Þjóðólfur - 21.02.1896, Side 4
36
var Rósantason (Ólafssonar), var staddur í Yatns-
hól, er hann fyrirfór sér (18. nóvember), (átti þar
ekkert skyldmenni, og því síður á Þóreyjarnúpi),
var á 28. ári, hafði i mörg ár borið á geðveiki í
honum og enginn vissi til, að hann setti að neinu
leyti fyrir sig það, að nokkuð afheyjum fóður hans
brann i haust(!). Svona er þessi stutta ísafoldar-
grein öll á apturfótunum.
ísafold ætti sannarlega ekki að bera á borð fyr-
ir kaupendur sina, aðrar eins vitleysur eins og hún
stnndum gerir, að ógleymdum öðrum óþokka, því
vinsældir hennar eru vart ofmiklar fyrir því.
Rúnvetningur.
Kristín Jakobsson í Landakoti
veitir bæði börnum og fullorðnum kennslu
í teikning og málaraiist á hverjum virk-
um degi frá kl. 10—12 í húsi W. Ó. Breið-
fjörðs (stóra salnum). Kennslugjald 5 kr.
á mánuði, fyrir einstaka tíma 25 aurar.
Þeir, sem vilja taka þátt í kennslunni,
gefi sig fram fyrir lok þessa mánaðar.
Sálmabækur
í flauelsbandi og ‘chagrin’-skrautbandi,
gylltar í sniðum, fást hjá
Arinb. Sveinbjarnarsyni,
Skólastræti 3.
Fataefní og tilbúinn fatn-
aður nýkominn í
verziun Sturlu Jónssonar.
Saumayélin „Peerless44.
Yér undirritaðar, sem í mörg ár höfum
átt þessar vélar, vottum hér með, að þær
hafa reynzt oss bezt af öllam saumavél-
um, og að þær eru jafngóðar ennþá eptir
margra ára daglega brúkun.
Reykjavík 5. febr. 1896.
Anna Pétursdóttir. Jórunn Sighvatsdóttir•
Oróa Andersen. Hólmfríður Bjarnardóttir.
Vilhelmina Sveinsdóttir. Vigdís Ólafsdóttir.
Undirritaður vottar hér með, að af öll-
um þeim saumavélum, sem eg hef séð og
gert við, er sú frá M. Johannessen, „Peer-
less“ kölluð, mest vönduð hvað frágang-
inn á öllu saumaverkinu snertir, svo eg
álít hana endingarbezta, fyrir utan hvað
hún saumar létt, fljótt og skröltlaust.
Reykjavík, d. n. s.
Markús Þorsteinsson.
Með því, að eg nú fæ „Peerless^-vélina
beint frá verksmiðjunni, get eg selt hana
ódýrara en áður, og í vetur selzt hún með
10°/0 auka-‘rabati’ móti peningum út i
hönd.
Reykjavík 10. febr. 1896.
M. Johannessen.
Fjármark Brynjólfs Magnússonar á Laugar-
vatni er: sýlt, fjöður apt. h., oddfjaðrað fr. v.
PrjónaYélar.
Undirskrifaður hefur, eins og hingað
til, aðal-umboðssölu fyrir ísland á hinum
vel þekktu prjónavélum frá Simon Olsen,
og ern vélar þessar að líkindum þær beztu,
sem fást.
Af vélum þessum eru nú hér um bil
40 í gangi hér á landi, og hef eg ekki
heyrt annað, en að öllum hafi reynzt þær
mjög vel.
Vélarnar eru brúkaðar hjá mér, og
fæst ókeypis tilsögn til að læra á þær.
Þeir, sem ekki nota tilsögnina, fá eptir-
leiðis vélarnar 10 krónum ódýrari.
Vélarnar sendast kostnaðarlaust á all-
ar þær hafnir, sem póstskipið kemur við á.
Nálar, fjaðrir og önnur áhöld fást alltaf
hjá mér, og verðlistar sendast, ef þess er
óskað.
Áreiðanlegir kaupendur geta fengið
borgunarfrest eptir samkomulagi.
Pantanir óskast sendar hið fyrsta til
I3. Nielsen,
Eyrarbakka.
„Yggdrasill—Óðins hestr“.
Ný skýring hinnar fornu hugmyndar
eptir Eirík Magnússon bókavörð í Cam-
bridge. Verð: 1 kr. Fæst hjá kaupm.
Ben. S. Þórarinssyni, Beykjavík.
Kona mín hefur árum saman þjáðzt af
taugaveiklun og illri meltingu og hefur
árangurslaust leitað ýmsra lækna. Eg réð
því af, að reyna hinn fræga Kína-lífs-
Elixír frá hr. Waldemer Petersen í Frede-
rikshavn, og þegar hún hafði brúkað 5
flöskur, fann hún mikinn bata á sér. Nú
hefur hún brúkað 7 flöskur og er orðin
öll önnur en áður, en þó er eg viss um,
að hún getur ekki verið án elixírsins fyrst
um sinn.
Þetta get eg vitnað af beztu sannfær-
ingu, og mæli eg því með heilsubitter þess-
um við alla, sem þjást af svipuðum sjúk-
dómum.
Norðurgarði 14. des. 1896.
Einar Árnason.
Kína-Iífs-elixírinn fæst hjá flestum
kanpmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta
Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að
líta vel eptir því, að ~P' standi á flöskun-
um í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki á flöskumlðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Valdemar
Petersen, Frederikshavn, Danmark.
C. ZIMSEN
hefur einkaútsölu fyrir fsland
á
Quibells Sheep Dip &íCattle Wash.
Ágætt baðlyf
á kindur og aðrar skepnur.
Reglum fyrir brúkuninni útbýtt gefins.
Baðmeðul.
Glycerin Naftalin
í 1, 2, 4 og 5 pd. dósum í */, og ljt fl.
er nú komið.
Reglur á íslenzku fyrir brúkuninni út-
býtast gefins.
Bað þetta er alþekkt fyrir, hvað það
hreinsar vel ullina.
EÍDka-útsölu fyrir ísland hefur
Th. Thorsteinsson
(Liverpool).
Tóbak og vindlar.
Allir vita, að þessar vörur eru lang-
beztar og ódýrastar hjá
B. H. Bjarnason.
Sundkennsla byrjar að Reykhólum
15. júní næstkomandi og helzt til 15. júli.
Þeir, sem vilja njóta kennslunnar, geta
fengið upplýsingar hjá undirskrifuðum, og
eiga að senda honum skriflegar umsóknir
fyrir 15. maí.
Austur-Barðastrandarsýslu-búar verða
látnir ganga fyrir öðrum, ef of margir
Reykhólum 30. jan. 1896.
Bjarni Þórðarson.
Gentlemenn!
Vandaðastar og fjölbreyttastar tegundir
af BaJchnífum og Vasahnífum hjá
B. H. Bjarnason.
• u Ekta anilínlitir W
•(H i-H fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og W er*- 80
s í verzlun » ts
í Sturlu Jónssonar a
n -*-s Aðalstræti Nr. 14. i— M* r+-
Saumakonur,
Skæri úr ekta stáli af ýmsum stærðum
ódýrust hjá
B. H. Bjarnason.
Rigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorstelnaaon, cand. theol.
FélaKBprentBmi öj an.