Þjóðólfur - 04.08.1893, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 04.08.1893, Blaðsíða 4
148 i Biskupstunjnim, Þórarinsson frá Iðu E>or- steinssonar og Guðríður Jónsdóttir frá Keldiiahoiti (nú afbakað: Kjarnholt) Gísla- sonar samastaðar Jónssonar s. st. Jónsson- ar. Hann ólst upp hjá Jóni bónda ívars- syni í Einholti (föður Halldórs, er þar býr nú), en var síðan nokkra hríð hjá for- eldrum sínum, unz hann reisti bú á hálfum Drumboddsstöðum og kvæntist Gróu dótt- ur Þorsteins hreppstjóra Tómassonar og Sigríðar Knútsdóttur Björnssonar Högna- sonar lögréttumanns á Laugarvatni, er var bróðir Sigríðar Björnsdóttur, móður Finns biskups. Þau hjón eignuðust 9 börn og eru 4 þeirra á lífi. Þórarinn sál. var fjörmaður hinn mesti, skemmtinn og glað- vær, starfsmaður mikill og áhugamað- ur, snarráður og úrræðagóður. Með dugn- aði sínum og fyrirhyggju kom hann sér upp góðu búi, og var jafnan fús á að rétta þeim hjálparhönd, er hans leituðu, auk þess sem heimili þeirra hjóna var alkunnugt fyrir gestrisni og reglusemi. Hefur sveitar- félagið mikiis misst við fráfall hans, því að hann var mjög nýtur maður í sinni stétt. 31. f. m. andaðist Kristinn Magnússon óðalsbóndi í Engey (f. 2. marz 1827). Hafði leng'i verið blindur. Helztu æfiatriða þessa merkismanns er getið í „Sunnanf." 2. árg. (sepr. 1892, nr. 3 A.). Tllboð um strandferðir næstu tvö ár hafa nfi komið til þingsins úr þremur áttum, eitt frá Otto Wathne í þrennu lagi (bæði strandferðir og ferðir til útlanda), annað frá Birni kaupmanni Kristjánssyni (strandferðir frá Reykjavík til Seyðie- fjarðar) og hið þriðja frá J. J. Randulff, sem ný- korninn er hingað frá Austfjörðum á „Ernst“, cr hann ætlar að hafa til strandferða. Yill Wathne fá 50,000 kr. styrk á ári fyrir ferðir til ötlanda og með ströndum fram, eða 35,000 fyrir sams kon- ar ferðir með færri viðkomustöðum eða í 3. lagi 35,000 kr. fyrir strandferðir eingöngu. En ferðaáætlanir hans munu flestum virðast lítt fram- kvæmanlegar enda styrkurinn hár og koma því til- boð hans líklega ekki til álita, Öðru máli er að gegna með tilboð Randulffs, því að hann býðst til að fara 10 ferðir á ári fyrir að eins 25,000 kr., samkvæmt ferðaáætlun, er þing- ið semur. Munu allmargir þingmenn hafaíhyggju að sinna þessu tilboði, og virðist oss þá sjálfsagt að láta danska gufuskipafélagið eiga sig, því að það er lítt tiltækilegt að afnema t. d. allan styrk til gufubáta innfjarða, en láta gufuskipafélagið fá 18,000 kr. til að keppa við Randulff, láta það fá 18,000 kr. fyrir ferðir, sem vér annars, að öllum líkindum mundnm fá fyrir ekki neitt, eins og nfl. Það er fremur lítil hagsýni í þeirri fjármálapðlitík, að vorri ætlun. Yér ættum hcldur að lofa gufu- skipafélaginu að keppa við landsjóðsstrandferðirnar upp á eigin spýtur, en ekki hjálpa því til þess með fjárframlögum, svo að það geti náð sem fyrst fullu einveldi aptur, þá er enginn fengist til að taka að sér strandferðiruar. Heppilegasta ráðið í þetta skipti mundi því, að taka tilboði Randulffs, halda gufubátastyrknum en sleppa öllu makki við 'gufu- skipafélagið og sjá, hvað það gerir En að styrkja tvo keppinauta, það getur aldrei orðið affarasælt, til lengdar og er fremur óviðkunnanlegt. Það verða eflaust harðar u'mræður á þingi um þetta strand- ferðafyrirkomulag. Skemmtiferðaflokkurinn útlendi kom hingað til bæjarins 31. f. m. frá Geysi og Gull- fossi. Hafði hreppt dágott veður á leiðinni og lét vel yfir förinni. Nokkrir úr hópnum, þeir er ekki fóru að skoða Gullfoss gengu upp á Bjarnarfell fyrir ofan Helludal og voru hrifnir af útsjóninni þaðan og líktu því við Rigi í Sviss, enda sézt af Bjarnarfelli yfir mestallt undirlendið i Árnes- og Rangárvallasýslum niður til sjávar og langt norð- ur og vestur á öræfi. Ekki heppnaðist þeim samt að sjá Geysi gjósa, enda er því valt að treysta við svo stutta dvöl. Enn fremur tókst nfl svo óheppi- lega til, að þeir gátn ekki heldur séð Strokk gjósa þótt borið væri ofan í hann; er mælt að hann hafi verið skemmdur um stund af ógætilegum ofaníburði sköramu áður og má telja það illa farið. Ei að síður kváðu þeir hafa verið mjög ánægðir yfir ferð- inni, og luku miklu lofsorði á náttúrufegurðina hér, einkum á Þingvöllum. Yonandi er, að ferðuin öt- lendinga hingað fjölgi og þess vegna ætti nö þegar að hugsa eitthvað fyrir því, að gera þeim dvölina hér þægilegri, einkum með því að stofna gistihús við Geysi, eins og optar hefur verið minuzt á hér í blaðinu. Ferðamenn þessir sigldu héðan með „Laura“ í gærmorgun. Með benni fóru einnig leikenduruir dönsku (E. Jensen, frú Olga Jensen og E. Wulff) og kváðu þeir ætla að koma hingað aptur að snmri. Frá útlöndum bárust blöð til 27. f. m. með „Stamford“, er kom í fyrra dag. Þykir það mestum tíðindum sæta, að til ófriðar horfir millum Frakklands og konungsríkis þeBs i Asiu, er Siam nefnist. Höfðu Siamsbúar Jskotið á tvö frakknesk herskip og okki viljað leyfa þeim uppsiglingu til höfuðborgarinnar Bangkok, en Frakkastjórn brást reið við því tiltæki og heimtaði skaðabætur af Siamskonungi fyrir árásina og drjúgar landspildur að auki, og gekk í því þrefi alllengi, þvi að Englend- ingar Iögðu orð í belg og vildu okki láta Frakka þröngva Siam, enda vilja þeir ógjarnan að þeir fái mikil ráð í Asíu. Að vísu höfðu þeir ekki sagt Siam ófrið á hendur 27. f. m., en búizt var við því á hverri stundu og sent|höfðu Englendingar 2 her- skip til Bangkok til að vera á verði og gæta rétt- ar enskra þegna þar i landi. Verið getur að upp- þot þetta semjist enn án frekari vandræða, en all- mikill vígahugur kvað vera í Frökkum. Þeir vilja fara að reyna sig einhversstaðar. Norska stórþinginu var slitið 22. f. m., en þrem dögum áður hafði það samþykkt með 62 atkv. gegn 49 að segja slitið konsúlasambandinu við Svíþjóð frá 1. jan. 1895, og um Baina leyti samþykkti það með 62 atkv. gegn 52 lækkun á launum konungs úr 336,000 kr. niður í 256,000 (einn þ. m. stakk upp á að færa þau niður i 100,000, en það var fellt). Þá voru einnig laun krónprinsins lækkuð ofan i 50,000 kr., og strykað alveg burtu borðfé I handa ráðgjöfunum i Stokkhólmi og Kristjaníu, að upphæð 25,000 kr. Sviar eru auðvitað óðir og upp- vægir yfir þessum „niðurskurði“, en það má segja um Norðmeun, að þeir „kæra sig ekki um kónginn grand“. Yér íslendingar erum þægari og þýðari við vora stjórn. Allmikið verkfall í kolanámum á Englandi og fjöldi manna atvinnulausir. Af nafnkenndum mönnum dönskum eru nýdánir: Chr. Ewaldsen prestur á Friðriksbergi og With hæstaréttardómari. Vátryggingarfélagiö „Commercial Union“ teknr í eldsvoða-úbyrgð hús, bœi, búsgögn, bœhur og yfir höfuð allshonar lausafé, þar á meðal shepnur og hey o. fl. fyrir lœgsta ábyrgðargjald, sem tekið er hér á landi. Umboðsmaður félagsins er Sighvatur Bjarnason bankabókari í Reykjavík. Fyrir Isafjarðarsýslu og haupstað hefur héraðslæknir Þorvaldur J'onsson á Isafirði umboð fyrir félagið; þó geta íbúar téðrar sýslu, ef þeir heldur vilja, snúið sér beina leið til aðalumboðsmanns félagsins í Reykjavík. Vátrygging á húsum hjá Þorvaldi lækni Jónssyni er tekin gild, að því er snertir lánveitingu úr landsbankanum. BCér með flyt eg mitt innilegt þakklæti öllum þeim, er á einhvern hátt hafa tekið þátt í sorg minni við fráfall mannsins míns sál. Þorkels dbrm. Jónssonar, sérstaklega fyrst þeim heiðurshjðnum hr. Þorkeli suikkara Gíslasyni og kouu hans Guð- rflnu Thómasdóttur, fyrir þeirra einstöku hjálpBemi og alla aðhjúkrun við haunj í banalegunni, þar næst hinum veglyndn sveitungum hans, er gengust fyrir að flytja hann liðið lík úr Reykjavík að heimili hans Ormstöðum; ennfremur séra Jóhanni dóm- kirkjupresti Þorkelssyni fyrir hina fógru huggunar- ræðu, er hann flutti þar yfir liinum framliðna; og að síðustu öllum þeim, er heiðruðu útför hans hér með návist sinni. Ormstöðum 18. júlí 1893. 324 Ingibjörg Þörðardöttir. c,veinofja fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Silfur-cylinderúr með ekta gullrönd 20 kr. Akkerisgangúr, sem ganga í 15 steinum, 16—20 kr. Cylinderúr í nýsilfurs- hulstrum 10 kr. Búmannsúr 12 kr. Við- gerðir á allskonar úrum leystar af hendi með vægu verði. Selzt allt gegn 2 ára tryggingu og er sent í allar áttir. S. Rasmusscn, Sværtegade 7. Kjöbenhavn K. 326 Eigandi og ábyrgöarmaáur: Hannes Þorstelnsson, cand. theol. Félagsprentsmiójan

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.