Þjóðólfur - 09.03.1894, Page 2
46
bú til kynbóta og selur hrúta þaðan, þar
hefnr það líka graðhesta til að ijá mönn-
um til kynbóta og styrkir einnig kynbæt-
ur á kúm. Þar eru náttúrufróðir menn
og búfróðir, sem iaunaðir eru af ríkinu til
að gera tilraunir með, hvað útlent borgi
sig í Noregi og geti átt þar við. Þar
eru búnaðar umsjónarmenn í öllum grein-
um jarðyrkju-og kvikfjárræktar, sem skyld-
ir eru að gefafyrir ekkert hverjum bónda,
sem hafa vill, upplýsingar um sérhvað, er
búskapinn snertir, og hafa þeir ókeypis
flutning um landið á ríkiskostnað, þegar
sótt er um þá til álita í fjarlæg héruð.
Þar er landbúnaðarráðanautur, sem situr
í Skotlandi, sem leiðbeinir mönnum með
sölu á vörum og í mörgu fleira og svona
er í öllu með iögum og fjárveitingum
hugsað um atvinnuvegina þar, eins og sjó-
mennsku og verzlun. En hjá oss lendir
allt slíkt í smákáki með styrkveitingum
til búnaðarfélaga og hjálp til ullarvinnu-
véla. Allt sannarlega rætið (radíkalt)
vantar, sem þó er hið eina sem dugir, því
frá rótum verður að taka þá hluti fyrir,
sem eru grautfúnir og gagnsjúkir. Sumir
kunna nú að segja, að búnaðarskólar vor-
ir eigi að bæta búskap vorn, en sannast
að segja, þeir ryðja engar nýjar brautir,
heldur kenna búskapinn upp á gamla ís-
lenzka móðinn, sem áður er þekktur, og
gera engar tilraunir með neitt nýtt til
breytingar, svo að sjáist, hvað hér á við
og hvað ekki. Menn þurfa eigi að fara á
búnaðarskóla til að vita, að gott er að veita
vatni eða slétta þúfur, það vissu menn
áður og geta enda lært það víðar. Bún-
aðurinn þar er því líkur, sem hjá bændum
almennt, stundum i nokkuð betri mynd,
en stundum aptur eigi, enda búa búfræð-
ingarnir ekki betur en aðrir, sem þeir þó
hlytu að gera, væri um nokkra verulega
umbót að ræða, því að hæfileikum eru þeir
víst eigi síður öðru fólki, en hafa þar að
auki menntun; á þinginu taka þeir eigi
heldur öðrum fram í atvinnumálum. Það
er t. a. m. dýrt og seinlegt að siétta stór og
alþýfð tún með gömlu ofanafristu-aðferðinni,
en gæti menn með tilraunum komist upp á
að plægja þýfið í flag með grasrótinni og
sá svo einhverju í það, sem væri gagnlegt
og varanlegt, væri mikið unnið. Yér vit-
um opt eigi, hvaða efni eru í jarðvegi þeim,
sem vér yrkjum, áburðinum eða heyinu,
sem þó er nauðsynlegt. Noregsmenn hafa
vísinda-verkhús (laboratorium), sem gerir
þetta kauplaust fyrir bændur. (Jiiíurl. næst].
Um
frú Sigríði Magnússon
og sýning íslenzkra hannyrða.
í Lögbergi og íslenzkum blöðum hef
eg lesið ýmislegt um sýningu frú Sigríð-
ar Magnússon á íslenzkum munum í Chica-
go, og er sýningu þessari í blöðunum mjög
hallmælt; frú S. M. hefur nú reyndar í
Lögbergi 20. des. 1893 fyllilega sýnt, hve
ástæðulitlar þessar aðfinningar hafa verið.
Samt sem áður finnst mér ekki vanþörf á
að dálítið sé nánara talað um þetta mál.
Það mun mörgum kunnugt, að frú S. M.
hefur látið sér mjög annt um að gera ís-
lenzka tóvinnu kunna í útlöndum á sýn-
ingum í London og víðar. ísland hlaut
gullmedalíu og Diploma of Houour í Lun-
dúnum 1884 og 1887 fyrir tóvinnu, og
sýnir það bezt, að frú Sigríður að eins
hefur sýnt það, sem var landinu til sóma;
dómendurnir mundu ekki hafa veitt hin
umgetnu heiðursmerki, ef vinna sú, er
þeir sáu, ekki hefði verðskuldað það. Á
Chicagosýningunni hiaut hún líka verðlaun,
og þá geta munir þeir, er hún sýndi, ekki
hafa verið svo Iélegir, sem landar í Ame-
ríku hafa sagt frá, enda sannar frú S. M.
mál sitt bezt íLögbergi, er hún tilgreinir
konur þær, er unnið höfðu tóvinnu þessa.
Allar þessar konur eru kunnar að vand-
virkni; meðal annara nefnir frú Sigriður
þessar: Frökenarnar Þórunni og Mörtu
Stephensen systur landshöfðingja, frú
Ragnh. Blöndal, frú A. Melsteð, frú Mar-
íu Einarsdóttur og frú Sophiu Einarsdótt-
ur, systur frú S. M. og fleiri. Hinir mis-
jöfnu dómar um hina íslenzku sýningu
frú S. M. í Chicago eru líklega mest
sprottnir af því, að það eru karlmenn, sem
hafa séð og karlmenn, sem hafa um þetta
ritað; það er ekki við því að búast, að
karlmenn almennt hafi vit á tóvinnu, og
svo hefur þeim þótt óálitlegt að sjá vaðmál
og sokkaplögg innan urn alla hina dýrðina,
skraut og glingur úr öllum heimi; dóms-
nefndin, sem gefið hefur verðlaun fyrir
ísl. tóvinnu hefur með því sýnt, að hún
ekki eingöngu virðir veglegt útlit, heldur
hugsar mest um vandvirkni vinnandans
og um gæði vörunnar. Ef rétt er litið á
málið, þá má nærri geta, að frú Sigríður
hefði ekki látið sér detta í hug, að leggja
fé í sölurnar og eyða miklum tíma til
þess að fara langa og erfiða ferð, með muni,
sem voru bæði henni og landinu til minnk-
unar. Hún gat ekki búizt við, að nokkur
vildi kaupa slíka hluti og þvi síður, að
hún fengi verðlaun fyrir þá, enda er óvíst,
hvort sýningarstjórnin hefði viljað veita
ónýtu rusli og óálitlegu viðtöku. Þegar
maður hefur lesið „Chicagoför“ síra Matthí-
asar, og þar kynnzt öllu því risavaxna og
skrautlega, er hann skýrir frá, finnst manni
heldur fátæklegt að lesa um prjónles og
spjarir af gamla íslenzka búningnum, sem
hann segir, að hafi verið á sýningunni;
mig skal nú heldur ekki furða, þótt hon-
um hafi sýnzt svo, því ein kona gat naum-
ast haft eins margt í för sinni, eins og
heilar þjóðir sendu á sýninguna, því mér
vitanlega sendu engir neitt þangað frá
íslandi, enda lítur svo út, sem íslendingar
séu ekki enn komnir svo langt á framfara-
stigið, að þeir hirði um veraldarsýningar
eða sýningar yfirhöfuð, en það hlýtur að
vera af því, að enn þá er ekki vöknuð
hjá oss meðvitundin um, hversu heillamikil
áhrif slíkar sýningár hafa í för með sér
fyrir þjóðirnar. Það er gamalt orðtak, að
íslendingar séu tómlátir, og kemur það
fram í þessu eins og mörgu öðru; ef tal-
að er um almennar útlendar sýningar telja
allir tormerki á, að við íslendingar getum
tekið nokkurn þátt í Jþeiin; menn yppta
öxlum, tala um humbúg, segja slíkt sé
gagnslítið og þýðingarlítið, enda sé ekk-
ert fé fyrir hendi; það er eins og okkur
standi alveg á sama, hvaða álit aðrar þjóðir
hafi á oss, bara af því okkur þykir of
mikil fyrirhöfn að raska værðinni. Yér
gætum þó, ef vér bara vildum gert mikið
til þess að halda uppi sóma lands vors
hjá erlendum þjóðum. Ef nú einhver ein-
stakur maður eða kona uppá eigin spýtur
reyna til þess að gera landið kunuugt á
sýningu erlendis, þá breytist máiefnið
skyndilega, þá eru allar hendur á lopti til
þess að kasta þungum steini og áfella, ef
allt er ekki eptir því sem bezt má kjósa.
Nú tekur mönnum sárt til landsins, sem
enginn áður vildi liðsinna. Hvernig getur
líka einstaklingurinn keppt við heilar þjóð-
ir, sem leggja fram offjár löndum sínum
til frægðar. Vér íslendingar ættum því
miklu fremur að taka höndum saman og
eptir föngum kappkosta að láta þjóð vora
koma vel búua fram á leiksviðið, það gæt-
um vér gert, svo við hefðum enga minnk-
un af; hjá oss er svo margt einkennilegt
í þjóðerni, háttum og handiðnum, að aðrar
stærri þjóðir mundu furða sig á, að við þó
ekki erum aptar i flokki en við erum;
menn búast ekki við miklu hjá svo af-
skekktri og fámennri þjóð og mundu þess
fremur undrast, er þeir sæju, að hér lifði
þó einhver andlegur neisti, þrátt fyrir