Þjóðólfur - 22.09.1893, Side 1

Þjóðólfur - 22.09.1893, Side 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. ErlendiB 5 ltr. — Borgist fyrir 15. júli. Uppsögn,bundin við áramðt, ógild nema komi til útgef- anda fyrir 1. október. ÞJÓÐÓLFUR XLV. árfíc Reykjavík, íöstiuiaginn 22. september 1893. Nr. 45. Bókmenntir. íslenzk sönglög. Samið hefur Helgi Helgason. 1. hepti. 28 bls. 4. Hepti þetta hefur þegar hlotið loflegt umtal og á það skilið, bæði sakir þess gildis, er það hefur í sönglegu tilliti, og sakir þess áhuga, er höf. hefur nú og endrarnær sýnt í því, að skipa innlendum söngvum og lögum í það sæti, er þeim ber með réttu. Það er iofsvert að liiynna að öllu þjóðlegu, öllu því, sem einkennir þjóðlíf vort og er sérstaklegt fyrir það, og meðal þess er Ijóðagerð og sönglist, er stendur á innlendum grundveili, mjög þýð- ingarmikil, einkum til að örfa og glæða þjóðernismeðvitundina og til að sýna oss, að vér þurfum livorki að iána Ijóð né lög frá öðrum þjóðum til að „krydda“ söng- inn, ef svo má segja. Vér eigum margar perlur í íslenzkum kveðskap, marga undur- fagra texta, er frægustu tónskáld mundu hafa mikla ánægju af að semja sönglög við. Oss vantar enn hagleg lög við mörg hin fegurstu kvæði vor. í þessu 1. hepti hr. H. Helgasouar eru alls 20 lög; sum þeirra eru þegar orðin almenningi nokkuð kunn, t. d. „Skarphéð- inn í brennunni“, „Eyjafjörður“ og „Þing- vallasöngurinn“ (Öxar við ána o. s. frv.), en flest þeirra eru ný af nálinni og hafa eklci áður verið prentuð. Af lögum þess- um eru 7 við kvæði eptir Steingr. Thor- steinsson, 4 við kvæði eptir séra Matth. Jochumsson, þar á meðal „EggertÓlafsson", eitthvert hið fegursta kvæði skáldsins, og er lagið við það mjög snoturt og á einkar- vel við við efnið. Hin lögin eru við kvæði eptir séra Helga Hálfdanarson (1), séra Jónas Jónasson (l), séra Stefán Thoraren- sen (1), Hannes Havstein (2), Br. Jónsson frá Minna-Núpi (1), Pál Jónsson ritstj. (1, „Fossinn og eikiu“, fagurt lag) og höf. (H. Helgason) sjálfan (2). Yfirhöfuð á hepti þetta skilið að fá binar beztu viðtökur hjá löndum vorum, euda verður því fýr framhaldsius að vænta. Presturinn og sóknarbörnin. Fyrir- lestur, sem Ólafar Ólafsson, prestur í Arnarbæli hélt á Synodus 1893. Kostn- aðarmaður Sigurður Kristjánsson. 36 bls. 8. Efni fyrirlcsturs þessa hljóðar einkum um sambandið millum prests og safnaðar, um þær skyldur, er presturinn hafi gagn- vart hjörðinni, sem honum er trúað fyrir að gæta, og hvernig hann eigi að rækja hirðisstaríið, svo að það geti borið góða ávexti. Einkum leggur höf. mikla áherzlu á húsvitjanirnar, og einn kaflinn um það er svolátandi: „Húsvitjanirnar eru að mínu áliti illa yrktur blettur í akurlendi kristinnar kirkju hér á landi, blettur,sem gæti gefið af sér marg- falda uppskeru við það, sem nú er, ef vel og viturlega væri að farið. Mér dettur i hug á þessari stundu samlíking, sem jeg vona og veit, að ekki muni hneyksla yður, hátt- virtu herrar! Mér detta í hug Ameríku- agentarnir. Þeir eru sendiboðar, sem fara um land allt til að bjóða mönnum til fyrir- heitna landsins fyrir vestan haf. Þeir safna fólki saman á vissum stöðum og halda yfir því tölur og flytja fyrir því fyrirlestra, og með því veiða þeir án efa marga sál. En flesta veiða þeir með því að „húsvitja“, með því að fara heim til manna og tala við menn á heimilum þeirra í næði um gæðin, sem á boðstóium eru í landinu fyrir vestan haf, sem flýtur í mjólk og hunangi. Nú! Vér erum líka sendi- boðar, sendiboðar Jesú Krists; vér viljum líka fá fólk til að skrá sig. skrá sig til guðsríkis og flytja til fyrirheitna landsins. Vér söfnum fólki saman á vissum tímum og vissum stöðum og höldum yfir því ræð- ur; en — flesta mundum vér veiða — eg blygðast mín ekki fyrir orðið — ef vér húsvitjuðum rækilegar en vér gerum. Og vér, sem berjumst fyrir hiriu æzta og helg- asta málefni mannkynsins og þjónum kon- ungi konunganna, ættum þó ekki að vera áliugaminni en þeir, sem þjóua jarðnesk- um drottnum einungis fyrir hagsmuna sakir“ \ 1) Vér erum höf. alveg Bamdóma nra það, að „húíivitjanir" agentanna haíi mjög mikil áhrif til að draga fólkið úr laudinu, og munum aldrei verða tvúaðir á þá kenningu, að þær hafi ekkert að þýða. Dæmin eru einuig deginum Ijósari, og þarf ekki fleiri vitna við. Fólkið fer flest úr þeim héruðum, sem agentaruir eru ávallt að spigspora um. Það tjáir ekki að neita því. Lítum á hiun mikla vest- Um Ameríkuprestana fer höf. allþung- um orðum, og þykir þeir hafa farið með ofsa gegn kirkjunni hér heima, og verður því varla neitað, þá er séra Hafsteinn Pét- ursson er undanskilinn, því að hann hefur látið minnst til sín taka út á við, og ritar t. d. miklu hógværar um trúarmál en séra Fr. Bergmann. í þessum fyrirlestri séra Ólafs eru fólgnar ýmsar eptirtektarverðar bend- ingar, er þjónar kirkjunnar hér á landi ættu að íhuga rækilega. Höf. segir hisp- urslaust það, sem honum býr í brjósti og tekst fimlega að klæða hugsanir sínar í fagrau, smekklegan búning, því að orða- valið er gott og allmikið mælskusnið á meðferð efnisins. Þar er ekki þessi logn- mollublær áhverri setningu, né þessi livern- dagslegi, líflausi litur á öllu, sem opt breyt- ir háfleygasta efni í reglulegt svefnlyf, er verkar svo notalega svæfandi á lesand- ann. Nokkrar sniásögur. Þýðandi og útgef- andi ólafur Ólafsson, Hountain, Ame- ríku. 32 bls. 8. (Félagsprentsm.). Sögur þessar eru flestar siðferðislegs efn- is og vel valdar, þótt stuttar séu. Eru þær ekki ósvipaðar „sögum biskupsins“ er hafa náð svo mikiíli liylli meðal alþýðu hér á landi. Þýðandinn er fátækur maður, sem hefur varið tómstundum sínum til að snúa útlendum sögum á móðurmál sitt, og er þýðingin á smásögum þessum vonum fram- ar hjá ómenntuðum almúgamanni. Það eru margir 25 aurarnir látnir fyrir lakari rit- Iinga en kver þetta, sem fæst í bókaverzl- un Sigurðar Kristjánssonar. Staí'rófskvcr eptir Eirík Briem (presta- skólakennara). Kostnaðarmaður Sig- urður Kristjánsson. 48 bls. 12. Kost- ar 25 aura. Nafn höfundarins, sem er kunnur að vandvirkni og nákvæmni í öllu, er liann leggur hönd á, er fyllilega næg meðmæli með þessu nýja stafrófskveri og nægileg trygging fyrir því, að það sé hentugt í alla staði og við barnanna hæfl. urflutuing þetta ár úr Yopnafirði, einmitt þar sem Sveinn Bryujólfsson hafði beikistöðu sína, eða úr Mývatnssveit, þar sem Sigurður Kristófersson sat lengst. Skyldu þeir hafa orðið jafnmiklir, hefðu agentar þessir aldrei þangað komið?

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.