Þjóðólfur - 08.11.1895, Page 1

Þjóðólfur - 08.11.1895, Page 1
Arg. (60 arkir) kostar 4 kr. Krlendis 5 kr.— Borgist fyrir 15. Jftli. ÞJÓÐÖLFUE. Dppsögn, bnndin vis kramöt, ógild nema komi tilútgefanda fyrir 1. oktðber. XLYII. árg. Reykjayík, foatudaginn 8. nóvember 1895. Bráðapestin. Eptir norðlenzkan bónda. Það er alla ekki að ástæðulausu þó þeir, sem mest og tilfinnanlegast urðu fyrir tjóni af völdnm pestarinnar síðastl. vetur, horfi með kvíða fram á hinn komandi vetur. þar sem þeír geta búizt við, ef til vill, að verða fyrir engu minna tjóni á þessum eina aðalbjargarstofni sínum. En þó allir verði ekki fyrir eyðileggingu og tjóni af völdum pestarinnar, þá ætti þó hverjum og einum að vera umhugað um að koma í veg fyrir og draga sem mest að auðið er úr hinu voðalega tjóni, er pestin veidur, bæði hjá sjálfum sér og öðrum. Eptirfarandi línur eiga að vera dálítil tilraun til bendingar í þessu efni. í góðum árum, þegar grasið sprettur snemma og mikið, er það eðlilegt, að það falli einnig snemma. Þegar svo er, verð- ur það ekki einungis létt og lélegt til fóð- urs (beitar) og mjög svo snautt af nær- ingarefnum, heldur líka einnig óhollt og illmeltanlegt fyrir skepnur, sem á þvi eiga að lifa. Það er því ekki furða, þó afleið- ingarnar komi í Ijós á skepnunum. Þegar líður á sumar undir haustið, og grasið er farið að falla til muna, má opt heyra bændur segja sem svo, að það sé ekki til neins að slá grasið, það sé ónýtt fóður, eða jafnvel verra en ekkert. Og þó ætla þeir hinir sömu, að skepnur sínar geti lifað á þessu fóðri næstum eða alveg eingöngu, meiri eða minni part vetrarins, þegar það þó er orðið eðlilega miklu, miklu verra og óhollara, Er þetta rétt álitið? Það er mjög almenn skoðun, að bráða- pestin sé sá eyðileggjari, sem enginn geti ráðið við, og sá leyndardómur, sem eng- inn geti þekkt eða vitað um, hvernig sé í eðli sínu, og er þetta að visu í sjálfu sér eðlilegt. Fyrst er nú það, að veiki þessi virðist haga sér opt undarlega, og vera svo misskæð, þar sem þó allt virðist vera líkt háttað; í öðru lagi hafa meðul þau, sem upphugsuð hafa verið til varnar gegn pestinni, reynzt svo mjög misjafnlega. Það sem einum reyndist að vera næstum áreiðanlegt og ugglaust varnarmeðal, reynd- ist öðrum aptur allsendis gagnslaust. Af þessu leiddi, að mörgum hefur fundizt — og finnst enn — að veikin sé óviðráðan- leg og ólæknandi. Þessi skoðun hefur þó mikið illt í för með sér, því menn leggja sig þá eigi eins fram með að reyna að komast fyrir orsakir veikinnar, og koma í veg fyrir afleiðingarnar í tíma. Það er með þenna sjúkdóm eins og aðra sjúk- dóma, — bæði á mönnum og dýrum — að menn álíta, að „meðulin“ ein geti dugað til að lækna, án þess að gera sér nægi- iega grein fyrir því, að orsökina til upp- runa sjúkdómsins verður jafnframt að finna og rýma í burtu, til þess að „meðul" eigi að geta komið að tilætluðum notum. Þó þeir hinir mörgu, sem fyr og síðar hafa rætt og ritað um eðli og orsakir bráðapestarinnar, sem og meðul og vörn gegn henni, hafi í fljótu bragði sýnzt hafa næsta ólíkar og sundurleitar skoðanir, hef- ur þó flestum — þegar betur er að gætt — komið saman i aðal-atriðunum. Það er fóðrið og fóðrunin, sem þessir, og margir aðrir hafa ýmist ljósari eða óljósari ímyndun um, að standi í svo nánu sam- bandi við veikina. Þetta er og ekki svo mjög ólíklegt, þar sem reynslan virðist nokkurn veginn greinilega hafa sýnt mönn- um fram á, að svo væri, að óþarfi sýnist að óska eptir átakanlegri sönnunum. Það eru kannske ekki margir, sem hafa þá skoðun, að það sje hér um bil undan- tekningarlaust hreint og beint fjármannanna og bænda skuld, ef bráðapestin gerir milcið tjón og drepur til lengdar hjá sama manni. Þó kind og kind farist með löngu milli- bili, sem þá líka getur orsakazt af öðrum veikindum (lungnaveiki, lungnabólgu af innkulsi í slagviðrum og kulda) og fleiru þess háttar, það er annað mál, og er naum- ast unnt að koma í veg fyrir það. Auð- vitað dettur engum í hug að segja, að neinn hagi sér í þessu efni vísvitandi þvert á móti betri vitund, eða viðhafi ekki þau varnarmeðul, er hann heldur að geti dugað. Reynslan virðist ómótmælanlega hafa sýnt og sannað, að mögidegt sé þó að koma i veg fyrir mikið tjón af völdum pestar- innar sé allrar varúðar gætt og skyn- samlega aðfarið með tilliti til fóðrunar og allrar meðferðar fjárins, og að mörgum Nr. 53. hafi tekizt það. Og sé nú svo, því ætti þá hinum öðrum ekki einnig að geta tek- izt það, ef þeir hafa sömu aðferð? Það er víst, að hin ýmsu svo kölluðu inngjafa-meðul hafa opt sýnzt koma að liði til varnar gegn pestinni. En margt hefur borið til þess, að þau hafa reynzt ekki nærri eínhlit. Yíðast mun fóður og önnur hirðing fjárins hafa þá verið lík eptir að pestin fór að gera vart við sig, eins og endrar- nær, og eins og engin hætta væri á ferð- um. Opt hefur þá tíðin og fleira hjálpað til. En þótt áhrifamikil hreinsunarmeðul opt geti komið að liði, að minnsta kosti í svipinn. og þó menn geti varnað því, að skepnurnar missi lífið, þá líður þeim ekki vel, þegar þær til lengdar eiga að lifa á hinu óholla og næringarlitla fóðri. Og menn verða vel að gæta þess, að þessi meðul (að fráteknu lýsi) þau geta éUki lcom- ið i stað hinna vantandi efna í hinu ncer- ingarlausa og óholla fóðri, liéldur verður að bæta þá vöntun upp méð hollu og nær- ingargóðu fóðri. Að sumrinu, þegar heyin eru bundin inn, ættu allir að hugsa fyrir því, og haga svo til, að hægt sé að ná í gott, velverk- að og snemmslegið hey, til að gefa með að haustinu og framan af vetrinum, Til þess er hentugt sinulaust og kyngott mýr- ar-smáhey, eða valllendishey, er sé ekki puntmikið. Góð taða, fremur smá og punt- litil. mun einnig góð, og má þá auðvitað gefa minna af henni. Þetta hey skyldi ætíð salta nokkuð, annaðhvort með þurru salti, sem þó ekki kernur að notum — renn- ur ekki — nema hitni í heyinu, ellegar með saltlegi, ef heyið er mikið þurkað. Ef ekki er saltað að sumrinu eða þá að eins svo, að þess gæti mjög lítið, er gott og enda nauðsynlegt að væta hey það, sem gefið er með fyrst, í saltpækli. Ef kostur er á, er auðvitað ágætt að gefa lýsi, þannig, að láta það drjúpa i heyið og brjótast og jafna sig i því áður gefið er.1 Þetta, að gefa meðalið inn daglega með heyinu, er miklu hægra, betra og áreiðanlegra, heldur en að „gefa inn“ öllu ') Sömu aðferð skal viðhafa, þegar vætt er í saltlegi.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.