Þjóðólfur - 31.05.1895, Side 1

Þjóðólfur - 31.05.1895, Side 1
Árg. (EO arkir) kostar 4 kr Erlendis 5 kr.— Borgist fyrir 15. J41I. Uppsogn, bnndin við 6.ramót, dgild nema komitilútgefanda fyrir 1. okt.óber. ÞJÓÐÓLFUR XLYII. árg. ReykjaTík, fðstudaglnn 31. niaí 1895. Nr. 26. Y firlýsing. Ritstjóri þessa blaðs íinnur sér skylt að lýsa því yfir, að augiýsing í síðasta tölubl. „Þjóðólfs", nr. 25, 24. þ. m., með fyrirsögninni „Þakkarávarp11, sem rituð er undir nafni nokkurra frakkneskra skip- brotsmanna, er innkomin í blaðið án þess athugað væri innihald hennar, og hefði hún alls eigi verið tekin, ef ritstjórinn hefði gætt þess, er faldist undir hinni meinlausu fyrirsögn. Ummæli greinarinnar um aðbúnað frakkneskra skipbrotsmanna, er dvöldu á „hótel Reykjavík“ fyrir nokkru síðan, er eptir því, sem eg hef fullvissað mig um, einber uppspuni og ómaklegur rógur, sem sjálfur fullvel ber með sér, hvaðan og af hverri rót muni runninn. Því fer svo fjarri, að Iýsing níðgreinar þess- arar á hreinlætinu í matartilbúningnum á „hótel Reykjavík“ nái nokkurri átt, að það er þvert á móti alkunnugt hér í bæ, að einmitt það „hótel“ er talið standa framar öllum öðrum sölustöðum hér í bæn- um i matargerð, og hafa ýms félög sér- staklega af þeirri ástæðu kosið að hafa þar samkomur sínar. Ritstj. Þingvallafundurinn verður lialdinn föstudaginn 28. júní næstk. Samkvæmt bréfi frá Benedikt sýslu- manni Sveinssyni til ritstjóra Þjóðólfs ds. 8. þ. m. kveðst hann fallast á, að fundur- inn hefjist ekki fyr en hinn 28. júní sam- kvæmt fuudarboði því, er fyrst var birt hér í sunnanblöðunum frá honum sjálfum, þingmönnum ísfirðinga og Pétri á Gaut- löndum. Við þessa lipurlegu tilhliðrun frá Benedikts hálfu, verður því ekki að tala um annan fundardag en hinn 28., en hinn 25. fellur burtu af sjálfu sér. Það er því mjög heppilegt, að þessi tvíveðrungur í fundarboðaninni hefur þannig lagazt svo sáttsamlega, því að þess meiri von er um, að fundurinn komi að tilætluðum notum, þá er lítilsháttar formleg ágreiningsatriði eru ekki gerð að kappsmáli meðal þeirra manna sjálfra, er eiga að haldast í hendur í framsóknarbaráttunni, því að það er afar- áríðandi, að þeir surdrist ekki, heldur haldi sem fastast hóp. Það var þvi mjög heppi- lega ráðið af Bened. Sveinssypi að sam- þykkja hinn 28. júní sem fundardag. Með því eru menn leystir úr öllum vafa, að því er daginn snertir, og Vestfirðingar, sem eflaust koma með strandferðaskip- inu hinn 26., geta þá verið á fundinum, sem er fullkomlega nauðsynlegt. Þeir eru liðsmenn góðir, sem ekki má vanta á þessa samkomu. Að vísu verður tíminn mjög naumur til hátíðabrigða á Þingvöllum, eins og B. Sv. hafði hugsað sér upphaflega, er hann boðaði fundinn hinn 25. júni, en við því verður ekki gert. En þótt tíminn sé stuttur mætti halda þar ræður í minningu 50 ára afmælisins, skreyta tjöld með fánum o. s. frv. Það er þó betra en ekki, að þess verði á einhvern hátt minnst, aðhiðendur- reista alþingi hefur nú staðið hálfa öld, þótt stórkostlegt liátíðarhald geti ekki orð- ið því samfara. Nú ættu menn hér sunnanlands aðfara að hraða sér og taka að velja fulltrúa á fundinn, því að það er vafalaust að hann verður haldinn. Eyfirðingar og Þingey- ingar hafa nú þegar fyrir nokkru boðað til funda til að vetja fulltrúa, og þá er þetta er ritað munu fulltrúakosningar vel á veg komnar eða jafnvel um garð gengn- ar í hinum fjarlægustu sýslum. Það ger- ir minna til, þótt fulltrúar þeirra viti ef til vill ekki með vissu, hvor fundardagur- inn eigi að gilda, en í öllum sýslum hér nærlendis geta menn frétt það nógu snemma, að fundurinn verður hinn 28. en ekki 25. júní, og hagað ferðum sínum eptir því. Þingmaniiskosiiing í Gullbringu- og Kjósarsýslu í stað séra Þórarins heit. Böð- varssonar á að fara fram 15. júní næstk. Hefur heyrzt, að allmargir muni verða til að sækja um það embætti, jafnvel sex alls, en þó óvíst um helminginn, þá Guðraund Einarsson í Nesi, Þórð hreppstjóra á Neðra- Hálsi og Þórð Thoroddsen héraðslækni, en hinir 3, sem taldir eru vissir að bjóða sig fram eru: Björn Bjarnarson búfræðing- ur á Reykjahvoli, Hannes Hafstein land- ritari og Magnús Th. Blöndal (Sigfússon) kaupm. í Hafnarfirði (bróðir Björns alþm. í Grímstungu). Hver þeirra mun bafa all- mikinn flokk til fylgis. Ætti Þjóðólfur að leggja nokkuð til málanna við þessa auka- kosningu væri það bending til kjósend- anna að fjölga ekki embættismönnum á þingi, því að það er sannarlega ofmikið af þeirri stétt þar nú sem stendur og í öðru lagi viljum vér benda þeim á, að heimta ötvírœðar yfirlýsingar afþingmanna- efnunum i aðalmálum vorum, ekki að eins í samgöngumálinu, sem allir munu vera samdóma um, heldur sérstaklega í þeim málum, sem stjórninni er mest áhugamál að drepa, svo sem stjórnarskrármálið, há- skólamálið, eptirlaunamálið o. m. fl., en framar öllu ættu þó kjósendurnir að leggja mesta áherzlu á það mál, sem eflaust kem- ur fyrir þingið í sumar og haft getur af- armikla þýðingu, ef rétt er með farið, en það er Skúla-málið í sambandi við allar aðgerðir landsstjórnarinnar í því, og hinn feikimikla kostnað, er Iandssjóði hefur þeg- ar verið bakaður að raunalausu, auk þess sem í vændum er. Kjósendur ættu því sérstaklega að taka mest tillit til þessa máls, eins og nú stendur, því að kjósi þeir einhvern, er fylgir stjórnarflokknum í því máli, og ekki vill hlífðarlaust víta aðgerð- ir landstjórnarinnar, þá sýna þeir með því, að þeim stendur alveg á sama, hvernig með þá er farið, og hvernig fé landssjóðs er varið. Það væri harla slysalegt, ef þessi aukakosning yrði til þess að efla flokk þeirra á þingi, er líklegastir eru til að verja atferli stjórnarinnar í þessu máli og fleirum. Úr sveitinni. (Fréttabróf úr Bjarnarfirði 25. apríl). [llejskapur, tíðarfar, liafís. — Höfrungadráp, kákarlsaöi. — BráJapestin. — Ileilsufar. Oddur læknir. — Saratök, blaðakanp. — Po'stgöngur. — Skúla-málið, — Stjornarskrárbaráttan og há- skdlamáliJ. — Járnbrautir á íslandi]. Heyskapur var í sumar í góðu meðal- lagi, enda var tíðin ágæt, og það fram til veturnótta, en úr því, og fram yfir nýár, var umhleypingasamt, optast með bleytu- kafaldi af norðri; skipti þá um aptur til sufinanáttar með leysingu, og mátti heita eins og bezta sumarveðurátta, allan febr. og framan af marz, stöðugar sunnan- og

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.