Þjóðólfur - 12.07.1895, Side 4
136
smekklausu samlíkingarnar, sem jafnan
hafa átt að vera svo sannfærandi i munni
andstæðinga málsins, og komið hafa fram
í mörgum útgáfum, ýmist í biðilsfötum, í
ísjakaformi eða sem vaðlausar ár, o. m. fl.
Þær fara óneitanlega að verða nokkuð
kýmilegar. Hinn flutningsmaður tillögunnar
Jön Jakobsson, reyndi því næst, að gera
grein fyrir, hversvegna hann einn þjóð-
kjörinna þingmanna í deildinni, væri ábandi
með konungkjörnum þingmanniíþessu máli.
Lét hann þá óbífanlegu von í Ijósi, að hefði
Þorleifur Jónsson 2. þm. Húnvetninga ver-
ið kominn á þing, þá hefði hann einnig
orðið samferða hinum konungkjörnu, sem
nr. 2. Er iíklegt, að Þorleifur verði ræðu-
manni þakklátur fyrir hið góða traust(I)
er hann bar til samfylgdar hans í þessu
máli. Ennfremur vildi ræðumaður verja
afstöðu sína í þessu með skírskotun til
yfirlýsinga frá ýmsum þingmálafundum í
stjórnarskrármálinu, og tók sér þar til
„inntekta" yfirlýsingar frá 6 kjördæmum,
er vildu láta halda málinu áfram í sömu
(eða líka) stefnu sem fyr, án þess að minn-
ast einu orði á skýlausa áskorun á Þing-
vallafundi, frá 13 kjördæmum landsins,
ura að halda málinu áfram óbreyttu nú í
sumár. Flutningsmenn tillögunnar eru nfl.
ávallt að bisa við þá staðhæfingu, að þetta,
sem þeir þykjast vilja hafa fram sé sama
stefnan, sem verið hefur á síðustu þingum,
að eins aðferðin sé önnur, þó að þeir vit-
anlega taki að eins 3 atriði úr frumvarp-
inu, ,sem krufin hafa verið til mergjar í
annari grein hér í blaðinu. Siqurður Jens-
son andmælti þessari tillögu og kvað hana
ofsnemma uppborna, þá er mál þetta væri
í nefnd í neðri deild; stakk hann upp á
að setja 3 manna nefnd til að íhuga hana,
en það var fellt með öllum atkv. binna
konungkjörnu (5). Þá beindi Sigurður Stef-
ánsson þeirri fyrirspurn til landshöfðingja,
hvort hann mundi leggja til við stjórnina,
að tillögunni yrði sinnt, en landshöfðingi
svaraði því svo, að hann mundi mæla með
1. lið hennar, en ekki með tveimur hin-
um síðari, og við það var umræðunum slitið.
Yar till. því næst samþykkt í einstökum
liðum og í heild sinni með 6 atkv., þ. e.
öllum hinum konungkjörnu og Jóni .Takobs-
syni, en hinir aðrir þjóðkjörnir þingmenn
fjórir (Gutt. Yigfússon, Jón í Bakkagerði,
Sig. Jensson og Sig. Stefánsson) greiddu
alls ekki atkvæði um þetta. Er nú að
eins eptir að samþykkja hana til fullnað-
ar við 2. umr. og þarf ekki að efa, að
úrslitin verða hin sömu, því að þá er
Þorleif vantar og Jón Jakobsson er með
konungkjörna flokknum, þá er „spilið"
unnið, og forlög stjórnarskrármálsins nokk-
urn veginn auðsæ í þeirri deild, þótt það
komist svo langt, hvoru megin sem Þor-
leifur yrði, er hann kæmi.
Samgöngumálin. Til að íhuga þau
hefur neðri deild valið 5 manna nefnd:
Valtý Guðmundsson, Jens Pálsson, Skúla
Thoroddsen, Klemens Jónsson og Jón Þór-
arinsson. Á nefnd þessi að vera fjárlaga-
nefndinni til aðstoðar í þessu yfirgrips-
mikla vandamáli, er miklu skiptir um, að
verði ráðið heppilega til lykta. — Einhver
tilboð um samgöngur kváðu nú þegar vera
komin fram, bæði frá 0. Wathne og Mr.
Franz, fjárkaupmanninum enska, er nefnd-
in mun taka til athugunar, en hvernig
þeim er í raun og veru háttað, verður
ekki fullkomlega sagt um að svo stöddu.
Mun almennur áhugi vera á því í þinginu,
að láta ekki danska gufuskipafélagið vera
hér eitt um hituna eptirleiðis, hvernig sem
það tekst.
Önnur helztu mál, er hreyft hefur verið
á þingi hingað til, eru að mestu leyti
uppvakningar frá fyrri þingum, t. d. eptir-
launamálið, prestkosningamálið, um varnar-
þing í skuldamálum (fellt í gær i n. d.
með 12 : 10 atkv.), um breyting á út-
flutningalögunum, um fjárráð giptra kvenna
og um kjörgengi, auk nokkurra nýmæla.
Stjórnarhreyting kvað vera orðin á
Englandi, Rosebery lávarður farinn frá,
en Salisbury tekinn aptur við forstöðu
ráðaneytisins í hans stað. Nánari fregnir
um það síðar.
Heimdallur og botnvörpuskipin. Ept-
ir því sem skýrt er frá í „Austra" 22. f. m.
hafði varðskipinu Heimdalli tekizt að ná
2 enskum botnvörpuskipum við ólöglegar
veiðar í landhelgi, skammt austur af Ing-
ólfshöfða úti fyrir Mýrum í Skaptafells-
sýslu. Setti hann hermenn í þau og kom
með þau til Seyðisfjarðar 18. f. m. Var
jafnskjótt sendur hraðboði eptir A. Tulinius
sýslumanni til Eskifjarðar, og sektaði hann
annað skipið um 1500 kr., hitt um 1000 kr.,
en veiðarfæri öll upptæk. Þriðja skipið
var fyrir utan landhelgi, er „Heimdallur“
sá það, en þeir seku á hinum skipunum
sögðu, að það hefði áður legið jafnvel næst
landi.
Þótt aukaþingið í fyrra hefði ekki af-
rekað annað en að samþykkja botnvörpu-
veiðalögin, þá mætti segja, að það hefði
borgað sig bæði beinlínis og óbeinlínis, og
svo getur optar orðið, ef aukaþing væru
tiðari. Það getur verið ýmislegt, er ekki
þolir uppihald milli tveggja reglulegra þinga.
Sjálfsmorð. Einhver efnaðasti bónd-
inn í Mjóafirði eystra, Stefán Árnason að
nafni, hengdi sig i f. m., eptir því sem
Þjóðólfi er ritað úr Fljótsdalshéraði.
Prestaskólakennari, séra Jón Helga-
son prédikar í dómkirkjunni á sunnudaginn kem-
ur kl. 5 e. h.
Hvanneyrarskólinn.
Að búnaðarskólanum á Hvanneyri verð-
ur alls fjórum námspiltum veittur aðgang-
ur á komandi hausti, og verða bænarskár
hér að lútandi að vera komnar til undir-
skrifaðs amtmanns fyrir 15. ágúst næst-
komandi. Námspiltum á skólanum veitist
10 kr. styrkur til bókakaupa.
Skrifstofu Suðuramtsins 6. júlí 1896.
J. Havsteen.
Glært íslenzkt, Dobbelt-Spath,
bæði stór og lítil stykki, verð-
ur keypt fyrir hátt verð hjá
J. Salomon, Bredgade 20, K.jö-
benhavn.
• Ekta anilínlitir w
•fH 97
•f-i fást hvergi eins gððir og ðdýrir eins og 80
£ í verzlun 80 ö
Ö Sturlu Jónssonar Hs
C8 Aðalstræti Nr. 14.
Á W H-*
•JUHUJIjUT! BJHJ • '
TJndirskrifaður tekur að sér alls konar venju-
legt járnsmíði, og leysir það fljðtt og vel af hendi,
gegn vægri borgnn út í hönd.
Smiðja mín er í Skálholtskots-húsinu.
Reykjavik 1. júlí 1895.
Samúel Huðmundsson.
Fjármark Ragnhildar Þorsteinsdðttur Briem
á Gili í Sauðárhreppi í Skagafjarðarsýslu: Sneið-
rifað framan hægra, biti aptan. Sýlt vinstra og
gagnbitað.
Tapazt hefur gamalt einskeptutjald, bætt með
léreptsbðtum, í hærupokagarmi, á Reykjavíkur-
plássi. Finnandi er beðinn að skila því til Gísla
Vigfússonar á Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theoL
FélagsprentsmiSJan