Þjóðólfur


Þjóðólfur - 09.11.1894, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 09.11.1894, Qupperneq 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. Júlt. Dppsögn, bnndin við áramftt, ðgild nema komi til útgefanda tyrir 1. oktðber. Þ J 0 Ð Ó L F U E. Reykjayík, tostudaginn 9. nóyember 1894. Nr. 53. XLYI. árg. Nýir kaupendur að 47. árgangi „ÞjóðólfsÉÍ 1895 fá ókeypis í kaupbæti: 1. Sögusafn Þjóðólfs Y. 1893, 144 bls., með 11 skemmtisögum. 2. Sögusafn Þjóðólfs VI. 1893, 134 bls., (þar á meðal hin ágæta saga eptir séra Jónas Jónmson: Magnúsar þáttur og G-uðrúnar). 3. Sögusafn Þjóðólfs VII. 1894, sem verður fullprentað um árslok. Alls ókeypis um 400 bls., er mundi kosta 3 kr. eptir venjulegu bókhlöðuverði. Auk þess geta nýir kaupendur, ef þeir óska, fengið 1. og 2. hepti sögunnar af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum, fyrir 1 kr. bœði heptin, en ekki verður hún send, nema sú borgun fylgi pöntun- inni. Það geta engir átt kost á að eign- ast þessa fróðlegu sögu, nema kaupendur pjóðólfs. Allir kaupendur að næsta árgangi fá ókeypis 3. hepti sögunnar, er verður prent- uð á næsta vori. Þeir, sem safna 10 nýjum áskrifendum og standa skil á andvirði frá þeim í rétt- an gjalddaga, fá auk fylgiritanna og sölu- launa: tvo árganga Þjóðólfs, 1892 og 1893, innliepta. Þeir nýir kaupendur, er borga næsta árgang blaðsins fyrirfram eða um leið og þeir panta hann, fá ókeypis síðasta fjórðung þessa yflrstandandi árgangs (frá októberbyrjun til ársloka), ef blaðið er pantað og borgað fyrir 31. desbr. þ. á. Hvalveiðamennimir og hvalleifalögin, Eptir Fr. Q. (Niðurlag). Frá upphafi hefur þetta hval- leifamál ekkert launungarmál verið. Það hefur opinberlega verið rætt á fundum heima í héraði, ennfremur á sýslufundi og síðast borið upp á kjörfundi. Væri nú annars nokkuð á móti því, að landar vorir sæktu betur kjörfundi en opt hefur tíðkazt? Það er að vorri hyggju staður, sem menn eiga að láta skoðanir sínar í Ijósi ekki síður en hvar annars- staðar. Þar geta menn í tíma mælt með og móti þeim málum, sem af fulltrúunum eiga að berast fram á alþingi og gerast þar að lögum. Þegar einn eða tveir eða máske eng- inn úr heilum héruðum kjördæmisins mæta á kjörfundi, um hvað ber það vott?: pólitiska deyfð og áhugaleysi á öllum landsmálum. Glagnvart þessum héruðum hvílir eðlilega langt um minni skylda á fulltrúunum, þau hafa ekkert áhugamál lagt þeim á herðar, engan valið til al- þingis; það er eins og þeim standi á sama, hvað gert er. Svo koma þessir menn stundum eptir á með einhverja aðfinningu við eitthvert lagasmíði, án þess að hafa mínnstu hugmynd um tildrög frumvarps- ins, og sannast þá einatt á þeim „Opt fer sá villt, er geta skal“. Eru nú þessi hvalleifalög eins ónauð- synleg og höf. gefur í skyn? Vér svör- um þessari spurningu neitandi. Yér höfum lög, sem banna oss alla illa meðferð á skepnum vorum, og telst það ekki undir illa meðferð á þeim að láta þær eta ban- vænt fóður, af hverju þær bráðdrepast? Það getur þó ekki verið þrautalaust fyrir aumingja dýrin. Svo framarlega sem fé vort hefur nú drepizt af óheilnæmu hval- áti, þá er það eina nóg siðferðisleg skylda þings og þjóðar fyrir því, að lög þessi séu rétt og skynsamlega samin, án þess að tekið sé tillit til efnatjóns. En ef hins vegar einhver gæti vísindalega sannað, að rotnaðar hvalleifar væru alls ekki sak- næmar, hvar sem lægju og gerðu þvi hvorki mönnum né skepnum mein, þá eru lögin skaðleg og ósanngjörn, eins og höf. kemst að orði, og ættu aldrei að ná stað- festingu. Ennfremur vaknar hjá oss þessi spurning: Eru þessi lög eins skaðleg fyrir hvalveiðamenn hér uppi og almenning, eins og höf. virðist vera að sýna fram á? Er ekki lagaákvæði frumvarpsins þannig, að hvalveiðamenn megi engar hvalleifar láta reka út frá veiðistöðvum sínum á annara manna lóðir, að viðlagðri 200 til 2000 kr. sekt? Þá geta lögin að engu leyti komið í bága við það, að þeir haldi áfram sinni sömu rausn við sveitunga sína, þeim er jafnheimilt að gefa sem að selja, enda mundi engum lifandi manni detta sú fávizka í hug, að kæra þá fyrir það, einungis að þeir ekki sleppi hvalleifum út frá veiðistöðvunum sjálfum, svo reki á annara manna lóðir í stórhrönnum mönnum og skepnum til skaða. Þetta er meining laganna, en þessi lög sem fleiri má hártoga á ýmsan hátt, af þeim sem svoleiðis eru gerðír, eða hver mundi vera svo heimskur að ætla sér að koma fram ábyrgð á hendur hvalveiðurum fyrir það, þótt blóð, lýsi og grútur renni í sjóinn, sem er alveg eða að mestu leyti hverfandi þá kemur út fyrir Iandsteinana; grúturinn leitar til botns, en lýsið og blóðið dreifist og hverfur, og aldrei sjást þess glögg merki, að þessar hvalleifar séu á fjörum vorum, eða mundi höf. treysta sér til að sanna, að lýsis- og blóðblettir í fjörum eða á sjó væri hvalleifar fremur en eitthvað annað úr þorski eða einhverju öðru dýri. Að gera ráð fyrir svo miklu þjófapakki, að það gæti komið ábyrgð á hendur hval- veiðamönnum með því að stela frá þeim hvalleifum, finnst oss vera þungar get- sakir að raunalausu; slíkur þokkapiltur (eða piltar) þyrftu þó að hafa fleiri í fé- lagi með sér, hann kæmist þó ekki af með minna en tvö ljúgvitni sér samhljóða, sem væru fús á að vinna hiklaust rangan eið; slik fúlmennska er engum manni ætl- andi. Hvað mundi nú hinn heiðraði höf. segja til þess, ef einhver náungi skyti því að honum, að lög sams konar sem þessi væru gildandi í Noregi? Mundi ekki svarið verða, að Norðmenn í því sem öðru stæðu langt fyrir ofan okkur íslendinga, og væru fyrir löngu búnir að útrýma öllum skrælingjaskap? Svo vitur yrði hann þó karlinn! Þessi lög eiga eptir núverandi ástandi í sveit vorri mjög vel við, og kunnum vér voru háttvirta alþingi þakkir fyrir aðgerðir sinar í því efni. Ennfremur má telja þessum lögum það til gildis, að þau gefa engum manni upp- hvatning til að kæra hvalveiðamenn að raunalausu; enginn græðir einn eyri í sinn vasa á því, og ber það ljósan vott þess, hvað alþingi vort hefur álitið þessi lög nauðsynleg, og hins vegar, hvað það gæti verið skaðlegt, að slík lög gæfu ein-

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.