Þjóðólfur - 13.04.1894, Blaðsíða 3
67
einn af þeim mörgu, er fyrir nokkrum árum fór til
Ameríku, en undi sér þó ekki nema lítinn tima við
Edens-gæðin (!) þar vestra. Hann kom því aptur
heim til ættjarðar sinnar, ásamt föður sínum (Þor-
steini Sigurðssyni á Löndum), er var með i förinni,
og naut hér rósamra lifdaga til æfiloka að öilum
virtist.
Á hæinn Þiljuvelli í Norðfirði hljóp snjóflóð
þann 5. eða 7. þ. m, Þar búa 2 bændur og misstu
þeir meiri hluta eigna sinna, 30 gemlinga, 19 ær
og 1 hest. Ekki sakaði fðlkið, sem inni var, en
bændurnir báðir lentu í flóðinu, komst annar úr
því sjálfur, en hinum var bjargað meðvitundarlaus-
um, en óskemmdum, þó raknaði hann við aptur.
Á Höskuldsstöðum í Breiðdal hljóp einnig snjó-
skriða, er stöðvaðist við bæinn. Á eptir snjóílóð-
inu kom vatnsflóð afarmikið. Skall það á snjó-
hrönninni og kastaðist svo til hliðar. Er það al-
mennt álit, að hefði ekki snjóskriðan hlaupið á
undan og stöðvazt við bæinu, myndi vatnsflóðið
hafa sópað honum öllnm á burt. Ekkert tjón varð
þó að þessu, nema það braut þak af hlöðu og mölv-
aði glugga úr timburhúsi og fylltist það af vatni.
— Á bæ þennan hefur aldrei hlaupið svo menn
viti fyr en nú.
Síldarafli er góður á Reyðarfirði og fiskur er
þar nokkur líka; hér er og dálítill reytingur af
fiski, en talsverður úti fyrir.
Strandasýslu (Árneshreppi) 17. febr.: „Næst-
liðið sumar var ágætlega góð tíð þangað tíl í miðj-
um ágúst, að skipti um til illviðra; þó mun hey-
skapur hafa orðið í meðallagi og hvergi hey úti
til muna. Haustið var eitthvert hið versta með
sjógæftir, svo afli varð hér enginn svo teljandi sé,
og lítur þvi báglega út með bjargræði hér í sveit-
inni, einkanlega hjá þeim, sem aðallega verzluðu
á Reykjarfirði, nokkru skárra hjá þeim, sem verzl-
uðu á Skagaströnd, því þar fá þeir borgaðar
„prósentur", 6 af hundraði, en hér á Reykjarfirði
hefur matvara öli verið seld í fyllsta verði, og
þykir hart undir að búa, því maturinn heitir ekki
mönnum ætur: rúgur með miklum sandi og óþverra,
mjöl ennþá verra af sandi, þvi það hafa menn ekki
ráð með að hreinsa að neinu, en rúginn eru menn
að reyna að sigta á mjólkursigti og verður því
eptir grófasti sandurinn. Hveitið er fullt af pödd-
um, og þetta allt eins dýrt, eins og óskemmdur
matur, og má heita merkilegt, að kaupmönnum
skuli svo haldast uppi að okra þannig á svikinni
vöru. Á Borðeyri höfðu verið pöddur i hveitinu,
en þar var það undir eins sett niður til muna,
bæði það sem áður var selt og það, sem framvegis
selst“.
Akranesi 5. apríl: „Síðan í miðjum marz
hafa hér verið, eins og Björn á Öxl hafði átt að
segja „sólarlitlir dagar“: drungalegt lopt og dauða-
þögn í sölum, sem komið hefur til af ýmsu, svo
sem óstöðugri veðuráttu, og veikindum, sem hvor-
tveggja hefur kastað deyfð og hindrun á framkvæmd-
ir manna, enda mun sjósókn vera hér óvana strjál,
sem um þessar mundir er aðalstarf plássmanna,
eins og í öðrum veiðistöðum hér við land; 3—4
sinnum hefur verið almennt róið síðan um páska,
27. og 28. f. m. og 3. þ. m., en þá aflast talsvert
af smáýsu og stútungi, allt upp i 70 í hlut. Áð
kveldi þess 3. þ. m. komst „dekkbátur“ Böðvars kaup-
manns fyrst út til fiskjar, eptir að hafa legið hér
nokkurn tíma ferðbúinn á höfninni. Þykir mönn-
um sá útvegur hér nokkuð lítill, þar hann er sá
eini, sem héðan gengur.
EinB og áður er ávikið, gerði Inílúenzan hér,
eins og víðar talsvert vart við sig og lagðist mjög
þungt á almenning, en vægara á börn innan 12—14
ára, enda hafa nú sem komið er dáið úr veikinní
í þessu prestakalli 14 manns, flest eldri konur,
meðal hverra ein var merkiskonan Quðný Jónsdóttir
kona dannebrogsmanns P. Ottesens á Ytra-Hólmi.
Einnig má geta þess, að á tæpri viku dóu þrjár
systur, sem allar voru á sjötugs aldri, og loksinB
kona, sem var 102 ára. Eins og geta má nærri,
í fjölmennu plássi, í svona almennum veikindum,
hafði okkar nýi læknir 01. Pinsen mikið að gera,
enda sinnti hann þeim starfa með stakri alúð og
umhyggjusemi, og gerði sér mikið far um, að bæta
böl þeirra, sem liðu, þar til hann lagðist sjálfur i
luugnabólgu, en er nú í apturbata.
Það er annars ánægjulegt fyrir okkur Akurnes-
inga, að minnast á okkar stuttu aukalæknasögu,
þar eð heita má, að við höfum verið svo heppnir,
að fá hvert ljúfmennið eptir annað, eins og t. a. m.:
Þorgrím, Ólaf, Björn, og siðast nú Ólaf Finsen,
sem flestir viðkomandi munu vilja halda framvegis,
og vonum vér fastlega, að veitingarvaldið verði við
þeirri ósk vorri, þar eð eg tel víst, að báðir partar
muni verða á eitt sáttir“.
Útlendar fréttir. Á Norðurlöndum er
allt tíðindalítið, því að það er naumast í
frásögur færandi, að Danir hafa nú góða
von um, að þeim auðnist að búa til fjár
lög, því það er enn óséð, hvernig fer. Það
lifir í koluuum hjá Norðmönnum, en lítið
gerist þar sögulegt með flokkunum.
Þjóðverjar hafa nú bundið enda á verzl-
unarsamning sinn við Rússa og una menn
vel málalokum og þykir Caprivi hafa far-
izt vel. — Á Frakklandi og Ítalíu hafa ó-
aldarmenn reynt að fremja spellvirki, en
lítið hefur þeim orðið ágengt. Þeir eru
nú vargar í véum og eru allir keyrðir í
fangelsi, þeir er til verður náð.
Á Englandi eru þau tíðindi orðin, að
Gladstone liefur sagt af sér ráðgjafastörf-
um, og verður þar slíkt skarð fyrir skildi,
að seint mun fyllast.
Sá sem tók við flokksforustu af Glad-
stone heitir Harcourt og þykir hann dug-
andi maður. Forseti í ráðaneytinu varð
sá maður, er Roseberry heitir. Hann er
maður á bezta aldri, Iávarður að tign og
stórauðugur. Þó er hann frjálslyndur og
vinsæll er liann af alþýðu, síðan hann kom
sáttum á með kolanemunum og námueig-
endum í vetur. Hann hefur lýst yfir því,
að hann mundi halda sömu stefnu í írska
málinu sem Gladstone, og snúast í móti
efri málstofunni, ef hún héldi uppteknum
hætti.
í Brasilíu hafa uppreistarmenn misst
öll skip sín. Þykir því líklegt, að bráðum
muni lokið ófriðinum. Munu nú og flest-
ir fúsir friðarins, sem von er.
Slysfarir. 4. febr. varð úti unglings-
piltur frá Gestsstöðum í Steingrímsfirði.
28. f. m. drukknaði 1 Norðurá skammt frá
Arnarholti Árni Jónsson frá Flóðatanga
— Stykkishólmspóstur frá Arnarholti —;
hröklaðist í vök þar í ánni. Nafni hans
Árni Gíslason vestanpóstur fór á undan
yfir ána og komst klaklaust yfir.
Bruni. 30. f. m. brann hús á Búðum
vestra, eign Eyjölfs kaupmanns Þorkels-
sonar í Reykjavík, vátryggt sölubúðarhús
með nokkrum vörum í, er ekki voru vá-
tryggðar nema að nokkru leyti.
Skipstrand. Aðfaranótt 7. þ. m. strand-
aði á Býjaskerjumskipið „Franciske", hlaðið
salti til kaupfélagsins í Garðiuum. Mönn-
um varð bjargað.
Skipkomur. Kaupför eru nú farin að
koma til verzlana hér. 8. þ. m. kom „Jo-
hanne“ til Brydesverzlunar og hinn 9.
„Ragnheiður“ til Christensens verzlunar.
Gufubáturinn „EIín“ hófhinarreglulegu
ferðir samkv. áætluninni 10. þ. m.til Borgar-
ness og Straumfjarðar, en hafði farið áður
nokkrar aukaferðir í byrjun þ. m.
Settur prófastur í Norður-Múlapróf-
astsdæmi er séra Einar Jónsson á Kirkju-
bæ, í stað Sigurðar prófasts Gunnarssonar
á Yalþjófsstað, er þaðan flytur í vor til
Helgafells, og er talið mjög líklegt, að
hann verði þá þegar prófastur Snæfellinga.
í kjöri um Glaumbæ eru: séra Hall-
grímur Thorlacius á Ríp, séra Jónas Jón-
asson á Hrafnagiii og séra Tómas Björns-
son á Barði.
Aflabrögð. Það hefur ræzt vel úr með
afla hér við ílóann síðan 6. þ. m., einkum
hér á Innnesjum, en þó hefur hann verið
miklu tregari síðustu dagana. í syðri
veiðistöðunum hefur og aflazt allvel. Apt-
ur á móti er fiskilaust á Miðnesi og í
Höfnum, og verður vertíðin þar afar-bág-
borin að þessu siuni, því að bezti afla-
tíminn þar er nú úti. Austanfjalls — á
Eyrarbakka og Stokkseyri — kvað hafa
aflazt mjög vel næstliðna viku, að miklu
leyti þorskur, en minna af ýsu. — Þilskip,
sem inn eru komin, hafa sárlítið aflað.
Mauutjón varð á Eyrarbakka 7. þ. m.,
drukknuðu 3 menn, en 7 var bjargað af
Magnúsi Magnússyni í Túni á Eyrarbakka,
er optar hefur bjargað mönnum úr lifsháska
og hlotið verðlaun fyrir. Þeir, sem drukkn-