Þjóðólfur - 13.03.1896, Page 4

Þjóðólfur - 13.03.1896, Page 4
48 dimmviðri hafa einhvernveginn ónotalegri áhrif á þá, en þurkur og hreinviðri. Skottið á hundi Tobíasar. Fyr á tímum urðu umsækendur um embætti að vera við því búnir að hafa eitthvað í vasan- um handa þeira, er embættin veittu. Dansk- ur maður, sem sótti um djáknaembætti var þess vegna svo forsjáll að stinga á sig fáeinum ríkisdölum, áður en hann gekk til prófastsins. Prófasturinn yfirheyrði hann og lagði fyrir hann spurningar um hitt og þetta, er embættið snerti, og leysti hann greinilega úr öilu, svo að próf. gat hvergi rek- ið hann í vörðurnar. En loks spurði hann: „Getur þú sagt raér, hvernig skottið á hundinum hans Tobíasar var lagað? “Sækj- andinn þagði, og tók að hugsa sig um, unz hann áttaði sig allt í einu, og sagði um leið og hann lagði tuttugu ríkisdali í röð á borðið: „Það var líkt þessu“. „Ó-jú, það er líklega hér um bil rétt, en var ekki eitthvað fleira einkennilegt við skott- ið?“ spurði prófasturinn. „Jú“, svaraði um- sækjandinn skjótt, hann hafði gleymt að láta skottið hringa sig dálítið, og bætti því fimm ríkisdölum við röðina á borðið. Jú, það var keiprétt og umsækjandinn fékk djáknaembættið. Prestaskólakennari, séra Jón Helga- son prédikar ekki í dómkirkjnani á sunnudaginn kemur. Ollum þeim, er sýndu mér hluttekningu í sorg minni við fráfall míns elskaða föðurs Halldórs hreppstjóra Jónssonar og heiðruðu jarðarför hans 4. þ. m. með nærveru sinni, flyt eg mitt hjartans þakklæti. Þormóðsdal 6. marz 1896. Halldór Halldórsson. Skemmtifundur í hinu íslenzka kvennfélagi verður haldinn miðvikudaginn 18. þ. m. í Goodtemplara- húsinu, kl. 8 e. h. Oeir, sem um langan tíma hafa skuldað mér, verða að koma og semja við mig um skuldir sínar hið allra fyrsta, að öðr- um kosti muu eg fá þær málfærzlumanni til innköllunar. Sturla Jónsson. Eg undirskrifaður geri hér með heyrum kunn- ugt, að eg geng í æfilangt vínbindindi frá 14. marz næstkomandi. Yiðvík 20. febrúar 1896. Guðmundur Loptsson Mfræðingur. Hannyrðabókln og Rauðhetta fæst á skrifstofu „Þjóðólfs". Rónir og órónir sjóvetlingar fást í verzlun Sturlu Jónssonar. Pr jónavélar. Undirskrifaður hefur, eins og hingað til, aðal-umboðssölu fyrir ísland á hinum vel þekktu prjónavélum frá Simon Olsen, og eru vélar þessar að iíkindum þær beztu, sem fást. Af vélum þessum eru nú hér um bil 40 í gangi hér á landi, og hef eg ekki heyrt annað, en að öllum hafi reynzt þær mjög vel. Vélarnar eru brúkaðar hjá mér, og fæst ókeypis tilsögn til að læra á þær. Þeir, sem ekki nota tilsögnina, fá eptir- leiðis vélarnar 10 krónum ódýrari. Vélarnar sendast kostnaðarlaust á all- ar þær hafnir, sem póstskipið kemur við á. Nálar, fjaðrir og önnur áhöld fást alltaf hjá mér, og verðlistar sendast, ef þess er óskað. Áreiðanlegir kaupendur geta fengið borgunarfrest eptir samkomulagi. Pantanir óskast sendar hið fyrsta til Nielsen, Eyrarbakka. Kona min hefur árum saman þjáðzt af taugaveiklun og illri meltingu og hefur árangurslaust leitað ýmsra lækna. Eg réð því af, að reyna hinn fræga Kína-lífs- Elixír frá hr. Waldemer Petersen í Frede- rikshavn, og þegar hún hafði brúkað 5 flöskur, fann hún mikinn bata á sér. Nú hefur hún brúkað 7 flöskur og er orðin öll önnur en áður, en þó er eg viss um, að hún getur ekki verið án elixírsins fyrst um sinn. Þetta get eg vitnað af beztu sannfær- ingu, og mæli eg því með heilsubitter þess- um við alla, sem þjást af svipuðum sjúk- dómum. Norðurgarði 14. des. 1895. Einar Árnason. Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lifs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel eptir því, að VFP' standi á flöskun- um í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Valdemar Petersen, Frederikshavn, Dann.ark. Tapazt hefur úr heimahögum frá Kollafossi í Miðfirði i Húnavatnssýslu, nokkru fyrir slátt næst- liðið sumar, rauðjörp hryssa, 6 vetra gömul, með mark: blaðstýft fr., biti a. h., fremur lítil og nokk- uð tannlág, loðafrökuð. Hryssan er ættuð frá Tjarnarkoti í Njarðvíkum. Hver, sem hitta kynni hryssu þessa, er vinsamlega beðinn að koma henni til mín eða að Tjarnarkoti. Kollafossi 27. des. 1895. Bjöm J. Jósafatsson. Jens Hansen Vestergatle 15, Kjöbenhavn K hefur hinar stærstu og ódýrustu birgðir í Kaupmannahöfn af eldavélum, ofnum og steinolíuofnum. Eldavélarnar fást hvort menn vilja heldur fríttstandandi eða til þess að múra upp og eru af mörgum stærð- um frá 17 kr. Yflr 100 tegundir af ofn- um. Magasinofnar, sem hægt er að sjóða í, Iíka öðruvísi útbúnir frá 18 kr. af beztu tegund; ætíð hinar nýjustu endurbætur og ódýrasta verð. Nánari upplýsingar sjást á verðlista mínum, sem er sendur ókeypis hverjum, er þess óska og sem skýrir frá nafni sínu og heimili. Verðlistinn fæst einnig ókeypis á skrifstofu þessa blaðö. (Þakkarávarp). Með viðkvæmri tilfinningu vott- um vér herra kaupmanni Chr. Pttpp á Sauðárkrók vort innilegt hjartans þakklæti fyrir þá hlutdeild, sem hann hefur tekið í kiörum vorum á næstliðinni Jólahátíð, þar sem hann hefur útbýtt oss svo mörgum höfðinglegum gjöfum, og það í þeim mun- um, sem gleðja og styrkja fátæka til að gota fylgzt með í því, að t.aka þátt í hátíðahaldinu um minn- ingu frelsara mannkynsins. Vér minnumst þess með virðingu og þakklæti, að foreldrar þessa manns, hinn framliðni fyrir- rennari hans Ludvig Popp og frú háns Emilía Popp, sem nú er búsett í Kaupmannahöfn, ruddu braut góðgerðaseminnar hér gagnvart fátækum. í sambandi við þetta minnumst vér einnig heið- urskvenna þeirra, sem bæði nú og í fyrra vetur hafa um jólahátíðina glatt börn vor með jólatrés- samkomu og gjöfum. Öllum þeim, sem þannig hafa stutt að, að gleðja obs og börn vor um næstliðnar hátxðir og endrar- nær, árnum vér í sameiningu alls góðs, og vonum vér, að hver og einn, sem temur sér að lita til og gleðja fátæka, uppskeri þau laun, sem vara lengur en tímanlegur hagnaður. 11. janúar 1896. Fátœklingar á Sauðárkrólci. Næsta blað (aukablað) kcmur út á þriðjudaginn 17. þ. m. Eigandi og ábyrgðarmaður: Uannes Þorsteinsson, cand. theol. Félagsprentsmifijan.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.