Þjóðólfur - 03.03.1899, Blaðsíða 3
39
á landskjálftasvæðinu gamla, hafi orðið nein brögð
að þessum jarðskjálfta sem betur fer.
Fyrirlestur um íslenzka kvennbáninga að
lomu og fram á þennan dag hélt frú Bríet
Bjarnhéðinsdóttir í Iðnaðarmannahúsinu 26. f. m.
Býndi hún stúlkur í gömlum búningum, er fengn-
ir höfðu verið að láni á Forngripasafninu. Fyr-
Irlesturinn var fremur láklega sóttur.
Veðurátta hefur verið ómunalega góð
allan febrúarmánuð og síðari hluta janúarmán-
aðar, fyrst stillur og hægt frost, síðar þeyr með
allmikilli úrkomu. Nú er veðuráttan aptur að
spillast.
Þilskip Reykvíkinga og Seltiminga em nú
flest komin hingað á höfnina úr vetrarlægi, búin
til brottferðar. Er það allmikill floti og ásjáleg-
ur.
Aflabrögð. Guðmundur Jóhannesson í
Miðhúsum, hinn eini formaður hér í bænum, er
enn stundar bátfiski að staðaldri, fékk um 70 í
hlut af allvænum fiski suður í Miðnessjó dagana
15.—17. f. m, Er fiskur sagður þar nógur fyrir
•en nokkuð djúpt. En eigi er það heiglum hent
né fyrirhafnarlaust að sækja þann afla á opnum
bátum héðan af Innnesjum um þetta leyti árs,
•enda munu fáir freista þess.
Ógild fundarsamþykkt. Sakir formgalla
•eða misritunar hjá sýslumanninum í Kjósar- og
■Gullbringusýslu, kvað amtmaður hafa neitað
staðfestingar á fundarsamþykktinni í Hafnarfirði
22. f. m. um afnám fiskiveiðasamþykktarinnar
við Faxaflóa (sbr. síðasta blað Þjóðólfs), svo að
hún er því ekki enn »dauð og grafin«. Enhver
gat varað sig á því, að sýslumaðurinn mundi
ekki búa þetta í hendurnar á amtmanni, eins og
vera ætti? Hefði eigi svona slysalega til tekizt
var staðfestingin sjálfsögð, með því að þessi »inn-
■siglun« amtmannsins er að eins til málamynda,
svo að öllu »formi« sé fullnægt. En til undir-
■skripta verða skjölin auðvitað uð vera »formleg«,
því að allt er ónýtt ella. Þótt eitthvað gangi
rétta boðleið eptir öllum krákustígum neðan frá
hreppsómaga upp til amtmanns eða landshöfð-
ingja þá getur einn vitlaus pennadráttur hjá ein-
hverri undirtyllu kollvarpað öllu saman og ónýtt
margra manna erfiði. Mundi ekki heppilegra
að liðirnir í stjórnarkeðjunni væru dálítið færri
•og gangur málanna óbrotnari hér hjá oss?
Dáin er snemma í f. m. Sigríður Guð-
mundsdóttir ekkja Guðbrandsóðalsbónda Stur-
laugssonar í Hvítadal, nærri áttræð. Þessarar
merkiskonu verður ef til vill slðar getið nánar.
Hinn 31. jan. síðastl. andaðist að Eyrarkoti í
Vogum, Gunnar yónsson á 77. aldurs ári, fæddur
að Halakoti á Vatnsleysuströnd 11. maí 1822. For-
eldrar hans voru Jón Magnússon og Sigríður Tóm-
ásdóttir yfirsetukona, sem fluttust með hann tveggja
ára að Minni-Vogum og ólst hánn þar upp hjá for-
eldrum sínum, kvæntist 5. nóv. 1847 Guðnýju Guð-
mundsdottur,semlifir mann sinn,mjögþrotin að heilsu.
Af 6 börnum þeirra lifa þrjú: I sonur ókvæntur, og
2 dætur giptar. f fyrra haust 5. nóv, héldu þau gull-
brúðkaup sitt, og nú við fráfall hans voru þau búin
að vera saman í hjónabandi rúm 51 ár, og bjuggu
í Eyrarkoti allan sinn búskap. Gunnar heit. var
vinfastur og trúrækinn og að öllu vandaðasti maður
(B).
Þú sem stalst vaxkápunni
uppi á loptinu í Veltusundi
nr. 3. gerðu svo vel að skila henni aptur þangað,
«em þú tókst hana, annars verður nafn þitt
gefið upp, því eigandi kápunpar veit, hver þú ert.
Fundarboð.
Vér undirritaðir leyfnm oss hér með að
boða til almenns búfræðingafundar fyrir land
allt, íReykjavík fimmtudaginn 29. júní næst-
komandi. Fundurinn verður settur kl. 8 ár-
degis (en áður verður birt, hvar húsrúm er
fengið).
Tilgangur fundarins er að ræða um ýms bún-
aðarmál, er væutanlega verða lögð fyrir næsta
alþingi, og að búfræðingar beri saman skoð-
anir sínar og reynslu í ýmsum atriðum, er
að búnaði lúta.
Ætlazt er til, að allir búfræðingar hafi
jafnan rétt til að mæta á fundinum, en geta
skulum vér þess, að öllum sýslunefndum
landsins hefur verið send áskorun um að veita
af sýslusjóði að minnsta kosti einum búfræð-
ingi ferðastyrk til fundarins, og gerum vér
ráð fyrir að þeir, sem óska slíks styrks, sæki
um hann.
Vér leyfum oss hér með að skora á bú-
fræðinga landsins, að sækja fund þennan,
og treystum því, að þeir láti eigi smámuni
aptra sér frá að styðja að því, að hin fyrsta
hreyfing í þessa átt megi verða að tilætluð-
um notum.
Að endingu skal þess getið, að vér
munum annast húsrúm tll fundarhaldsins,
og einnig munum vérj sjá um, að fundar-
menn geti fengið hentuga og ódýra gistingu
á meðan þeir þurfa a? dvelja hér í Reykja-
vík.
Reykjavík 14. febr. 1899.
Benjamín Benjamínsson. Björn Björnsson.
Gísli Þorbjarnarson. Jón Jónatansson.
Kristinn Guðmundsson. Sigurður Þórólfsson.
V erzlunarmaður
utigur, einhleypur og reglusamur, sem er nokkuð
vanur verzlunarstörfum, einkum utanbúðar, getur
fengið pláss við verzlun hlutafélags Örum U> Wulffs
á Fáskrúðsfirði frá I. maí n. k.
Umsóknin, sem verður aðivera skrifuð afum-
sækjandasjálfum og meðmælingarjað fylgja, sendist
undirrituðum. Umsækjandiverður að takafram,hvehátt
árskaup hann áskilur sér fyrir utan fæði, húsnæði
og þjónustu, sem undirskrifaður leggur til.
Fáskrúðsfirði 9. jan., 1899
O. FriSgeirsson
(verzlunarstjóri)
Hér með auglýsist, að við undirritaðir seljum
hér eptir allan greiða, er ferðamönnum verður ,
té látinn, án þess að skuldbinda okkur til að hafa
allt til, er umbeðið kann að verða.
Brekkum í Holtum 16. febr. 1899
Árni Helgason. Sigurdur Sigurdsson
GísS Magnússon
Skákmenn,
sem vilja ganga í ný-stofnað „Skákfélag Reykjavíkur"
geri svo vel að skrifa nöfn sín á lista hjá
einhverjum af okkur undirrituðum.
Nánari upplýsingar fást þá um leið um fyrirkomu-
lag félagsins, fundarhöld o. s. frv.
Reykjavík 22. febrúar 1899.
Sturla Jónsson. Einar Benediktsson.
Sig. Jónsson
Ljósmyndir.
Hjá mér eru teknar ljósmyndir af ýms-
um gerðum, með gljáa og „mattar", eptir
því sem óskað er. Einnig stækka eg mynd-
ir í fulla stærð, ef þess er óskað. Ennfrera-
ur sel eg stórar myndir af ýmsum helztu stöð-
um á Suðurlandi. Hjá mér eru yfirfærðar
myndir á lampakúpla, blómsturvasa o. fl.
Þetta hefur ekki verið gert hér á landi fyr.
Hjá mér eru til sölu „skuggamyndir" af
ýmsum merkum stöðum á íslandi.
Reykjavík 28. febr. 1899.
Sigfús Eymundsson
SUNNANFARI
VII. árg. 2. ársfj. kostar 1 kr. og
fæst hjá Elnari Gunnarssynl cand. phiL
Kirkjustræti 4. Borgun fylgi pöntun og
burðargjald, ef senda þarf með póstum; öðr-
um pöntunum er engu sinnt. Sami innheimt-
ir útistandandi skuldir Sunnanfara og íslands.
Sj ónleikar nir
Sunnudaginn 5. marz, kl. 8. e. h.
Varaskeifan
Hermannaglettur,
mr NÁTTÚRUSAFNIÐ n
er opið á sunnudögum kl. 2—3.
(Ekki í illviðrum né ófærð).
Menn eru beðnir að reykja ekki.
Kvennablaðið
r 1 ^ sent gefið
,Framsokn 1**^
ið út á Seyðisfirði verður eptirleiðis gefið út
hér í Reykjavík af okkur undirrituðum. Kost-
ar aðeins 1 krónu hér á landi (erlendis i kr.
50 a). Nýir kaupendur gefi sig fram sem fyrst.
Jarpríiður Jónsdóttir. Ólafía Jóhannsdóttir.
Jörðin Stóri-Háls 1 Grafningi fæst
til ábúðar í næstu fardögum. Hún er ágæt
bújörð, og fylgja henni ný hús. Semja skal um
leigumála við eigandann
Guðmund Gudmundsson,
á Auðnum.
Mér undirskrifuðum hefur venð dregið svart-
sokkótt lamb, sem eg ekki á, með mínu marki:
biti fr. hægra, tvö stig apt. vinstra. Réttur eigandi
gefi sig fram og vitji andvirðisins til mín og
semji við mig um markið og borgi auglýsingu
þessa.
Úlfljótsvatni 20. febrúar 1899.
Guðm. Magnússon.
Frá næstu fardögum 1899 fæst hjá undirskrif-
uðum til ábúðar hálf jörðin Árbær í Ölfus-
hreppi. Henni fylgir stórt tún að mestu leyti
slétt og vel grasgefið. Útjarðarslægjur hægar og
nógar. Hagbeit nægileg, Mótak er rétt við tún-
ið. Laxveiði fylgir jörðinni og er hægt að stunda
hana. Öll jarðarhús í bezta standi.
Arbæ 16. febrúar 1899.
Gísli Eyjólfsson.