Þjóðólfur - 19.06.1896, Qupperneq 3
123
sama ár (?) Guðrúnu Þðrðardótt.ur bónda í Staf-
holtsey (Hún var systir Jöns hreppstjóra í Norð-
ttmgu). Þau bjuggu 6 ár í Máfahlíð, en fluttust
Bíðan að Kvígstöðum í Andakíl og bjuggu þar 30
ár. Þá brá liann búi og fór tii dóttur sinnar að
Svarfhóli í Hraunbrepp í MýrasýBlu og var hjá
henni 11 ár; en þá fór hún til Ameríku með allt
sitt. Þangað vildi Símon ekki fara, og iiuttist
bann þá austur í Áruessýslu til annarar dóttur
sinnar, er býr í Móhúsum. Hjá henni dvaldi hann
til dauðadags.
Símon sál. var meðalmaður á vöxt, fríður sýn-
um á yngri árum, dugnaðarmaður mikill og fram-
faramaður; bætti hann jörðina Kvígstaði til mik-
illa muna, bæði með brúagerðum og túnasléttum;
hann var og hinn fyrsti, er fékk heiðurslaun úr
gjafasjóði Kristjáns 9. Hann var fróður maður og
hneigður til bóknáms, skáldmæltur vel og skemmti-
legur í umgengni, stillingarmaður, ráðvandur og
hinn reglusamasti, tryggur vinum BÍnum og vel
metinn af öllum, er hann þekktu. (Br. J.)
Hinn 20. janúar síðastl. andaðist að heimili
sínu Stóru-Yatnsleysu Jón Jónsson frá Skálanum
á 74. aldursári. Hann var fæddur á Stóru-Vatns-
leysu 2. nóvbr. 1822. Foreldrar hans voru: Jón
Jónsson, er lengi bjó á Stóru-Vatnsleysu, merkur
bóndi á sinni tíð, og Ingveldur Þorleifsdóttir, ætt-
uð frá Arakoti á Skeiðum. — Jón Bál. ólst upp hjá
föður sínum, og kom það snemma í ljós, að hann
var mjög hneigður til lærdóms, en á þeim tima var
ekki almennt að setja ungmenni til mennta, og
gat hann því ekki notið þeirrar menntunar, er hug-
ur haus þráði, en aflaði sér þó meiri menntunar,
en almennt var á þeim tíma. Annars var aðal-
lifsstarf hans sjómennska, sem honurn lukkaðist
mjög vel. Um þrítugs aldur byrjaði hann búskap
á Stóru-Vatnsleysu og reisti þar stóran og vand-
aðan bæ. Um sama tíma var hann skipaður hrcpp-
stjóri í Vatnsleysustrandarhreppi, en tókst ekki
þann starfa á hendur Bökum þess, að hann varð
þá yfirfallinn af einkennilegum andþrengsla-sjúk-
dómi, or lagði hann í rúmið um 6 ára tíma. —
Hinn 19. nóvbr. 1862 gekk hann að eiga bústýru
BÍna Guðlaugu Arnoddardóttur, og lifðu þau sam-
an í farsælu hjónabandi í nál. 15 ár. Þeim hjón-
um varð 8 barna auðið, 2 þeirra dóu í æsku, en 2
uppkomna syni sína — 24 og 25 ára að aldri —
missti hann i sjóinn hinn 9. des. 1880, báða hina
mannvænlegustu monn, og fókk það Bár mjög mik-
ið á hinn aldraða föður, sem eðlilegt var. Á lifi
eru 4 uppkomiu og mannvænleg börn hans, einn
sonur giþtur, Guðjón bóndi og skipasmiður á Stóru-
Vatnsleysu, og 2 dætur giptar, og 1 ógipt.
Jóu Bál. mátti telja með hinum greindustu og
fróðustu leikmönnum, var hann mjög einarður, og
skemmtinn i viðræðum og sífellt ungur í anda.
Hin siðustu ár æfi sinnar var hann þjáður af sín-
um foma sjúkdómi, og dvaldi þann tíma að mestu
hjá Guðjóni syni BÍnum. (í. H.).
Hinn 23. febr. síðastl. andaðist að heimili sinu,
Þormóðsdal í Mosfellssveit, Halldór Jónsson hrepp-
stjóri. Hann var fæddur í Þormóðsdal 12. okt. 1841.
Foreldrar lians voru Jón bóndi Magnússon og síðari
kona hans Þóra Jónsdóttir yngra í Skrauthólum,
ÖrnólfsBonar í Álfsnesi, Valdasonar á Rauðará (-þ
1764), Örnólfssonar, en Jón yngri var bróðir Jóns
eidra Örnólfssonar, föður Kristínar móður Bone-
dikts sýslumanns Sveinssonar. Hinn 20. okt. 1866
kvæntist Halldór sál. systkinabarni síuu Þóru Hall-
dórsdóttur frá Hvammi í Kjós, Jónssonar, Örnólfs-
sonar. Þau bjuggu saman 28 ár, unz hún andað-
ist 4. okt. 1894. Áttu þau saman einn son, Hall-
dór, sem nú býr í Þormóðsdal. Halldór heit. bjó all-
an sinn búskap rausnar- og sæmdarbúi i Þormóðs-
dal, eins og faðir hans og afi höfðu gert. Má ó-
hætt fullyrða, að meiri regla og fegurri umgengni
sjáist ekki á sveitaheimili en var að sjá i Þor-
móðsdal undir stjórn H. sál. Hann var og mesti
reglumaður í öllu, sem honum var falið. Hrepp-
stjórn hafði hann á hendi i 28 ár, Bveitarstjórn
fleirum sinnum o. fl. Allt þetta rækti hann með
alúð, ástundun og samvizkusemi. Mátti óhætt telja
hann með mestu og Btyrkustu Btoöum sveitar sinn-
ar um meira en fjórðung aldar, og væri hvert það
sveitarfélag vel skipað, sem hefði mörgum slíkum
mönnum á að skipa í einu sem öðru. Hann var
guðhræddur maður og hinn vandaðasti i allri hegð-
un, stilltur og siðprúður og kom hvívetna vel fram.
__________ (X.)
Gufuskipið „Nora“ kom hingað í gær
beint frá Newcastle með vörur til Sturlu kaupm.
Jónssonar, kaupfélags Árnesinga, og kaupfélaganna
á Vestur- og Norðurlandi, er skipta við Zöllner
& Vídalin. Það fer héðan upp á Akranes og það-
an norður og vestur um land. — Frá útlöndum
engar nýjar frettir markverðar. Mahdíarnir fara
halloka fyrir Kitchener á Bgyptalandi. Jules Simon,
frakkneskur rithöfundur og alkunnur verkmanna-
og friðarvinur, er látinn, kominn yfir áttrætt.
Einnig er látinn gamli Chr. Drewsen, pappírsverk-
smiðjueigandi danskur, nálega 97 ára (f 1799)>
mikils metinn karl og einkennilegur.
Prófastur skipaður I Norðurmúlasýslu af
biskupi 3. þ. m. séra Einar Jónsson í Kirkjubæ,
er verið hefur þar settur prófastur um hríð.
Settur prófastur í Vestur-Skaptafellssýslu
er séra Bjarni Einarsson á Mýrum.
Prestaskólakennari, séra Jón Helgason pré-
dikar í dómkirkjunni á aunnudaginn kemur ekki
kl. 5, heldur kl. 12 á hádegi.
íslenzk frímerki
borgar Guðm. bóksali Guðmundarson á
Eyrarbakka 10°/0 hærra, en nolihur ann-
ar hér á landi, að undanskildum 3 aur.
guium, 10 aur. rauðum, 5 aur. grænum
og 6 aur. gráum, sem borgast eins og
aðrir borga þau bezt.
LEIÐARYÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsyn-
legar upplýsingar.
" ...........—
Rauður hestur, merktur J. P. á lendinni,
er I óskilum á Lækjarbotnum.
BHT Brúkuö íslenzk frímerki
borgar undirskrifaður hærra verði en nohk-
ur annar á Islandi.
Stokkseyri við Eyrarbakka 12. júní 1896.
Jon Jónsson
verzlunarstjóri.
Lífsábyrgðarfélagið „Star“.
Umboðsmenn félagsins eru:
Borgari Vigfús Sigfússon, Vopnaíirði.
Verzlunarm. Ármann Bjarnason, Seyðisfirði
Verzlunarm. Grímur Laxdal, Húsavík.
Ritstjóri Páll Jónsson, Akureyri.
Verzlunarm. Kristján Blöndal, Sauðárkróki.
Séra Bjarni Þorsteinsson, Siglufirði.
Verzlunarm. Jón Egilsson, Blönduósi.
Bókhaldari Theodor Ólafsson, Borðeyri.
Sýslumaður Skúli Thoroddsen, ísafirði.
Séra Kristinn Daníelsson, Söndum í Dýraf.
Kaupmaður Pétur Thorsteinsson, Bíldudal.
Kaupmaður Björn Sigurðsson, Flatey.
Kaupmaður Bogi Sigurðsson, Skarðstöð.
Bóksali Gísli Jónsson, Hjarðarholti í Dalas.
Verzlunarm. Ingólfur Jónsson,StykkishóImí.
Kaupmaður Ásgeir Eyþórsson, Straumfirði.
Kaupm. Snæbjörn Þorvaldsson, Akranesi.
Læknir Skúli Árnason, Hraungerði, Árness.
Verzlunarm. Magnús Zakaríasson, Keflavík.
Ólafía Jóhannsdóttir, Reykjavík.
Skrifstofa félagsins er í Kirkjustræti 10,
opin hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 og
5—7 e. m.
Yfirlýsing,
Að hvarf það á 200 krónum í pening-
um, sem af vangá var tilkynnt sýslumann-
inum í Kjósar- og Gullbringusýslu, að skeð
hefði á heimili okkar síðastliðinn maímán-
uð — votturn við hér með sé tilhæfu-
iaus lygi.
Hofi á Kjalarnesi, 6. júní 1896.
Bjarni Sigurðsson. Vigdís Sigurðardóttir.
í Reykjavíkur Apotheki fæst:
• Kreolin til fjárböðunar eptir dýralæknis
dr. Brulands fyrirsögn.
Nýjar sprautur (ekki með belg) til að
bólusetja kindur með við bráðapest, á 7 kr.
Síðast í þessum mánuði kemur
kolafarinur frá Dyesert, sem selst mjög
billega gegn peningaborgun strax.
Rvík 18-/e. ’96.
Björn Guðmundsson.
Brúkuö íslenzk frímerki
verða jafnan keypt. Verðskrá send ókeypis.
Olaf Grilstad, Trondhjem.
Ágæt kýr, 5 vetra gömul, sem á að bera í
7. viku vetrar, fæBt til kaups nú á lestum. Ritetj.
vísar á seljanda.
TJudirskrifaður kaupir IIÆSTA VEKDI alls-
konar gamlar bækur, handrit og skinn-
blöð. Rvík "/s ’96.
Beu. S. Þórarinssou kaupm.