Þjóðólfur - 22.09.1893, Síða 2

Þjóðólfur - 22.09.1893, Síða 2
178 Maimtjóu. í þessum mánuði hafa 4 menn drukknað í sjó hér nærlendis, nefnil. 2 á Vatnsleysuströnd 5. þ. m. (Sveinn Kristj- ánsson bóndi í Hausthúsum og Magnús vinnumaður Lárusar homöopatha á Sjónar- hól) og 2 á Miðnesi 16. þ. m., unglings- piltar, annar frá Stöðulkoti, hinn frá Tjarn- arkoti. Þeir voru á uppsiglingu úr fiski- róðri, en veður hvessti skyndilega. Yeðurátta hefur verið allköld næstliðna viku. 19. þ. m. varð alsnjóa sem um há- vetur og frost nóttina eptir. Hefur hey- skapur orðið allendasleppur hér sunnan- lands sakir rigninga og hretviðra allan þennan mánuð, en verður þó líklega í meðallagi víðast hvar sakir góðrar gras- sprettu og öndvegis-tíðar til ágústloka. Á Norðurlandi (t. d. í Húnavatnssýslu og Skagafirði) hefur nýting orðið hin bezta> því að ekki hafði þar rignt tii muna nema hér um bil vikutíma snemma í þessum mán- uði, og náðust því liey í garð lítt skemmd nú fyrir réttirnar, en hér syðra, eiukum í Borgarfirði, eiga margir enu úti hér um bil 3—4 vikna heyskap. Nú kominn þurk- ur og bezta veður. Niðurjöfnunarnefnd lieykjavíkur. í haná voru kosnir 15. þ. m. 3 menn til 6 ára: Steingrímur Johnsen söngkennari (endurkosinn), séra Jöliann JÞorkelsson dómkirkjuprestur og Magnús Benjamínsson úrsmiður. Kjörfundur mjög illa sóttur. Helgríma sú, er Þjóðvinafélagið hefur til sölu, ætti að vera á hverju einasta sveitaheimili og við allar verzlanir, er taka fé til slátrunar. Virðist það ekki óþarft að brýna það nú fyrir mönnum áður en aðalsláturtíminn byrjar, að leggja nú nið- ur hina gömlu, svaðalegu skurðaraðferð, er hlýtur að valda skepnunni kvalafulls dauða. Að murka lífið úr henni með hníf í stað þess að rota hana í einni svipan, virðist vera svo harðneskjuleg og hroðaleg aðferð og bera svo Ijóslega vott um algert tilfinningarleysi gaguvart hiuurn skynlausu skepnum, að menn ættu að sjá það sjálf- krafa, hve óhæfileg hún er, og neita hreint og beint að viðhafa hana. Það er hvorki mikill vandi né heldur mikil tímatöf að setja helgrímuna rétt á kindina. Helgríma sú, er hr. Tryggvi Gunnarsson hefur til 8ölu, er nú einriig endurbætt svo, með því að gaddurinn hefur verið lengdur, að kind- in hlýtur að rotast á augabragði með einu höggi, ef ekki er því klaufalegar að farið. Norðurströnd Frakklands sígur í sjó. Tveir frakkneskir verkvélafræðingar Hugo og Lallemand, er unnið hafa að hall- amælingum á Frakklandi nokkur undan- farin ár, taka fram í skýrslum sínum, að þeir hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að suðurhluti landsins einkum suður við Pyr- eneafjöll hækki smátt og smátt en að norð- urhluti þess, einkum kringum borgina Lille, verði aptur á móti lægri ár frá ári, og hafa þeir reiknað út, að lækkun jarðvegs- ins í París sé hér um bil */8 þumlungs á ári og samkvæmt því stæði Notre-Dame- kirkjan á sjávarbakkanum að 3000 árum liðnum. Dýrasala. Á hverju ári er flutt til Evrópu allmikill fjöldi tágætra dýra einkum frá Asíu og Afríku, og hafa einstakir menn sölu þessa fyrir atvinnu; þeir kaupa dýrin þaðan, sem þau eiga heima, annast um flutning þeirra og selja þau aptur háu verði einkum í dýragarðana, en opt til einstakra manna. Verö hinna ýmsu dýra er, eins og nærri má geta, allmismunandi og breytist ár frá ári, eptir því hve eptir- spurnin eptir vissum tegundum er mikil, og eptir því, hve erfiðleikarnir eru wiklir að fá þær. Nú sem stendur er gíraffinn langdýrastur allra og alls ekki til sölu í Evrópu. Fyrir nokkrum árum mátti fá hann keyptan fyrir 360 krónur bæði karl- dýrið og kvenndýrið, en nú fást þau ekki þótt 36,000 kr. séu boðriar, sakir þess, að dýr þetta er orðið svo fágætt í Mið-Atríku, þar sem það á heima, að menn eru hrædd- ir um, að það deyi alveg út, þá er landið tekur að byggjast. Auk þess er mjög erfitt að flytja dýr þetta hina löngu landleið úr frumskógum Mið-Afríku til sjáfar, og þótt það komist lilandi til Evrópu er það mesti vonargripur, því að gíraffinn þolir illa loptslagið, jafnvel í heitustu löndum álfu vorrar. Næst gíraffanum er nashyrning- urinn og vainaliesturinn í hæstu verði, þetta frá 9,000—12,600 kr. livor. Ljónið kostar aptur á móti sjaldau meira en 4,500 kr., þótt 8,460 kr. hafi verið borg- aðar fyrir eitt eintak. Fæði handa „konungí dýranna" kostar heldur ekki nema 3 kr. 60 aura á dag, en fæði ým- issa annara dýra um 5 kr. eða meira. Tígrisdýr kostar hér um bil 1440 kr.', jagúar helmingi minna, en leopardar ekki nema 450 kr. Höggormar eru einnig furðu ó- dýrir. Indverskur „pýþóns“-höggormur 30 þumlungar ummáls og 15 fet á lengd var seldur fyrir skömmu á Englandi fyrir 22 kr. 50 a. og „cobra“-höggormur fyrir 9 kr. Hvítabirnir eru og mjög ódýrir, um 100 kr. eintakið eða tæplega það. En verðhæð dýranna for ekki eingöugu eptir því, hve fágæt þau eru, heldur eptir kostnaðinum við flutning þeirra. Nú sem steudur má t. d. fá ungan fil keyptan á Indlandi fyrir hér um bil 180 kr. en 360 kr. kost- ar flutningurinn á honum sjóveg til Ev- rópu. Er þess getið í enskurn blöðum, að skipstjóri noklcur hafi samið við stjórnar- völdin í Rangún að kaupa fíla, er séu ó- hæfir til viunu fyrir 270 lcr. hvern og flytji hann þá svo til Evrópu og selji þá þar í Marseille, Triest eða Hamborg fyrir 3600 kr. livern, og er það laglegur gróðí, enda þótt greiddar séu 360 kr. í fiutningsgjald fyrir hvern og nokkrir hrökkvi stundum upp af á leiðinui. Meðal fuglanua er strútsfuglinn lang- dýrastur allra eða 7,200 kr. „parið“. Það eru að eins fá sýnishorn af þeim í Evrópu, með því að einstakir auðmenn í Afríku sækjast mjög eptir þeim og ala þá til að selja fjaðrirnar, sem fluttar eru til Eng- lands og seldar þar dýrum dómutn. Jafn- vel hinar fágætustu tegundir af uglum kosfa sjaldan meira en 180 kr., en svart- hálsaða svani má selja fyrir 540 kr. Eptirniæli. Jón Þöröarson, bóndi á Auðólfsstöðum í Langa- dal, andaðist 9. ágöst. Eiuu nágrauua hans hefur sent „Þjóðólfi“ svolátandi dánarminningu jiessa merkisbónda: „Hann var fæddur 1841 að Stóruborg í Víði- dal. 1866 giptist hann Guðrúnu Kristmundsdóttur frá Kolugili í sömu sveit. Þeim hjónum varð 8 barna auðið, af þeim dóu 2 i æsku, en 6 eru á lífi: 4 piltar og 2 stúlkur, öll uppkomin og hin maunvænlegustu, er nú ásamt móður sinui harma sárt ástríkau eiginmaun og umhyggjusaman föður. Fyrstu 5 búskaparár sín bjó Jón sál. í Víðidal. Þaðan flutti haun búferlum upp í Langadal, fyrst að GunnBteinBBtöðum og bvo að Auðólfsstöðum, og bjó þar samflcytt 19 ár með miklum sóma og dugn- aði. Það má óhætt telja Jón sáluga einn hinn merkasta bónda þessa héraðs sakir atorku hans og mannkosta. Haun var að náttúrufari gæddur góð- um hæfilegleikuin, þótt hann væri ekki settur til monnta i æskunni; sem þá var ekki siður, uuni hann allri sannri menntun og framförum, enda spar- aði liann ekkert til að mennta börn sín, samkvæmt stöðu sinui í mannfélaginu. Hann var maður liinn gestrÍBiiasti, og bar margt til þeas, að gestir dróg- ust mjög að garði hanB: svo sem snyrtimannleg umgengni utanhúss og innau, er óvíða mun eiga sinn líka, hinn ríflegi beini, og umfram allt hið ljúfmannlega viðmót húsbóndans, er ætíð hafði fjörgandi spaugsyrði á vörum, og loitaðist á allau hátt við að gera gestum sínum allt tii þægiuda og skemmtunar. í framgöngu hans lýsti sér hvívetua bróðurleg velvild og innileg hluttekuing í annara kjörum, og var haun í því sönn fyrirmynd. Hanu var fjör- og starfsmaður hinn mesti, hreinskilinu í luud og viufastur. Hauu var hagur vel á tré og járn, enda var liönd hans ætíð reiðubúin að hjálpa

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.