Þjóðólfur


Þjóðólfur - 22.02.1895, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 22.02.1895, Qupperneq 2
34 þingi sé afaráríðandi, og eigi hafl verið í annan tíma meiri þörf á að kanna vilja þjóðarinnar heldur en einmitt nú. „Þjóð- viljinn ungi“ er fundarhaldinu hlynntur og „Fjallkonan" að nokkru leyti, en vill heldur láta halda fundinn í Beykjavík, og er það kynlegt, því að ekki getum vér séð nokkra ástæðu til þess, að fundurinn sé betur settur hér en á Þingvöllum, nema síður sé, enda má ganga að því vísu, að svo framarlega, sem almennur undirbúningsfundur verður haldiun, þá verður það á Þiugvöllum en ekki í Reykja- vík. Þótt, skoðanir manna um fundarstaðinn séu lítt skiptar, þá getur verið, að menn verði ekki á eitt sáttir um, hvernig heppi- legast sé að velja til fundarins, eu það er mjög mikilsvert að komast að fastri niður- stöðu í því, svo að kosningarnar fari ekki á ringulreið og í handaskolum. Lang- bezta aðferðin að voru áliti er sú, að fyrst séu fundir haldnir í hverjum hreppi, svo fjölsóttir sem unnt er, og þar velji hreppsbúar einn mann fyrir hverja 5—10 kjósendur; þessir hreppafulltrúar velja svo aptur á almennum fundi í kjördæminu 1—2 fulltrúa (eptir tölu þingmanna) til að sækja Þingvallafund með umboðsskrá eða almennum yfirlýsingum frá kjördæmis- fundinum. Bn tii þess að slík umþoð hefðu verulega, almenna þýðingu, væri mjög æskilegt, að fulltrúar, sem valdir eru á hreppafundunum kæmu á kjördæmis- fundina fram með einhverjar ákveðnar yfirlýsingar frá öilum þorra kjósenda í hreppi hverjum, er gætu legið til grund- vallar fyrir þeim ályktunum, er menn vildu gera á kjördæmafunduuum og síðan á Þing- vallafundi og alþingi. Aðalatriðið er, að sem flestir einstaklingar þjóðar vorrar fái kost á að greiða sitt atkvæði um það, sem alla þjóðina varðar mestu, og að hreyfingin komi neðan frá, frá hjartarótum fjöldans. Þess hefur hingað til eigi ávallt verið gætt, eins og ætti að vera, að leita álits al- mennings í öllum hinum stærri málum, og afleiðingij af því hefur orðið sú, að al- þýða manua hefur orðið skeytingarlaus og áhugalaus, og að sjálfstæðishugur hennar og framfaradugur hefur dofnað og veikl- azt. En svo má ekki verða. Ef þjóð- fulltrúarnir eiga ekki öruggan bakhjall í þjóðinni, verða þeir einnig linir og hik- andi í framsókninni, hörfa ef til vill smátt og smátt aptur á bak, og gefast svo upp að lokum, og er þá illa farið, því að bar- áttan er svo alvarleg og erfið, að það þarf mörg ár, ef til vill áratugi til að ryðja sér jafnlanga braut áfram, eins og menn hafa hopað langt aptur á bak á einu ein- asta ári. Framsóknin er nfl. dálítið örð- ugri og seinfærri en undanhaldið. Menn verða vel að gæta þess. Það getur vel verið, að sumir fram- sóknarmenn vorir telji það hálfgert hættu- spil, að leita álits almennings svo ræki- lega, sem hér hefur verið lauslega drepið á. En vogun vinnur og vogun tapar. Og hálfaumingjalegt væri það afspurnar, að vér ekki kveðum harðar að orði, ef þjóð- in hlypi nú undan merkjum í helztu áhuga- málum vorum. Vér erum þess fuilvissir, að allur þorri íslendinga er svo skynsam- ur, að hann athugar rækilega, að það skiptir afarmiklu, hvað gert verður ein- mitt nú, og að það sé fremur lítilmann- legt að láta dönsku stjórnina vefja oss um fingur sér, eins og trafi, og þegja, þá er hún skipar oss það. Af þakklæti við hana fyrir lipurð og eptirlátssemi í málum vor- um ættum vér naumast að gera það. Að minnsta kosti ættum vér að muna „niður- skurðinn“ næstl. haust, á stjórnarskránni, eptirlaunamálinu, háskólamálinu, imests- kosningarmáliuu o. fl. Vonandi er, að forsetar alþingis, eink- um hinn ötuli framsóknar- og f'orvígismað- ur Benedikt Sveinsson láti ekki lengi dragast að gefa út áskorun um fundar- hald á Þingvöllum í vor skömmu fyrir alþing. Það þarf að blása duglegu í Gjall- arhorn til að vekja fólkið. Fyrsta aukadeild kvennfélagsins hefur verið stofnuð í Keflavík. Er þannig skýrt frá því í bréfi þaðan 17. þ. m.: „Hinn 13. þ. m. var haldinn hér í Keflavík almennur fundur að tillilutun fröken Ól'fíu Jóhannsdóttur úr Reykjavík. Tilgangur fundar þessa var sá, að reyna að stofna hér auhadeild hins íslenzka hvennfélags. Fröken Ólafía hélt snjalla ræðu á fundi þessum og skýrði frá aðal- tilgangi félags þessa o. fl. Að ræðunni lokinni innti hún fundarkouur að því, hvort nokkrar þeirra væru fáanlegar til að gangast fyrir myndun slíkrar auka deildar; árangurinn varð sá, að 17 konur gáfu sig fram á fundinum sem stofnendur. Hinn fyrsti fundur aukadeildar þessarar verður að líkindum haldinn inuan skamms til þess að velja forseta, sem talið er víst, að verða muni héraðslæknisfrú Anna Thoroddsen“. Tvö ný kvennablöð hafa verið stofnuð hér á landi um nýárið, hvorttveggja mán- aðarblöð fyrst um sinn. Kom annað þeirra út á Seyðisfirði 8. jan. og nefnist Framsókn. Á það að ræða um kjör og réttindi kvenna, vekja áhuga þeirra á landsmálum m. fl., er þar að lýtur. Það er því jafnframt „pólitiskt" blað. Einna et'st á dagskrá virðist það setja bindindis- málið, helzt algert aðflutningsbann, enda eru útgefendur þess húsfrú Sigrídur Þor- steinsdóttir, kona Skapta Jósepssonar rit- stjóra „Austra“, og ungfrú Ingibjörg dóttir þeirra, allt áhugamikið bindindisfóík. — Hitt blaðið, er nefnist blátt áfram Kvenna- blaðið, verður gefið út hér í Reykjavík af húsfrú Bríet Bjarnhéðinsdóttur (konu Vald. Ásmundarsonar ritstjóra ,,FjaIlk.“). Kom 1. tölublað þess út í gær. Jafnvel þótt það eigi að stefna í sömu átt sem „Fram- sókn“, að því er framfarir kvennþjóðar- innar snertir, þá er þó sá rnunurinn, að „Kvennablaðið“ ætlar að skipta sér iítið af „pólitík“, heldur af heimilislífinu, barna- uppeldi, iðnaði kvenua o. s frv., samfara „heilræðum sem í hag koma“, skemmti- sögum m. fl. Að öðru leyti mæla blöðin bezt með sér sjálf, þá er þau fara að sýna sig, og er því óþarft að spá neinu um þau, eða gizka á, hvort betur verði úr garði gert. Það er voriandi, að þau sofni ekki í reifunum, heldur verði kvenn- þjóð vorri til gagns og sóma langa hríð. Viðkunnanlegra hefði oss þótt, að „Hið isleuzka kvennfélag“ hefði átt þátt í út- gáfu þessara blaða, en svo mun ekld vera, enda þótt þau bæði muni vera stofnuð óbeinlínis sakir áhrifa þeirra, er kvenn félagshreyíingin hér á landi hefir vakið. Sjónleiklrnir. I fyrra kveld var „Frænka Charley’s" enn leikin í leikhúsi W. Ó. Breiðfjörðs. Hefur ýmsum leikend- unum farið allmjög fram, síðan það var leikið fyrst. Auk Ólafs Thorlaciusar og "Sigurðar Maguússonar, er báðir leika eink- ar vel, má geta þess, að ungfrú Gunn- þórunn Halldórsdóttir, er leikur hina réttu frænku, gerir það rnjög vel og kemur mjög snyrtilega og eðlilega fraiu. í þetta skipti söng hr. Júlíus Jörgeusen vísur nokkrar, nýlega ortar af ungu skáldi, all- kunnu, og birtum vér þær hér til sýnis, með því að þær eru einkennilegar og fela í sér græzkulaust háð og orðaieiki um apturfarir, apturhald, stjórnarsinna o. fl., eins og flestir munu skilja, er lesa vís- urnar með nægilegri athygli: Víkin öll var reyfð í reyk, rumdu hundrað púðurskot, krakki hló í koti hverju

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.