Þjóðólfur - 07.05.1897, Síða 4
92
Lesiö þetta Z
Emifremar ljómandi Sumarsjöl handa dömunum úr al-ull, þö öhoyrt ódýr, Herðasjöl, Vasaklútar, Sokkabönd, Tvinni, Nálar,
Fingurbjargir, Reiðhúfur, Nálhús o. fl.
Handa börnunum eru 6 tegundir af Ijómandi Kjólura, Prjónahúfur, Sokkabönd, Vasaklútar o. fl.
Handa herrunum eru: Hálsklútar, Brjósthlífar, af ýrasri gerð, Axlabönd, stórt úrval af Ksskeitum og Höttum, Vasaklútar
hvitir og mislitir, Regnkápur o. fl.
Korsör Margarlne,
sem hefur reynzt miklu betur en allt annað Margarine. — Aldrei eins ódýrt og nú.
Vilji menn panta eitthvað sérstaklega frá útlöndum, þá afgreiði eg það fljótt og nákvæmlega.
Fyrir liggjandi eru meira eu 1000 sýnishorn af allskonar Klæðavöru er menn eiga kost á að fá pantað eptir, ásamt
mörgum sýnishornum af Regnkáputauum. — Tau þau, sem pöntuð eru, seljast með verksmiðjuverði „en detail“ og koma með næstu
ferð eptir að þau eru pöntuð.
Með hverju skipi ávallt eitthvað nýtt í verzlunina.
Komið! — Skoðið! — Kaupið!
Gufubáturinn „0 D D U R“.
Eptir samningum við sýslunefndirnar í
Árness-, Rangárvalla- og Skaptafells-sýslum
fer gufubáturinn „ODDUR“ í sumar eptir-
taldar 7 ferðir:
1. milll 14,—20. maí:
Milli Grindavíkur, Selvogs, Þorlákshafnar
— Eyrarbakka.
2. milli 26. maí — 1. júní:
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Vestmanna-
eyja — Víkur.
3. milli 2.—8. júní:
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja
— Eyjafjalla.
4. milli 20.—26. júní:
Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavík-
ur, Sandgerðis, Þórshafnar, Grinda-
víkur, Þorlákshafnar — Eyrarbakka.
5 milli 2.-8. júlí:
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja
— Eyjafjalla.
6. milli 9.-15. júlí:
Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavík-
ur, Sandgerðis, Þórshafnar, Grinda-
vikur, Þorlákshafnar — Eyrarbakka.
7. milli 27! júlí — 3. ágúst.
Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavík-
ur, Garðs, Sandgerðis, Hafnaleirs,
Grindavíkur, Eyrarbakka, Stokkseyr-
ar, Vestmannaeyja — Víkur.
Á leiðinni frá Vík til Reykjavíkur kem-
ur báturinn við á Vestmannaeyjum, Eyrar-
bakka, Grindavík, Hafnaleir, Garði, Kefla-
vík og Hafnarfirði.
Flutningsgjald á góssi er í 1., 4. og 6.
ferð */4 eða 25°/0 lægra, en eptir flutnings-
skránni; í 3. og 5. ferð x/8 eða 121/,, °/0
lægra, en eptir skránni, og í 2. og 7. ferð
(ti) Víkur) er gjaldið samkvæmt flutnings-
skránni, sem er til sýnis hjá kapteininum
á „Oddi“ og hjá hr. konsúl C. Zimsen,
Reykjavík, G. E. Briem, Hafnarfirði, Jóni
Gunnarssyni, Keflavík, Einari Jónssyni,
Garðhúsum, Ób'.fi Árnasyni, Stokkseyri,
Halldóri Jónssyni, Vík, og hjá undirskrif-
uðum.
Þeir, sem senda góss með bátnum, eiga
að setja skýrt og haldgott einkenni á hvern
hlut og aðflutningsstað.
Á tilvísunarbréfinu á sá, er sendir, að
skýra frá innihaldi, þyngd (brúttó-vigt) eða
stærð hvers hlutar.
Upp- og útskipun er á kostnað hlutað-
eigenda.
Á verzlunarvörum frá og til Lefoliis-
verzlunar er upp- og útskipun ókeypis á
Eyrarbakka.
Eyrarbakka, 28. apríl 1897.
P. Nielsen.
Þareð verzlanir P. C. Knudtzon
& Söns í Reykjavík og Keflavík hafa
verið lagðar niður, og skuldir og inneign-
ir fluttar til verzlunar sömu eigenda í
Hafnarflrði. þá tilkynnist hlutaðeigendum
hérmeð, að inneignir manna frá nefndum
verzlunum verða greiddar frá Hafnarfjarð-
ar verzlaninni og skuldirnar verða kallað-
ar inn af undirskrifuðum verzlunarstjóra
G. E. Briem í Hafnarflrði, og vil eg við
þetta tækifæri biðja þá, sem skulda verzl-
an P. C. Knudtzon & Söns, og ekki
hafa samið við mig þaraðlútandi, að láta
mér í Ijósi, sem allra fyrst, á hvern hátt
og hvenær eg megi vænta borgunar á
skuldunum, því það getur verið báðum
betra, að eg verði búinn að fá vitneskju
um það, hvað menn hafa hugsað sér í því
tilliti, áður en eg fer að krefjast skuld-
anna á annan hátt.
Þessi tilmæli mín ná til allra, er skulda
nefndri verzlun, eins þeirra, er nú fara
í önnur héruð til þess að leita sér atvinnu
í sumar.
Hafnarfirði 28. apríl 1897.
G. E. Briem.
10 ára tryggingn!
ábyrgmt eg fyrir brot eða bilun fjaðranna
í „Accord-Zither" mínum.
Fyrir að eins 4 krónur!
sendi eg gegn eptirkröfu skrautlegan, fag-
urhljómandi Accord-Zither með 20 strengj-
um, 3 handföngum, nótnahaldara, hring,
lykli, stilli og leiðarvísi, og geta menn af
honum ókeypis og tilsagnarlaust og án
þess að þekkja nótur lært hin fegurstu
sönglög á einni klukkustund. Umbúðir
ókeypis. Burðargjald 1 kr., 2 hljóðfæri á
7x/2 krónu, burðargjald l1/* kr. — Menn
snúi sér með pantanir beint til
Robert Husberg,
Neuenrade, Westfalen, Deutschland.
Hannyrðabókin fæat á afgreiðsln-
stofu Þjöððlfs.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Félagsprentsmiðjan.