Þjóðólfur - 06.10.1893, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 06.10.1893, Blaðsíða 3
187 kjöti því orðið fremur lágt nfl. 15—17 a. pd.; mör og gærur 20—25 a. pd. Hreiim marmari. „Austri“ getur þess í 22. tölubi., 22. ágúst, að steinafræð- ingur sænskur hafi fundið hreinan marmara millum Kolfreyjustaðar og Höfðahúsa í Fáskrúðsfirði. Um sýslufund Ísíiröinga. Herra ritstjóri! 142. tölubl. blaðs yðar, á bls. 168, standa þau umrnæli um sýslunefndarfuudinn, sem haldinn var í ísafjarðarsýsiu 14.—15. ág., að „lík- legt þyki, að bann hefði ekki komizt á, ef þetta mál (o: um skipting sýslunnar í 2 sýslufélög) hefði ekki verið á dagskránni11. Af því að eg er sýslunefndarmaðr í vesturhluta ísafjarðarsýslu, þá er mér það kunnugt, að þessi tilgáta er ekki rétt. Til að sauna það, nægir að telja þaö eitt, að sumir af sýslunefndarinöunum vestursýslunnar voru hikaudi við, að ‘þetta mál yrði tekið til meðferðar að þessu sinni, og einn þeirra^kvað jafnvel á fundinum upp úr með þá til- lögu, að málið væri tekið út af dagskrá fundarins, þar eð norðanmenn ættu eigi kost á að greiða nú atkvæði um það. Svona langt er frá því, að það væri ósk vestanmanna, að vilja sæta lagi til að fjalla um málið í fjarvist norðanmauna, enda eru allmiklar líkur til, að mál þetta hefði nú gengið fram eins fyrir það, þótt norðanmenn hefðu setið fundinn, svo að vestanmenn töldu sig ekki hafa að óttast af norðanmönnum í þvi efni. í sambandi við þetta vil eg geta þess, að þar sem i 58. tölubl. „ísafoldar“, bls. 230, er minnzt á þennan sama sýslunefudarfund, og látið liggja að því, að hann hafi tekizt af því, að Skúli Thorodd- sen var eigi nærri til að æsa menn til ólöghlýðni, þá mun einnig þetta ástæðulaus tilgáta. Eg tel vÍBt, að allir þeir sýslunefndarmenn, er fundinn sóttu, hefðu gert það eins fyrir það, þótt Skúli hefði verið hjer vestra. Eg hygg, að allir sem sóttu fundinn, hafi gert það af því, að þeim væri ljóst, að það væri sýslufélagi voru til vansæmdar og vanþrifa, að ekki yrði uppi lialdið löglegri sveit- arstjórn. Viljið þér gera svo vel, að ljá línum þessum rúm í heiðruðu blaði yðar? Söndum 11. sept. 1893. Kristinn Daníelsson. Húnavatnssýslu 22. sept.: „Tíðarfarið spilltist seinni partinn í ágúst, eða um liinn 20., með norðaustan stormviðrum, en svo byrjuðu stór- felld úrfelli, sem stóðu svo að segja látlaust yfir i hálfa aðra viku. Gerði svo uppstyttu nokkra daga, en svo komu óþurkarnir aptur nokkra hríð. Hiun 18. þ. m. og aðfaranótt hins 19., kom hér það afspyrnu norðaustan-veður, að menn þykjast tæploga muna aunað oins eða meira. Úrfelli var talsvert með á sumum stöðum. Um tjón af veðri þessu hefur litið frétzt, en það má ganga að því vísu, að það hafi verið töluvert, auk þess, sem þegar er auðséð, svo sem framúrskarandi hrakn- ingur á mönnum og skepnum í göngunum, sem einmitt á þessum tíma hafa alstaðar staðið yfir, svo og rnikið verri tjárheimtur og heyfok og hrakn- ingur, því víðast eða alstaðar hafa hey verið úti að mun. Á Skagaströnd t. d. feykti fiskiskipi yfir timburhús og kom ofan á mann hinumegin, en hann lenti innan i bátnum og hélt því lifi lítt meidd- ur. Þetta óstöðuga og óþurkasama tiðarfar hefur fjarska mikið dregið úr þeim góða heyafla, sem út- lit var fyrir. Mun nú naumast heyafli almennt meiri en í meðallagi11. Mannalát. Guðríin Davíðsdóttir, kona Dor- steins bónda Ólafssonar i Görðum á Akranesi, and- aðist 13. sept. næstl., 34 ára gömul. Hún var fædd og uppalin í Reykholtsdal, af góðu fólki kom- in, giptist i maí 1892, fluttist að Görðum sama ár, ól andvana bnrn með miklum harmkvælum 19. ág., og lézt af afleiðingum þess eptir miklar þjáuingar. „Trú og dyggð og siðprýði voru hennar lífs ein- kunnir, en með þolinmæði og von vann hún sitt dauðaetrið". 26/o ’93. S. r W1 tiis ky ! <4 Old Seotch á 1.50 fiaskan. ^ H The „Edinburgli“ Old highl. W Í á 1,50 flaskan H' '2 er nýkomið í ® r verzlun Eyþórs Felixsonar. F V W1 hisky! !1 Heilflöskur eru keyptur í verzlun Eyþórs Felixsonar fyrir 10—15 aura stykkið. 70 foreldrar hennar stóðu mjög á móti því, að þau næðu sarnan og faðir hennar hafði jafnvel einu sinni hótað að gera haua arflausa, ef hún ætti hann, en hún hafði sagt Jens, að hún ynni honum, og hann var ungur, hraustur og sterkur og þar að auki duglegur og ósér- hlífinn til allrar vinnu. „Að vísu er kaupmannssouur- inn Jað draga sig eptir henni“, hugsaði Jens, „en eg skal vissulega stritast við að vinna mér svo mikið inn, að eg geti byggt nýtt hús í stað ganila hússins lians föður mín8. Ætli nokkur þurfi að illskast við mig, þótt eg fái hana, fyrst hún gefur mér sjálf jáyrði siti? Jens situr nú heirna í stofu hjá foreldrum sínum, sem eru við vinnu sína í stofunni. Allt i eiuu er hurð inni lokið upp og inn kemur sendimaður frá sýslumanni og á að sækja Pétur á hans fund. Gestur þessi kom þeim öllum mjög óvænt og Jens og móðir hans störðu á hann forviða, og furðuðu sig á því, að yfirvöldin skyldu vilja finna hann, en það leit svo út, sem Pétur skildi þetta ögn betur, því haim varð uáföiur. Grunur Péturs rættist. Haun var sakaður um þjófn- að. Sýslumaðurinn sagði, að hann væri grunaður um að hafa stolið úr hjalli kaupmannsins. Það var haldið próf, og Pétur játaði. Tveim mánuðum síðar var hann látinn í hegningarhúsið. Þetta var þung þraut, fyrir Jens, og hvers vegna 97 tárin runuu niður eptir kinnum liennar, og hún tók að biðja til guðs af heilum hug. Þá heyrði húu allt í einu ein- hvern skarkala i svefnherberginu. Hún gekk óðar inu, og varð bæði glöð og forviða, er hún sá mann sinn vera að klæða sig í mesta snatri. „Ætlarðu að fara?“ spurði hún. „Já“, svaraði hann stuttlega, „samvizkan, þessi ó- tætis kvalari, lætur mig ekki hafa neinn frið. Eg ætl- aði að sofna aptur, en þá beyrði eg ávallt einhverja rödd kalla til mín : ,Farðu Heim! Verið getur, að líf fátæku konunnar sé í hættu'. Hvað á eg þá til bragðs að taka?“ Hann var fljótur að klæða sig, og tók hatt sinn og staf, hálf-önugur. Þjónninn bar verkfæri hans, og þar eð hann vissi, hvar iðuaðarmaðurinn bjó, hröðuðu þeir göngu sinni þangað, sem mest þeir máttu. Eins og geta má nærri, gat hin göfuglynda kona læknisins ekki farið að sofa, þar eð þetta atvik hafði haft svo mikil áhrif á tilfinningar hennar. Að einni stuudu liðinni kom Heim aptur, svo votur, að varla var þur þráður á honum, en í langan tíma hafði kona hans þó ekki séð hann jafn ánægjulegan á svipinu sem nú. Hann hafði fataskipti, bað uxn heitt tevatn, og þegar hann var að drekka það, sagði hanu við konu sína: „Það var gott, að þú vaktir mig; annars hefði konan

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.