Þjóðólfur - 19.07.1895, Blaðsíða 3
143
og í liaust, og rekur mig jafnt minni til þess í
haust og áður fyrri. Það er ekki af kjarkleysi eða
áhugaleysi mínu, að eg hef ekki ritað um nefndan
yeg, fyr; á eg það höfundinum að þakka, að eg
fæ nú tramkvæmd til þess, og vil benda á nokkur
atriði, sem gr.höf. hefur verið þvi miður ókunnug-
ur. Eg er því samdóma, að hr. Sigurður Thor-
oddsen sé einfær að ráða því, hvar veginn skuli
leggja, en jafnframt ber eg það traust til hans, að
hann veiti eptirtekt bendingum kunnugra og greindra
manna, hvar hyggilegast væri að leggja veginn
fyrir alda og óborna; finnst mér því áríðandi, að
þeir menn hefðu það hugfast, að benda S. Thor-
oddsen, þar á veginn, sem heppiiegast væri fyrir
land og lýð, án þess að hafa eiginn hag í fyrirrúmi,
og einkum þegar vegfræðingurinn er hér jafnó-
kunnugur þeim áhrifum, er náttúran kann að hafa
á vegagerðir hér um pláss, flestar ársinstíðir.
Skal eg þá fyrst tala um veginn frá Þjórsár-
hrú út fyrir, „Flatholt“. Erþáfyrst: að frá Skálm-
holti að Dælarétt liggur laut, sem vegurinn yrði
að liggja yfir; á þeim vegi er engin mishæð utan
sú, sem Dælarétt stendur á. Þó ber það tíðum við,
að vatnsflóðið, sem kemur báðu megin við Skálm-
holts-holt, fióir yfir þá mishæð, og þá er Skálms-
holt' hólmi innan í vatninu og iítt fært að bænum
á neina hlið.
Svo vildi eg minnast á „LaunBtíg“ fyrir utan
Flatholt, sem vegurinn myndi verða að liggja yfir.
Hann verður lítt fær eða ófær i snjóflóðum og
vatnagangi. Á þessum vegi ímynda eg mér, að
þyrfti mjög upphleyptan veg, ef duga ætti, og
stórar brýr. Hverjar torfærur eru á veginum frá
LaunBtig út fyrir Ölversholt, er eg ekki svo kunnug-
ur að lýsa, en það rekur mig minni til á fyrri dög-
um mínum, að eg reið hvergi hærri ís í Flóanum,
en frá Ölversholti og upp að Hjálmholti og var
það ekki af hlaupi þá úr Hvítá. Eg ímynda mér
eins og gr.höf., að veginum verði á þessum stað
hætta búin, þegar Flóinn er upphleyptur af snjó
og ísalögum og þar á ofan koma þessi stóru hlaup
úr Hvítá, sem bæir standa ekki upp úr nema eins og
smáhólar og hvergi fært yfir útflóann nema fugl-
inum fljúgandi. Þar á ofan sýnist mönnum nokk-
uð öfug stefna frá Þjórsárbr. vestan til á Hestfjall,
í stað þess að stefnan milli brúnna er fyrir framan
Ingólfsfjall.
Flestir óska, að vegurinn yrði lagður skammt
fyrir utan Urriðafoss, nokkuð fyrir framan Kamp-
holt og Hnaus, framan Hurðarbak og útyfir mynn-
á Orustudal, — sem liggur ofan í Hurðarbaks-
dal — útyfir Hróarsholtslæk fyrir ofan Hróarsholt
og framan Vola, þaðan nálægt Sölvholtsholti; þar
mun útflóinn liggja hæst; er þá farið að draga
úr afli hlaupanna. — Nú Bjá allir menn, að með
þessum vegi eru gerðir 2 vegir undir eins, eins og
höf. bendir til. A þessum vegi þyrfti ekki stór-
kostlegar brýr nema á Hróarsh.læk og dálitla brú
á Fosslæk. Mishæðir eru ekki miklar á þesBum
vegi 2—3 holt, sem eru lág. Mér finnst vegurinn
^ þessum stað styttri og kostnaðarminni og eins
°g eg áður gat um, eru 2 vegir gerðir með sömu
krónunni frá Þjórsárbrú útfyrir Orustudal — fyrir
norðan Önundarholt — Einnig er það liugsandi,
að hægara verði með áfangastaði á þessum vegi,
fremur en hinum. Svo er eg sannfærður um, að
þessi vegur yrði miklu varanlegri en sá áður nefndi,
því vel get eg hugsað, að hann (efri vegurinn) yrði
ófær eftir fá ár, af öflum náttúrunnar, þegar ferða-
mönnum iægi mest á, eins og þrátt og opt hefur
komið fyrir á undanfarandi tíð.
Urriðafossi 5. júlí 1895.
Einar Einarsson.
Þingmálafundur Rangveilinga var
haldinn á Stórólfshvoli 12. júni. Á fundinn komu
2—4 kosnir menn úr öllum hreppum sýslunnar og
nokkrir aðrir. Þar voru þessi mál tekin til um-
ræðu: 1. Skúlamálið. í Bambandi við lagasynjan-
irnar lýsti fundurinn sárri óánægju yfir þeim, svo
og yfir aðgerðum landsstjórnarinnar í Skúlamálinu.
2. Stjómarskrármálið. Samþykkt með 17 atkv.
gegn 10, að fylgja fram stjórnarskrárfrumv. frá
1893, en felld tillaga um, að senda konungi ávarp
um, að leggja fyrir þingið 1897 frumvarp til stjórnar-
skipunarlaga. 3. Eptirlaunamálið. Skorað á þing-
ið, að fylgja því máli fram enn á ný, eins og 1893
4—6. Prestkosningamálið, um búsetu fastakaup-
manna og kjörgengi kvenna. Skorað á þingið, að
halda þeim málum áfram. 7. Um kostnað við
daufdumbra kennslu. Skorað á þingið, að halda
því máli fram. 8. Kirkjugjáldamálinu vildi fund-
urinn láta fresta. 9. Skorað á þingmenn kjör-
dæmisins, að hlutast til nm, að Bem allra fyrst
verði lagt fé til þjóðvegagerðar frá Þjórsárbrúnni
að Ytri-Rangá. 10. Að veitt verði fé til gufubáts-
ferða með suðurströnd landsins. 11. Að lagt verði
fé til umgangskennslu á líkan hátt og verið hefur.
12. Að leggja ríflegri styrk til búnaöarfélaga, en
verið hefur. 13. Að mannvirkjafræðingur verði
látinn skoða og segja álit sitt um, hvort ekki sé
mögulegt, að bæta hafnirnar milli Ölfusár og Þjórs-
ár. 14. Eáskólamálið. Borin upp tillaga um, að
skora á þingið, að styrkja háskólasjóðinn með 10
þús. kr. tillagi á ári, en meiri hluti fundarins var
eígi hlynntur því. 15. Kosnir tveir menn fyrir
kjördæmið á Þingvállafund. 16. Holdsveikraspí-
tála áleit fundurinn nauðsynlegan. 17.—18. Land-
búnaðarmálið og fátækralöggjöf landsins. Að þau
væru tekin til gagngerðrar endurskoðunar og skip-
uð í þau 5 manna nefnd milli þinga.
Pingmálafundur Snæfellinga var hald-
inn 18. júní að Syðri-Görðum í Staðarsveit. Fund-
arstjóri var kosinn séra Eíríkur Gislason alþm., en
skrifari Kjartan Þorkelsson verzlunarfulltrúi á Búð-
um. 1. Samþykkt var að skora á þingið, að halda
stjórnarskrármálinu áfram í sömu stefnu og á
þingunum 1893 og 1894. Samþ. með öllum atkv.
2—3. Að halda fram frumvörpum alþingis 1893 í
háskólamálinu og prestkosningamálinu. 4. Að
fylgja fram (algerðu) afnámi eptirlauna. 5. Að
hrinda samgöngum á sjó í miklu betra horf, en nú
er, meðal annars með því, að landssjóður kaupi
gufuskip, sem hæfilegt sé til strandferða. 6. Að
gildandi kirkjugjöld séu úr lögum numin, en sett
persónulegt gjald í þeirra stað. 7. Að lögleiða
samþykktir til að banna innflutning, sölu og til-
búning alls áfengis. 8. Að stofnað sé innlent
brunabótafélag. 9. Að samþykkt séu lög um úr-
skurðarváld sáttanefnda. 10. Að lög um sóttvarn-
ir sé endurbætt. 11. Að kjörstöðum sé fjölgað og
að þeir verði að minnsta kosti 3 í sýslunni. »12.
Að Sandalega í Neshreppi ytra verði löggilt til
verzlunar. 13. Að Skúlamálið sé tekið til ræki-
legrar meðferðar á þinginu, jafnframt því, sem
fundurinn lýsti óánægju sinni yfir því, að lands-
sjóði væri bökuð svo mikil útgjöld við það mál.
14. Að landssjóður hlutist til um, að dýralæknir
sé látinn ferðast um Snæfellsnessýslu svo fljótt sem
auðið er, til að rannBaka bráðafár í sauðfé og gefa
ráð við því. 15. Að aukapóstleiðin frá Arnar-
holti um Kerlingarskarð til Stykkishóims sé gerð
aðalpóstleið og að aukapóstur sé látinn ganga á
sumrum frá Búðum fyrir sunnan Snæfellsnesjökul
til Ólafsvíkur. 16. Loks var séra Eiríkur Gísla-
son alþm. kosinn fulltrúi fyrir sýsluna á Þingvalla-
fund.
j, Árnessýslu 14. júlí: „Laxveiðendur við
Ölfusá og Hvítá hafa nú sent áskorun til alþingis
um ófriðhelgun sels í veiðiám. Undir áskorun þessa
skrifuðu allir veiðijarða-ábúendur með ánum frá
Hestfjalli og niður fyrir Kotferju. 3 laxveiðendur
skrifuðu ekki undir áskorunina, sem kann að hafa
komið af því, að prestur þeirra býr á selveiði-jörð,
og er ekki um að missa selinn fremur en fyrir-
rennara hans. — Af því, er nú hefur verið sagt um
tiltektir Árnesinga í þessu máli, sést ljóslega, hvað
sannorður „ísafoldar“-ritstjórinn hefur orðið, eða
hitt þó heldur, þegar hann er að segja fréttirnar
af þingmálafundi okkar o. fl.“
Alþingi.
V.
Holdsyeikraspítali. Samkvæmt till.
neíndarinnar í því máli var stjórnarfrum-
varpið um stofnun holdsveikraspítala fellt
í neðri deild 16. þ. m. sakir ónógs
undirbúnings, en hinsvegar fær frumvarp
nefndarinnar, um aðgreining holdsveikra
frá öðrum mönnum, góðan byr.
Eyðing sela. Jón í Bakkagerði liefur
borið upp í efri deild svolátandi frumvarp:
„Hvervetna á íslandi skal selur réttdræp-
ur“. Eigi er írumvarpið iengra, og er því
réttnefnt „stutta frumvarpið“. Það er ekki
uunt að hafa það orðfærra. Nefnd sett í
það í Ed. í gær: Jón Jónsson, L. E. Svein-
björnsson og Þorleifur Jónsson.
Eerðir landpóstanna. Samkvæmt tiil.
Klemens Jónssonar o. fl. var valin nefnd
i neðri deild til að íhuga breytingu á
ferðaáætlun póstanna, og hlutu kosningu:
Klðmens Jónsson, Guðjón Guðlaugsson,
Einar Jónsson, Þórh. Bjarnarson og Sig-
hvatur Árnason.
Opinberu auglýsingarnar. Sigurður
Stefánsson ber upp þá tillögu, að blöðum
þeim í Reykjavík, er hafi að minnsta kosti
1500 kaupendur, sé gefinn kostur á með
undirboði að flytja opinberar auglýsingar
um 5 ár í senn. Má telja vafalaust, að
þingmenn taki þessari tillögu vel, og vilji
unna landssjóði einhvers arðs af þessum
auglýsingum.
Skúla-málið. Tillagan um skipun 5
manna nefndar til að rannsaka aðgerðir
landsstjórnarinnar í þessu máli, sem minnst