Þjóðólfur - 01.02.1897, Page 2
22
þá er fjárhagstímabilið er á enda, og mun
enginn lá honum það, því að óþakklátara
starf getur trauðla. Að kenna Corfitzon
skipstjóra um flestar eða allar misfellurn-
ar á þessari útgerð er hin hlægilegasta
fjarstæða, og hinar óviðurkvæmuiegu og
freklegu aðdróttanir ísafoldar um hann í
síðasta blaði, munu hvívetna mælast illa
fyrir hjá öllum, sem hlutdrægnislaust líta
á þetta mál. Það er mörgum kunnugt, að
„Vesta“ hafði sárlitla „fragt“ (um 10 kr.?)
til Vopnafjarðar í síðustu ferð sinni og er
skipstjóra alls ekki láandi, þótt hann vildi
ekki eiga það á hættu að tefja þar lengi,
þá er „Vesta“ ko3tar um 500 kr. á dag,
svo að það má fyllilega segja, að hann hafi
gætt hagsmuna landssjóðs með því að fara
þangað elchi. Það er harla vafasamt, að
fyrirtæki þetta mundi græða mikið á því,
þótt Corfitzon væri vikið frá, þvi að auk
þess sem hann er kunuur að lipurð og
nærgætni við farþega, æðri sem lægri,
framar flestum eða öllum skipstjórum sam-
einaða gufuskipafélagsins, sem hér hafa
verið, er fullkomlega ástæðulaust að bregða
honum um ódugnað eða varmennsku. Það
er eitthvað svo barnalegt og fávíslegt, að
þykjast geta lækaað mein landsjóðsútgerð-
arinnar með því að setja Corfitzon í gapa-
stokkinn og sletta allri skuldinni á hann
einan, cins og „ísafold11 gerir.
Ferðaáætlun landskipsins „Vestu“
1897 var send hingað nú með póstskipinu,
og af því að búast má við, að landshöfð-
ingi samþykki hana óbreytta, birtum vér
hér lauslegt ágrip af helztu aðalatriðum
hennar. „Vesta“ á að fara alls 7 ferðir
milli íslands og útlanda á árinu, þar af
5 þeirra frá Kaupmannahöfn, eu 2 írá
Englandi (Leith og Middlesborough). Auk
þess fer aukaskip eina ferð frá Höfn.
Fyrstu ferðina fer „Vesta“ frá Khöfn 1.
marz til Austfjarða og kringum land til
Kvíkur (28. marz), aðra íerðina frá Khöfn
18. apríl beint til Rvíkur (26. apríl), og
þaðan 1. maí austur um land á ýmsar
hafnir til Vopnafjarðar, og snýr þaðan apt-
ur til Rvíkur, kemur þangað 9. maí, fer
þaðan aptur 12. maí sömu leið til Aust-
fjarða allt til Vopnafjarðar, snýr þaðan
aptur eigi lengra en til Seyðisfj., og þaðan til
Hafnar 17. maí. Priðju ferðina fer „Vesta“
frá Khöfni30. mai beint til Rvikur (7. júní)
og þaðan 10. júuí austur og norður um
land á fjölda margar haínir, þar á meðal
Berufjörð, Borðeyri, Reykjarfjörð, Önund-
arfjörð, Patreksfjörð og Flatey, sem sleppt
er út úr fyrstu strandferðinni (í marz).
Fjórdu ferðina fer aukaskipið frá Höfn
20. júní um Middlesborough á Englandi til
Rvíkur (3. júlí) og þaðan 6. júlí vestur
og norður um land á allar sömu hafnirn-
ar, sem „Vesta“ kemur við á í júníferð-
inni. Fimmtu ferðina fer „Vesta" frá
Middlesborough 9. júlí til Rvíkur (13. júli)
og fer þaðan aptur 18. s. m. til Leith, og
frá Leith (§jöttu ferð) 24. s. m. til Rvíkur
(28. júlí) og svo þaðan 3. ágúst tll Hafn-
ar. Sjöundu ferðina frá Höfn 18. ágúst
til Rvíkur (26. ágúst) og þaðan 30. s. m.
vestur og norður um land á allar sömu
hafnir sem aukaskipið í júlí. Síðustu ferð-
ina fer „Vesta“ frá Höfn 9. okt., kemur
tii Rvíkur 17. s. m., fer þaðan hinn 21.
vestur og norður um land, en sleppir þá
úr nokkrum höfnum. Á að koma til
Rvikur 10. nóv. og fara þaðan 14. s. m.
til Hafnar, og koma þangað 23. nóv.
í fijótu bragði skoðað virðist ferðaáætl-
un þessi nokkru álitlegri en sú í fyrra,
hvernig sem úr henni rætist. Það er eigi
unnt að semja svona lagaða áætlun við
allra hæfi. Aðalgallinn er, að svo dýru
skipi er ætiað að koma við á ofmörgum
smáhöfnum, í stað þess að hafa strand-
ferðabáta til að annast flutninga þangað af
stærri höfnunum. En í þetta sinn verður
að láta sér þá tilhögun Iynda.
Póstskipið „Laura“ kom hingað í
gær og með því 7—8 farþegar, þar á meðal
frá Englandi Benedikt Þórarinsson kaup-
maður og frá Ameríku séra Jón Clemens
prestur íslendinga í Argylebyggð (sonur
Jóns Þorkelssonar snikkara og Ingibjargar
Jónsdóttur frá Elliðavatni, er fluttu héðan
úr bænum með börn sín tii Chicago fyrir
mörgum árum).
Embættispróf. Við háskólann hefur
Haraldur Níelsson tekiðyrbfíguðfrœði með
1. einkunn og Hélgi Jónsson meistarapróf
í grasafrœði með beztu einkunn.
l)r. Edv. Ehlers og Sveinn bróðir
hans gengust fyrir, að haldinn var sam-
söngur í Höfn um jólaleytið til ágóða fyr-
ir holdsveikisspitala hér á landi, og varð
ágóðinn af samsöng þessum 12—1300 kr.
ILeiðursmerki. Sigurður Sverrisen
sýslumaður í Strandasýslu og Christiansen
skipstjóri á „Lauru" eru orðnir riddarar
dannebrogsorðunnar, en Jónas Helgason
orgauisti dannebrogsmaður.
Vikið frá embætti af landshöfðingja
29. f. m. er Halldóri prófasti Björnssyni
í Presthólum bæði frá prests- og prófasts-
embættinu um stundarsakir.
l)áinn 21. f. m. af heilablóðfalli Porkell
Jónsson á Vestri-Móhúsum við Stokkseyri
á 74. aldursári. Hann var fyrrum hrepp-
stjóri og bjó því nær allan sinn búskap
rausnar- og fyrirmyndarbúi í Óseyrarnesi.
Uin baðanir á sauðfé.
Samkvæmt vilja almennings, sýslunefnda
og amtsráða hafa amtmennirnir skipað fyr-
ir að baða fé, á því svæði, sem grunur
er á, að kláði sé, og á böðunum þessum
að vera lokið fyrir lok þessa mánaðar.
HræJdur er eg um, að allir séu ekki
sem bezt undir þetta búnir. Að vísu áð-
varaði sýslunefniu hér í Strandasýslu all-
ar hreppsnefndir sýslunnar um, strax í
vor i apríl, að sjá um, að næg baðmeðul
yrðu fengin, ef sem líkindi væru til, að
haustbaðanir yrðu fyrirskipaðar. Hvort
allar hreppsnefndir sýslunnar hafi pantað
nægileg baðmeðul í'yrir hreppana get eg
ekki sagt um, eu það veit eg, að hrepps-
nefndin hér í Bæjarhreppi pautaði mikið
af karbólsýru, það er lika bráðum búið
að baða allt fé í hreppnum.
Það er nú lakast, að margir þekkja
ekki fjárbaðanir nema að nafninu, hafa
litla hugmynd um, hvað til þess þarf, og
hvernig á að framkvæma það. Þ«ð hefði
þvi eigi veitt af að prenta náhvœman leið-
arvísi um það efni, og útbýta honum, að
minnsta kosti til allra, sem eiga að sjá
um framkvæmdir á kláðalækniugum, því
ritgerðir, t. d. Suorra sál. dýralæknis, um
kláðalækningar eru í fárra höndum, en
blaðið, sem kom út í sumar „um karbóisýru-
böð“, er svo ófullkomið, að ekki er hægt
að hafa verulegt gagn af því. Þar er
líka gert ráð fyrir miklu sterkara baði,
en Snorri sál. dýral. áleit að nægði móti
kláða, sem sé 1 pund af karbólsýru og
*/, pund af grænsápu í 20 — 25 potta
vatns og kúahlands (2/g vatu */,, kúahl.).
Það er varasamt að ráðleggja stcrkt bað
á meðau að menn eru öllu óvanir, því
karbólsýran er hættulegt efni fyrir menn
og skepnur, ef ógætilega er með hana far-
ið. Einnig er i blaði því, sem áður er
nefnt, ógreinilega sagt frá baðkerinu, og
skal eg þvi benda á þau baðker, sem eg
hygg, að séu hentugust, og er lagið á þeim
þannig: Baðkerið sé 1 al. og 16—18 þml.
langt, og 1 al. að ofan, og 18 þml. breitt