Þjóðólfur - 18.06.1895, Síða 3

Þjóðólfur - 18.06.1895, Síða 3
115 eptir framkomu ísafoldar í því máli, en enginn varð til að styðja þessa tillögu B. nema Kristján Þorgrímsson. Niðurstaðan varð sú, að samþykkt var að senda full- trúa á fundinn og Benedikt prófastur Krist- jánsson í Landakoti valinn til þeirrar farar, eins og bent var á í Þjóðólíi síðast, með 36: 22 atkv. — Því næst var tekið að ræða um þingmál. Þingmaðurinn tal- iaði á víð og dreif um stjórnarskrármálið og var því ekki sérlega hlynntur i þeirri mynd, sem það er nú; vildi hann láta fund- inn samþykkja þá ályktun, að skora á þingið að halda áfram málinu í þá átt, að þjóðin fái sem mest sjálfsforræði og beiti þeirri aðferð, sem það sjálft álítur heppi- legasta, en í þess stað samþykkti fundur- inu svo látandi tillögu (frá Bened. próf. Kristjánssyni): „Fundurinn skorar á þingið að halda áfram stjórnarskrármálinu obreyttu í frum- varps/ormiu. Þá var samþykkt svolátandi tillaga í samgöngumálinu (frá Haild. Jónssyni banka- gjaldkera): Fundurinn skorar á alþingi að koma á beinum ferðum frá Beykjavík til útlanda, einu sinni á hverjum hálfum mánuði 6—8 mánuði ársins, að styrkja gufubáta ríflega og auka að mun strandferðiru. í háskólamálinu var samþykkt svolát- andi tillaga (frá Hannesi Þorsteinssyni ritstjóra): „Fundurinn skorar á alþingi að halda áfram háskölamálinu á sama grundvelli og þingið samþykkti 1893U. Að lokum var samþykkt tillaga (frá Jóni Þórðarsyni kaupm.), um að þingið styrkti ishúsið hér í bænum. Að ekki voru teknar ályktanir um fleiri mál á fundinum stafaði af venjulegri ðþreyju fundarmanna, er tóku að smátín- ast burtu, þá er fundurinn hafði staðið rúmar 2 stundir, og varð því að slíta hon- um, fyr en ella mundi. En ályktanir þær er fundurinn gerði, hafa ei að síður fullt gildi, þótt þeir væru tiltölulega fáir, er atkvæði greiddu með sumum. — Að ísa- fold gerir lítið úr fundarhaldinu og álykt- unum fundarins, er skiljanlegt frá hennar ranghverfa sjónarmiði. Hún er ekki ósvip- uð karlinum, er sagði í hvert skipti og honum var skellt ofan í forina. „Það var ómark!!“. Sama segir ísafold ávallt, þá er henni gengur erfiðlega, eu til þess að reyna að breiða yfir það á pappírnum, bregður hún jafnan öfugum kíkirnum fyr- ir sjónir lesenda sinna. En meun þekkja fyrir löngu þær brellur hennar og „draga frá eða bæta við“ frásögn hennar, eptir því sem við á í hvert skipti. Aiþingiskosning í Gullbringu- og Kjósarsýslu fór fram í Hafnarfirði 15. þ. m. Var Þórður Tlioroddsen héraðslækn- ir valinn þingmaður (í stað Þórarins heit. Böðvarssonar) með 201 atkvæðum. Hann- es Hafsteinn landritari fékk 85 atkv. Tví- kjósa varð, þvi að 4 voru alls í kjöri og dreifðust fyrst atkvæðin. Við fyrri kosn- inguna fékk Magnús Blöndal kaupmaður 37 atkv., Björn Bjarnarson búfræðingur á Reykjahvoli 38 atkv. Hannes Hafsteinn 83, en Þórður Thoroddsen 141, og skorti því ekki nema 9 atkv. til að ná löglegri kosningu (meir en helming allra greiddra atkvæða). Þá er svo var komið, lýstu þeir Magnús og Björn því yfir, að þeir drægju sig í hlé, og var þá ekki nema um þá Þórð og Hannes að velja, og fór það sem fyr segir, að nálega allir, er kos- ið höfðu þá Magnús og Björn kusu Þ. Th. við síðari kosninguna. Kosningar þessar voru sóttar með svo miklu kappi, að slíks eru varla dæmi. Höfðu þingmannaefnin haldið marga und- irbúningsfundi hingað og þangað um kjör- dæmið, með faguriegum fortölum fyrir kjósendum. Til að sækja kjósendur Hann- esar Hafsteins var t. d. leigð gufukænan „Elín“ (fyrir 160 kr.?) og send suður í Voga, en fremur urðu þeir fáir, er notuðu sér þennan ókeypis flutning á fundinn, því að aðalstyrkur Þórðar Thoroddseu var þaðan úr suðurhreppunum. og fjölmenntu þeir mjög til kosningarinnar, enda báru þeir hinn glæsilegasta sigur úr býtum, með aðstoð fylgismanna hinna þingm. efnanna M. Blöndal og B. B. Munþaðvera almannarómur, að kosningin hafi tekizt einkar heppilega, og að góður liðsmaður bætist á þing, þar sem hr. Þórður Thor- oddsen er, enda þótt enginn frýi hr. H. Hafstein vits né góðra hæfileika. Það ætla margir að útgefanda ísafoldar hafi nú hjartanlega langað til að fá H. Hafstein á þing, en alls ekki bróður Skúla Thor- oddsens. En „margt er manna bölið“. Á þingmálafundi, er haldinn var í Hafnarfirði að loknum kjöríundinum voru þingmannaefnin tvö, er í kjöri höfðu verið: Björn Bjarnarson og Magnús Blöndal kosnir sem fulltrúar kjördæmisins á Þing- vallafund, og átti það mjög vel við. Eru þeir báðir einbeittir fylgismenn stjórnarskrár- endurskoðunarinnar. Varla hægist útg. „ísafoldar" fyrir brjóstinu við þá kosn- ingu. Fulltrúakosningar á Þingvallafund auk þeirra, er nú var getið: í Rangárvallasýslu 12. þ. m.: séra Eggert Pálsson á Breiðabólsstað og Tómas Sigurðsson á Barkarstöðum. í ísafjarðarsýslu: Halldór Jónsson bú- fræðingur á Rauðumýri og Matthías ólafs- son kaupmaður í Haukadal. í Strandasýslu: séra Arnór Árnason á Felli. í Eyjafjarðarsýslu: Friðbjörn Steinsson bóksali og Stefán Stefánsson kennari á Möðruvöllum og til vara Páll Hallgríms- son i Möðrufelli og Guðmundur Davíðsson á Hofi. Srandferðaskipið „Thyra“ kom hing- að vestan um Iand í gær. Með því komu Júlíus Havsteen amtmaður og Skúli Thor- oddsen (báðir af amtsráðsfundi í Stykkis- hólmi), ennfremur frá Patreksfirði sýslu- mannsfrú Sigríður Árnadóttir (landfógeta) og Tómas Helgason læknir með heitmey sinni o. fl. Drukknun. 17. f. m. drukknuðu 3 menn af bát utarlega á Eyjafirði á leið úr Hrólfsskeri. f Guöjón D. Fjeldsteð stud. art. (f. 25. apríl 1876; d. 17. jan. 1895). Kveíja frá skólabrœðrum hans. Hve fagnrt að lifa til fræðslu síns anda, til framkvæmda, til þess að styðja hið góða, á sjónarhól visinda styrkur að standa og straumana’ að skoða í lífs-sögum þjóða! Hve fagurt að lifa, er lífsvorið bjarta sinn ljómandi blómsveig um hðfuð oss vefur, er sýður í æðum og svellur í hjarta hið sí-unga fjörið, er lífskrapt oss gefur! Svo lifðir þú, bróðir! sem bræðrunum fjærri með hrár þínar fólvar nú sefur í moldu; því tökum vér allir þitt andlát oss nærri, því iðar nú grátvakinn blær yfir foldu. Hve fagurt að deyja, á fölnaða vanga er fellir guðs náðarsól Ijós-stafi sína, og hvíldar að njóta’ eptir stríðið hið stranga og stefna til hæða þar sorgirnar dvína! Svo dóst þú. Með sígandi sólinni’ í vestri vér sendum þér bróður-orð, ást-kveðju hlýja. Nú lifir þú glaður í lífssælu mestri, nú lestu með englunum heimspeki nýja. Guðm. Guðmundsson.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.