Þjóðólfur - 08.11.1895, Page 2

Þjóðólfur - 08.11.1895, Page 2
210 fénu meðalið sér á parti með styttra eða lengra millibili; því þannig lagaðar „inn- gjafir“ verða að ítrekast opt, ef duga skulu, helzt á hverri viku, en þá minna í senn. Ef nú bráðapest fer að gera vart við sig fyrir alvöru hjá einhverjum búanda, svo að ein eða fleiri kindur drepast eða veikjast á hverjum sólarhring, mun mega ganga að því vísu, að fleira og færra af fénu er orðið veikt fyrir (magaveikt) og móttækilegt fyrir veikina. Þá er hætta á ferðum. Og sé nú ekki við gert, og öll var- kárni við höfð með fóður og hirðing fjárins yfir höfuð, er vísast, að tjón hljótist af, og féð þá hrynji niður. Það er því óhultast og réttast að hætta alveg að beita fénu, eða að minnsta kosti draga mikið úr beitar- tímanum, og gefa þá með svo gott hey, sem kostur er á, en gefa lítið. Þetta er áríðandi, því féð, sem þá að undanförnu hefur orðið að lífa, kannske eingöngu, á óhollu og illmeitanlegu fóðri, er orðið melt- ingarveikt, og þolir því ekki nema lítið og auðmelt fóður meðan það er að ná sér aptur. Það verður því að skoða þessar skepnur sem sjúklinga og haga meðferð- inni eptir því. Þegar nú fénu hefur verið gefið inni lengri eða skemmri tíma, og ef veikin er þá hætt, má auðvitað fara að beita því aptur, en þó með varkárni fyrst, einkum ef því ekki verður beitt á krafsjörð, en jörð er auð og þur; sé svo, er hætt við, að sæki í sama horfið, þegar frá líður. Það hefur verið og er enn almennt álitið gott, að gefa fé að morgninum með útbeit. Þetta er að vísu líka rétt. En það mun margur fjármaður ef til vill hafa flaskað á því, að hann hefur álitið nægja að gefa fénu vel, það er að segja nógu mikið, án þess kannske að hugsa út í það, að jafnframt því að auka heygjöfina, þurfti í sama hlutfalli að stytta beitartímanu, og þar með koma í veg fyrir, að það ofí'yllti Big á hinu ónýta og óholla útbeitarfóðri. Enn mun það, að margur fjármaður hefur ekki athugað sem skyldi, hvernig heyið var að gæðum, sem gefið var, heldur tek- ið það, sem fyrir hendi var og náðist í. Það er enn eitt atriði, sem vert er að minnast á með fám orðum, og það er, að hafa svo goða reglu, sem unnt er, við alla hirðing og fóðrun fjárins, hvort sem beitt er úti eða gefið inni; hér með er meint, ekki einasta það, að hafa tímann reglu- bundinn, heldur líka, að fóðrið sé eklci meira einn daginn en annan, heldur sem allra-jafnast að mögulegt er. Þetta er áríðandi bæði í tilliti til heilsu og þrifa fjárins yfir höfuð, og eins í tilliti til bráða- pestarinuar. Þetta vita nú og viðurkenna allir góðir fjármenn og haga sér eptir því, enda eru furðu nærfærnir í því efni. Nákvæmni, eptirtekt, og velvild til skepnanna, ásamt þoliumæði við alla hirð- ing þeirra, eru kostir, sem hver fjármað- ur þarf að hafa til að bera, og allir sannir og góðir fjármenn eru gæddir þessum kostum. Eins og að framan hefur verið minnzt á, virðist reynslan benda á, að koma megi í veg fyrir mikinn skaða af pestinni. Allir, sem verða íyrir veikinni, ættu því að reyna eptir megni að koma í veg fyrir mikið tjón. Ættu menn að kynna sér ritgerðir um það efni bæði í blöðum og timaritum, og færa sér í nyt ráð þau og bendingar, sem í þessum ritum eru gefin, og sem gefizt hafa vel. Ein af þessum ritgerðum, sem út hafa komið í seinni tíð, er í 5. árg. „Búnaðarritsins41 og mörgum mun líklega kunnug. Ritgerð þessi er að mörgu vel samin. En ráð þau og varnir gegn veik- inni, sem þar eru tekin fram, eru reynd- ar áður að mestu kunn; en aldrei er góð vísa of opt kveðin, og seint verður of opt eða ítarlega brýnt fyrir mönnum, að fara vel með skepnur þær, sem þeir hafa und- ir hendi og lifa af. Ef framfarirnar í jarðyrkjunni væru nú komnar svo langt áleiðis hjá oss ís- lendingum, að vér gætum fóðrað fénaðinn, þó ekki væri nema að einhverju leyti nokkurn tíma, á garðjurtum og káljurtum, og þar með bætt upp hið óholla fóður, sem því er ætlað að lifa á, þá mundi það mik- ið gera til með að draga úr þessari veiki og eí til vill fleiri kvillum. Eu hvað verður langt að bíða þess? Meðan framfarirnar eru ekki komnar svo langt áleiðis, að hinir litlu blettir, sem eiga að heita ræktaðir, túnin, eru ekki umgirt og friðuð fyrir stórskemmdum af ágángi fénaðarins, eða aukin svo út, að þau nándarnærri séu svo stór, sem þau voru hjá forfeðrum vorum fyrir jafnvel fleiri öldum síðan, meðan vér eigum eng- in verkfæri, sem teljandi sé til að létta og flýta fyrir vinnunni, heldur látum okkur nægja með að berja og pæla svo að segja með tómum höndunum hið litla, sem okkur kemur til hugar að gera að jarðabótum, meðan bændur almennt ekki hirða nema að eins nokkurn hluta af þeim áburðar- efnum, sem þeir hafa ráð á og geta veitt sér svo að segja kostnaðarlaust, og fleygja þannig frá sér mörgum tugum króna ár- lega — meðan svona stendur, er ekki þess að vænta, að jarðrækt og fjárrækt standi á háu stigi. Bókmenntir. Það var þarft verk af hr. Sigurði bók- sala Kristjánssyni, er hann tók að gefa út íslendingasögur í ódýrri alþýðu-útgáfu, því að sögur þessar falla aldrei úr gildi meðan íslenzk tunga er töluð, og þær verða jafnan hinn dýrmætasti gimsteinn þjóðar vorrar, og hinn frægasti vitnisburð- ur um líf og háttu forfeðra vorra á liðn- um öldum, er sérhver íslendingur ætti að kynna sér sem bezt, enda hafa sögur þess- ar sérstaklega leitt til þess að vekja at- hygli erlendra vísindamanna á hinum af- skekkta þjóðflokk vorum og einkennilega þjóðerni. Nú hafa þegar verið gefnar út: íslendingabók og Landnáma, Harðar saga og Hólmverja, Egils saga Skallagrímssonar, Hænsna-Þóris saga, Kórmaks saga, Vatns- dæla, Hrafnkels saga Freysgoða, öunn- laugs saga ormstungu, Njála, Laxdæla og Eyrbyggja. Tvær hinar síðastnefndu hafa verið gefnar út á þessu ári; en eins og menn sjá, eru enn margar eptir óprentað- ar. Bækur þessar eru svo ódýrar, að eng- um alþýðumanni mun ofvaxið að eignast þær, og er það afarmikill kostur, þvi að áður, er þær voru gefnar út sín í hverju lagi, var verðið miklu meira, og sumar hafa leugi verið ófáanlegar, hvað sem í boði befur verið. Þessi sami bóksali (S. Kristjánsson) hef- ur nú tekið að gefa út nýtt ritsafn jafn- framt hinu, og nefnist það: Æfisögur ís- lenzhra merlcismanna. Eru þegar komin út 2 hepti. Fyrra heptið er saga Jóns Espólíns hins fróHa, rituð upphaflega af honum sjálfum í dönsku máli, en hinn aikunni fróðleiksmaður Gísli Konráðsson hefur snúið henni á íslenzku, og annar fjölfróður maður, dr. Jón Þorkelsson í Kaupuiannahöfn, búið haua undir prentuu og ritað við hana formála og viðbæti. Eru formálsorðin sérstaklega mjög fróðleg, eink- um að því er snertir íslenzka stúdenta við háskólann eptir miðbik 18. aldar og félags- skap þeirra, er „sakir“ nefndust. Nokkr- ar ártalsvillur höfum vér þó fundið í skýr- ingargreinunum, og einn stúdent, Finnur Þórólfsson Muhle, er þar talinn skakkt til ættar (bla. XIV). Þórólfur faðir hans var Finnsson Nikulássonar prests í Flatey öuð- mundssonar, en Þórólfur Einarsson, sem þar er nefndur faðir Finns var miklu fyr uppi, og átti hann einnig son, er Finnur hét, sem dó ungur; hefur höf. því villzt á

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.