Þjóðólfur


Þjóðólfur - 12.01.1894, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 12.01.1894, Qupperneq 2
10 grein snertir. Og af þessum mikla lær- dómi sínum miðlaði hann lærisveinum sínum örlátlega, ekki að eins í sjálfum kennslu stundunum, heldur og utan þeirra, því að hin guðlegu sannindi voru jafnan hið kær- asta umtalsefni hans. Fyrirlestrar hans voru mjög skipulegir og að öllu vandaðir, en það sem einkum einkenndi kennslu hans og gerði hana svo áhrifamikla var hinn óbifanlegi trúar- og sannfæringarkraptur, er lýsti sér í orðum hans. Pað var auð- heyrt, að kristindómurinn samkvæmt hreinni lúterskri játningu var hjartans mál hans, hann var hið mesta áhugamál lífs hans, það málefni, sem hann helgaði krapta sína alla og óskipta. Hann var liprasti kenni- maður, eldheitur í anda og viðkvæmur í prédikunum sínum. Gáfur hans voru mikl- ar og fjölhæfar og hann var yfir höfuð mjög vel að sér í mörgu, auk guðfræð- innar. Hann var mikill alvörumaður og þéttur í lund og lét ekki leiðast af öðrum, en var þó lipurmenni í umgengni, skemmt- inn og glaðvær í viðræðum. í hegðun allri var hann fyrirmynd, og vildi ekki vamm sitt vita. Vér lærisveinar hans munum jafnan minnast þessa læriföður vors með virðingu og þakklæti, ekki að eins þeir af oss, er þegar hafa gengið í þjónustu kirkjunnar, heldur einnig vér hinir, sem tekizt höfum öunur störf á hendur. Séra Helgi var óhraustur til heilsu mestan hluta æfi sinnar. Á síðustu árum þjáðist hann af kvalafullum, ólæknandi magasjúkdómi, og þverruðu þá líkams- kraptar hans óðum, en hann bar þennan þunga veikleika sinn harðmannlega og heyrðist ekki mögla. Sigldi hann til Kaup- mannahafnar til að leita sér lækninga í marzmán. f. á., en kom heim aptur í júní- mánuði og hafði enga bót fengið meina sinna, lagðist svo algerlega rúmfastur næstl. haust og var optast sárþjáður; þó bráði dálítið af honum með köflum og las hann þá jafnan eitthvað guðlegs efnis sér til skemmtunar og huggunar. Um jólin dró meir og meir af mætti hans, unz hann loks fékk hina lengi þráðu hvíld að kveldi 2. þ. m. kl. 8, eptir trúlega unnið æfistarf guðs ríki til eflingar. Af Rosmhvalanesi 1. jan. [AílabrögS. Hagur almennings. Heilsufar. Sjónleikir. FáséJ blöð á jólaföstunni. Formannafundur, Kaupfélagsverzlun m. 11.]. Haustvertíðiu er talin í betra lagi, þótt gæftirnar hafi verið stirðar. Hjá þeim sem bezt hafa fiskað mun vera 5—6 skpd. í hlut, en hjá mörgum er mjög lítill hlut- ur. Gæftirnar voru allt af stirðar, svo þeir sem fáliðaðir voru urðu útundan. í Kefiavík eru sagðir jafnari hlutir, þar gaf optar á sjó heidur en út með. Hagur al- mennings er með bezta móti; flestir munu hafa nægilegt til þess að lifa á, þótt verð- ið hafi orðið lágt á fiskinum. Margir hafa grynnt á skuldum. Þó eru þær svo mik- ið böl í þessum byggðarlögum, að fátt stendur velmeguninni jafnmikið fyrir þrif- um. Hér hef’ur gengið hálsbólga og ó- kennileg bólguveiki á þessu hausti, en fáir hafa dáið. Einn gamall maður, sem marg ir þekktu hefur látizt: ísleikur Porsteins- son frá Útskálum; hann bjó mörg ár í Núpakoti uudir Eyjafjöllum. Lítið er um andlegt lif og fjör á þessum útkjálkum; það eru helzt Good t. reglurnar, sem láta dálítið á sér bera. í Garðinum hafa „Útilegu- mennirnir“ verið leiknir nokkrum sinnum af Goodtemplurum og hefur aðsókn verið góð, enda eru aðgöngumiðar að eins 50 aura. Auk þeirra kvað eiga að leika tvö „stykki“: | „Fólkið í húsinu" og „Nei“. Það er furða, hve vel er leikið, þegar þess er gætt, að leikendurnir eru flestir sjómenn, sem verða að hlaupa frá lóðarbeitingunni að æfa sig og aldrei hafa séð leikið á æfi sinni. Á Miðnesi höfðu skólabörnin leikið nýtt Ieik- rit: „Gamlárskveldið“. Það kvað vera í tveimur þáttum. — Það hefur verið fátt af blöðum hér um slóðir á jólaföstunni. Reykjavíkurblöðin frá desember og síðari | part nóvember komu fyrst í hrúgu á gaml- árskveld í Garðinn og Miðnesið. Margir eru óánægðir með þessa útsendingu og hafa í heitingum að kaupa að eins útkjálka- blöðiu. Þau koma þó reglulega með póst- um. — Nýiega héldu flestir formenn í Garði fund og komu sér saman um að hætta næturróðrum og róa allir jafnsuemma. Á ýms- um stöðum í plássinu eru dregnar upp veifur þá daga, sem sjóveður er, og má enginn róa fyr en veifan kemur upp. Betur að þessi samþykkt væri lög sem giltu allan veturinn, því hér er hörmulega mikið af lóðastuldum á haustin, þegar sem flestir hrúgast í Garðsjó inn; en þeir stafa af næturróðrunum. Hin nýja lóðasamþykkt hefur knúð Garðmenn til þessara samtaka. — Margir hafa verzlað í kaupfélagi Rosmhvalanesshrepps og láta vel yfir. Smáfiskur hefði orðið 40 kr. netto og salt 3kr.; er það allmikill hagur. Marga fýsti að sjá áætlanir landpóstanna og strand- ferðaskipanna fyrir næsta ár, en hvorug sást á bréfhirðingarstaðnum; það hefur víst gleymzt að senda hana með síðasta pósti. Maður varð úti nóttina milli 21. og 22. des. f. á., Gunnar Gunnarsson tómt- húsmaður á Eyrarbakka ættaður frá Kraga á Rangárvöllum. Hann kom úr Þorláks- höfn með öðrum manni, varð veikur á leið- inni, því að liann var heilsutæpur og fá- tæklega útbúinn, en gaddbylur kom á og færð var hin versta. Samferðamaður hans bar hann meðan honum entist orka til, lagði hann síðan í snjó, fór til bæja og fékk menn að leita hans, en nótt var og bylur og fundu þeir hann ekki. Morgun- inn eptir fannst hann og var fluttur til Eyrarbakka og reynt sem mátti að lífga hann, en árangurslaust. Mannalát. Hinn 15. sept. f. á. andaðist úr lungnabóigu Guðni Baldvinsson trésmiður á Minna- Hofi í Gnúpverjahreppi á fertugs aldri. Hann var fæddur og uppalinn í Holtasveit í Rangárvallasýslu, þar átti hann móður- kyu, en faðir hans var norðlenzkur að ætt. Guðni sál. var vel greindur maður, smiður góður, vandvirkur og vandaður í öllu. (Br. J.). 29. okt. í haust andaðist Gísli Þórðar- son í Unnarholtskoti í Hrunamannahreppi. Hann var fæddur 1809, og hafði búið í Unnarholtskoti nær 50 ár, en var nú lát- inn af búskap fyrir 6 árum og dvaldist hjá syni sínum, er við búi tók þar eptir hann. Hann kvæntist tvisvar. Fyrri kona hans hét Kristín Guðmundsdóttir, dóttur- dóttir Ámunda „smiðs“. Þau áttu 3 börn; lifir ein dóttir þeirra, er Þorbjörg heitir, gipt Ögmundi Ögmundssyni frá Hrafnkels- stöðum, og fór með honum til Vesturheims fyrir 5 árum. Með síðari konu sinni Guð rúnu Ketilsdóttur frá Skálholti, sem erin lifir, átti hann 10 börn; eru 3 þeirra á lífi, Guðmundur að Tjörn og Ketill í Unnar- holtskoti, efnilegir bændur, og Guðrún ó- gipt. Gísli sál. var fjörmaður mikill og glaðlyndur, sögðu það þeir, er þekktu hann, hvort heldur á æskuárum hans eða elliárum, að varla gæti lundbetri mann. Hann var iðjumaður mikill alla æfi og af- kastamaður til vinnu; sléttaði og græddi út tún á ábýlisjörð siuni og átti jafnan gott bú og gagnsamt. Hann var tryggur og vinfastur og manna áreiðanlegastur í orðum og viðskiptum, og því vel virður og vinsæll af þeim, er kynni höfðu af honum. Hann var hraustur og heilsugóð- ur og bar vel elli sina, en blindur var hann hin síðustu árin. Hann varð nær því bráðkvaddur. (M. H).

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.