Þjóðólfur - 27.05.1898, Side 2
9»
vorri hyggju, því að sem reglulega þjóðlegt
íslenzkt leikrit er það hvorki fugl né fiskur,
þótt einstök atriði í því eigi að vera í sam-
ræmi við íslenzka þjóðtrú. — Þá getur og
dr. Kúchler þess, að annað leikrit Indriða
»Frú Sigríður«, sem enn hefur eigi verið
leikið né prentað skari langt fram úr hinu
og dirfumst vér ekki að rengja það. En bezt
allra þessara þriggja verður þó, „ef vonirnar
bregðast ekki", eins og Kúchler kemst að
orði: „Dráp Þórólfs" stór, sögulegur sjón-
leikur, sem Indriði hefur nú í smíðum (sbr.
ritg. bls. 19), og er sannarlega gleðilegt að
heyra það, því að þar fáum vér þá líklega
leikrit, sem staðið getur á sporði »Utilegu-
mönnum« séra Matthíasar, hinu eina leikriti
á íslenzku, sem verulegur veigur er í, að öllu
samanlögðu, þótt því skuli eigi neitað, að
margt í „Nýársnótt« og „Hellismönnum«
Indriða og sumt í leikritum Þorsteins Egil-
sons beri vott um töluverða »dramatiska«
skáldlist. — Annars á dr. Kúchler miklar
þakkir skilið af oss íslendingum, fyrir hina
miklu ræktarsemi, er hann sýnir bókmennt-
um vorum, og hinn staka áhuga, er hann
hefur á því að gera oss allt til sóma, hve-
hær sem hann kemst höndunum undir. Það
væri skömm, ef vér kynnum eigi að meta
það. En hann verður að eins að gætaþess,
að hæla oss eigi um skör fram, því að að-
finningar góðgjarnra manna geta komið oss
að góðum notum og verða þjóð vorri aldrei
til vansa. En það eru órökstuddar ávitur
miður velviljaðra manna, er vér viljum vera
lausir við.
Sólarlag.
Skuggarnir lengjast og líður nú dagur,
loptsvalur kveldblærinn hressandi er,
himininn dýrðlegur, heiðskír og fagur,
hátíðleg skrúöklæði náttúran ber.
Lækkar í vestrinu logandi sól,
ljósöldum varpar hún jarðar of ból;
senn er hún hnigin að sæfleti köldum
sjóndeildarhringsins þar yztu við rönd,
deyjandi geislarnir glampa á öldum,
glófextar bárurnar kvika við strönd.
Rennandi gullflóði röðullinn hellir,
roðin er foldin, sem skíni í eld.
Leiptrandi tjarnir og ljómandi vellir
lifrauðan klæðast í purpurafelld,
lækir sem silfraðar leggingar gljá,
leika sér kveldskuggar vötnunum á.
Fegursta gullskrauti fjöjl eru drifin,
fossbúinn speglast í heiðblárri lind.
Sfðasti geislinn frá sólunni svifinn
svellkrýndan gullroðar „Jökulsins* tind.
Steinn Sigurðsson.
r
Ur sveitinni.
Austurskaptafellssýslu (Öræfum) 28. apríl.
Veðuráttan hefur verið hér óstöðug í vetur
með útsynningssnjó og blotahríðum, en lítil
frost, langvinnar jarðbannir og þar af leiðandi
mjög ískyggilegt ástand vegna heyskorts, hefði
batinn ekki komið, þegar hann kom um bæna-
dagana og fyrir það, að tíð hefir verið góð síðan
þá lítur fremur vel út með fjárhöld. I Öræfum
hjálpaði það nokkrum hændum, að séra Ólafúr
Magnússon í Sandfelli bauð þeim að taka (á hey
og hagasnapir, sem þar voru) nokkur hundruð
tjár snemma í marz, sem var svo vaktað þar
þangað til batinn kom.
Bráðafár í sauðfé hefir verið með minnsta
móti. Þorgrímur læknir í Borgum hefir bólusett
nokkur hundruð f Nesjum, og heppnast vel.
Þrír reyðar-hvalir — um 30 áln. langir hver
ttt- hafa í vetur komið innum H ornafjarðarós og
staðið grunn á eyrum inn í firðinum um fjöru-
tímann og. því náðst þar, Einn kom á jólaföstu,
annar um miðjan marz og sá 3. um bænadagana.
Fyrsti og síðasti er talinn eign bændanna í Arna-
nesi: Einars Stefánssonar og JónsBenediktssonar
en sá er kom í miðjum marz var eign landssjóðs-
jarðarinnar Horns.
Tilfinnanlegur vöruskortur hefir lengi verið á
Höfn — verzlunin er að öllu leyti flutt þangað á
Hornafjörð af Papós. — Steinolíulaust varð þar
t. d. um jól. Menn hafa átt mjög bágt með við-
urværi vegna þessa vöruskorts á Höfn. Til þess
hefir vísast enginn fundið meira en kaupmaður-
inn sjálfur, þegar fátækir fjölskyldumenn hafa ver-
ið að leita til hans, enda hefir hann þá opt tekið
af sjálfs síns kosti, til að miðla af, því Otto Tul-
inius er mjög velviljaður og hluttekningasamur.
20. þ. m. kom þangað gufuskip með lítið eitt af
vörum og á hverjum degi er þangað von á gufu-
skipinu »Hjálmar« fermdu vörum.
Bæjarhreppi í Strandasýslu 14. maí.
Þér munuð einhvern tíma, herra ritstjóri, hafa
farið þess á leit að eg sendi yður línu um það
sem tíðindum sætti hér í grenndinni, en eg hef
hummað það fram af mér nokkuð lengi, því eg
vildi að minnsta kosti sem sjaldnast þylja upp
þessa landshornarollu, sem allt af er í blöðunum
um heilsufar, heyskort og harðindi. Eg ætla þó
að koma með dálitla ádrepu af þessu og hvað
heilsufarið snertir að eins geta þess, að kvefið
lagðist að á jólaföstu, hefur síðan gengið aptur
hvað ofan i annað og er ekki útdautt enn. Vetur
var hagasamur fram um nýjár, svo að hey gáfust
víðast litið; eptir það varð víðast haglaust og snjó-
þyngsli mikil, þar til hláku gerði í fyrstu viku
einmánaðar, sú hláka varð endaslepp og fraus
fljótt aptur og upp frá þvi fremur kalt til sumar-
mála og yfir höfuð norðanátt og kuldar það sem
af er sumrinu og mikið frost nú síðustu dagana.
Sumardagurinn fyrsti rann upp heiðskír og
fagur, bezti dagurinn, sem komið hefur á sumrinu,
því þá hlánaði hér mest. Daginn eptir kom „Skál-
holt“ til Borðeyrar í bezta veðri og þann dag
glaðnaði yfií fólkinu, því skipið kom með nauð-
synjavörur sem verzlunarstaðurinn var rúinn af
„Skálholt" hafði ekki orðið vart við ísinn —• að-
eins séð mulning einhverstaðar með ströndunum
— og það þótti ekki minnst í varið, því hér hata
menn hafísinn alveg, eins og fólkið á suðurströnd
landsins botnverplana. Þegar vetri hallar er
sem hafísinn hafi seitt til sín hálfa hugi manna,
þó hann sé hvergi nærri, menn hlera eptir hafís-
fréttunum, sem berast úr öllum áttum — og á
engan er logið jafnmiklu og ísinn — efast aðra
stundina en trúa hina, ef einhverjir dutlungar
detta í veðuráttuna. Auðvitað er hafísinn mikil
landplága — því hér væri gott að vera, eí hann
kæmi aldrei — en þessi geigur við ísinn,
sem opt er ástæðulaus, kemur sjálfsagt af því, að
menn eru ekki eins sterkir á svellinu og þeir
ættu að vera, en þó má eg fullyrða, að menn
stóðu hér betur en 1 mörgum öðrum sveitum
landsins með heybirgðir, eptir því sem sjá má af
blöðunum og fregnir hafa borizt um; allt fyrir
það voru fæstir hér færir um að taka á móti
hörðum vetri og er ískyggilegt til þess að hugsa,
að kvikfénaður manna skuli vera í bersýnilcgum
voða, ef harður vetur kemur. Bændurn gengur
illa að komast undir nægilegar fóðurbirgðir og
ber ýmislegt til þess, svo sem athugalaús ásetn-
ingur, of lítill og dýr vinnukraþtur að afla heyj-
anna og ekki hvað sízt að menn spara ekki fóð-
ur sem mætti uieð því að nota beitina, eins og
hægt væri.
Sýslufundur var haldinn dagana 13.—i6.,f. m.
Voru þar mörg mál tekin íyrir, en fá markvérð.
A fundinum vár búin til samþykkt urii lækning
hunda af bandormum með hliðsjón af frumvarpi
frá héraðslækninum, og úpp 1 hana tekin ákvörðun
um, að allir hundar skyldu hafa hálsband með
skildi og bæjarnafni á. Amtið sendi tvö frum-
vörp til reglugerðar fyrir heilbrigðisnefndir en
þau voru álitin óhentug og í sumum atriðum
lítt framkvæmanleg. Héraðslæknirinn hafði
einnig sent frumvarp um heilbrigðisnefndir og
þótti það miklu aðgengilegra; það ákvað nefndin
að skyldi sent anltinu til athugunar, ef búið yrði
til nýtt frumvarp um þetta efni. Sýslunefndin
hafði nú miklu meira vegabótafé til umráða en
vanalegt er, þar sem sýslan fékk 5000 kr. styrk
úr landsjóði til vegabóta, móti því að hún legði
til 25ookr; verða því allmiklar vegabætur hér í' sýslu
á yfirstandandi sumri.
Um pólitíkina má það segja, að eg þekkr
engan þann hér, sem harmar forög »Valtýskunn-
ar« á síðasta þingi. Hér er óánægja yfir því að
læknalögunum var synjað staðfestingar, en þó þess-
ir gömlu kunningjar, svo sem eptirlaunalögin og
fleiri nauðsynjamál þjóðarinnar séu gerð aptur-
reka hvað eptir annaðeru menn orðnir því svo-
vanir, að þeir taka því með stillingu, þó hart sé
undir að búa því synjunarvaldi, sem þannig er
misbrúkað.
Árnessýslu 22. maí. Nú er tiðin orð
in svo æskileg sem orðið getur, stillur og blíða á.
degi hverjum, áfall á nóttunni, en aldrei rigningar
nema eitthvað 2 daga, hinn 17. og 18. þ. m.
og þá var mikil úrkoma. Jörð því að kalla orðin
góð, fénaður hefur ekki annað en grærrt, og
margir farnir að beita út kúm, þó slíkt sé ekki
beisið sumstaðar. — Norðanbyl gerði hér hinn
13. þ. m. svo fé fenti í Grímsnesinu, en fanst víst
flest aptur. Einnig hrakti nokkrar kindur í Laxá
Ytrihrepp, frá Hrafnkelsstöðum. Fénaðarhöld í
furðanlega góðu lagi eptir því sem áhorfðist, og
mun því verða, eptir því sem maður hugsar, stór-
vandræðalítið, ef tíðin helzt áfram svona góð,
Og ekki heldur hefur maður heyrt, að neinstaðar
hafi drepizt úr hor enn sem komið er.
Almennur áhugi er nú vaknaður hjá bændum.
með túnasléttur og aðrar jarðabætur, sem að bún-
aði líta, og er nú búnaðarfélag hér um bil 1
hverjum hrepp þessarar sýslu, og halda þau bú-
fræðinga og aðra verkfæra menn, sem eru svo
settir niður á bæina af félagsstjórunum eptir
réttu hlutfalli. Sum búnaðarfélög halda enga bú-
fræðinga, heldur hafa duglega og vandvirka ólærða
menn af því þeim þykir það ódýrara, eins og er,
þar eð búfræðingar kosta ekki minna en á þríðju
krónu um daginn, en hínir lrá 1 lcr 25.—1 kr 50-
aura. Eg veit, að búnaðarfélag Hraungerðishrepps
hefur það svona.
Nú er verið að rífa Laugardælakirkju, sem
var sannarlega ekki vanþörf, því hún var líkari
Ijótu og leiðinlegu pakkhúsi, heldur en gúðshúsi
og stendur hinn ötuli bóndi þar, Eggert Benedikts-
son, fyrir byggingunni,
Mannalát.
Hinn 8. d. marzm. andaðist að Borðeyri við'
Hrútafjörð húsfrú Ragnhildur Guðmundsdóttir á
67. aldursári. Hún var einkadóttir séra Guðmund-
ur skálds Torfasonar, er síðast hélt Torfastaði í
Biskupstungum og konu hans Höllu Ingvarsdóttur
frá Skarði á Landi Magnússonar. Hún var fædd
í Álfhólum í Útlandeyjum 1831, og var faðir henn-
ar þá aðstoðarprestur í Stórólfshvolsþingum. Síð-
ar fluttist hún með foreldrum sínum að Kálfhaga.
og Miðdal, en giptist um 1860 Birm Árnasyni frá
Naustum við Akureyri, bróður Sesselju móður
séra Árna Þorsteinssonar á Kálfatjörn, og er hann
enn á lífi. Elzt barna þeirra er húsfrú Halla
kona Krjstjáns Gíslasonar, frá Reynivöllum, sýslu-
skrifara á Borðeyri. Bjuggu þau Björn og Ragn-
hildur lengst um í Torfastaðakoti í Bískupstung-
um og þar andaðist séra Guðmundur faðir henn-
ar 1879. Nokkrum árum eptir lát hanS brugðu.
þau hjón búi, dg dvaldi Ragnhildur sfðan polikur
ár í Viðey hjá Magnúsi óðfdsbónda Stephensen?
og húsfrú Áslaugu Eiríksdóttur frændkonu sinní
(þær voru systradætur), en næstl. vor (1897) flutt-
ist húri nörðtlr að Borðeyri til Kfistjáns tengda-
soriarsíns,ogvar maður hennar fluttúr þangað áðurt