Þjóðólfur - 02.09.1898, Side 3
163
göngu af ensku fé, og hefur blaðamaðurinn George
Newnes í Lundúnum lagt mest fram (400,000 kr.).
Drepsótt (austurlenzka pestin) geisar nú í
Kanton og deyja þar um 1000 manns ádag, en
talið að 80,000 hafi dáið þar í sumar.
Látinn er skáldsagnahöfundurinn Georg
Ebers, kennari í egypzkum fræðum við háskól-
ann 1 Leipzig. Einnig er dáinn þjóðsagnasafnarinn
danski Thyregod, er þótti mjög vel að séx í sinni
grein. ____________
Af Stokkseyri erjÞjóðólfi skrifað 28. f. m.
»Plássið hér er í miklum uppgangi og mun
það draga frá Lefolii ekki svo lítið nú, hvað þá
síðar. Samlyndi og félagsskapur milli kaupmanna
hér er svo góður, að enda sumir eldri menn
hefðu gott af, að taka sér það til eptirbreytni.
Einn af þeim, sem liðu skipbrot a Eyrar-
bakka, þegar „Reykjavíkin“ kom síðast, skildi við
í gær af afleiðingunum af því og eru það þá 3
alls, sem eru dánir. Varð að eins einum báts-
farmi náð við illan leik úr „Reykjavíkinni" á
Eyrarbakka sakir ósjóar þar og er þó Guðmund-
ur Isleifsson, sem er afgreiðslumaður hennar þar
og sér um uppskipunina úr henni orðlagður fyrir
dugnað og hagsýni í allri sjómennsku. A Stokks-
eyri var þar á móti viðstöðulaust skipað upp all-
an daginn, án þess að vörur skemmdust neitt,
því að sundið var þar alfætt, Það er mjög leitt,
að ekki skuli optar koma skip hingað; að sögn
fróðra manna gæti „Reykjavíkin" farið hér inn á
höfnina, sem öllum ber saman um, að sé hið
bezta skipalægi og er sagt, að með tiltölulega litl-
um tilkostnaði mætti bæta hana stórkostlega.»
Frá Seyðisfirði er skrifað 23. f. m.
„Afli er og hefur verið góður næstliðinn hálf-
an mánuð, stundum hlaðfiski. Slldarveiði einnig
góð. Utlit því heldur skárra nú en verið hefur".
Mannalát. Nýdáin eru: Hannes Þorldksson,
er lengi bjó 1 Axlarhaga i Blönduhlíð, bróðir
Guðmundar cand. mag. og Gísla hreppstj. á
Frostastöðum „góður maður og vel látinn" og
Þórunn Jónsdóttit (Ólafssonar prests í Eyvindar-
hólum Pálssonar) ekkja Sigurðar Eyjólfssonar, er
lengi bjó í Múlakoti í Fljótshlíð, og áttu þau sam-
an mörg börn, öll mannvænleg. Hún var mjög
heppin yfirsetukona og vel metin.
Hmn 16. f. m. andaðist eptir langvinnan sjúk-
leik húsfrú Ingibjörg Pétursdóttir, kona séra Magn-
úsar Blöndals Jónssonar í Vallanesi umi þrítugt
frá mörgum börtmm í ómegð, góð kona og vel
metin. Hún var dóttir Péturs Eggerz kaupm. frá
Akureyjum (f 1892) og fyrri konu hans Jakobínu
Pálsdóttur amtmanns Melsteð.
Hinn 3. f. m. andaðist að Eyrar-Uppkoti í
Kjós húsfrú Gudrún Kortsdóttir (Kortssonar frá
Flekkudal, Þorvarðssonar) kona Jóns bónda Guð-
mundssonar 67 ára að aldri (f. 20. febr. 1831),
giptist eptirlifandi manni sínum 1864 og áttimeð
honum 3 mannvænleg börn, sem öll lifa. Hún
var góð kona, fríð sýnum, trygglynd og ljúflynd,
og vildi hvervetna koma fram til góðs. Var
heimili hennar orðlagt fyrir staka gestrisni og var
hún í því, sem öðru samhent manni sínum. {X.)
Hinn 9. f. m. andaðist að heimili sínu Búð-
um í k áskrúðsfirði, merkisbóndinn Benedikt Bjórns-
son. haðir hans var Björn sál. Hallgrímsson á
Búðum, en faðir Björns sál. var Hallgrímur bóndi
á Búðum, sonur Hallgríms bónda á Stóra-Sand-
felli í Skriðdal.
Móðir Benedikts sál. var Vilborg Sigurðar-
dóttir frá Njarðvík. — Benedikt sál. var maður vel
látinn af öllum, er hann þekktu; hann var hátt-
prúður og hógvær f allri framkomu, friðsamur
og hjálpfús þeim, er til hans leituðu. Hann var
sannnefnd bændaprýði og sómi sinnar stéttar.
Hann var atorkumaður mikill og bar heimili hans
og bújörð þess Ijósastan vott. Hann var hinn
mildasti og bezti húsfaðir, og syrgja hann því all-
ir, er hann þekktu, bæði nær Og fjær. (G. E.)
Prentvillur
syrgilegar hafa slæðst inn í söguritling minn „Einir“
og eru þessar verstar:
Bls, 8. stendur á Grænudrög fyrir i Gr.dr.
10. Hallur sneri saman lófunum; á. a. v. Hallar neri saman knefa og lófa 0. s. frv.
— G- — 3. 1. a. n. skókreppu, á að vera skókreppuna.
— 3i- — er bera ofaukið.
— — — er fyrir var.
— 34- — útsýning f. útsýnin.
— 35- — tóan kominn f. komin.
— 38- — Svo þegar krimti, þar vantar: í priðja króanum.
— 39- — forarlaga f. forarlagar.
—7 4 7- — félagsskipunum f. félagsskipun- inni.
— 5i- — kirknakrókanaá leið»;f«avantar.
— 53- — geitábreiðu f. g/ifábreiðu.
— 53- — hlið, á að vera hlíð (og hamri).
— 54- — skein á — sjórinn, áað vera sjóinn.
.— 59- — aðrar á að vera ceðar. Þessi meinvilla er í 5. 1. a. n.
— 67. — á f. í (þessum sviptingum).
— 69. — Skyldurækni, en á að vera: Skyldu§-« Jrækni.
— 75- — krökktu á a. v. krökktir.
— 79- — Gunnar Grund á að vera: Gunnar á Grund.
— 88. — á fyrir í (út í strjálbýli útkjálkanna
Framangreindar lokleysur eru menn vinsamlega
beðnir að leiðrétta — og þau blöð í Rvík að prenta,
er eg skipti við.
ellihruma, og þannig létt á okkur þeirri helgu, en
þungu skyldu, sem við ekki vorum fær um að upp-
fylla. Aföllu hjarta biðjum við hinn eilífa kærleikans
guð að umbuna þeim, þegar uppskerudagurinn kem-
ur. Harln vill ekki láta vatnsdrykk ólaunaðan.
Vík á Akranesi io. ágúst 1898.
Jón og Anna V. Bjarnadóttir Mýrdal.
Skilvindur.
Umboðsmaður óskast til þess að selja
frábærlega hentugar skilvindur, sem nokkuð
hefur nú þegar flutzt af til íslands.
Tilboð ásamt meðmælum sendist með
utanáskri pt „ Landbrugsartikler “, poste restante,
Christiania, Norge.
Leðurverzlun
í Hamborg.
óskar eptir duglegum umboðsmanni, sem
hefur gott vit á leðri, til þess að selja hesta-
kiða- og lakk-leðurtegundir. Tilboð merkt
H. T. 254.3 sendist
Rudolf Mosse, Hamburg.
F»ðl, húsnæði og þjónustu geta nokkrir
einhleypir menn fengið frá 1. október næstkomandi
fyrir mjög væga borgun. Ritstjóri vísar á.
Sandi, 30. júlí 1898.
Gudmundur Eriðjónsson.
Reykjavlk 2. sept.
Póstskipið „Laura" kom hingað snemma morg-
uns 28. f. m. Með henni kom frá Höfn dr. Jón
Þorkelsson (yngri) með frú sinni og syni þeirra Guð-
brandi, alflutt hingað. Með „Lauru“ komu einnig
stúdentarnir Guðm. Eggerz, Jens Waage og Jóhann-
es Jóhannesson. Ennfremur um 15 Englendingar
og þýzk ungfrú Ritterhaus, er dvelur hér í bænum
í vetur til að læra íslenzku.
„Laura" fór héðan aptur vestur og norður um
land 31. f. m., og með henni fjöldifólks, þar á með-
al áleiðis til Hafnar: dr. Þorvaldur Thoroddsen, er
nú hefur lokið rannsóknum sínum hér á landi, Ó.
Olavsen kaupn^. frá Keflavík, Jón Vídalín konsúll
og frú hans (landshöfðingi fylgdi þeim til Hafnar-
fjarðar). Til Sauðárkróks fór Eggert Briem sýslu-
maður, nýkvongaður (brúðkaupið haldið hér 30. f. m.).
Þá fór ennfremur Jón Hjaltalín skólastjóri með frú
sinni og fósturdóttur til Möðruvalla, en Jón Jakobs-
son alþrn. í Landakoti til Austfjarða og fékk hann
ókeypis far sem blaðamaður.
Með strandferðabátnum „Hólum" komu 31. f.
m.: biskupinn Hallgr. Sveinsson úr yfirreið sinni
um Austfirði, Friðrik cand. theol. sonur hans, Ólafur
Thorlacius læknir frá Djúpavogi, Björn Guðmunds-
son kaupm., er brá sér norður að Svalbarði í Þist-
ilfirðí, stúdentarnir Einar Gunnarsson og Sig. Júl.
Jóhannesson, Guðrn. Jónsson bóndi á Húsey í
Hróarstungu, Jón Ingimundarson bóndi á Brekku
í Núpasveit, Haraldur Briem frá Búlandsnesi.
Ennfremur D. Östlund trúboði, Bríet Bjarnhéðins-
dóttir blaðastýra o. fl.
1 miðjum júlí týndi eg undirskrifaður áveg-
inum frá Krossi í Ölfusi að Skeggjastöðum í
Flóa 2 pundum af látúni og 1 pundi af nýsilfri;
fleira smádót fylgdi. Góður og skilvís finnandi
skili þessu annaðhvort til mfn eða Sigurðar Þor-
steinssonar 1 Tryggvaskála.
Arbæjarhjáleigu 16. ág. 1898.
Gtiðmundur Þorleifsson.
1 verzlun
B, H, Bjarnason
NÝKOMIÐ:
Rúgmjöl, Grjón, Baunir V* og >/i,
Hænsnabygg, Flourmél, Kartöflumél,
Sago, Semolíugrjón, Bygggrjón, Banka-
bygg, Skonrok, Kringlur, Tvíbökur,
Kafifibrauð og Tekex, Sveskjur, Rúsín-
ur,Kúrennur, Döðlur, Gráfíkjur, Choco-
lade marg. teg. Cacao, Brjóstsykur,
Kaffl og allsk. sykur og m. fl.
Þakpappi rúllan 15 □ áln. á V50
Lampar, Lampakúplar, og Lampagl'ós
bdýrara en nokkursstaðar annarsstaðar.
Munið eptir að kaupa
baðmeðulin frá
S. Barnekow,
fyrir liaustið, þau reynast
lang bezt.
„Naftalins“ og „01íusætu"-bað fæst í smá-
oc
■<
o
oc
■<
S
cc
=0
co
cc
<0
Ólafur Thorlacius læknir og ungfrú Ragnhildur
Eggerz halda brúðkaup sitt í Iðnaðarmannahúsinu
í dag.
um og stórum llátum hjá aðalumboðsmanni
fyrir ísland.
Th. Thorsteinsson.
(Liverpool).
Þakkar-ávarp. Það hefur allt of lengifarizt
fyrir og dregizt, að minnast opinberlega göfuglyndis
og mannkærleika þeirra heiðurshjóna: herra
Friðriks Stefánssonar sjálfseignarbónda á Skálá
í Sléttuhlíð í Skagafjarðarsýslu, og húsfreyju hans
Hallfríðar Bjarnardóttur, þeim til verðugrar viðurkenn-
ingar og þakklætis fyrir það mikla kærleiksverk,
sem þau hafa gert á okkur undirskrifuðum, ásamt
með tengdamóður, og móður okkar, ekkjunni Ragn-
heiði Ólafsdóttur, og annast hana og meðhöndlað
eins og ástrfkum eiginbörnum hefði verið frekast
unnt, nú um 20 ár, á seinustu árum fjörgamla og
8UNDMAGI
vel verkaður er keyptur fyrir
50 aura pd.
í verzlun
B. H. Bjarnason.
Buchwaldstauin
ágætu selur
Björn Kristjánsson.