Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.03.1899, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 24.03.1899, Qupperneq 2
54 an um 1850, því verður alls ekki neitað, en vér erum enn langar leiðir frá því takmarki, er vér hljótum að keppa að : afnámi vöruskipta- veritlunarinnar, og það þarf að taka duglega í strenginn til að komast að því sem allra fyrst. Vér göngum að því vísu, að þingmenn heykist algerlega í hólmgöngunni við skulda- verzlunina, svo að þeir semji alls engin lög í þá átt, er fyr var á vikið. Oss kemur það ekki óvænt, þótt þeir fullyrði, að slíku verði ekki breytt með neinum lagafyrirmælum, eða þvingunarlögum, er þeir mundu kalla. En hinir góðu herrar mega samt vita, að þess eru dæmi, að það hefur verið gert einmitt í þessu efni og reynzt ágætlega, orðið hiutaðeigend- um til ómetanlegs hagnaðar og þroska, að þessi skrælingjaverzlun hefur verið afnumin og siðaðra manna verzlun komið í hennar stað, eins og hverjum manni hlýtur að liggja í augum uppi. En setjum nú svo, eins og búast má við, að þingið þori ekki einmitt að beita þessu ráði, sem bezt mundi hrífa, þá getur það farið annan veg, svo að eigi verði sagt að það hrapi að málinu. Það getur sett nefnd, skipaða verzlunarfróðum mönnum og öðrum hæfum mönnum utanþings, 7—10 að tölu, eða svo marga sem mönnum sýnist til að íhuga málið, undirbúa það og koma fram með ákveðnar tillögur í því fyrir fyrsta eða annað þing 20. aldarinnar. Þessir menn yrðu þá eins konar verzlunarráð, í smáum stíl á líkan hátt, eins og verzlunaráðaneyti þau, er' Englendingar kalla »Chambers of Com- merce« og nú eru komin á víðast hvar í öll- um helztu borgum Norðurálfunnar. Þessi verzlunarráð eru allgömul, einkum á Frakk- landi, því að þar voru þau stofnuð fyrst í byrjun 18. aldar, en hafa verið mjög endur- bætt á þessari öld. Fyrirkomulagi þeirra er svo háttað, að borgarstjórinn sjálfur velur fyrst helztu kaupmenn bæjarins, eigi færri en 9 ogekki fleiri en 21, sem kjörráð og er það valið til 6 ára, en þriðjungur þess end- urvalinn annaðhvort ár. Þetta kjörráð kýs svo menn í hið eiginlega verzlunarráð, aðal- lega bankamenn, kaupmenn og skipaeigend- ur og getur það verið mjög ijölmennt í stór- borgum. Hlutverk þessa verzlunarráðs t. d. á Frakklandi er að gefa stjórninni ráð og bendingar um málefni, er snerta iðnað og verzlunarviðskipti í héraði því, sem það er valið fyrir, eða hafa áhrif á verzlunarlöggjöf og vöruverð, að láta framkvæma verk, sem nauðsynleg eru til almenningshagnaðar, eða miðað geta til þess að auka verzlun og við- skipti, svo sem bygging skipakvía, dýpkun fljóta (til siglinga) járnbrautalagning o. s. frv. í þessum og þvílíkum efr.um krefst stjórnin jafnan ráða og leiðbeininga hjá þessu ráða- neyti. Á Bretlandi hinu mikla er elzta verzl- unarráðið frá 1783 (í Glasgov ) en verzlunar- ráðið í Lundúnum er nú talið hið þýðingar- mesta í öllu Bretaveldi. Það liggur í aug- nm uppi, hversu mikilsvert það er fyrirstjórn hvers lands að hafa slíkar stofnanir að bak- hjalli í allri verzlunarlöggjöf og verzlunar- framkvæmdúm. Hér þekkist auðvitað ekk- ert í þá átt. En eins og fyr er á vikið getum vér sjálfir myndað ofurlítinn vísi þess- arar stofnunar. Hér verður það að vera þingið, en ekki bæjarfógetinn, sem velur þetta „ verzlunarráð ". Vér verðum a ð hafa það fámennt og þurfum enga kjörmenn, þurfum ekki heldur að binda oss eingóngu við verzlunarstéttina. Þetta íslenzka »Chamber of Commerce«, sem alþingi ætti að skipa yrðiaðallega ráðanautur alþingis í sérstökum málum, einkum öllum iðnaðar- atvinnu- og verzlunarmálum. Það yrði að vera alíslenzkt, og vér erum sann- færðir um, að það gæti haft mikil og góð áhrif, skipað hinum skynsömustu og beztu mönnum af verzlunarstétt vorri o. fl. Það er í sjálfu sér undarlegt, að þing- inu skuli aldrei hafa hugsazt að fara þessa leið, þá er um vandamál hefur verið að ræða í verzlunarefnum, sem þingið vitanlega hef ur brostið þekkingu á. Nei, það hefur kom- izt hæst f því að setja einhverja milliþinga- nefnd, þá er það hefur verið í vandræðum, og til þess hafa þá optast verið valdir ein- hverjir þingmenn. Slíkar nefndir eru auð- vitað mjög þýðingarlitlar, og örþrifráða til- tæki af þinginu að seja þær. En skipaði þingið nokkra menn sem fast verzlunarráð, og veldi þriðjung þess annaðhvort ár, væri öðru máli að gegna. Það væri einhver mein- ing í því. Og í sambandi við þessa stór- felldu verzlunarbreytingu, er hér hefur verið stungið upp, á þá hlýtur næsta þing að fara einmitt þessa leiðina. Vilji það ekki eða treysti sér ekki til að ráðast á skrcelingja- og skuldaverzlunina (þ. e. vöruskiptaverzlun- ina) með l'óggj'ófnú þegar verður það að velja hœýa menn, er myndi fast verzlunarráð íslenzkt, íhugi málið rœkilega og verði eptirleiðis 7 áðanautar þingsins í öllwn verzlunar- iðn- aðar- og atvinnumálum, er þingið getur jafnan krafizt aðstoðar hjá, og Leitað ráða til, þá er þ'órf krefur. Um nokkur laun af almannafé til þessara manna getur ekki ver- ið að ræða, Heiðurinn einn, traust lands- manna og meðvitundin um það, að geta komið ýmsu góðu til leiðar í þarfir þjóðar sinnar, eru næg laun. Hér skal nú staðar numið að sinni. Þetta áttuekkiað veranema ófullkomnar bend- ingar í örfáum orðum, því að væri svona umfangsmikið mál rætt ítarlega mundi Þjóð- ólfur allur ekki hrökkva til þess, þangað til þing byrjar. En sérstaklega skorum vér á fulltrúa þjóðar vorrar að taka þetta málefni til alvarlegrar íhugunar, því að það er þess vert. Oss skiptir það engu, þótt einhverjir sérgæðingar þykist finna marga agnúa á þessu, af því að þeir hafa ekki orðið fyrstir til að hreyfa því. En vér vonum, að allir réttsýnir og skynsamir menn viðurkenni, að þetta séu bendingar í rétta átt, þótt þeim sé í mörgu ábótavant. Og færi svo, að þetta gæti vakið ýmsa til umhugsunar um þetta afarþýðingarmikla velferðarmál þjóðar vorrar, þá er vorum tilgangi náð, Skólaröð í Reykjavíkur Iærða skóla við 77iiðsvetrarþróf /8pp. VI. bekkur. 1. Guðmundur Benediktsson, Ingveldarstöðum 1 Skagafjarðarsýslu (200 J) 2. Henrik Erlendsson, Reykjavík (150). 1) Svigatölurnar aptan við nöfnin tákna upphæð námsstyrksins í krónum. I 4. bekk verður síðari hluti styrksins eigi veittur fyr en í mafmánuði næstk., svo að hjá piltum í þeim bekk, kemur aðeins fyrri hluti styrksins hér til greina. 3. Sigurður Kristjánsson, Reykjavík (175). 4. Kristján Linnet, Hafnarfirði (175). 5. Guðmundur Bjarnason, Þórormstungu í Vatns- dal, U7nsjónar7>wdur í bekknuTn (200). 6. Karl Torfason, Olafsdal (150). 7. Stefán Stefánsson, Grundarfirði (175). 8. Kristinn Björnsson, Reykjavík. q. Jón Brandsson, Kollsá í Hrútafirði (150). 10. Guðmundur Grímsson, Oseyrarnesi 1 Arnes- sýslu. 11. Sigurmundur Sigurðsson, Reykjavfk. 12. Jón O. Rósenkranz, Rvík. J3- Jún Jóhannsson, Rvík. 14. Sigurður Guðmundsson, Asum í Eystrihrepp- (100). V. bekkur. 1. Páll Sveinsson, Ásum í Skaptártungu (200). 2. Jón H. Stefánsson, Sauðárkrók. 3. Lárus Fjeldsteð, Hvítárvöllum. 4. Pál! Jónsson, Seglbúðum í Skaptafellss. (125)- 5. Jón H. Isleifsson, Rvík. (150). 6. Sveinn Björnsson Rvík. 7. Páll Egilsson, Múla í Biskupstungum, utu- sjónar/nadur við bœnir. (125). 8. Guðmundur Þorsteinsson, Rvík. 9. Sigurjón Markússon, Rvfk. 10. Lárus Halldórsson, Miðhrauni í Hnappadalss. utnsjónarTnaður í bekknu/n. (150) 11. Vernharður Jóhannsson, Rvfk. 12. Adolph Wendel, Þingeyri við Dýrafjörð. 13. Björn Magnússon, Hnausum í Húnavatnss.,. u/nsjónarmaður úti við. IV. bekkur. 1. Jón Ófeigsson, Rvík. (roo) 2. Jón Jónsson, Herríðarhóli í Holtum. 3. Skúli Bogason, Rvík. 4. Jóhann Sigurjónsson, Laxamýri. 5. Guðnumdur Einarsson, Flekkudal í Kjós. 6. Haukur Gíslason, Þverá í Dalsmynni. (75) 7. Gunnlaugur Claesen, Sauðárkróki. (25) 8. Sigurjón Jónsson, Seilu í Skagaf. (75) 9. Magnús Sigurðsson, Rvík. 10. Bjöm Lfndal Jóhannesson, Utibleiksstöðum f Húnavatnss. (75) 11. Guðmundur Jóhannsson, bróðir nr. 11. í 5 bekk. 12. Böðvar Kristjánsson, Rvík. 13. Jakob Möller, Blönduósi, umsjónarmaður í bekktiu/n. 14. Lárus Thorarensen, Stórholti í Dalasýslu. (25) 15. Böðvar Eyjölfsson, Árnesi í Strandasýslu. 16. Benedikt Sveinsson, Húsavík í Þingeyjarsýslu (5°) og i7.Sigurður Guðmundsson, Mjóadal í Húnavatnss), luku ekki prófi sökum veikinda. III. bekkur. 1. Þorsteinn Þorsteinsson, Rvík. (200) 2. Einar Arnórsson, Minna-Mosfelli 1 Árness.(2oo)- 3. Magnús Guðmundsson, Holti í Svínadal. (125) 4. Ólafur Björnsson, br. nr. 6 í V. b. 5. Jón Magnússon, Rvík. (150) 6. Halldór Jónasson, Eiðum. 7. Valdimar Erlendsson, Víkingavatni í Keldu- hverfi (125). 8. Björn Stefánsson, Auðkúlu f Húnavatnss. (25). 9. Björn Þórðarson, Móum á Kjalarnesi, umsjón- artnaður í bekknum. (75) 10. Sturla Guðmundsson, Rvík. 11. Bjarni Jónsson Rvík. (150) 12. Þórður Sveinsson, Geithömrum í Svínadal. (123 13. PéturBogason br. nr. 3. í IV. b. 14. Brynjólfur Björnsson, Bolholti í Rangárv.s. 15. Halldór G. Stefánsson, Rvík. 16. Eiríkur Stefánsson, bróðir nr. 8. 17. Vilhjálmur í’insen, Rvík. (25) 18. Sigurður Sigtryggsson, Rvík. 19. Sigvaldi Stefánsson, Rvík. 20. Jón Benedikts Jónsson, Fremri Arnardal í ísa- fjarðarsýslu. II. bekkur. 1. Jónas Einarsson (f bónda Jónssonar) frá Vopna firði. (100) njsveinn. 2. Gísli Sveinsson br. nr. 1. í V. b. (200)

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.