Þjóðólfur - 24.03.1894, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 24.03.1894, Blaðsíða 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. jdlí. Uppsögn, bundin við áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. ÞJÓÐÓLFUB. XLVI. ftrg. Influenza-sóttin. Með því að influenza-sóttin er nú sezt að hér i bænum, og mun að líkindum dreifast héðan út um þá hluta landsins, þar sem hún er ekki búin að koma, kynnu nokkrar skýringar um sótt þessa og með- ferð hennar að koma í góða þágu aptur; eg vil því biðja yður, hr. ritstjóri, að taka eptirfarandi stuttar athugasemdir um sótt þessa í yðar heiðraða blað. Yér þekkjum allir hina algengu kvef- sótt, með hósta þeim, er henni fylgir, og meiri eða minni lasleika um allan líkam- ann. Influenza-sóttin er nú talsvert lik kvefsótt; en þó ber þar margt á milli, og það tvennt helzt, er nú skal greina og mikils er um vert. 1) Influenza-veikinni fylgir óvenju mikið magnleysi, slen og drungi, og þar með talsverð hitasótt. 2) Influenza-veikin gengur eins og land- farsótt, þ. e. leggst á mikinn fjölda lands- fólksins í einu og færist út frá einum stað um geysimikla víðáttu. Á mjög mörgum mönnum fylgir veiki þessari einnig ýms óregla í meltingarfær- unum, í taugakerfinu og öðrum fleiri )íf- færum. Loks getur vel borið til, að ofan á in- fluenza-sóttina bætist ýms önnur veikindi, og það ekki sízt, þegar hún er nærri því bötnuð, svo sem t. d. lungnabólga. Þótt svo sé, sem betur fer, að influenza verði eigi talin með mjög hættulegum sjúk- dömum, þá verð eg að vara menn mjög fastlega við að gera of lítið úr þessari veiki; 0pt verða svo mikil brögð að sótt- veikinni, magnleysinu o. s. frv., að sjúk- lingurinn má til að Ieggjast; en eg vil vara menn við, þótt sóttin sé heldurvæg, að vera þá að reyna að dragast á fótum; sjálfsagt að leggjast ætíð, ef maður hefur hitasótt (feber). Geri maður það, að drag- ast á ferli með hitasótt, er mjög hætt við, að einhver önnur veikindi leggist ofan á hina eiginlegu influenza-sótt, og sama máli er að gegna, ef of snemma er farið á fæt- ur og út. Optast mun nóg að liggja 1 viku í rúminu, til þess að sjúklingnum sé nokkurn veginn óhætt. Keyk.javík, laugardaginn 24. rnarz 1894. Það er sjálfsagður hlutur, að gjalda verður varhuga við því, svo sem hægt er, að of margt sé af sjúklingum í sama her- bergi eða of þröngt í rúmum, og lopti þarf að halda svo hreinu. sem auðið er, en varast þó allan súg. Gott er að halda brjóstinu hlýju með ull eða vatnsbökstr- um. Bezta næringin er hafrasúpa eða bygg- súpa; með mjólk er bezt að vera nokkuð varasamur, þar eð margir sjúklingar fá þrá- látlegt harðlífi af henni, en sumir aptur undir eins niðurgang og vindbelging; eng- inn læknir getnr sagt fyrir fram, hvernig sjúklingur muni þola mjólk; það verður að reyna fyrir sér með hana með gætui. Sætsúpu, nýjan flsk soðinn, franskbrauð og vatnsgraut má gjarnan borða, haíi sjúk- lingurinn lyst á því, þó að hann hafi nokkra hitasótt. Kalt vatn eða mysu má sjúklingurinn gjarnan drekka, þó ekki í óhófi eða of mikið í einu. Séu mikil brögð að magnleysinu, slen- inu og drunganum, og sjúklingurinn geti eigi nærzt á öðru, þá er mikið gott að bragða á víni (sherry eða portvíni,) svo sem einni matskeið 4—6 sinnum á dag. Sé aptur of mikiðgert að vínnautninni, verðurhún mjög skaðleg, eins hér sem jafnan endranær. Af eiginlegum meðulum má einkum gera sér von um gagn af sótteyðandi lyfjum, svo sem antifebrín og kínín. Antifebrín skal taka í xls grams skömmtum þrisvar til fjórum sinnum á dag. Hafi sjúklingur- inn mikinn höfuðverk og þar af leiðandi svefnleysi, er antifebrín opt gott meðal, en sumir sjúklingar verða þá að fá stærri skammt, */, gr. eða dálitið meira í einu, áður hrífur. Sumir, t. d. þeir, sem hafa einhverja hjartveiki, þola ekki vel antifebrín; getur því verið gott, að byrja ætíð á litlum skammti U/g gr.) áður en tekið er meira. Kínín er bext að taka í */4 gr. skömmt- um og brúka 2—3 eða 4 skammta á dag. Sé þess kostur, er sjálfsagt að leita reglulegs læknis og vera ekki að káka með skottulækningar; einkum skal varast að láta taka sér blóð öðruvísi en með læknisráði; því blóðtaka getur opt gert mikið illt í þessari sótt og er mjög sjald- íír. 14. an tiltækileg, og það því að eins, að sér- staklega standi á, en á því hafa læknar einir vit. Eg leyfl mér að endingu að mælast til, að almenningur hagnýti sér rækilega þenna litla leiðarvísi, og vildi eg óska, að sótt þessi yrði væg hér á landi, og tálmaði sem minnst vinnu manna um bjargræðis- tímann. Eeykjavík, í marz 1894. Sehiertoeek. Hvaö vill Sæmundur Eyjölfsson? Eptir íséra Jöhannes L. L. Jöhannsson á Kvennabrekku. (Niíurl.). En þótt þingið hugsaði meira um atvinnuvegina en hingaðtil og bún- aðarskólar vorir væri bættir, þá ríður samt jafnframt á því, að hver einstakling- ur hugsi sem mest um að verða sjálfstæður og nýtur raaður, með iðni og atorku, sparsemi og hagsýni, því að eigi gagnar neitt, þótt meira sé aflað, ef að því skapi er meira eytt, og þetta er einmitt það, sem Sæmundur vill alvarlega brýna fyrir oss, en sem ýmsir, er á móti honum rita, eigi hafa gert sér Ijóst, því þeir hafa eigi spurt sjálfa sig: „Hvað vill maður þessi með því, er hann skrifar?“ Sæmundur er þjóðrækinn maður og honum er því sárt um að nokkuð íslenzkt, sem er gott, deyi út, og fyrir þetta á hann þakklæti vort og virðingu skilið, enda hefur ætt- jarðarástin hingað til verið álitin dyggð. En það er öfugt hjá honum, að segja að framfaramennirnir vilji vekja fyrirlitningu á því, er stendur á gömlum merg og hæð- ist að góðum þjóðsiðum. Getur nú Sæ- muudur eða nokkur skynsamur maður kallað þá, sem slíkt gera, ef þeir eru nokkrir, „framfaramenn?“ Eg segi nei. Það er líka rangt hjá honum að kenna blaða- mönnunum um vantrú þjóðarinnar á at- vinnuvegum hennar. Það er líklega helzt ritstjóri „Fjallkonunnar", sem átt er við, en eg man ekki eptir neinu slíku hjá honum. Hitt veit eg, að hann í trúarmál- um hefur látið í ljósi frávíkjandi skoðanir, en eg held hann hafi ekki gert svo illt með því, heldur miklu fremur vakið þá,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.