Þjóðólfur - 09.03.1894, Qupperneq 4
48
á Bakarastígnum, borðað allt npp úr því þá
þegar og botninn með(!!). En hvað það er smellið
og sennilegt!! Það er svo ljómandi skynsamlega
skrifað og svo skáldlegt og einkennilegt, að Hannes
Hafstein — sem Þorlákur er að hnýta við óbein-
línis — hefði alls ekki getað komið þessu svona
meistaralega fyrir, og iíklega enginn nema Þorlákur
einn. Þetta 4 lika bvo einstaklega vel við efnið
í greininni allri, því að það er einskonar pestar-
þefur af henni. Það virðist komin einhver hættu-
leg pest í þingmanninn. Það skyldi þó ekki vera
hundapestin? Ja, hver veit? Það væri sorglegt,
ef þingmaðurinn hrykki upp af klakknum fyrir
næstu þingkosningar i Árnessýslu, eða hefði ekki
þrótt í sér til að smala handa sér atkvæðum þar
eystra fyrir kjörfundinn. Maðurinn verður að fá
cinhver meðul sem duga, svo að hann veslist ekki
upp úr fárinu, því að auðsætt er, að ísafold hefur
ekki tekizt að lina þrautir hans. Hún á líka nóg
með sig. Sem eitt dæmi til frekari sönnunar því,
að Þorlákur hefur iskyggilegt ðráð og hefur
misst rænuna, er það, að hann þykist vera orðinn
sprenglærður guðfræðingur og hafi átt í stækustu
trúarbragðadeilum (!) við Þjóðólf. Það vantar nú
nú ekki annað til að kóróna alla fásinnuna en að
þingmaðurinn ímyndi sér, að hann sé orðinn annar
Lúter, er sé kallaður til að leiðrétta það, sem af-
laga fer í kirkjunni hér á Iandi og berjast gegn
villukenningum, einkanlega gegn hinni háskalegu(!)
stefnu Þjóðólfs í trúarmálum. Hver veit nema
ritstj. ísafoldar hafi gefið Þorláki eitthvert umboð
til þessa, því að út í marga vitleysuna má siga
þingmanninum. Það hefur sýnt sig.
Að endingu viljum vér geta þess, að það væri
mjög leiðinlegt, ef menn fengju ekki að sjá einn
pistil enn frá Þorláki í ísafold, bara einn einasta,
sem áframhald af hinum, svona rétt til þess að
sýna Árnesingum sérstaklega, enn greinilegar, hvílik
þjóðargersemi bann sé og hve mikils þeir færu á
mis við það að hafna slíkum manni, svona Ijón-
skynsömum og ljónvitlausum að rita, manni, sem
ávallt hefði verið ósporlatur til allra sendiferða,
manni, sem hefði látið hina hljómfögru (!) rödd sína
gella í öllum málum, hvort sem hann hefði haft
nokkuð vit á þeim eða ekki, manni, sem ávallt
hefði borið allar sorgir og áhyggjur alþýðunnar
fyrir brjóstinu, þrátt fyrir alla skjalapakka og annan
ófógnuð, er þar hefði sezt að í seinni tíð o. s. frv.
í það óendanlega, því að Þorlákur hefur ávallt nóg
af skjalli um sjálfan sig og getur talað hundrað
ónytjuorð, meðan aðrir segja eitt af viti.
Jafnvel þótt Þorlákur gefi í skyn, að hann sé
að „missa móðinn“ og muni ekki svara oss aptur,
þá er samt mjög hætt við, að hann standist ekki
mátið, karlsauðurinn, og þeysi þvi enn einu sinni
hingað til bæjarins með greinarstúf handa ísafold
í vasanum. Það er ekki svo litill kostnaður eða
lítil fyrirhöfn fyrir hann að hleypa hingað í dauðans
ofboði á hverri viku, og væri það gustuk, að ritstj.
ísaf. léti annaðhvort senda eptir greinunum upp
að Fífuhvammi um hverja helgi eða greiddi Þorl.
dálítinn ferðakostnað fyrir ómakið, t. d. 18 kr. í
hvert sinn.(!) auk sæmilegra ritlauna, sem karltetrið
á sannarlega skilið fyrir þennan mokstur og pestar-
pistla, sem hljóta að vera ritstj. ísaf. einkar kær-
komnir. Hann telur varla eptir sér að krukka
eitthvað í þessar ritgerðir, áður en þær eru af-
hentar prentaranum.
Niðarlagning kirkna. Landshöfðing-
inn hefur 31. jan. veitt leyfi til þess, að
kirkjan að Hofíelli í Hornaíirði sé iögð
niður og sóknin lögð ti! Bjarnaness, enn-
fremur, að kirkjan á Hjaltabakka í Húna-
vatnssýslu verði lögð niður sem kirkja,
en ný kirkja reist fyrir sóknina á verzl-
unarstaðnum Blönduósi, þó þannig, að
kirkjugarðurinn verði eptirleiðis eins og
til þessa á Hjaitabakka og að hin gamla
kirkja sé látin standa þar sem líkhús, er
söfnuðurinn haldi i sómasamlegu ástandi.
Myndasýning. Hr. Sigfús Eymundsson sýndi
á hótel ísland 6. þ. m. rúmar 40 myndir í töfra-
skuggsjá af ýmsum byggingum og furðuverkum á
Chicagosýningunni, og þótti það allgóð skemmtun.
Hann ætlar að sýna fleiri nýjar myndir innan
skamms.
r
„Piano“-verzlun
„Skandinavien“,
verksmiðja og sölubúð
Kongens Nytorv 22, Kjöbcnhavn.
Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt
verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum.
Birgðir af Orgel-Harmoniuin.
Er allt selt með 5 °/0 afslætti gegn
borgun í peningum, eða
gegn afborgun.
Gtömui hljóðfæri tekin í skiptum.
Verðskrá send ókeypis.
Hið bezta kaffl geta menn fengið, með
því að brúka
Fineste skandinavisk
Export Caffe
F. Hjorth & Co.
í Kaupmannahöfn,
er fæst hjá kaupmönnum.
G-ott útney, livort held-
ur handa hestum eða kúm, fæst til kaups.
Ritstj. vísar á.
Undirskrifaöur hefur til sölu
talsvert af tilbúnum skófatnaði af flestum
tegundum og stærðum.
Jón Brynjólfsson
skósmiður.
12. Bankastræti 12.
ZV
gO ægte Normal-Kafie
e? (Fabrikkeu
(„Nörrejylland41)
jy
sem er miklu ódýrra,
bragðbetra og hollara en nokkuð
annað kaffi.
„Chicago-för mín 1893“ eptir
síra Matth. Jochumsson fæst í hólcaverdun
Sigurðar Kridjánssonar.
Fjárrnark Jóns Bjarnasonar á Brekku í
Biskupstungum er: tvíetýft apt., lögg fr. h.; tví-
stýft apt., biti fr. v. Eigi nokkur sammerkt, gefi
hann sig fram hið fyrsta.
Fundarboð.
Fundur verður haldinn í hinu „íslenzka
kvennfélagi" mánudaginn 12. þ. m. ki. 5
e. h. í Goodtemplarahúsinu. — Umræður
um háskólamálið o. fl. Æskilegt er, að
koriur þær, er gengið hafa í þennan fé-
lagsskap, m.eti
Forstöðunefndin.
Duglegir reiðhestar á hezta aldri og
reiðhestaefni (folar) 4—5 vetra fást til kaups á
næstkomandi sumri á Seljcdandi nndir Eyjafjöllum.
Hjá undirskrifuðum eru í óskilum siðan í hauat
3 hross (nú á húsi og heyi).
1. Rauðblesótt hryssa 5—6 vetra mark: sneiðrifað
fr. fjöður apt. v.
2. Gráskjóttur foli 3. vetra mark: fjöður fr. h.
3. Brúnt mertrippi veturgamalt mark: hiti fr. h.;
sneiðrifað fr. bit apt. v.
Eigendur þessara hrossa geta vitjað þeirra til
min fyrir 14. maí næstkomandi með þvi móti að
borga allan áfallinn kostnað til þessa tíma. Eptir
14. maí verða hrossin seld við uppboð.
Oddstöðum 16. fehr. 1894.
Árni Sveinbjarnarson
hreppstjóri.
Fiindur í stúdentafélaginu verður
haldinu annað kveld kl. 9 á hótel Island.
Singers saumavélar, bezta tegund,
komnar aptur i
verzlnn Stnrlu Jónssonar.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Félagsprentsmiójan.