Þjóðólfur - 05.11.1898, Page 2
IV 29), Eggert Jóhannsson og Gestur Páls-
son (IV 30—V 3), Gestur Pálsson (einn)
(V 4—35), Jón Ólafsson (VI 10—VIII 12).
Eggert Jóhannsson (VIII 13—XI), Einar Ó-
lafsson (XII 1—21), B. F. Walters (XII 22
og síðan).
42. f ÍSLENZKI GOOD—TEMPLAR. Mánaðar-
blað um bindindismál. 7 árg. Rvlk. okt
1886—1. des. 1893. Ritstjórar: Jón Ólafsson,
Indriði Einarsson og Þórhallur Bjarnarson
(I 1—6), Guðlaugur Guðmundsson, Indriði
Einarsson, og Þórh. Bjarnarson (I 7—10),
Jón Ólafsson, Guðl. Guðmundsson og Indr.
Einarsson (I11—IIs), Indr. Einarsson (einn)
(II9—IIIs). Jón Ólafsson (III 9—12), Guðl.
Guðmundsson (IV—V6), Bjarni Jónsson
(V7—12), BjörnJónsson(ritstj. ísaf.)(VI—VII).
43- f ÞjÓÐVILJINN. Hálfsmánaðar- og viku-
blað. 5 árg. ísafirði 30. okt. 1886—9. sept.
1891. Ritstjóri ónefndur, nema að nr. 29.
af 5. árg. (pr. á Akureyri 3. júlí 1891) voru
Skúli Thoroddsen og Sigurður Stefánsson
ritstjórar.
44. LÖGBERG. Vikublað í Winnipeg. Byrjaði
12. jan 1888. Ritstjórar: Einar Hjörleifsson
(I—II.), Einar Hjörleifsson og Jón Ól-
afsson (III), Jón Ólafsson (einn) (IV 1—3),
Einar Hjörleifsson (IV4—VIII9), Sigtryggur
Jónasson (VIII10 og síðan). (Millibilsritstjóri
W. H. Paulson (VIII síðasta nr. — IX2).
45. f LÝÐUR. Hálfsmánaðarblað. 2 árg. Ak.
19. sept. 1888—2. febr. 1891. Ritstjóri: Matth.
Jochumsson.
46. f VIÐ OG VIÐ. 2 tbl. ísaf. 29. marz 1889.
Ábyrgðarm. Kristján Kristjánsson, Jón Þor-
kelsson, Jóakim Jóakimsson.
47. REYKVÍKINGUR. Mánaðarblað fyrir
Reykjavíkurbæ. Byrjaði 5. jan. 1891. Kem-
ur út í Rvík. Ábyrgðarm. Jón Erlendsson
(Ii). Ritstjórar: E. Egilson (I2—13) og W.
Ó. Breiðfjörð (II—VIII).
48. f LANDNEMINN. Fréttir fiá Canada og
íslendingum þar; 28 tbl. Rvík. 9. jún! 1891 —
apr. 1894. Ritstjóri: B. L. Baldwinson.
49. f KIRKJUBLAÐIÐ. Kirkjulegt mánaðar-
blað 7 árg. Rvík. júlí 1891—des. 1897. Rit-
stjóri: Þórhallur Bjarnarson.
50. SUNNANFARI. Mánaðarblað, 1.-5, og 3.
tbl. 6. árg.: Khöfn.júlí 1891—sept. 189614—
12. tbl. 6. árg. Rvík okt. 1896— júní 1897.
Síðan varð hann missirisrit. Ritstjórar: Jón
Þorkelsson, (I—'V) og Þorsteinn Gíslason
(VI). Meðritstjórar: Valdemar Thorarensen
(I7—12) og Sigurður Hjörleifsson (I7—IIIi).
Millibilsritstjórar: Sig. Hjörleifsson (III2—4),
Kristján Sigurðsson, Ólafur Davíðsson og
Þorsteinn Gíslason (III11—IV4).
51. AUSTRI. Hálfsmánaðar- og vikublað á
Seyðisfirði, Byrjaði 10. ág. 1891. Ritstjóri:
Skapti Jósepsson.
52. ÞjÓÐVILJINN UNGI. Fyrst hálfsmánað-
ar- ogvikublað, nú vikublað. Byrjaði 15. sept.
1891. Kemur út á Isafirði, nr. 18—29 af 2.
árg. og 23—34 af 5. árg., kom út í Reykja-
vík. Ritstjóri: Skúli Thoroddsen (II—VIII).
53. f ÖLDIN. Vikublað. 21 tbl. Winnipeg 7. okt.
1891—24 febr. 1892. Ritstjóri: Jón Ólafsson.
Öldin sameinaðist 1892 Heimskringlu, er þá
kallaðist, „Heimskringla og Öldin“.
54. f SÆBJÖRG. Mánaðarblað fyrir sjómenn. 1
árg: Rvík. jan.—des. 1892. Ritstjóri: Oddur
V. Gíslason.
55. f THE TOURIST IN ICELAND. Ferða-
mannablað. 1 tbl. Rvík. jan. 1892. Ritstjór-
ar: Þorlákur Ó Johnson og Bjöm Jónsson.
56. f DAGSBRÚN. Mánaðarblað til stuðnings
frjálslegri trúarskoðun. 1—2. árg. Gimli (í
Nýja- íslandi) jan. 1893—des. 1894. 3—4.
árg. Winnipeg. jan. 1895—des. 1896. Rit-
stjóri: Magnús J. Skaptason.
57. STEFNIR. Hálfsmánaðarblað á Akureyri.
Byrjaði 3. jan. 1893. Ritstjórar: Páll Jóns-
son (I—II), Páll Jónsson, Matth. Jochums-
s°n og Bjöm Jónsson. (III 1—8), Páll Jóns-
son og Björn Jónsson, (III 9—24), Björn
Jónsson (IV—VI).
58. f ÖLDIN. Mánaðarblað. 4 árg. Winnipeg,
apr. 1893—des. 1896. Fylgirit með Heims-
kringlu. Ritstjórar: Jón Ólafsson (I—III), og
Eggert Jóhannsson (IL—IV),
59- Ý HJÁLPRÆÐISORÐ. 4 tbl. Um trúmál.
Rvík. 1893. Ritstjóri: Oddur V. Gíslason.
60. f NÝ KRISTILEG SMÁRIT. 25 tbl. Rvík.
j893—1897. Fylgirit með Kirkjublaðinu. Gef-
ið út að tilhlutan biskupsins.
61. f GRETTIR. Hálfsmánaðarblað. 1 árg. ísaf.
27. okt. 1893—31. okt. 1894. Ritstjóri: Grím-
ur Jónsson.
62. f GARÐAR. Mánaðarblað fyrir Reykjavíkur-
bæ. 7 tbl. Rvík. 2. jan.—7. júní 1894. Rit-
stjóri: Jónas Jónsson (áður ritstj. Mána).
63. f HEIMILISBLAÐIÐ. Mánaðar- og hálfs-
mánaðarblað um bindindismál, kennslumál
o. fl. 2 árg. Rvík. 15. febr. 1894—31. des.
1895. Ritstjóri: Björn Jónsson (ritstjóri ísaf.)
64. f VIÐ OG VIÐ. 2 tbl. ísaf. 12. maí 1894.
Ábyrgðarm. Jóakim Jóakimsson.
65. FRAMSÓKN. Mánaðarblað á Seyðisfirði
fyrir kvennfólk. Byrjaði 8. jan. 1895. Rit-
stjórar: Sigrfður Þorsteinsdóttir og Ingibjörg
Skaptadóttir.
66. KVENNABLAÐIÐ. Mánaðarblað í Reykja-
vík. Byrjaði 21. febr. 1895. Blaðstýra: Brt-
et Bjarnhéðinsdóttir.
67. HERÓPIÐ. Mánaðarblað Hjálpræðishersins
í Reykjavík. Byrjaði í okt. 1895. Ritstjóri
Þorsteinn J. Davíðsson.
68. VERÐI LJÓS! Kirkjulegt mánaðarblað í
Reykjavík. Byrjaði í jan. 1896. Ritstjórar:
Jón Helgason, Sigurður P. Sivertsen og
Bjarni Símonarson(I—II5), Jón Helgason, og
Sig. Sivertsen (II6—12), Jón Helgason, Sig.
Sivertsen og Haraldur Níelsson. (III.)
69. BÓKSALATÍÐINDI. Kemur út í Reykja-
vík. Byrjaði 16. marz 1896. Ritstjóri: Björn
Jónsson (ritstj. ísafoldar).
70. DAGSKRÁ. Kemur út í Reykjavík. Byrj-
aði 1. júlí 1896. Fyrst hálfrar vikublað, síð-
ar dagblað, nú vikublað. Ritstjórar: Einar
Benidiktsson (I—IIIs) og Sigurður Júl. Jó-
hannesson síðan.
71. BJARKI. Vikublað á Seyðisfirði. Byrjaði
9. okt. 1896. Ritstjóri: Þorsteinn Erlingsson.
72. ÍSLAND. Vikublað í Reykjavík. Byrjaði
8. jan. 1897. Ritstjóri Þorsteinn V. Gíslason.
73. GOOD-TEMPLAR. Mánaðarblað í Reykja-
vík, um bindindismálefni. Byrjaði í jan. 1897.
Ritstjóri: Ólafur Rósenkranz.
74. SVAVA. Mánaðarrit á Gimli í Canada. I.
árg. (1895) var ársrit II. árg. (mán.rit) byrj-
aði 1897. Ritstjóri: G. M, Thompson.
75. HAUKUR. Hálfsmánaðar- og vikublað á
ísafirði (skemmtiblað.) Byrjaði 14. sept. 1897.
Ritstjóri: Stefán Runólfsson.
76. NÝJA ÖLDIN. Vikublað í Reykjavík. Byrj-
aði 2.okt. 1897. Ritstjóri: JónÓlafssonl—II.
Millibilsritstjóri, Guðm. Guðmundsson (I 63-68).
77. ÆSKAN. Hálfsmánaðarblað í Rvík., handa
börnum. Byrjaði 5. okt. 1897. Ritstjóri: Sig.
Júl. Jóhannesson.
78. KENNARINN. Mánaðarblað um barna-
uppfræðslu í Minneota, Minn. Ameríku.
Byrjaði f nóv. 1897. Ritstjóri Björn B. Jónsson
79. BARNABLAÐIÐ. Mánaðarblað í Reykja-
vík. Byrjaði í des. 1897. Blaðstýra: Bríet
Bjarnhéðinsdóttir.
80. BERGMÁLID. Kemur út á Gimli í Nýja-
Islandi. Byrjaði 18. des. 1897. Ritstjórar:
G. M. Thompson og G. Thorsteinsson.
81. FREYJA. Mánaðarblað í Selkirk í Man.,
fyrir kvennfólk. Byrjaði í febr. 1898. Rit-
stjóri mrs. M. J. Benedictsson.
82. f FRAM. Blað um kaupfélagsmálefni. 1 tbl.
ísafirði í marz 1898. Ritstjóri: Skúli Thor-
oddsen.
83. ÍSFIRÐINGUR. Kemur út á ísafirði v'ð
ogvið. Byrjaði 9. sept. 1898. Ritstjóri: Jó-
hannes Fr. Tóhannesson.
» * »
* * * » * *
Blaðaskrá sú, sem hér birtist, hygg eg, að ýms-
um þykji eigi ófróðleg. Hún er ofurlítil aukageta
til kaupenda Þjóðólfs á þessu afmæli hans. Er
þetta í fyrsta skipti, sem menn sjá öll íslenzk blöð-
dauð og lifandi talin upp, og hefur það verið allerfitt
verk og umfangsmikið. Getur vel verið, að eitt-
hvert smáblað sé vantalið, en margt mun þó ekki
vanta.
Af þessum 83 íslenzku blöðum og mánaðarrit-
um, er stofnuð hafa verið næstliðin 50 ár og orðið
samferða Þjóðólfi lengri eða skemri tíma eru 69
stofnuð hér á landi, 12 meðal íslendinga í Vestur-
heimi og 2 í Kaupmannahöfn. En 2/3 hlutar allra.
þessara blaða eru nú hnigin að velli, svo að það
er aðeins r/3, sem nú er tórandi. Af blöðunum hér
heima hafa látizt 48 af 69, en 21 er lifandi, og er það
tæpur þriðjungur, en í Ameríku lifa enn 7 af 12, er
þar hafa verið stofnuð, og annað blaðið, er stofnað
var í Kaupm.höfn er látið, en hitt (Sunnanfari) f
rauninni komið úr blaðatölu og orðið missirisrit.
Þá er vér athugum blaðafjöldann hér heima er
það eptirtektavert, hve afarmikið hann eykst eptir
1890. Á 42 árum (1848—1890) eru 40 blöð stofn-
uð hér á landi eða hér um bil eitt á ári að með-
altali, en á 8 sfðustu árum hafa hin 29 verið stofn-
uð, eða 3—4 á ári að meðaltali. Meðal þeirra.
blaða, sem hér voru á ferli um árslok 1890 eru að-
eins 2 („ ísafold" og „Fjallkonan") enn á lffi. Öll
hin (19), sem nú er uppi, eru stofnuð eptir árslok
1890, því að „Þjóðviljinn ungi" telst sem nýtt blað
frá 1891, þótt stofn hans „gamli Þjóðviljinn" væri
áður til.
Árið 1891 var mikill fjörsprettur í blaðastofn-
un hér á landi. Þá hófust 5 ný blöð hér, og auk
þess eitt f Vesturheimi og eitt í Kaupmannahöfn„
Áður en þetta fargan hófst hafði eg keypt Þjóðólf,
og átti að taka við ritstjórn hans á næsta nýárir
svo að mér þótti lftt byrlega blása, og allóvænlega
áhorfast. Eg get því talið, að 30 ný blöð hafi ver-
ið stofnuð hér á landi, þessi fáu ár, sem Þjóðólfur
hefur verið á mínum vegum, og er það stórkost-
legri samkeppni, en nokkru sinni hefur áður
verið. Sum þessara blaða hafa einnig byrjað
í mjög stórum stýl, og sjálfsagt átt að g era alveg
út af við * Þjóðólf og öll eldri blöðin jafnframt.
Og það hefur ekki verið farið neitt leynt með
það. Það er því ekki aðeins blaðafjöldinn einn.
sem kemur til greina í samkeppni þessara sfðustu
ára, heldur stærð blaðanna og allt fyrirkomulag.
Nú er varla nokkurt blað stofnað án þess að það
sé á við meðalábreiðu að stærð, en hitt þykir gera
minna til, þótt efnið sé að því skapi lélegra og hé-
gómlegra, bara að pappírinn sé fylltur með ein-
hverju. Og þá er emstöku menn þykjast ekki fær-
ir um, að senda þessar ábreiður yfir landið, þá
bindast menn samtökum til þess og leggja fé til.
Eg hef opt verið að hugsa um, hvort það mundu
nokkrar verulegar framfarir fólgnar í öllu þessu
blaðafargani á síðustu árum, allri þessari prent-
svertu, sem hrúgað hefur verið í fólkið, og mér hefur
virzt, að svo væri alls ekki. Það væri auðvitað á-
gætt, ef eitthvert nýtt blað væri svo úr garði gert,.
að það skaraði að öllu leyti fram úr eldri blöðun-
um, og gerði þau óþörf, því að þá væri það vafa-
laust nytsamt blað, en enn sem komið er hefur
eigi sú raunin á orðið. Það er ekki nóg, að eitt-
hvað sé nýtt. Það verður að vera betra en hið
gamla til að ryðja sér til rúms, þvf að „nýtt" og „ó-
nýtt“ er einskisvirði.
Eg skal taka það fram, að ummæli mfn um
þetta efni verða að skiljast frá „almennu sjónar-
miði“ en alls ekki sem neinn dómur um nýju blöð-
in frá minni hdlfu. Hinir réttu málsaðilar til að-
meta gildi nýju blaðanna í samanburði við hin
gömlu eru auðvitað landsmenn sjálfir, kaupendur
blaðanna. Og það er enginn efi á því, að allur þorri
þeirra kann að meta það rétt.
5/,. '98. H. Þ.
Eigandi og ábyrgðarmaður; HANNES ÞORSTEINSSON, cand. theol.
Prcntsmiðja Dagskrár.