Þjóðólfur - 13.05.1898, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 13.05.1898, Blaðsíða 4
92 OTTO MÖNSTED’S, ch'w^ -S X-—1 ráðleggjum vér öllum að nota. Það er hið bezta og ljúffeng- ®J Alfkl asta smjörlíki, sem mögulegt er að búa til, Biðjið því ætíð um: OTTO MÖNSTED’S smjörlíki, er læst hjá kaupmönnunum. umboðsmönnum hennar, en leyfir sér um leið að taka fram það, sem nú skal greina; Utreikningurinn á »bonus« fer í þessum lög- um éptir öðrum reglum en í hinum fyrri (sjá 5.—7. grein laganna), og leiðir af því, að ómögulegt er að semja töflur handa skipta- vinum, svo að þeir geti eptir þeim reiknað sjálfir út þann »bonus«, sem þeir eiga aðfá. Sú upphæð, sem hverri einstakri tryggingu ber, verður nefnilega ekki ákveðin, fyr en bú- ið er að ljúka við nákvæman útreikning, er bindur í sér allar aðrar tryggingar, er eiga heimting á »bonus«. Þess vegna getur stofnun- in ekki heldur fyrst um sinn gefið upplýs- ingar um stærð „bonus" upphæða. Af því að ómögulegt var að byrja á því verki, sem þurfti að vinna til framkvæmdar lögunum fyr en lögin voru staðfest, og af því að oss var mjög á móti skapi að fresta eindaganum fyrir byrjun „bonus“-útborgunarinnar, neyðist stofnunin til að lýsa því yfir, að fyrirspurn- um um „bonus“upphæðir o. s. frv. verður ekki svarað fyrst um sinn, og eru menn því beðnir um að senda engar slíkar fyrirspurnir til stofnunarinnar að svo komnu. Þegar svo langter komið, að ákveða mcgi eindagann, þegar »bonus« útborgunin byrjar, mun hann verða auglýstur í hinum sömu blöðum, sem þessi auglýsing hefur staðið í. Auglýsingin mun koma fyrir almenningssjón- ir að minnsta kosti 3 mánuðum á undan út- borguninni (sjá 17. gr. laganna). Stjórn fyrnefndrar stofnunar 9. apríl 1898. C. A. Rothe. J. C. Hansen. Afgreiðsla pöstgufuskipanna er nú í HAFNARSTRÆTI í húsi undir- skrifaðs. Opin frá kl. 8 til 11 V2 f. h. og frá 1 Vz til 7 e. h. Sú breyting hefir verið gerð á áætlun milli- landaskipanna, að „VESTA“ fer frá Reykjavik 6. júní (ekki hinn 7.' eins og prentað var í »ísafold« í fyrradag) í stað 5. s. m. „THYRA" sömuleiðis 3. júlí í stað 2. s, m. „SKÁLHOLT,, fer vestur um land 15. maí | »HÓLAR« austur umjkl. 9. f. h. land 16. s. mJ Menn eru áminntir um að kaupa farseðla í afgreiðslustofunni. C. Zimsen. afgreiðslumaður. Jörðin Ból í Biskupstungum 19 hdr. að nýju mati með 3 kúgildum fæst til ábúðar og einnig til kaups í næstu far- dögum. Túnið er gott og greiðfært, engj- arnar miklar og sléttar; sauðland kjarngott til beitar. — Semja má við séra Magnús Helgason á Torfastöðum. Hús til sölu Nýtt hús tvíloptað er til sölu við Lauga- veg, það er allt járnvarið utan og að öliu leyti mjög vel vandað. Góður kjallari er undir öllu húsinu. Skilmálar aðgengilegir. Ritstjóri vísar á seljanda. Síldarnet Karlmanna sumarskór Karlmanna-, kvenna- og barnaskór. Tilbúin föt, drengjaföt, sérlega vönduð og ódýr. Vindlar, strokkar og margt fleira kom með »Thyra«. Björn Kristjánsson. Landafræði handa húsmæðrum. Það hafa menn fyrir satt, að jörðin sé hnött- ótt, segja sumir eins og pera, en aðrir eins og ferskena, apricots eða ananas. Þrír flórðu hlútar hennar eru umflotnir sjó. Er hann saltur. Þaðan fæst borðsalt. Hann er ýmislega litur á ýmsum stöðum, t. d. líkt og Ginger Ale, Ging- erBeereðaKola-Sodavatn. Þurlendijarðarinn- ar er skipt í 5 heimsálfur. Heitir ein þeirraýAsía. Þar er stöðuvatn það, er Dauðahafið nefnist. Það er þykkt sem síróp eða tomato-sósa. Þar var Lot og þar var Sódóma. Þar í grennd er Arabía. Þar var Múhameð. Þar vex kaffi. Handan fyrir Arabíu er Indland. Þar eru fílar og höggormar. Þar eru Indlandseyjar. Þaðan kemur kanel, engifer, pipar, neguli. Þar vex og sagópálminn. Ur merg hans eru gjerðjsago- grjón, bæði stór og smá. Þar á og sykurreyr- inn heima. Synir hans eru þeir Kandís, Mel- ís, Púðursykur og Strausykur, sem allir þekkja. Þar ganga menn ýmist með regnhlíf- ar eða sólhiífar bæði nótt og dag. Þar er hiti mikili, en föt öll höfð úr flonel eða flonel- ette. Þar fæst íbenholt. Úr því eru göngu- stafir gerðir. A Filippseyjunum vex Manilla. Þær eiga Spánverjar, því þeir stáiu þeim fyrir 3—400 árum. Þar er nú styrjöld og uppreistir. — Þá snúum vér til Afríku. Þar er Egyptaland. Þar var Faraó, og þar voru fóðurfrekar kýr. Þar vaxa döðlur. Þar er og bómullartréð. Af því fæst vatt. Konur ganga þar á Musse- lins-kjólum og hafa blæjur úr slörtaui fyrir audlitinu, en þar er svo heitt, að þær þurfa ekki hanska, hvorki, úr uli, silki*né skinni. Þá skreppum við til Ameríku. Þar eru rauð- skinnar, Cacao og Chocolade. Þ,ar er Klon- dyke, þar sem gullið finnst. Af því bera Klon- dykesiipsin nafn sitt. Þar er lamadýrið. Úr hári þess eru gerð vetrar-og sumarsjöl. Þar er meyjalandið Virginia. Þaðan kemur munn- tóbak, reyktóbak. Þar er eyjan Cuba. Þar berjast nú Spánverjar og Bandaríkjamenn um Havanna-vindla. Þar er Lárus meþódisti og Manitoba-hveiti. í Evrópu er Ítalía. Þar er páfinn og Vesú- víus. Þaðan fæst silki, silkibönd, flauels- bönd. Þar eru nafntogaðir letingjar, sem bera stráhatta og borða macaronni. Þar eru skrautmest blóm í þessum hluta heims. — Aust- an við Adriahaf eru Iona-eyjar og lona-húfur. Þar var Penelope, sem flesta átti biðlana. Norð- ur við Englandshaf er Holland. Þar er allt fullt af fenjum og foræðum. Því er þar notuð afarmikil sápa, svo sem grænsápa, stangasápa, hand- sápa, sápuextrakt og sú nafntogaða sól - skinssápa. Þar íæst osturinn góði á 0.55. Þar eru strokkar þeir, sem búa til margarine. — Austan við það er Þýzkaland. Þar kemur al- drei fjárkláðinn, enda eru allar kindur þar bað- aðar úr JEYES FLUiD og engu öðru. Þar er Bismarck, Ludvig David og Export-kaffi. Þá er eptir að minnast á Letingjaland. Þar eru pyttir barmafullir af allskonar Syltetöj, svo sem Strawberry Jam, Raspberry Jam, Plum Jam, Greengages Jam, Black- Currant Jam, Red-Currant Jam, Marmelade og Apple Jelly. Þar eru gráfikj u-byljir, möndlu-hagl, rúsínu-demb- nr og kiirennu-dögg. Þar eru malarkambar af Hummer og niöursoðnum lax, fiski- sósu lækir og pickles-uppsprettur. Þar eru eyðimerkur alþaktar þurkuðum eplum. Þar eru keldur með soyja og kjöt- extrakt. Þar snjóar eggjapúlveri, Blange-mange Powder. Úr fossunum kemur condensed-milk, og, börnin tína brjóstsykurinn góöa á berjamó. Fjöll og hálsar eru þar eingöngu af kexi, t. d. Lunch kex, Navy kex, National mixed og mörgum öðrum tegundum. Eldfjöll eru þar en upp úr þeim koma að eins hrísgrjón, bankabygg, hafrar og haframjöl, klofnar baunir, maísmjöl og ljóm- andi gott overheadsmjöl. — Þar er torfrista hin bezta og einkennilegasta í heimi, því þar eru rist gardínutau, fataefni, breiö tvisttau, ullarteppi, galateasi, Zep- hyrtau, yflrfrakkatau, fóðurtau, teþpatau, gólftepþi, dowlas og allskonar borddúkar. Þar eru barnafata- og drengjafataxmxaax, kvennbelta- og axlabanda-stöx. Þar vmxa tré þau, sem hafa börk úr óbl. lérepti, bastið úr twill, shirting, sirsi eða yndisfallegum kjólatauum, blöðin úr kvennpilsum,. barnasmekkjum, pilsataui, vasaklútum og serviett- um, en krónurnar eru alla vega litir karlmanna- hattar. Þegar himininn verður skýjaður er sagt, að síldarnet dragi yfir loptið; en er kvölda tekur er sagt: „Nú kemur þakjdrnid góða upp á himininn".. Allt það sem fæst í Letingjalandinu og vfðs- vegar annarstaðar að, er nú til sýnis og á boð- stólum í verzluninni „EDlNB0RG“, að ógleymdum hinum nafntoguðu Harrisonsprjóna- vélum. Mikið úrval af Ljómandi fallegu Sumar-fataefni í Yflrfrakka, Alfatnaði og Buxur. Allt eptir nýustu tízku, Komið og lítið inn til mín, áður en þér kaupið annarstaðar. 101 afsláttur nb:zt sem kaupir sjálfur efni, getur fengið mjög ódýrt það, sem til fatanna þarf. Milliskript tekin Lt;, en þá er enginn afsláttur gefinn. R. Anderson, skraddari GLASGOW. Hænsnabyg'g fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Allskonar kramvara nýkomin með „Thyra" í verzlun Sturlu Jónssonar. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Dagskrár.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.