Þjóðólfur - 02.12.1898, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 02.12.1898, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR 50, árg. Reykjavík, föstudaginn 2. desember 1898. Nr. Til kaupenda ÞJÓÐÓLFS. Loksins er þó fengin nokkurnveginn á- reiðanleg vissa fyrir því, að myndablaðið, s«n átti að fylgja 50 ára afmælisblaði Þjóð- °lfs komi frá Höfn með næstu ferð póst- •skipsins (síðast í janúar). Útgefanda þykir mjög leitt, að geta ekki látið -myndirnar verða samferða afmælisblaðinu út um land, en það verður svo að vera, og getur útgef- andi ekki að því gert. Nýir kaupendur að næsta (51. árg.) Þjóðólfs 1899 eru beðn- lr að gæta þess, að þeir fá í kaupbæti þrjú sérprentuð sögusöfn kjóðólfs (1895, 1896 og 1897) °S þar að auki, ef þeir borga árganginn fyrir- fram, hið skrautprentaða afmælisblað á- samt myndunum, Og hafa þegar ýmsir nær- sveitamenn notað sér þessi kostaboð. En areiðanlegum útsölumönnum Þjóðólfs, eða öðrum, er útgefandinn þekkir, verður þó sent blaðið frá ársbyrjun 1899, ásamt sögu- söfnum, afmælisblaði og myndum, þótt þeir ekki borgi fyrirfram, heldur síðar á árinu t. d. í gjalddaga. Þetta boð stendur eigi lengur en til I. marz 1899, Og ættu menn þess vegna að sæta því sem allra fyrst. Fiskiveiðasamtök á Færeyjum. í ritstjórnargrein í Þjóðólfi í haust (7. °kt.) var stungið upp á því, að æskilegt vseri, að íslenzkir skipaeigendur og útgerðar- menn byndust í félagsskap innbyrðis, þannig kraptarnir væru sameinaðir, svo að hér Sseti myndazt einn öflugur fiskifloti með gufu- skipum til milliflutninga fyrst um sinn og til fiskiveiða síðar meir, þá er félaginu yxi fisk- Ur um hrygg. Jafnframt var það tekið fram, aö hið danska fiskveiðafélag „Dan“ mundi fáanlegt til að ganga í þessi samtök. En ^tteðan hér er ekkert gert til að þoka máli þessu áleiðis, hafa Færeyingar ekki verið að- ■Serðalausir. Skipstjóri þar á eyjunum, Jens ■^ndreasen að nafni, hefur nú þegar leitað Samninga við ,Dan“ einmitt í þessa átt, að því er Færeyjar snertir, og er útlit fyrir, að félagsskapurinn komist á fót. Skýrir blaðið sklimmalætting« frá því (29. okt.) að hug- Dlyndin sé að byrja á næsta vori á heilag- fiskveiðum við ísland með einum gufubát og fiskiskútum, og séu að minnsta kosti 14 Þeirra fi-á Færeyjum. Svo eiga 2 gufuskip vera stöðugt í förum til að flytja fiskinn jvjan á markaðinn, og fáist ekki nægur ís r til að geyma fiskinn í, þá eiga gufu- skipin að flytja hann með sér frá Englandi, bæði til notkunar fyrir þau sjálf og hinn sameiginlega fiskiflota, er veiðarnar stundar. Er gerð ítarleg grein fyrir þar í blaðinu, hvernig menn hugsi sér fyrirkomulagið og virðist það vera hið hagfeldasta og vænlegt til góðs árangurs. Heppnist þessitilráun nokk- urnvéginn aðsumri, getur blaðið þess, að félag- ið hafi í hyggju,að láta annaðmilliflutningaskip- ið fara reglulegar ferðir milli Færeyja og Aberdeen á Skotlandi næsta vetur, til að reyna að selja á Skotlandi og Englandi nýjan \'etr- arfisk frá Færeyjum, er markaðsgengur sé, á sama hátt, eins og nýr fiskur er fluttur frá Hjaltlandseyjum og Orkneyjum um það leyti árs til Skotlands og Englands. Þessi samtök Færeyinga og samband við „Dan“, sýna, að þeir eru oss fremri í forsjá og framkvæmdum, að því er fiskiveið- ar snertir. Þeir sáu það undir eins og ensku botnverplarnir fóru að skafa hjá þeim botninn, að aðalatvinnuvegur þeirra — fiskveiðarnar — var dauðadæmdur, ef eigi væri skjótt við brugðið til að bjarga honum við, og það hafa þeir einnig gert drengilega. Þeir voru fljótir að sannfærast um það, að eigi væri hyggilegt að halda gamla laginu og leggja mesta stund á þorskveiðarnar, heldur mundi ábatavænlegra að snúa meir athygli sínu að öðrum fiskitegundum t. d. heilagfiski og kola. Það hafa Færeyingar lært af Englendingnum. En Islendingum gengur allt lakar að skilja það. Þeir trúa á þorskinn einan, ekkert annað en þorskinn, trúa því ekki, að annar afli geti borgað sig betur. Þorskurinn er ekki ófyrirsynju þjóð- armerki íslendinga. Það er einhver andleg- ur skyldleiki, ef svo mætti segja, sem marg- ir landar vorir eru í við þorskinn. Ekki skal því neitað, að hann hafi mörgum svöng- um saðning veitt, og orðið sumum notadrjúg féþúfa, en það heimilar ekki þá tröllatrú, sem á honum er, að hann sé beztur fiskur í sjó eða arðvænlegasti, þá er sannreyndin er sú, að hann er harla lítils virði á heims- markaðinum í samanburði við aðrar fiskiteg- undir, sem þess vegna ætti að leggja meiri stund á að afla en hans. Þetta ætti íslend- ingum að skiljast úr þessu, einkum þá er þeir hafa svo lengi séð, hvernig Englending- ingar fylla heilan bát af þorski t. d. fyrir eina whiskyflösku. Þeir mundu ekki gera það, ef þeim þætti verðmæti þorsksins mik- ið sem verzlunarvöru, en einmitt undir því verðmæti er komið, hvort afurðir fiskveiðanna verða miklar eða litlar. Vér höfum gert þennan útúrdúr frá efn- inu til þess að leiða athygli landa vorra að því, að oss er bráðnauðsynlegt að breyta um veiðiaðferð, ef sjávarútvegur vor á ekki að fara alveg í hundana. Færeyingar eru nú riðnir á vaðið í því, með félagsskap þeim, er fyr var getið. Þeir hafa orðið skjótari til. í „Dimmalætting" 5. f. m. ,pr borinn 57, kvíðbogi fyrir því, að svo geti tarið, að ís- lendingar skáki Færeyingum, ef vér kæm- umst í félagsskap við »Dan«, eins og ráð- gert sé(l) en blaðið hefur þar auðvitað ekk- ert annað fyrir sér nema uppástunguna um það í Þjóðólfi. Segir blaðið enn fremur, að vér stöndum betur að vígi með síld tilbeitu sakir frystihúsanna. En Færeyingar mega vera alls óhræddir við samkeppni héðan, líklega fyrst um sinn. Það gæti hugsazt, ef þeim gengi vel, að vér þyrðum að ráðast í eitthvað, en fyr naumast, hversu heppilegt sem það kann að vera að bíða eptir því, að aðrir komist á laggirnar. Væri nógu rösklega viðbrugðið er ekki óhugsandi að takast mætti fyrir einhverja öt- ula útgerð.armenn vora, að komast í þennan félagsskap með »Dan« og Færeyingum þegar í upphafi, því að hann mun eigi svo fastbundinn eða fullráðinn enn, að það væri ekki unnt. Geti Færeyingar haft ágóða af fiskiveiðum hér við land, svo langt í burtu frá heimilum þeirra, þá ættum við að geta það miklu fremur með jöfnum dugnaði. En því er nú miður, að hann mun ekki jafn- mikill hjá oss sem Færeyingum, þótt minnk- un sé að játa það. Þess skal loks. getið, að í »Dimmalætt- ing«, sem jafnan hefur látið sér mjög annt um fiskimál Færeyinga, er þýdd ritstjórnar- grein- úr Þjóðólfi 30.|sept.: „Mikill ertu mun- ur“, en í þeirri gtein er skýrt frá aðförum ensku botnverplanna hér við land og hversu árangurslaust sé að kvarta undan þeim yfirgangi, að menn ættu heldur að manna sig upp, hafa gufuskip til fiskiveiða í stað seglskipa o. s. frv. Færeyingar hafa nú sætt þungum búsifjum af þessum verpl- um upp á síðkastið, en þeir hafa einnig lát- ið sér það að kenningu verða. Sá er mun- urinn, því að hvað gerum við? Frá Noregi og Danmörku. Ferðasöguágrip Eptir MATTH. JOCHUMSSON. III. Það eitt vil eg segja um þessa sýning Norðmanna, að sérhver íslendingur með sál, sem hana leit, las þar 1 einu andartaki miklu fegri og fráhærri hetjusögu og sigurdrápu um bræður vora, og jafnvel öll Norðurlönd, en hann áður hafði heyrt eða grunað. Svo máttug er sú tíð, sem vér lifum á og eptir- látum börnum vorum, svo mikill máttur er gefinn goðum vorum, þ. e. þeim meðulum, sem menntun og kunnátta nú býður, og svo eru þjóðirnar miklar og máttugar, þegar þær upprísa og ganga í nýju líferni fyrfr krapt sérstakrar köllunar! Eg stóð lengi hrifinn á einum afviknum stað, einskonar

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.