50, í Áshreppi milli 90 og 100. Margir eru hræddír við, að Áshrepp reiði ver af í afkomu- legu tilliti sökum fjölbýlisins, þar eð sundurskipt- ing jarðanna er þar vandræðaleg, en aptur er bót í máli að Safarmýri liggur í honum, það er að segja, ef mýrin fer ekki öll uudir vatn, ann- að hvort fyrir áræðisleysi að vernda hana, eða af náttúrunnar völdum, sem ekki verður við ráðið. En [>að er óhætt að fullyrða viðvíkjandi þessum hreppaskiptum, að það hefur verið gert af þeim, sem um það hafa fjallað, eptir beztu vitund og án hlutdrægni, og skiptin voru mjög nauðsynleg, þar oð reynslan sannar, að smáhreppunum reiðir betur af en þeim stóru. Heyskapur varð hér í hreppi næstl. sumar all- góður að nokkrum bæjum frátöldum; þð var hér sem annarstaðar töðubrestnr að helmingi, en þar flestir náðu heyi úr Safarmýri, var ekki tilfinnan- leg kúatækkun, — tíarða-ávöxtur var viðast sárlitill, sumstaðar enginn. Þar af leiðir bjargarskort rneðal fénaðarleysingjanna, sem undanfarin ár hafa lifað mest á garðræktinui. Á verzlunina þarf ekki að minnast; hún er næst því að vera landplága þetta ár og óhætt er að fullyrða, að margir eru hér, sem enga kaupstaðar- Vöru hafa á heimili sínu, heldur einungis mjólkur- dropann, eins og hann kemur fyrir. í fiestum hreppum hér í sýslu er barnakennsla stunduð af umgangskennurum. Hér í hreppi er komiun á fót, barnaskóli í Þykkvabænum, en sök- um þess að allir hreppsbúar geta ekki notað hann, er umgangskennari líka, svo af því má ráða að sérlega mikið breytist til batnaðar áhugi manna í því efni. Með jólafóstu gerði hér harðindi og hagleysur, sem liélduet til jóla. Síðan hefur verið öndvegis- tíð; hefur bvo að segja enginn vetur komið ennþá i Landeyjum. Heilsufar hefur verið mikið gott allt fram til þéssa tíma, að kvef er nú farið að ganga. — Ný- dáin er hér í hreppi ung kona, Þórunn Jónasdótt- ir í Unhól, sem búin var að kveljast i sullaveiki hátt á annað ár; líka er nýdáinn Bjarni Bjarna- son, bóndi í Háðagerði, fullorðinn maður. Mælt er að héðan úr hreppi ætli hópur af fólki til Aineríku i vor, og mun því ekki þykja óálit- legar hagskýrslur íslendinga þar vestur frá, og staklega má það vera ómerkilegt, ef íslendingar ^jálfir verða til þess að gefa út ósannar skýrslur, til þess að tæla landa sína vestur um haf, eins og þó er er grunur um“. Itangárvallasýslu (ejfstri hluta) 31. desbr.: „Yflrleitt telja bændur hér eitt- hvert hið erfiðasta árferði, er á fyrst r'ót sina að rekja til grasbrestsins og þar af leiðandi mikilli fækkun á nautgripum og löihbum, og svo í öðru lagi, hversu kart- öflur og rófur brugðust tiifinnanlega, sem er opt mikill búfeugur, þvi garðyrkja er hér almenrit stunduð vel og gefur af sér mikinu arð, þegar í ári lætur. Ennfrem- ur má telja verzlunarólagið, sem átt hef- ur sér stað þetta ár og allir kvarta und- an, þó einkum út af fjársöluloyshiu, þar hvergi er nú peninga að fá, hvað sem í boði er, og er því ekki sjáanlegt, hvern- ig bændur eiga að losast við opinber gjöld á næsta vori og önnur gjöld, er á þeim hvíla. — Ekki þurfa þó Rangvelliugar að kvarta undan, að kaupinenn gangi hart eptir skuldum við þá. Pað eru Eyrarbakka- kaupmenuirnir, seui sýslubúar liafa mest verzlunarviðskipti við, einkum við verzl- un Lefoiii stórkaupmanns, sem inun vera einhver áreiðanlegasta verzlun hér við land, og á eflaust verzlunarstjóri hans P. Nielsen mikinn og góðan þátt í því“. Snæfellsnesi 6. desbr. 1892: „Hey- skapur varð hér almennt vondur síðastl. sumar, svo menn voru neyddir til að farga skepnum að mikluin mun, sem óheppilega kom á, þar eð fé í kaupstöðum okkar var í lágu verði sem annarstaðar, en þrátt fyrir fækkun þessa er hætt við, að sumir verði heytæpir, ef veturinn verður harður. Skepnuhöld eru víðast í betra lagi. TíSarfar. Haustið og það sem af er vetrinum hefur verið, þegar á allt er litið, fremur gott; veðuráttan í september var nokkuð umhleypingasöm og óþurkar frara- an af, en seinni part mánaðarins var þerrir góður, svo þá náðu menn inn lieyjum þeim, sem menn áttu laus, en nokkuð hröktum. Allan október var alltaf að kalla má á- gætis veðurátta. Nóvember hefur verið fremur umhleýpingasamur, þó liafa komið ágætis-kaflar öðruhverju i nokkra daga. Fyrir og um miðjan mánuðinn lilóð niður miklum snjó, en sem nú er leystur upp að miklu leyti. Fiskafli hefur verið ágætur í Ólafsvík og Brimilsvöllum í haust; þar munu vera komnir um 1000 til hlutar síðan á Mikalis- messu, en annarstaðar hér vestra hefur lítið fiskazt. Vörubirgðir talsverðar í Stykkishólmi, en þar á móti í Ólafsvík mjög litlar. Heilsufar almennt gott. Framfarir andlegar og verklegar á nesi þessu liggja yfirhöfuð i dái um þessar mundir, sem meðfram orsakast af því vonda árferði, sem þetta ár hefur ver- ið bæði til Iands og sjávar, nema ef með framfórum telst, að ný kirkja er reist í Ólafsvík, i stað hinnar gömlu á Próðá, sem niður er lögð. Þetta nýja hús er að sögn vel vandað að efni öllu, og smíði að líkindum líka. í norðanveðrinu 2. þ. m. hrakti fé í í sjóinn frá Knarartungu í Breiðuvík, 18 frá Hraunhöfn og Landakoti í Staðarsveit og víðar í sömu sveit og hér um hreppaná, þó hvergi svona mikið, það sem frétzt hefur“. Ný Sturlungaöld virðist vera ruunin upp í ísafjarðarsýslu, eptir því sem ráða má af bréf'um og fregnum þaðan að vest- an. Er þar svo mikill kurr í mönnum út af málarekstrinum gegn Skúla sýslu- manni Thoroddsen, að jafnvel þykir ekki uggvænt einhverra stórtíðinda. En löng- um hafa íslendingar verið seinþreyttir til vandræða og svo hyggjum vér að enn verði, enda mun það happasælast fyrir alla lilutaðeigendur. En ekki er Ísíirð- ingum samt láandi, þótt þeir séu stjórn- inni og hennar liðum nokkuð þungir í skauti í öllu þessu stímabraki. Skiptapi. Næstl. mánudag (16. þ. m.) fórst á Skerjafirði bátur frá Breiðabóls- stöðum á Álptanesi á heimleið úr Reykja- vik með 5 mönnum (4 karimöunum og 1 kvennmanni), er ailir drukknuðu. Lagði báturinn frá Skildinganesi að áliðnum degi og sást tii hans þaðan út á miðjum firði, en allt í einu skall á útsynningsél með miklu hvassviðri, og er upp stytti, var bát- urinn horfinn. Er liann ófundinn enn og ekkert af honum rekið nema tvær árar og ein húfa. Þeir sem druknuðu voru bræður tveir, Olafur og Stefán Björnssynir (f bónda á Breiðabólsst. Björnssonar), hinir mann- vænlegustu mehh, hinn fyrnefndi uppeldis- sonur merkisbóndans Erl. Erlendssonar á Breiðabólsst., ennfremur Friðrik Bjarnason vinnumaður, Meyvant Bjarnason lausamað- ur (ættaður frá Premi í Skagafirði) og Soffia vinnukona, öll til heimilis á Breiða- bólsstöðum. Meyvant sál. kvað hafa verið syndur vel. Lítt fyrirgefanlegt liugsunar- leysi sýnist það vera af þeim, er sáu bát- inn horfinn sjónum, að grennslast ekki frekar eptir því svona skammt frá landi. Slysfarir. í nóvembermánuði hröpuðu tveir drengir frá Sauðanesi á Upsaströnd ofan fyrir hamra og beið annar baua. „Yoru þeir að reka fé til beitar við sjó frara, en þar er sæbratt mjög og búfjár- gatan nokkuð tæp á sjávarbakkanum, en nærfellt 30 faðma hátt bjarg fyrir neðan og urð undir, en þá kominn snjóskafl ofan á hana. Á heimleiðinni ráku þeir féð neðan við fjárslóðina, en snarbratt var framan í og ofurlítil gjá eða skora ofan eptir bjargiuu. Þá er þeir komu þar að, varð öðrum þeirra fótaskortur á hjarnbletti og tók að hrapa, en er hinn dreugurinn sá það, ætlaði hann að ná í hann, en það varð til þess, að hann fór á eptir með miklu meiri hraða og liröpuðu báðir ofan fyrir, hiun fyrnefndi ofan gjána eða skor- una, en hinn síðarnefndi á öðrum stað. Þá er heimafólkinu þótti dragast að dreng- irnir kæmu, var þeirra leita farið og urðu menn þess þá brátt vísir, að þeir hefðu

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.