Þjóðólfur - 12.01.1894, Síða 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr.
Erlendis 5 kr. — Borgist
fyrir 15. júlí.
PJÓÐÓLFUR
Uppsögn, bundin vi8 áramöt,
ógild nema komi til útgefanda
fyrir 1. oktöber.
XLYI. árg.
t
Helgi lektor Hálfdánarson,
er lézt 2. þ. m., eins og getið var í síð-
asta blaði, var fasddur á Rúgsstöðum í
Eyjafirði 19. ágúst 1826, en þar bjuggu
þá foreldrar hans: Hálfdan stúdent Einars-
son, er síðast var prestur og prófast-
ur á Eyri í Skutuisfirði (f 1865) og Álf-
heiður dóttir hins mikla gáfumanns séra
Jóns Jónssonar lærða í Dunhaga. Yoru
þau hjón Hálfdan og Álfheiður systkina-
börn, því að séra Einar aðstoðarprestur
í Múla (f 1801) faðir Hálfdans og Helga
kona séra Jóns lærða voru systkin, en
foreldrar þeirra voru: séra Tómas Skúla-
son á Grenjaðarstað (f 1808) og Álfheið-
ur Einarsdóttir prófasts á Kirkjubæjar-
klaustri Hálfdanarsonar systir hins lærða
fræðimanns mag. Hálfdans Einarssonar
skólameistara á Hólum. Kona séra Ein
ars Tómassonar en föðurmóðir Helga lekt-
ors var Guðrún Björnsdóttir sýslumanns í
Þingeyjarþingi Tómassonar systir Þórðar
sýslumanns í Garði, er var orðlagður gáfu-
maður sem faðir hans og Steinunnar móð-
ur Karls Andersens skálds. — Fjögra ára
gamall fluttist séra Helgi með foreldrum
sínum vestur að Kvennabrekku í Dölum,
því að faðir hans var þá prestvígður þangað.
Þar andaðist Álfheiður móðir hans 1833,
en séra Hálfdan fékk litlu siðar Brjáns-
læk (1835) og kvæntist aptur Guðrúnu
Vernharðsdóttur prestsekkju, er reyndist
hinum ungu stjúpbörnum sínum sem bezta
móðir og minntist hinn framliðni hennar
jafnan með ást og virðingu. Faðir hans
kenndi honum skólalærdóm að mestu leyti,
en einn vetur var hann til kennslu hjá
Páli Melsteð (síðar sögukennara), er þá
bjó á Brekku á Álptanesi. 1844 fór hann
í Bessastaðaskóla og var þar hina tvo síð-
ustu vetur, er skólinn var haldinn þar, en
því næst aðra tvo í Reykjavíkurskóla og
var útskrifaður þaðan 1848 með bezta
vitnisburði, um leið og dr. Jón Þorkelsson
rektor lærða skólans. Sigldu þeir báðir
til háskólans s. á. og bjuggu jafnan sam-
an á Garði. Munu fáir íslenzkir stúdent-
ar á þeim árum hafa stundað nám sitt
með meiri alúð og áhuga en þeir tveir
félagar, enda leystu þeir öll háskólapróf
Reykjavík, föstudaginn 12. janúar 1894.
sín af hendi með 1. einkunn. Hélzt ein-
læg vinátta með þeim jafnan síðan.
Þá er séra Helgi hafði tekið embættis-
próf í guðfræði í janúar 1854 fór hann
um vorið eptir heim til föður síns að Eyri
við Skutulsfjörð og dvaldi hjá honum um
sumarið, en veturinn eptir (1854—55) hafði
hann á hendi barnakennslu í Reykjavík.
7. apríl 1855 fékk hann veitingu fyrir
Kjalarnesþingum og var prestvígður 10.
júní en kvæntist 15. s. m. Þórhildi dóttur
merkismannsins Tómasar próf. Sæmunds-
sonar og Sigríðar Þórðardóttur frá Garði;
voru þau hjón þremenningar að frændsemi.
Séra Helgi þjónaði Kjalarnesþingum 3 ár
og bjó að Hofi á Kjalarnesi. 1858 voru
honum veittir Garðar á Álptanesi, þá er
Árni stiptprófastur Helgason sagði því
brauði af sér, en 22. maí 1867 var hann
skipaður fyrsti kennari við prestaskólann
og forstöðumaður hans 1. okt. 1885. Hann
var sæmdur riddarakrossi dannebrogsorð-
unnar 1879 og heiðursmerki dannebrogs-
manna 1892. Hann sat á alþingi 1863
sem (vara)þingmaður Gullbringu- ogKjósar-
sýslu og á þingunum 1865, 1867 og 1869
sem þingmaður Vestmanneyinga.
Með konu sinni átti séra Helgi 13
börn, og dóu 5 þeirra mjög ung en 2
nokkuð stálpuð: Hálfdan efnilegur piltur,
er dó í skóla 1879 19 ára og Guðrún, er
dó 1881 17 ára. Sex eru enn á lífi: Sig-
riður kona séra Skúla Skúlasonar í Odda,
Tómas læknaskólakandídat, Jón háskóla-
kandídat í guðfræði, dvelur nú í Danmörku,
séra Ólafur á Stóra-Hrauni, Álfheiður og
Þórdís.
Að lýsa hinu mikla lífsstarfi séra Helga
nokkurn veginn rækilega yrði hér of langt
mál, enda gerist þess síður þörf, með því
að séra Valdimar Briem hefur allítarlega
lýst starfsemi hans í 1. árg. Sunnanfara
nr. 12. Er það í alla staði sönn og rétt
lýsing á hinum þýðingarmiklu, heillaríku
áhrifum, er séra Helgi hefur haft á kirkju
og kristindóm þessa lands. Það er ekki
á einn veg, sem þessi áhrif hafa átt sér
stað, heldur á ýmsa vegu. en einkum þó
á þrennan hátt: með barnalærdómsbókinni,
sálmabókarstarfi sínu og kennslustarfinu
við prestaskólann.
Xr. 3.
Barnalærdómskver séra Helga er, þá
er á allt er litið, mjög vel samið, sem
vænta mátti, stuttort og efnisríkt. Kenn-
ingu Lúters er hvívetna stranglega fylgt,
eins og auðvitað er, og niðurskipun efnis-
ins mjög nákvæm og bundin óhagganlegum
trúfræðilegum skorðum, svo að framsetning-
in verðurjafn vel sumstaðar um of vísindaleg.
í 7 manna nefnd þeirri, er skipuð var
1878 til að endurskoða sálmabókina var
séra Helgi formaður, og vann hann ötul-
lega að því starfi, sem öðru, er hann tókst
á hendur, því að hann var manna óhlífn-
astur við sjálfan sig, og lá aldrei á liði
sínu í þjónustu kirkjunnar. Nefndin lauk
störfum sínum á 7 árum og 1886 var hin
nýja sálmabók fyrst prentuð. Mætti með
réttu kenna hana við séra Helga, — eins
og séra V. B. kemst að orði, — bæði sak-
ir þess, hve mikinn áhuga hann sýndi í
því, að leiða verk þetta farsællega til
lykta og sakir hins mikla fjölda sálma,
sem hann á í bókinni. Eru þeir alls um
210 að tölu, bæði þýddir og frumkveðnir,
þó fieiri þýddir. Séra Helgi var lipurt
sálmaskáld, og eru allir sálmar hans vel
ortir og vandaðir að frágangi, þótt þeir
séu ekki klæddir í jafnháfleygan, skáld-
legan búning, sem sálmar séra Valdemars
og séra Matthíasar.
Sem kennari við prestaskólann meir en
fjórðung aldar hefur séra Helgi getið sér
þann orðstír, er ei mun fyrnast í brjóstum
hinna mörgu lærisveina hans, og það má
óhætt fullyrða, að íslenzka kirkjan ber
menjar kenninga hans langa hríð eptir að
allir þeir, er kennslu hans nutu, eru
komnir undir græna torfu. Hann var
kennari með lífi og sál. Hann gekk ekki
að því starfi, sem einhverju óþægilegu,
óhjákvæmilegu skyldustarfi, sem opt eru
leyst miður vandlega af hendi, heldur var
honum ljúft að vinna að þessu aðalverki
köllunar sinnar, því að hann hafði brenn-
andi áhuga á því og gerði sér allt far um
að rækja það sem dyggilegast. Hann lét
og heldur ekki staðar numið við þá guð-
fræðismenntun, er hann hafði aflað sér við
háskólann, heldur las hann öllum stund-
um erlend guðfræðisrit og fylgdist ágæt-
lega með tímanum í öllu, er þá visinda-
L