Þjóðólfur - 24.03.1899, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 24.03.1899, Blaðsíða 1
ÞJÓÐÓLFUR. 51. árg. Reykjavík, föstudaginn 24. marz 1899. Nr. 14. Þingmál í sumar. m. [Breyting á verzluninni, — íslenzkt verzlunarráð]. Til þess að ráða verulega bót á pen- ingavandræðunum í landinu er auðsætt, að hin fyrirhugaða lánsstofnun verður ónóg, hversu öflug sem hún yrði og hversu vel sem henni yrði stjórnað, því að meðan verzl- un vor er í því horfi sem hún er, verður .allt á tréfótum hjá oss. Það þarf gagngerða breytmgu á verzl- nninni, ef oss á að miða eitthvað áfrani. Það er hin þver'ófuga og úrelta verzlunarað- ferð, vóruskiþtaverzlunin, sem stendur oss fyrir 'óllum þrifum. Vöruskiptaverzlunin er skrælingjaverzl- un, verzlunaraðferð, sem siðaðar þjóðir hafa lagt niður að mestu leyti fyrir löngu. Það er aðeins á bernskustigi þjóðanna í verzlun- arefnum, að þéssi skiptiverzlun á sér stað. Nú ■er verzluninni háttað svo víðast hvar um heim allan, að hönd selur hendi. Peningar ^inireru þá gjaldmiðill milli kaupanda og selj- anda. Seljandi setur víst verð á vóru þá, er hann vill selja og kaupandi kaupir hana fyr- ir peninga. Fyrir peninga kaupir svo selj- .andi nauðsynjar sínar, þar sem honum sýnist þ. e. að segja öll verzlunin verður peninga- verzlun, peningarnir og ekkert annað verða gjaldmiðill. Peningavandræði eða peningaekla í ein- hverju landi stafar ekki af því, að eigi séu nógir peningar til í heiminum, eða af fá- tækt landsins, heldur sakir breytinga á heims- markaðinum, sem háðar eru svo margvísleg- um lögum. Stundum falla afurðir landanna mjög í verði og þá verður þurð á pening- nm, sumstaðar t. d. eins og hjá oss verður alls eigi unnt að koma afurðum sínum í pen- inga á neinn hátt. Þá koma peningavand- ræðin, hin reglulega peningaekla, og hana þekkjum vér íslendingar, einmitt sakir þess að verzlunaraðferð vor eröfug, er vöruskipta- verzlun í stað peningaverzlunar. Vér gæt- um þekkt peningaþurð en ekki tilfinnanlega ■peninga.ek/u, ef verzlun vor væri eins oghún aetti að vera. Sá er munurinn. Skyldi ekki íslenzka bóndanum t. d. vera eins notadrjúgt að fá að nafninu til IO —25% minna fyrir ullina sína borgað í pen- ingum, og geta svo keypt vörur sínar, ef til vill 30—50% ódýrara gegn peningum, held ur en hann fær þær með því að leggja ull- ina inn til kaupmannsins og taka eitthvað hjá sama manninum „út á hana“ með upp- skrúfuðu verði. Það stoðar lítt, þótt hann fai að nafninu til ofurlítið hærra verð fyrirull- ina, en hann fengi gegn peningum, því að sá munur vinnur sig aldrei upp. Neyðist kaupmaðurinn einhverra orsakavegna aðtelja bóndanum verð vörunnar hans meira, en hann getur staðið sig við, þá verður hann að jafna þann halla á hinni vörunni og sjá sér borgið við tjóni. Af þessari verzlunar- aðferð leiðir því öfugt verðlag á vörunum. Samkeppnin verður óeðlileg og til óhagnað- ar. Það verður dularverð eða svikaverð á öllu. En sé verzlað á báðar hendur fyrir peninga eru það hrein skipti, og vörurnar í því gildi, sem þær í raun og veru hafa á þeim og þeim tima. öll samkeppni verður þá eðlilegri, öll viðskipti greiðari, hreinni, betri og báðum til hagnaðar, því að eng- inn skal ætla það, að nokkur verzlun í nokkru landi geti þrifizt til lengdar á þann hátt, að annar verzlunaraðilinn verði jafnan fyrir hall- anum, hvort heldur það er kaupmaðurinn eða bóndinn, svo að vér tökum aðeins ein- falt dæmi, er allir skilja. Báðir verða að hafa nokkurn hag af viðskiptunum, ef vel á að fara, og þá er verzlunin í réttu horfi. Og það yrðu kaupmennirnir engu síður en bændurnir, er græddu á þessari verzlunarbreytingu, sem hér hefur verið vik- ið að, svo að þeir ættu ekki að vera þvi mótfallnir, að hún gæti komizt á. Kaupfé- lögin meðal vor miða að vísu ofurlítið í átt- ina til að kippa þessu í lag, að því leyti sem félagsmenn geta fengið peninga fyrir eitthvað af vörum sínum, en það er aðeins ófullkominn vísir og ekki meira, og úrþeirri átt þurfum vér naumast að vænta algerðrar breytingar eða bóta á núverandi ástandi. Og pöntunarfélögin eru þó enn fjær því að nálgast hugmyndina, því aðhjáþeim blómgv- ast og þróast lánsverzlunin, þetta óláns- hapt, er svo lengi hefur verið hlekkur um fætur vora og hamlað öllum framförum í verzluninni. Það liggur víst hverjum manni í augum uppi, að öll lánsverzlun í venjulegum skiln ingi hyrfi algerlega af sjálfu sér, ef vér gæt- um breytt verzlun vorri á þann hátt, sem um var getið. Og mundi það ekki verða stórgróði fyrir alla hlutaðeigendur og land- ið í heild sinni! Þá þyrftu verkamenn við verzlanir ekki lengur að jagast við vinnu- veitendur um að fá laun sín borguð í pen- ingum, því að það leiddi af sjálfu sér. Þá þyrfti ekki heldur að tala um þessi tvenns- konar verð, þemngaverð og reikningsverð, hjá kaupmönnum því að verðið væri ekki nema eitt, nfl. peningaverð, hitt væri alveg horfið. Verkamaðurinn gæti auðvitað tekið nauðsynjar sínar hjá kaupmanni þeim, er hann ynni hjá, ef honum sýndist svo, og ef hann fengi þær eigi ódýrari annarsstaðar, því að sakir samkeppninnar, er ávallt lifir, mundi jafnan verða einhver munur á þessu eina verði, peningaverðinu. Það er svo sem auðvitað. En öll viðskipti yrðu þá svo lið- ug, meira fjör í þeim og peningaskorturinn ekki tilfinnanlegur almennt, En nú munu margir segja. „Já, þetta er nú allt gott og blessað, hreinasta ágæti, ef það væri ekki einn verulegur agnúi á því, að það er óframkvæmanlegt, óviðráðanlegt ekki annað en loptkastalabygging. Vér get- um ekki komið verzluninni í þetta horf, get- um ekkí velt af oss þessu margra alda bjargi, er á oss hvílir, og snúið verzluninni við úr vöruskiptaverzlun, skuldaverzlun og vitlausri verzlun yftr í peningaverzlun, skuld- lausa verzlur. og skynsamlega verzlun". Skyldi þetta vera rétt athugað. Þótt enginn haíi beinlínis hreyft þessu fyr, þá sannaf það ekki, að ómögulegt se að koma þessu í kring. En eigi dylst oss, að það eru miklir erfið- leikar á því, og margs að gæta, tnargir þrepskildir, sem á veginum yrðu í fyrstu, en sakir þess, að þessi grein er ekki rituð af verzlunarfróðum manni, og á ekki að vera nein verðlaunaritgerð í verzlunarfræði þá ætlum vér að lofa verzlunarsnillingum þessa lands að spreyta sig á verkefninu, því það er svo stórkostlega þýðingarmikið fyrir þjóð vora, að engin breyting á högum vorum hverju nafni sem nefnist, gæti komizt í hálf- kvisti við þessa, að því er þjóðþrif og þjóðarvelmegun snertir.Og það er margt ó- líklegra en það, að eigi verði mörg ár liðin af nýju öldinni, þá er verzlun vor er annað- hvort orðin { samræmi við annara siðaðra þjóða verzlun, að því leyti sem bent hefur verið á, eða að minnsta kosti komin á góð- an rekspöl í þá átt. En hversu má það verða? Hvað getur þingið fyrst og fremst gert í þessu efni? munu margir spyrja. Svarið liggur beint við. Þing- ið hlýtur að taka þetta málefni til alvarlegrar athugunar. Og það getur stigið stórt spor til að hrinda því á rétta leið, jafnvel svo stórt, að það geti samið lög um, að eptir einhvern ákveðinn tíma t. d. frá I. júlí 1901 skuli hin eiginlega vöruskiptaverzlun óheimil við verzlanir hér á landi, en öll kaup og öll sila á vörum fara fram gegn peningaborgun þ. e. aðsegja aðhönd selji hendi. Þetta gæti þingiðgert,hefðivafalaustfullaheimild til þess, en hitt er annað mál, að þingmenn mundu kynoka sér vi? að taka skrefið svona til fullnustu í einni svipan, afþví að þeir mundu óttast, að svona algerð breyting mundi hafa ýms óþægindi í för með sér í bili, en svo verður það jafnan, hvenær setn þetta verður gert, og tjáir ekki að horfa í það. Meðan verzlunaraðferðin er að komast í rétt horf, og menn eru að venjast nýja viðskiptalaginu, verða menn að búast við því, að allt gangi ekki sem liðlegast. En það mundi ekki líða á löngu, áður en viðskiptin yrðu greið og hagfelld á báðar hliðar og menn mundu skjótt sannfærast um hina miklu yfirburði og kosti þessarar verzlunar framyfir »gamla lagið«. Að verzlunaraðferðin geti breytzt smám- saman í þetta æskilega horf án allra afskipta löggjafarvaldsins, höfum vér enga trú á. Að vísu hefur verzlunin batnað mjög mikið, síð-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.